Fréttablaðið - 19.09.2008, Qupperneq 18
18 19. september 2008 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 601
3.854 +1,39% Velta: 11.441 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 6,63 +0,76% ... Atorka 4,84
-1,22% ... Bakkavör 22,50 -2,17% ... Eimskipafélagið 4,35 -8,61%
... Exista 5,61 -2,43% ... Glitnir 13,60 +0,33% ... Icelandair Group
20,30 +0,0% ... Kaupþing 682,00 +7,00% ... Landsbankinn 21,70
+0,55% ... Marel Food Systems 87,20 +3,90% ... SPRON 3,00 +0,10%
... Straumur-Burðarás 8,08 +0,25% ... Össur 91,40 +1,20%
MESTA HÆKKUN
CENTURY ALUMIN. 7,39%
ATL. PETROLEUM 6,12%
MAREL 4,68%
MESTA LÆKKUN
EIMSKIPAFÉLAGIÐ 8,61%
EXISTA 2,43%
BAKKAVÖR 2,17%
„Þetta er björgunaraðgerð í nafni
almannaheilla og til að varðveita
stöðugleika fjármálakerfisins,
segir Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra um samruna Lloyds
og HBOS í Bretlandi í gær, en við
hann varð til stærsti banki Bret-
landseyja, með nær þriðjungs
markaðshlutdeild.
Athygli vekur að Gordon Brown,
forsætisráðherra Bretlands, lýsti
því yfir á miðvikudagskvöld breska
ríkisstjórnin myndi beita sér fyrir
því að yfirtökusamningnum verði
hraðað í gegn án þess að til komi
tímafrek athugun þarlendra sam-
keppnisyfirvalda, enda gríðarlegir
hagsmunir í húfi til að varna því að
skoski bankinn verði gjaldþrota.
Markaðurinn sagði frá því á
þriðjudag að vaxandi óþreyju væri
tekið að gæta hér á landi eftir rann-
sókn Samkeppniseftirlitsins á sam-
runa Kaupþings og SPRON, ekki
síst í ljósi þess að gríðarstórir sam-
runar, til að mynda kaup Bank of
America á Merrill Lynch fjárfest-
ingabankanum, gangi í gegn á
klukkustundum og með velþókun
stjórnvalda þar í landi.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
sagði í viðtali við Markaðinn á dög-
unum, að vel væri hægt að hagræða
í bankakerfinu, til dæmis með sam-
einingu eða samruna fyrirtækja.
„Ríkisstjórnin mun stuðla að því
fyrir sitt leyti,“ sagði hann.
„Það er heimild fyrir þessu í
breskum lögum og einnig í íslensk-
um lögum, ef fjármálastofnun er á
leið í þrot. Ef sambærilegar
aðstæður kæmu upp hér þá ábyrgð-
umst við slíkar aðgerðir með sama
hætti,“ segir viðskiptaráðherra og
bætir við að sem betur fer hafi mál
af þessu tagi ekki komið upp hér á
landi.
Aðspurður um hvort athugun á
samruna SPRON og Kaupþings hafi
tekið of langan tíma, segir við-
skiptaráðherra ólíku saman að
jafna. „Þar er á ferðinni hefðbund-
inn samruni en ekki neyðaraðstoð.
Ég geri ráð fyrir að Samkeppnis-
eftirlitið vinni hratt og vel að mál-
inu, en það verður að svara fyrir
það.“
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, þekkir vel
til í fjármálaheiminum, en hann var
áður forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Hann segir að aðstæður nú á mörk-
uðum reyni mjög á stjórnvöld sem
hafi með fjármálamarkaði að gera.
„Þar skipta miklu máli hinir aug-
ljósu hagsmunir af stöðugu fjár-
málakerfi og það að almenningur
verði ekki fyrir skakkaföllum af
þroti einstakra banka,“ segir hann.
„Það vill hins vegar oft gleymast
í hita umræðunnar að almenningur
og fyrirtæki hafa einnig mikla
hagsmuni af virkri samkeppni á
fjármálamarkaði,“ segir Páll Gunn-
ar og tekur fram að við athugun
Samkeppniseftirlitsins á samruna
sé fyrir hendi svigrúm til að taka
tillit til alvarlegra erfiðleika í
rekstri einstakra fjármálafyrir-
tækja.
„Það er að sjálfsögðu eitt af því
sem litið er til við þær aðstæður
sem nú eru, það er ef samruna-
aðilar byggja málatilbúnað sinn á
því.“
Um þau samrunamál á fjármála-
markaði sem nú eru til umfjöllunar
segir Páll Gunnar að þau séu langt
á veg komin og Samkeppniseftirlitið
vænti þess að þau klárist vel innan
þess tímafrests sem lög kveða á
um í samrunamálum.
„Það er mikilvægt að viðkvæm
mál eins og þessi fái skjótan fram-
gang hjá stjórnvöldum og Sam-
keppniseftirlitið hefur reynt að
tryggja það. Mikið veltur hins
vegar á því að öll gagnaöflun gangi
greiðlega fyrir sig en því miður
reynist hún oft torsótt,“ bætir hann
við, en þess er skemmst að minnast
að Samkeppniseftirlitið ákvað að
beita Saga Capital dagsektum fyrir
að svara ekki spurningum um
markaðshlutdeild banka sem eftir-
litið setti fram vegna rannsóknar
sinnar á samruna Kaupþings og
SPRON. - bih
Risastórir samrunar renna í gegn víða um heim án afskipta samkeppnisyfirvalda:
Sama heimild til staðar í
íslenskum og breskum lögum
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
PÁLL GUNNAR
PÁLSSON
Líkur hafa aukist á að ítalska
flugfélagið Alitalia verði tekið til
gjaldþrotaskipta eftir að hópur
fjárfesta sem stjórnvöld höfðu
verið í viðræðum við dró kauptil-
boð sitt til baka á fimmtudag.
Ástæðan er andstaða verkalýðs-
félaga flugmanna og flugþjóna
sem sættu sig ekki við tillögur
fjárfestanna um kjaraskerðingar
og fjöldauppsagnir. Silvio
Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, hafði staðhæft að af samn-
ingum yrði, hvað sem liði afstöðu
verkalýðsfélaganna. Flugfélagið
var tekið til greiðslustöðvunar í
lok ágúst. Ítalska ríkið á 49,9 pró-
senta hlut í félaginu. Óttast er að
20.000 manns muni missa vinn-
una við hrun Alitalia.
- msh
Alitalia í þrot
Aðfaranótt fimmtudags ákváðu
stærstu seðlabankar heims að dæla
180 milljörðum dollara á gjaldeyris-
skiptamarkaði með dollara, en
skammtímamarkaður með dollara
hafði frosið í kjölfar hruns fjárfest-
ingarbankans Lehman Brothers og
tryggingafélagsins AIG. Vextir á
millibankamarkaði með dollara
þrefölduðust, og hafa aldrei verið
hærri, að sögn Wall Street Journal.
Auk Seðlabanka Bandaríkjanna eru það
seðlabankar Kanada, Japan, Evrópu, Eng-
lands og Sviss sem standa að þessari aðgerð,
en tilgangur hennar er að tryggja að fjár-
málastofnanir hafi aðgang að nægilegu
magni dollara. Bankar hafa hamstrað doll-
ara og treysta sér ekki til að lána hver
öðrum.
Á sama tíma og peningamarkaðir hafa
frosið hafa fjárfestar flúið í örugg skjól svo
sem bandaríska ríkisvíxla, en verð
þeirra nú er hið hæsta síðan eftir
seinna stríð. Ávöxtunarkrafa á
þriggja mánaða víxlum féll í 0,06
prósent og hefur aldrei verið lægri.
Vandi fjármálakerfisins er skortur
á trausti og óvissa um stöðu fjár-
málastofnana, enda hafa atburðir
síðustu daga sýnt að stærstu og öfl-
ugustu fjármálastofnanir heims eru
ekki ónæmar fyrir fjármálakrepp-
unni.
„Gagnkvæmt traust virðist gjörsamlega
horfið af mörkuðum,“ sagði Jim O‘Neill,
aðalhagfræðingur Goldman Sachs í London,
í viðtali við Bloomberg. Hagfræðingar hafa
bent á að aðgerð seðlabankanna sé því fyrst
og fremst skamtímaaðgerð, enda sé undir-
liggjandi vandi slæm eiginfjárstaða margra
bandarískra banka, ekki skortur á skamm-
tímafjármögnun. - msh
Seðlabankar snúa bökum saman
BEN BERNANKE
„Við höfum afskrifað allar ferðir
með Futura Airways,“ segir Helgi
Jóhannsson, stjórnarformaður
Ferðaskrifstofu Íslands, sem
rekur Úrval-Útsýn. Helgi undrað-
ist bannið, sem hefði getað kippt
fótunum undan hvaða félagi sem
er. Í síðustu viku var unnið að því
hörðum höndum að leita nýrra
aðila til að annast farþegaflug með
íslenska ferðalanga eftir að
spænsk flugmálayfirvöld settu
Futura í tveggja daga flugbann í
síðustu viku.
Flugvélar frá spænska flug-
félaginu Iberworld, Iceland
Express, Icelandair og breska
flugfélaginu Astreus, sem heyrir
undir Northern Travel Holding,
hlupu undir bagga í síðustu viku
og munu þau tvö síðasttöldu fljúga
fyrir Úrval-Útsýn áfram. - jab
Hættir með Futura
„Þetta eru fjarri því að vera tapaðir
peningar,“ segir Ólafur Teitur
Guðnason, fjölmiðlafulltrúi
Straums.
Íslensku viðskiptabankarnir
fimm eiga 182,6 milljónir evra,
jafnvirði tæpra 25 milljarða króna,
kröfu inni hjá fjárfestingarbankan-
um Lehman Brothers, samkvæmt
upplýsingum Fjármálaeftirlitsins,
sem birtar voru í gær. Þetta sam-
svarar 1,8 prósentum af heildar-
eiginfjárgrunni bankanna.
Að sögn Fjármálaeftirlitsins hafa
íslensku bankarnir enga sérstöðu í
málinu enda hafi stærri erlendir
bankar upplýst um kröfur á banda-
ríska bankann.
Af upphæðinni á Straumur lang-
stærstan hlut, 100 milljónir evra.
Það jafngildir 13,6 milljörðum
króna miðað við lokagengi evru í
gær. Stærstu liðir kröfunnar er
tryggingarinnistæða upp á 48,2
milljónir evra og hlutabréf upp á
16,8 milljónir.
Straumur lýsti því í gær að hann
eigi enga beina áhættu vegna
bandaríska fjárfestingarbankans,
sem fór fram á greiðslustöðvun á
mánudag. Áhættan liggi hins vegar
gagnvart Lehman Brothers Inter-
national Europe í Bretlandi, sem
var miðlari og gagnaðili Straums í
viðskiptum með afleiður.
Straumur sagði í gær ekki liggja
fyrir hvenær né hvernig farið verði
með kröfur á hendur Lehman
Brothers Holding og tengdum
félögum né hvort og þá hve mikið
bankinn gæti þurft að afskrifa
vegna þessa.
Ekki fékkst uppgefið í gær
hvernig kröfurnar skiptast á hina
bankana þegar leitað var eftir því
að öðru leyti en því að þær væru
óverulegar. Að sögn Agnars Hans-
sonar, forstjóra Icebank, er hlutur-
inn smávægilegur og felst krafan
nær alfarið í ábyrgð fyrir þriðja
aðila í gegnum Lehman Brothers.
Fjármálaeftirlitið benti á það í
gær að um sé að ræða nær ein-
göngu skuldabréfakröfur eða ígildi
þeirra (senior debt) en ekki áhættu
í formi hlutabréfa eða víkjandi
krafna. Sérstaklega er tekið fram
að kröfurnar eru að nokkru leyti á
félög sem ekki eru í
greiðslustöðvun, en
tengjast bandaríska
Lehman Brothers. Því
megi vænta að takist
að innheimta hluta
krafnanna.
jonab@markadurinn.is
HÖFUÐSTÖÐVAR LEHMAN BROTHERS Margir stórir erlendir bankar hafa upplýst um
kröfu á Lehman Brothers og tengd félög. Íslensku bankarnir hafa því enga sérstöðu í
málinu, að sögn Fjármálaeftirlitsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
ÓLAFUR TEITUR
GUÐNASON
Bankar bíða örlaga Lehmans
Íslensku viðskiptabankarnir eiga kröfu hjá Lehman Brothers upp á 25 milljarða króna.
Fjármálaeftirlitið telur líkur á að bönkunum takist að innheimta hluta krafnanna.
Miele þvottavél verð frá kr.:
109.995
Sportlínan
frá Miele
Hreinn sparnaður
A B
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur