Fréttablaðið - 19.09.2008, Síða 33

Fréttablaðið - 19.09.2008, Síða 33
19. september föstudagur 7 A: Að bíða. Hverju myndirðu sleppa ef þú yrðir að spara: H: Ekki kaupa óþarfa. A: Ég myndi segja upp Morgun- blaðinu. Draumabíllinn minn er: H: Mercedes Benz CLK 55 AMG. A: BMW 530 full loaded. fiskur, kjúklingur og lambakjöt. Svo skýtur maður próteindrykkjum inn á milli og borðar mikið af græn- meti og ávöxtum. Aðal atriðið er að raða þessu rétt niður á daginn, hafa þrjá klukkutíma á milli mála og hafa stærri máltíðir í kringum æfingarnar. Maður þarf náttúrlega að borða í samræmi við það sem maður er að gera, en ég hef haft það sem reglu að fara aldrei út í of miklar öfgar.“ ENGINN SLAGSMÁLA- HUNDUR Nýlega var fjallað um erjur í fjöl- miðlum sem upp komu milli Arnars og nágranna hans, eftir að Arnar braut bílrúðu til að færa bíl sem hafði verið lagt í einkastæði hans. Aðspurður segir hann of mikið hafa verið gert úr málinu. „Ég hef nú alltaf verið talinn vera með mikið jafnaðargeð og rólegur að eðlisfari. Þetta mál var blás- ið upp þar sem ég er þekkt andlit og gerð úr þessu einhver æsifrétt. Blöðin birtu myndir af mér berum að ofan undir titlinum „Arnar Grant – ræðst á bíl nágrannans“. Það sjá það allir að auðvitað átti atvikið sér ekki stað með slíkum hætti. Miðað við það sem ég hef heyrt í kringum mig er annar hver maður í einhverju stappi við ná- granna sína, hvort sem það er út af sameigninni eða kvartanir vegna hávaða. Héraðsdómur hefur kom- ist að niðurstöðu í málinu og tel ég því hér með lokið. Niðurstaðan er sú að ég greiði 20.000 króna sekt í ríkissjóð en maðurinn ber sitt tjón sjálfur.“ Finnið þið fyrir pressu að þurfa alltaf að vera í góðu formi?„Mér finnst það engin pressa, heldur líður mér vel. Við erum bæði tvö þannig að við reynum að lifa eftir því sem við segjum,“ segir Dísa og Arnar bæti því við að fólk þurfi að finna sig í þessu. „Þegar maður finnur þetta jafnvægi er maður í góðum málum og þá er ekki aftur snúið. Þá þarf maður aldrei að neita sér um neitt og þótt maður lendi kannski í matarboði í miðri viku þarf maður ekkert að borða minna, ef maður er ekki í veislum á hverjum degi og er að hreyfa sig og borða skynsamlega flesta daga. Ef maður lítur á þetta sem verð- laun og er stanslaust að borða verðlaunin er ekki til neins að vinna,“segir hann. „Verðlaunin eru bara að finna þetta jafnvægi á sál og líkama,“ segir hún og brosir. „ Ég hélt mína fyrstu ljósmynda-sýningu í Gallerí Fótógrafí síð- astliðið haust. Þá var sænskur ljósmyndari staddur á landinu og var svo ánægður með mynd- irnar að hann skildi eftir síma- númerið sitt í gestabókinni. Ég hringdi svo í hann og hann kom mér í samband við menningar- svið borgarinnar Jönköping sem skipulagði þrjár sýningar,“ segir Karl R. Lilliendahl, kvikmynda- tökumaður og ljósmyndari, sem verður með ljósmyndasýningu í þremur borgum í Svíþjóð frá okt- óber til desember. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Karl heldur ljós- myndasýningu erlendis. „Allar myndirnar á sýningunni eru teknar í Bologna, Flórens og Róm á Ítalíu. Við fjölskyldan bjuggum á Ítalíu í níu mánuði á meðan konan mín var í masters- námi, en ég tók feðraorlofið mitt á meðan og sá um sjö mánaða son okkar sem var mikið með mér í myndatökunum. Ég tók myndirn- ar af fólki úti á götu og hver mynd segir sína sögu, en sýningin ber heitið Uno þar sem það er aðeins ein manneskja á hverri mynd,“ útskýrir Karl. „Sýningin í Svíþjóð verður færð milli staða og verður sú sama og ég var með hérna heima, en ég bætti við nokkrum myndum,“ segir Karl, sem er auk þess önnum kafinn við þáttagerð hjá Ríkissjón- varpinu um þessar mundir, en hann framleiðir og klippir Sunnu- dagsþætti Evu Maríu Jónsdóttur. Aðspurður segist hann þó ætla að sinna ljósmynduninni meira í nánustu framtíð. „Sýningarnar úti eru bara fyrsta skrefið og ég stefni á að taka fleiri myndir, bæta við og sýna á fleiri stöðum,“ segir Karl að lokum. - ag Karl R. Lilliendahl, kvikmyndatökumaður og ljósmyndari: Heldur þrjár sýningar í Svíþjóð Karl R. Lilliendahl er á leið til Jönköping í Svíþjóð þar sem hann mun halda þrjár ljósmyndasýningar. Hér að ofan eru tvö af verkum hans og ein mynd af honum sjálfum á bak við linsuna. Vatnsstígur 3, 101 Reykjavík, ph: 5520990 www.muntheplussimonsen.com Vetur 2008

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.