Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 2
2 24. september 2008 MIÐVIKUDAGUR VIÐSKIPTI Frá september á næsta ári og fram í júní 2010 koma til endurskoðunar vextir 5.500 íðbúðalána. Í kynningu á nýrri hagspá Landsbankans sagði Kristrún Tinna Gunnars- dóttir hagfræð- ingur líklegt að greiðslubyrði stóraukist. Bankinn spáir um leið 10 prósenta verðlækkun fasteigna þar til sá markaður taki við sér á ný fyrri hluta 2010. Um leið kemur fram að greiðslubyrði heimila verði á næsta ári léttari en árið 2003 áður en uppgangur hófst hér á fasteignamarkaði. Þótt heimilin skuldi meira þá séu ráðstöfunar- tekjur líka meiri, auk þess sem meðalvextir séu lægri og lánstími lengri. - óká / Sjá Markaðinn FÉLAGSMÁL Steingrímur Páll Vid- erö, fjögurra ára þroskahamlaður og einhverfur drengur úr Mosfells- bæ, hefur í tvígang verið skilinn eftir einn og yfirgefinn af starfs- mönnum Ferðaþjónustu fatlaðra. Steingrímur getur ekkert tjáð sig. Martin Viderö, faðir Steingríms, segir mildi að ekki hafi farið illa. Martin segir sárt að vita til þess að sonur sinn sé skilinn eftir á stöð- um fjarri þeim áfangastað sem hann átti að vera sendur á fyrir það fyrsta og þess ekki gætt að hann komist í réttar hendur. Það sé ólíð- andi meðferð, sérstaklega þegar börn eiga í hlut. „Það gengur ekki að barnið okkar sé ítrekað skilið eftir einhvers staðar niðri í bæ, eitt og yfirgefið, því starfsmennirnir hafa ekki fyrir því að finna leikskólann hans,“ segir Martin. Í stað þess að leita betur fóru starfsmenn ferðaþjón- ustunnar tvívegis með drenginn í Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra á Háaleitisbraut. Í annað skiptið var honum fylgt inn en bílstjórinn gat ekki sagt starfsfólki Styrktar- félagsins hvað drengurinn héti. Slík vinnubrögð segir Martin lýsa miklu fálæti í garð lítils barns. Seinna skiptið hafi þó verið mun alvarlegra en þá skildi bílstjórinn Steingrím eftir í anddyri Styrktar- félagsins. „Hann getur ekkert tjáð sig en þykir spennandi að fara út og skoða. Hann hefði ekki þurft að hafa mikið fyrir því að ganga út um sjálfvirku dyrnar sem þarna eru. Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda hvað hefði getað gerst,“ segir Martin. Sem betur fer veitti starfsfólk Styrktarfélagsins drengnum athygli og sá til þess að hann kæmist í réttar hendur. Martin og Júlíana Steingríms- dóttir, móðir drengsins, furða sig einnig á að hann sé látinn sitja í framsæti bíla ferðaþjónustunnar. „Ég hélt að lög í landinu bönnuðu slíkt,“ segir Martin. Hann segir að starfsmenn hafi tjáð honum að stundum væri fullorðið fólk meðal farþega sem gæti reynst barninu hættulegt og því mætti hann ekki sitja aftur í. Ekki hafi komið til greina að sækja Steingrím á öðrum bíl. Unnur Erla Þóroddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Mosfellsbæ, segir athugasemdir sem þessar litnar alvarlegum augum og reynt yrði að finna lausn á málinu. Hún benti á að Mosfellsbær væri með samning við Ferðaþjónustu fatl- aðra og Gunnar Torfason svaraði fyrir það fyrirtæki. Hann vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið hafði samband. karen@frettabladid.is Erum með til leigu stórglæsileg sumarhús í Borgarfi rði skammt frá Húsafelli í skógi vöxnu landi með miklu útsýni. Heitir pottar. Hentugt fyrir stéttafélög, fyrirtæki, einstaklinga eða stofnanir. Nánari uppl í síma 695-9600 Jóhannes, hringir þessi maður bara eitthvað út og suður? „Já. Hann er greinilega áttavilltur og þarf á kompási að halda.“ Jóhannes Karl Kristjánsson hefur ítrekað fengið hótunarsímtöl frá ókunnum manni sem tekur Jóhannes í misgrip- um fyrir nafna hans, Jóhannes Kristján Kristjánsson úr fréttaskýringaþættinum Kompási. STJÓRNMÁL, BRUSSEL Það ætti að ráðast í dag hvort mögulegt sé fyrir Ísland að taka upp evru án þess að ganga í Evrópusamband- ið. Evrópunefnd stjórnvalda hittir í dag Joaquín Almunia, fram- kvæmdastjóra efnahags- og peningamála Evrópusambands- ins. Verða evrumál fyrst og fremst á dagskrá fundarins. Þegar hafa fengist svör frá Brussel um að hvorki sé vilji meðal stjórnmálamanna né embættismanna til að ríki taki upp evru án ESB-aðildar, en svör um hvort það sé lagalega mögulegt liggja enn ekki fyrir. - bþs Evra án ESB-aðildar: Svör ættu að fást í dag Einhverfur drengur skilinn eftir einn Fjögurra ára drengur hefur í tvígang verið skilinn eftir í reiðileysi fjarri áfanga- stað sínum af Ferðaþjónustu fatlaðra. Faðir drengsins segir mildi að ekki hafi farið verr. Komið sé fram við son sinn eins og dauðan hlut en ekki lítið barn. Hjörtur Grétarsson, formaður Umsjónarfélags einhverfra, segist gáttaður að heyra af því að fjögurra ára einhverfur drengur hafi verið skilinn eftir einsamall án þess að bílstjórar Ferðaþjónustu fatlaðra hafi komið honum í réttar hendur. „Það hljóta allir að verða gáttaðir þegar þeir heyra að svona sé komið fram við barn hvort sem það er einhverft eða ekki,“ segir hann. Hjörtur segist ekki hafa fengið til sín kvörtun vegna málsins en berist hún muni félagið beita sér fyrir úrbótum í málinu. Umsjónarfélag einhverfra: GÁTTAÐUR Á ÞESSARI MEÐFERÐ FEÐGARNIR Martin segir styrktarmóður sonar síns, hafa hitt naglann á höfðið þegar hún sagði að heimsendar pitsur fengju betri þjónustu en Steingrímur litli. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N KRISTRÚN TINNA GUNNARSDÓTTIR Húsnæðislán í endurskoðun: Greiðslubyrði sögð stóraukast LÖGREGLUMÁL Ung kona sem varð vitni að fólskulegri árás karlmanns á vinkonu sína í miðborg Reykja- víkur um síð- ustu helgi furðar sig á viðbrögð- um lögreglu. „Þegar við erum að ganga að bílnum kemur að okkur útlend- ingur sem talar mjög dónalega til okkar,“ segir Kristín María Birgisdóttir, um aðdraganda árás- arinnar. Hún segir eina vinkvenna sinna hafa beðið manninn að hafa sig á brott. Orðum hennar svaraði hann með því að hrækja á hana. Sú sem stóð næst manninum hafi ósjálfrátt svarað í sömu mynt. „Þá stökk hann upp og sparkaði eins og fótboltamaður að taka bolta í loft- inu beint í gagnaugað á henni,“ segir Kristín. „Fyrstu viðbrögð okkar voru að hringja í neyðarlínuna, þaðan var okkur gefið samband við lögregl- una á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hún. Ekki var farið fram á lýsingu á manninum heldur hafi þær þurft að biðja um að fá að gefa hana. Þá hafi þeim ekki verið boðin aðstoð. Vinkonan sem varð fyrir árásinni hafi borðið sig vel þótt hún hefði höfuðverk. Þær hefðu þó ekki verið tilbúnar að sætta sig við viðbrögð lögreglu og því talað við lögreglu- þjón sem staddur var í miðbænum og aftur lýst manninum. Daginn eftir hafi þær svo grennslast fyrir um málið en þá hafi komið í ljós að það var hvergi skráð. „Hvernig er hægt að halda tölfræði yfir árásir ef þær eru ekki skráðar skipulega?“ spyr Kristín. Þá bendir hún á þá staðreynd að fólk hafi látist af minni höggum. Hún undri sig því á að fólki sé ekki boðin aðstoð verði það fyrir árás eða að reynt sé að hafa upp á árás- armönnum. Hörður Jóhannesson, aðstoðar- lögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í gær að málið væri í athugun. - kdk Maður sparkaði í höfuð ungrar konu í miðbæ Reykjavíkur: Lögregla sinnti hvorki árás né skráði KOMU EKKI TIL AÐSTOÐAR Lögreglan er sökuð um slæleg vinnubrögð. KRISTÍN MARÍA BIRGISSDÓTTIR ORKUMÁL „Gallinn er sá að það er enginn til að taka við tilboðum,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sem ásamt Geysi Green Energy vill kaupa 10 prósenta hlut í Hitaveitu Suður- nesja. Orkuveita Reykjavíkur samdi í fyrra við Hafnarfjarðarbæ um kaup á 15 prósenta hlut í Hita- veitu Suðurnesja (HS) en sam- keppnisyfirvöld úrskurðuðu síðan að Orkuveitan mætti ekki eignast hlutinn. Orkuveitan vill því að við- skiptin gangi til baka en Hafnar- fjarðarbær vill að þau gangi eftir og leitar til dómstóla til að fá við- urkennt að Orkuveitan eigi að greiða bænum umsamda sjö milljarða króna. Reykjanes- bær á tæplega 35 prósenta hlut í HS og Geysi Green Energy (GGE) á 32 pró- sent í fyrirtæk- inu. Sett hefur verið fram tilboð fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags í sameiginlegri eigu Reykjanes- bæjar og GGE um að kaupa 10 prósent af hinum umdeilda 15 prósenta hlut. Árni Sigfússon segir að boðist sé til að kaupa hlut- inn á sama gengi og í upphaflegu viðskiptunum. Hafnarfjarðarbær segist hins vegar ekki eiga hlut- inn til að selja og Orkuveitan seg- ist ekki mega eiga hann og því ekki geta selt hann. Þetta stað- festa Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnafirði og Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnformaður Orku- veitunnar. „Svo virðist sem hvorugur vilji eiga og enginn geti selt. Þá fæ ég ekki séð að við getum leyst úr málinu og þeir verða bara að eiga þetta,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri GGE. - gar Reykjanesbær og Geysir Green bjóða í umdeildan hlut í Hitaveitu Suðurnesja: Enginn vill taka við milljarðatilboði LÖGREGLUMÁL Konu sem hneppt var í gæsluvarðhald vegna mikils magns fíkniefna sem fannst við húsleit á Sauðárkróki um helgina hefur verið sleppt. Samkvæmt lögreglu telst málið upplýst. Hald var lagt á 450 grömm af kannabisefnum og tólf grömm af amfetamíni við húsleitina. Er það mesta magn fíkniefna sem lögreglan á Sauðárkróki hefur gert upptækt í einni aðgerð. Konan hefur viðurkennt að hafa ætlað efnin til sölu á Norðurlandi, auk hluta þeirra til einkanota. Alls voru fjórir aðilar hand- teknir í tengslum við málið. - kg Fíkniefni á Sauðárkróki: Fíkniefnamálið talið upplýst LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur hefur staðfest farbann yfir tveimur Rúmenum sem grunaðir eru um að hafa reynt að svíkja út fé á fjölmörgum stöðum á Suður- og Vesturlandi í byrjun september. Rúmenarnir, sem voru þrír saman, eru sakaðir um að hafa farið í banka, pósthús og verslanir og reynt að svíkja út fé með því að segjast vilja skipta seðlum en hætt svo við og tekið þá meira til sín af peningum en þeim bar. - gar Meint rúmenskt þjófagengi: Seðlasvindlarar settir í farbann ÁRNI SIGFÚSSON LÖGREGLUMÁL Jóhann R. Bene- diktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, mun segja starfi sínu lausu frá og með næstu mánaðamótum, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Þrálátur orðrómur hefur verið uppi um að Jóhann sjái sér ekki fært að gegna starfi sínu áfram. Jóhann staðfestir ekki að hann hyggist segja upp. Hann hefur boðað til starfsmannafundar í dag. „Þar verða viðkvæm mál rædd, sem ég vil að starfsfólk heyri frá mér en ekki í fjölmiðl- um,“ segir Jóhann. Dómsmálaráðherra hefur tilkynnt að starf Jóhanns verði auglýst laust til umsóknar. - kg Löggæslan á Suðurnesjum: Jóhann R. segir upp störfum LÖGREGLUSTJÓRINN Jóhann R. fundar með starfsmönnum í dag. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.