Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER MARKAÐURINN „Það deyr enginn af fjármála- kreppu. Fuglaflensa og spænska veikin eru miklu hættulegri,“ segir sagnfræðingurinn Viggó Ásgeirsson, markaðsstjóri Landsbankans. Viggó hóf nám í sagnfræði við Háskóla Ís- lands fyrir rétt rúmum áratug en tók fjölmörg hliðarskref, líkt og lenska er hjá sagnfræðinem- um, áður en hann útskrifaðist í fyrrahaust. Hann er nú í MBA- námi við Háskólann í Reykja- vík, á öðru ári, samhliða starfi sínu hjá bankanum. Viggó flyt- ur erindið „Óttinn við sjúkdóma: Spænska veikin og fuglaflensan“ í hádegisfyrirlestri Sagnfræð- ingafélagsins í lok október. Yf- irskrift fyrirlestraraðarinnar, sem hófst um miðjan mánuðinn, er: Hvað er að óttast? B A N K A H Ó L F Ekkert að óttast? Breskur gerðardómur komst að þeirri niðurstöðu í gær að knatt- spyrnumaðurinn Carlos Tevez hafi verið ólöglegur þegar hann spilaði með knattspyrnufélaginu West Ham á þarsíðasta leiktíma- bili og beri félaginu að greiða Sheffield United skaðabætur. Bótaupphæðin hefur ekki verið ákveðin en Sheffield Un- ited krefst 30 milljóna punda, jafnvirði 5,2 milljarða íslenskra króna. Annar gerðardómur mun fjalla um upphæðina. Sheffield United hélt því fram að Tevez, sem var á mála hjá íranska umboðsmanninum Kia Joorabchian, hafi verið ólögleg- ur leikmaður innan raða West Ham en bjargað liðinu frá falli úr Úrvalsdeildinni á kostnað Sheffi- eld United. Tevez kom til liðsins rétt áður en Björgólfur Guðmunds- son keypti félagið ásamt Eggerti Magnússyni síðla árs 2006. Ás- geir Friðgeirsson, varastjórnar- formaður West Ham, vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir.is leitaði eftir því í gær enda ætti seinni gerðardómur eftir að fjalla um málið. - jab TEKIST Á UM BOLTANN Breskur gerð- ardómur segir Carlos Tevez hafa verið ólöglegan þegar hann forðaði West Ham frá falli í Úrvalsdeildinni í fyrra. Tevez var ólöglegur Söguleg skáldsaga um framtíð þjóðar Allt sem gerst hefur, getur gerst og allt sem getur gerst, gerist – í tímans eilífu elfu. VÁFUGL NÝ Í SLEN SK S KÁLD SAG A Útgá fuda gur 16. o któb er 20 08 — F yrsta ská ldsa ga h öfun dar —

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.