Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 46
30 24. september 2008 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. helminguð, 6. ólæti, 8. fugl, 9. stígandi, 11. frú, 12. klifra, 14. dvaldist, 16. í röð, 17. hrópa, 18. úði, 20. í röð, 21. sleit. LÓÐRÉTT 1. leikur, 3. málmur, 4. lófalestur, 5. skip, 7. verund, 10. sigti, 13. útsæði, 15. bannhelgi, 16. skepna, 19. tvíhljóði. LAUSN „Ekki er nú miklu að fletta ofan af. Þetta er eitthvert daufasta sakamál sem ég hef kynnst á ævinni. Það verður ekki samin sjónvarpssería um þetta,“ segir Magnús Kjartansson tónlistar- maður. Nýlega fór Magnús með lagið sitt „Tölum saman“ við texta Vil- hjálms Vilhjálmssonar á útvarps- stöðvar og var kynnt sem áður óþekkt upptaka með hinum ást- sæla Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Var það frumflutt með viðhöfn á Bylgjunni og skömmu síðar í Morgunþætti Rásar 2. „Það var þar sem hún Sigríður Pétursdótt- ir, sem er með kvikmyndaþætti á Rás 1, heyrði lagið. Og hringdi í mig,“ segir Ólafur Páll Gunnars- son, útvarpsmaður á Rás 2. „Hún hafði verið að keyra með syni sínum og heyrði þá Ísleif Þór- hallsson og Magnús kynna lagið. Þegar það var svo spilað gat hún sungið með eins og ekkert væri. Sonur hennar spurði: Hvernig getur staðið á því að þú kannt lagið þegar verið er að frumflytja það? Hún fór að grufla í minni sínu og hélt að þetta væri hugs- anlega lag með Evu, Ernu og Evu.“ Rannsóknarútvarpsmaðurinn Óli Palli fór á stúfana og komst að því að ekki er um áður óþekkt lag að ræða heldur kom lagið „Tölum saman“ út árið 1979 á plötu Brunaliðsins, Útkall. „Ég er búinn að fá hámenntaða tónlist- armenn til að hlusta á þetta með mér. Eina stúlku úr blásarasveit Bjarkar hvorki meira né minna. Og þetta er sama lagið. Textinn er ekki sá sami. Á Brunaliðsplöt- unni er textinn eftir Magga. En það er verið að fjalla um nákvæm- lega það sama: Par sem er að tala um að það skipti máli að þau tali saman. Annars deyr ástin. Pálmi og Eva syngja,“ segir Óli Palli sem ætlar að spila lögin í þætti sínum Popplandi milli níu og tíu í dag. Magnúsi, sem var aðalspraut- an í Brunaliðinu sáluga, þykir sannast sagna ekki mikið til koma. „Þetta var vitað mál frá upphafi. Að allir sem ættu plöt- una „Útkall“ myndu kannast við lagið. En þetta er nýtt með Villa. Það er það sem máli skiptir. Ég var búinn að gleyma þeim upp- tökum svo mjög að við gáfum það út með nýjum texta. Þó að þetta hefði verið lagið „Bláu augun þín“ þá hefði ég kynnt það alveg eins. Það er flutningur Vilhjálms sem skiptir öllu máli í þessu sam- bandi,“ segir Magnús Kjartans- son – sem er á því að þetta sé heldur dauflegt skúbb. jakob@frettabladid.is MAGNÚS KJARTANSSON: DAUFASTA SAKAMÁL SEM ÉG HEF KYNNST Nýtt lag Villa Vill á plötu Brunaliðsins árið 1979 MAGNÚS KJARTANSSON Hefði kynnt lagið á sama hátt þótt um væri að ræða „Bláu augun þín“ – söngur Villa sé það sem hér skipti máli. ÓLI PALLI Syni Sigríðar Pétursdóttur þótti sérkennilegt að mamman kynni lagið þegar það var frumflutt. „Ég féll í stafi yfir flutningi þeirra þegar þeir spiluðu á rússneskri menningarhátíð í Salnum í hitti- fyrra. Þá kviknaði sá draumur að vinna með þeim og nú tveimur síðar rættist hann,“ segir Sigrúm Hjálmtýsdóttir söngkona, betur þekkt sem Diddú, um rússneska kvartettinn Terem. Sigrún kom nýverið heim frá Pétursborg þar sem hún tók upp efni fyrir vænt- anlega plötu við undirleik Terem sem er ástsælasti spilakvartett Rússlands, en í apríl síðastliðnum söng hún með þeim í 6.000 manna sal í Moskvu, á tónleikum sem var sjónvarpað út um allt Rússland. „Þeir eru algjörar þjóðhetjur í sínu heimalandi og opnuðu fyrir mér leið inn í helgidóm Rússlands. Ég var hjá þeim í hálfan mánuð í maí við æfingar og upptökur, en við tókum meðal annars upp lög eftir Sigfús Halldórsson, Freymóð Jóhannsson og Magnús Blöndal Jóhannsson að þeirra ósk. Síðan tókum við einnig upp rússneskt, ítalskt og spænskt lag, en öll hafa þau sama karakter og þetta er svona suðræn sígaunatónlist,“ útskýrir Sigrún. Á döfinni eru tvennir tónleikar hjá Sigrúnu í Rússlandi, auk fleiri tónleika með Terem á næsta ári. Aðspurð segist hún kunna mjög vel við sig þar í landi. „Manni er tekið svo opnum örmum og finnur að maður er alls staðar velkomin. Það er alveg sérstakt andrúmsloft í þessu landi og náttúrlega miklar öfgar í mannlífinu, en það er margt sem maður sér og fær að kynnast sem er mjög örvandi,“ segir Sigrún að lokum. - ag Diddú tekur ástfóstri við Rússland SYNGUR SUÐRÆNA SÍGAUNATÓNLIST Plata Diddú er væntanleg í októberbyrjun, en kvartettinn Terem mun koma til landsins og spila með henni á tónleikum í Salnum í nóvember. Hann varð forviða viðskiptavinur bensínstöðvar nokkurrar í Borg- arnesi þegar inn komu á þriðja hundraðinu þrír menn á mánudag um kvöldmatarleytið sem spurðu móðir og másandi afgreiðslumann- inn hvort ekki væri Stöð 2 í boði á skjánum? Fyrir hópnum fór idol- stjarnan fyrrverandi Kalli Bjarni og þegar skipt var yfir á Stöð 2 var akkúrat Kompásþátturinn um handrukkarann Benna Ólsara að hefjast og skýrðist þá áhugi þremenning- anna á því að missa ekki af neinu sem þar var greint frá. Viðburðafyrirtækið 2BC, þar sem fer fyrir Klaufinn og trymbillinn góði Birgir Nielsen, er síður en svo með hangandi haus þrátt fyrir fallandi gengi íslensku krónunnar. Þeir hafa verið í sambandi við hljómsveitina Red Hot Chili Peppers um að hún komi og haldi tónleika. Eitthvað er rólegt hjá RHC um þessar mundir en þegar boltinn fer af stað er aldrei að vita nema einn viðkomustaður þeirra við kynningu næstu plötu verði Ísland. Hestamönnum fer snarfjölgandi og horfa margir öfundaraugum til Helga Björnssonar sem þótti sýna ótrúleg viðskiptaleg klókindi með því að höfða sérstaklega til þeirra með síðustu plötu sinni sem rauk beint í gullið. En það þýðir svo sem ekki að bjóða hestamönnum uppá hvað sem er. Laufskálaréttin, stærsta hestamannaréttin, verður 29. þessa mánaðar og þá er að sjálfsögðu slegið upp réttardansleik. Hljómsveitin Von leikur fyrir dansi en við það tækifæri koma fram með hljómsveit- inni stórstjörnurn- ar Bó og Stebbi Hilmars. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég er búin að koma mér upp á lag með að borða hafragraut úr tröllahöfrum og venjulegum höfrum á morgnana. Svo sker ég niður gráfíkjur og valhnetur og blanda út í. Þetta er ótrúlega auðvelt og gott, og ekkert mál að fá allt lífrænt.“ Hólmfríður Anna Baldursdóttir, upplýs- ingafulltrúi Unicef á Íslandi. LÁRÉTT: 2. hálf, 6. at, 8. lóa, 9. ris, 11. fr, 12. klífa, 14. varst, 16. de, 17. æpa, 18. ýra, 20. áb, 21. rauf. LÓÐRÉTT: 1. hark, 3. ál, 4. lófaspá, 5. far, 7. tilvera, 10. sía, 13. fræ, 15. tabú, 16. dýr, 19. au. MEIRA EN 200 ÓKEYPIS KROSSGÁTUR w w w .t h is .i s /k ro s s g a tu r w w w .t h is .i s /k ro s s g a tu r Hið ótrúlega Abba-æði sem geng- ið hefur yfir Ísland virðist engan enda ætla að taka. Ríflega hundrað þúsund manns hafa séð kvikmyndina Mamma Mia! í bíóhúsum landsins og plata með tónlistinni úr myndinni hefur rokið út. Abba-óðir Íslendingar fá nú enn eitt tilefnið til að gleðjast því vinsæl- asta Abba-sýning í heimi er á leið til landsins. Sýningin kallast The Music of Abba og er flutt af sænsku hljómsveitinni Arrival. Það er athafna- maðurinn Eyþór Guð- jónsson sem stendur að komu Abba-sýningarinnar sem sett verður upp í Vodafone-höll- inni 8. nóvember næstkomandi. „Þau eru nýkomin úr tón- leikaferð sinni um Bandaríkin en þau spiluðu þar á 40 tón- leikum. Þetta gekk allt frekar hratt fyrir sig en við geng- um endanlega frá samn- ingum við þau í síðustu viku. Það kostaði tölu- verða vinnu að koma Íslandi fyrir í Evr- óputúrnum en bara í nóvember eru þau með 18 tónleika víðs vegar um álfuna,“ sagði Eyþór í samtali við Fréttablaðið í gær. Arrival hefur ferðast með sýn- inguna undanfarin þrettán ár og komið fram í yfir tut- tugu löndum. Tólf manns eru í bandinu, topptónlistarmenn að sögn Eyþórs. Meðlimir Arrival hafa átt í nánu samstarfi við Björn og Benny úr Abba. Þannig er sveitin sú eina sem hefur leyfi til að klæðast nákvæmum eftirlíkingum af búningum Abba. Þá hefur hljómsveitin fengið leyfi til að gefa út óútgefið Abba-lag, Just a Notion. Tónleikarnir verða laugardagskvöldið 8. nóvember klukkan 21. Miðasala hefst á Miði.is á föstudaginn. - hdm Vinsæl Abba-sýning kemur til Íslands ARRIVAL Vinsælasta Abba-sýn- ing í heimi verður sett upp á Íslandi í nóvember. EYÞÓR GUÐJÓNSSON Setur upp Abba-sýningu í Vodafonehöllinni. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1. Halla Steinunn Stefánsdóttir. 2. Lækkanir hlutabréfa eru ráðandi. 3. Agnar Erlingsson.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.