Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 24.09.2008, Blaðsíða 8
8 24. september 2008 MIÐVIKUDAGUR Hinn árlegi dagur símenntunar í stofnunum og fyrirtækjum 24. september Fáðu sent 40 mínútna örnámskeið á vinnustaðinn þinn í viku símenntunar að kostnaðarlausu. FRAMVEGIS M I Ð S T Ö Ð U M S Í M E N N T U N Í R E Y K J AV Í K Erfiði viðskiptavinurinn leynist víða Öll störf eru þjónustu störf að einhverju leyti og margar starfsstéttir þurfa að kljást við ýmsar tegundir erfiðra viðskiptamanna. Leiðbeinandi: Margrét Reynisdóttir, M.sc. og ráðgjafi. Kann ég allt og get ég allt? Hvers vegna er mikilvægt að sækja sér símenntun í dag? Árni Guðmundsson, M Ed., fer yfir það hvernig samfélagslegar breytingar síðastliðna öld hafa breytt því hvernig við lærum að vinna. Að hefja nám að nýju Guðbjörg Sigurðardóttir námsráðgjafi fer á þessu örnámskeiði yfir helstu atriði í námstækni og sjálfstyrkingu sem undirbúning fyrir að hefja nám að nýju. Kynning á Ritara- og skrifstofustjóranámi. Sigurlaug Kristmannsdóttir, fjarnámsstjóri Verzlunarskóla Íslands, heldur örnámskeið byggt á Ritara- og skrifstofustjóranámi sem Framvegis og VÍ sjá um í sameiningu Kynning á stuðningsfulltrúanámi. Guðlaugu Maríu Bjarnadóttir, kennari í stuðningsfulltrúanámi og leikkona, kynnir starfsnám stuðningsfulltrúa sem Framvegis heldur í samvinnu við Fræðslusetrið Starfsmennt. Hafið samband við Sólveigu solveig@ framvegis.is til þess að panta námskeið. Fyrirlestrar í tilefni af viku símenntunar: Hvað er lesblinda? Kennari: Elín Vilhelmsdóttir, kennslustjóri lesblindumála við Fjölbraut í Ármúla. 24. september kl 17:00 Tölvutækni og notkun hennar í símenntun. Kennari: Salvör Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við HÍ 25. september kl. 17:00 Fyrirlestrarnir eru öllum þátttakendum að kostnaðarlausu. Haldið í húsnæði Framvegis Síðumúla 6. 2 hæð. Áhugasamir skrái sig með því að senda tölvupóst á skraning@ framvegis.is. 1 Hvað er nafn stjórnanda Kammerhópsins Nordic Affect? 2 Hvað er átt við þegar talað er um „bjarnarmarkað“ á verð- bréfamarkaði? 3 Fyrrum aðalræðismaður Noregs á Íslandi fékk nýlega norska heiðursorðu fyrir fram- úrskarandi framlag við að bæta og þróa samstarf Íslands og Noregs. Hver er maðurinn? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 SKIPULAGSMÁL Ferðafélag Íslands lét það ekki stöðva sig að hafa ekki fengið byggingarleyfi og reisti skála við Álftavatn. Byggingarnefnd Rangárþings ytra segir að samkvæmt reglum eigi að fjarlægja skálann. „Okkur sárnar að það hafi verið gengið fram með þessu hætti,“ segir Sigurbjartur Pálsson, formaður byggingarnefndarinnar. „Þetta eru hámenntaðir menn sem skipa þarna hverja stöðu. Þeir vita alveg um hvað þetta snýst og þess vegna erum við pirraðir.“ Byggingarfulltrúi fór í ágúst að Álftavatni við svokallaðan Laugaveg milli Landmanna- lauga og Þórsmerkur. „Kemur þá í ljós að Ferðafélag Íslands hefur látið byggja heljarmikið hús, og er það nánast tilbúið til notkunar,“ segir í fundargerð byggingar- nefndar Rangárþings ytra. Byggingarnefndin bendir á að þótt umsókn um leyfi hafi borist hafi fullnægjandi gögn vantað og skálinn því reistur í „algjöru óleyfi“. Samkvæmt reglugerð eigi að fjarlægja öll slík mannvirki. Gistiskálinn sem er innfluttur frá Svíþjóð er nærri 200 fermetrar og kostaði nálægt 30 milljónum króna. „Þessir hlutir þurfa að vera í lagi og þeir voru ekki í lagi hjá okkur,“ viðurkennir Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags- ins. Ólafur segir leitt hvernig til hafi tekist en ítrekar að skálinn umdeildi hafi alls ekki verið reistur án þess að nokkur hjá sveitarfé- laginu hafi vitað hvað var í gangi. „Það stóð á teikningum frá Svíþjóð en það var ekkert annað að gera en að drífa húsið áfram,“ útskýrir Ólafur og vísar til þess hversu stuttur tími gefist á fjöllum til byggingarframkvæmda. Bæði Ólafur og Sigursteinn benda á að Ferðafélagið hafi áður reist marga skála á umráðasvæði sveitarfélagsins og þá hafi allt verið í góðu lagi. „Okkar samstarf er mjög gott og við leggjum mikið upp úr því að leysa þetta mál með farsælum hætti,“ segir forseti Ferðafélagsins. „Þegar við fáum gögnin þá förum við yfir þau og sjáum hvort það er einhver leið fær. Ég útiloka ekki að menn gangi alla leið en það yrði algert neyðarúr- ræði,“ segir Sigurbjartur Pálsson. gar@frettabladid.is Rangárþing hótar að rífa nýjan skála Ferðafélagsins Formaður byggingarnefndar Rangárþings ytra segir koma til greina að láta fjarlægja nýbyggðan gistiskála sem Ferðafélag Íslands lét reisa án leyfis við Álftavatn. Forseti Ferðafélagsins vonast eftir farsælli lausn. SKÁLINN Reistur í skyndi í sumar á meðan færi gafst vegna veðurs en byggingarleyfið skorti því teikningar bárust ekki frá Svíþjóð segir forseti Ferðafélags Íslands. ÓLAFUR ÖRN HARALDSSON SIGURBJARTUR PÁLSSON Athafnarmanni blöskrar bleiuverð: Dýrar bleiur í Lyfjum og heilsu Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@frettabladid.is BRETLAND, AP „Ef fólki finnst ég vera of alvarlegur, þá er satt að segja heilmargt sem þarf að taka alvarlega,“ sagði Gordon Brown, forsætisráðhera Bretlands, í ræðu sinni á landsþingi breska Verka- mannaflokksins í Manchester í gær. Brown svaraði gagnrýnendum sínum fullum hálsi og virtist stað- ráðinn í að vinna sigur á David Cameron, leiðtoga Íhaldsflokks- ins, í næstu þingkosningum. „Það er ljóst að Bretar geta ekki treyst Íhaldsflokknum til að fara með efnahagsmál,“ sagði Brown, og hét því að treysta velferðarkerfi landsins þrátt fyrir harkalega efnahagserfiðleika sem nú steðja að. Hann sagði áherslu Verka- mannaflokksins á réttlæti ekki vera neina sýndarmennsku, held- ur innbyggða í eðli flokksins: „Það er þess vegna sem Verkamanna- flokkurinn er til.“ Ræðunni var ákaft fagnað á landsþinginu, þrátt fyrir að Brown hafi verið harðlega gagnrýndur af mörgum flokksfélögum sínum undanfarið og hvattur til að segja af sér. „Ég held að Gordon hafi þarna fundið sína réttu rödd,“ sagði David Miliband utanríkisráð- herra. Verkamannaflokkurinn hefur farið illa út úr skoðanakönnunum undanfarið og óvíst hvort þessi ræða Browns dugar til að snúa þeirri þróun við. - gb Forsætisráðherra Bretlands flutti þrumuræðu á landsþingi Verkamannaflokksins: Gordon Brown snýr vörn í sókn GORDON BROWN Svaraði gagnrýnend- um sínum fullum hálsi. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Karlmanni, sem grunaður er um að hafa áreitt barn kynferðislega á heimili að Grettisgötu fyrr í þessum mánuði, var í gær gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til 21. október. Úrskurðurinn er á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn, sem er á fimmtugs- aldri, er grunaður um að hafa komist inn um glugga á húsinu að næturlagi. Kona, sem var þar ein ásamt sex ára barni, vaknaði við mannaferðir. Þegar hún fór að athuga málið mætti hún manni, sem lagði á flótta. Maðurinn hafði áður hlotið dóm fyrir að ræna fjögurra ára stúlku. - jss Meint brot gegn barni: Maður áfram í gæsluvarðhaldi BANDARÍKIN, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti fór hörðum orðum um Sýrland og Íran þegar hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Hann sagði bæði ríkin enn styðja hryðjuverkamenn, og sagði jafnframt að þörfin fyrir að ríki heims tækju höndum saman um að berjast gegn hryðjuverkum væri brýnni nú en nokkru sinni. Þetta var í síðasta sinn sem Bush ávarpar þingið, en hann lætur af embætti í janúar næstkomandi. Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti sat í þingsalnum og brosti breitt meðan Bush flutti ræðu sína. - gb Allsherjarþing SÞ: Bush gagnrýnir Sýrland og Íran SÍÐASTA ÁVARPIÐ Bush á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Athafnamaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, stoppaði umboðsmann á förnum vegi og var mikið niðri fyrir: „Okkur bráðvantaði bleiur snemma dags á sunnudaginn og ég fór í einu búðina sem var opin í hverf- inu, Lyf og heilsa á Háaleitis- braut. Ég hef aldrei pælt í verðlagi fyrr og bara borgað upp- sett verð, en nú í fyrsta skipti á ævinni gekk verðið svo fram af mér að ég sagði við afgreiðslu- konuna: „Nei, heyrðu mig nú, ég bíð bara þar til það opnar einhvers staðar annars staðar!“ Einn lítill bleiupoki kostar þarna nærri 2.500 krónur! Í Nóatúni við hliðina sem opnaði klukkutíma seinna kostaði sami pokinn um 1.500 krónur og auðvitað keypti ég hann. Síðan hef ég tékkað á þessum bleium og sami pokinn kostar undir 900 krónur í Bónus. Fyrr má nú vera munurinn!“ Í framhaldi af þessari sögu gerði ég könnun á bleiuverði í gær. Niðurstöðurnar eru eftirfarandi: Pampers midi 3 (grænar) – bleiur fyrir 4-9 kg. Lyf og heilsa, Háaleitisbraut: 38 stk. 2.458 kr. / 65 kr. bleian Lyfja, Lágmúla: 38 stk. 2.098 kr. / 55 kr. bleian 10-11, Lágmúla: 38 stk. 1.699 kr. / 48 kr. bleian Hagkaup, Eiðistorgi: 38 stk. 1.535 kr. / 40 kr. bleian Nóatún, Háaleitisbraut: 38 stk. 1.479 kr. / 39 kr. bleian Krónan, Grandi: 52 stk. 1.299 kr / 25 kr. bleian Bónus, Faxafeni: 70 stk. 1.559 kr. / 23 kr. bleian VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.