Fréttablaðið - 24.09.2008, Qupperneq 17
Ragna Sara Jónsdóttir
Samfélagsleg
ábyrgð
fyrirtækja 65
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 24. september 2008 – 39. tölublað – 4. árgangur
Endalok fjárfestingarbanka
Heyra þeir brátt
sögunni til?
4
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Allt á hliðina | Mikil lækkun
var á alþjóðlegum hlutabréfa-
mörkuðum í gær og í fyrradag.
Skellurinn skýrist af hagnaðar-
töku fjárfesta eftir mikla hækk-
un vestanhafs á föstudag og efa-
semdir um að björgunaraðgerð-
ir bandarískra stjórnvalda muni
nægja til að slá á hrakspár um
samdrátt í Bandaríkjunum. Olíu-
verð rauk upp í kjölfarið.
Traust kerfi | Henry Paulson
fjármálaráðherra sagði undir
lok síðustu viku að bandarískt
fjármálakerfi væri í grundvallar-
atriðum traust. Hann taldi ekki
sjá fyrir endann á fjármálakrepp-
unni fyrr en fasteignamarkaðir í
Bandaríkjunum rétti úr sér.
Heimskur banki | Bankinn KfW
hefur hlotið titilinn heimskuleg-
asti banki Þýskalands eftir að í
ljós kom að hann setti rúmlega
30 milljarða króna inn í Lehman
Brothers aðeins tveimur tímum
áður en bankinn var lýstur gjald-
þrota fyrir rúmri viku.
Peningum dælt út | Seðlabankar
Bandaríkjanna, Evrópu, Japans,
Sviss, Kanada og Englandsbanki
dældu 180 milljörðum Banda-
ríkjadala inn á fjármálamarkaði
á fimmtudag fyrir viku. Danska
blaðið Börsen sagði þetta um-
fangsmestu fjárhagslega björg-
unaraðgerðina í sögunni.
Í eina sæng | Stjórnir bresku
bankanna Lloyds og HBOS sam-
þykktu í síðustu viku að ganga
í eina sæng. Með samrunanum
verður til umsvifamesti banki
Bretlands.
Ólíklegt er að kröfur berist í bú Verðbréfaþjónustu
sparisjóðanna (VSP) sem nú er í slitameðferð, að
sögn Erlu S. Árnadóttur lögmanns sem skipuð er
skiptastjóri.
„Innköllunarfrestur er í gangi, en hann var ákveð-
inn sex mánuðir.“ Hefðbundinn innköllunarfrestur
er tveir mánuðir, en Erla kveðst hafa ákveðið að
nýta heimild til framlengingar þar sem verið gæti
að kröfur væru í búið erlendis. „Enn sem komið er
hafa hins vegar engar kröfur borist.“
Erla segir því ekki útséð með að félagið sé gjald-
þrota, þótt það sé að forminu til í gjaldþrotaskipt-
um. „Félagið á eignir á bankareikningi upp á 30
milljónir króna.“
Þótt VSP sé í slitameðferð er það ekki vegna
þess að félagið standi ekki undir kröfum, heldur
var starfsemi hætt eftir að Byr keypti rekstur þess
undir lok síðasta árs. Til þess að slit geti farið fram
kveða lögin á um að fram skuli fara gjaldþrota-
skipti, að sögn Erlu.
Verði eignir VSP til úthlutunar þá verður þeim
úthlutað til hluthafa, en félagið var, líkt og nafn-
ið gefur til kynna í eigu sparisjóðanna. Skipta-
fundur verður, samkvæmt auglýsingu í Lögbirt-
ingarblaðinu, um miðjan janúar næstkomandi. Lík-
ast til verður þá einnig komið í ljós hvort ábyrgðir
fyrir um 200 milljónir Bandaríkjadala verða bind-
andi fyrir VSP, en ríkissaksóknari telur að þær geti
fallið á félagið. Í byrjun vikunnar var staðfestur
í Hæstarétti farbannsúrskurður yfir fyrrverandi
framkvæmdastjóra félagsins sem sakaður er um
brot í starfi. - óká
Þrjátíu milljónir til skiptanna
Enn er kallað eftir kröfum í bú Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna (VSP).
Vistvænn
kostur!
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Sjeikinn í Kaupþingi
Hver er
maðurinn?
„Björgunaraðgerðir stjórnvalda
munu kosta bandaríska skatt-
greiðendur mun minna en ef
ekkert hefði verið gert,“ sagði
Henry Paulson fjármálaráð-
herra í vitnaleiðslu fyrir banka-
málanefnd bandaríska þingsins í
gær. Þar sat hann til svara ásamt
Ben Bernanke seðlabankastjóra
og Christopher Cox, forstjóra
bandaríska fjármálaeftirlitsins.
Paulson gerði þar grein fyrir
verðfalli á fjármálamörkuðum
og þrengingum á fasteignamark-
aði vestra og mikilvægi þess að
ríkið gripi til aðgerða til að fyrir-
byggja frekari hremmingar.
„Við verðum að grípa til að-
gerða gegn annarri bólumyndun
og fjáraustri í öðrum geirum,“
sagði Paulson enn fremur. - jab
Mikilvæg
aðgerð
RÁÐHERRANN OG BANKASTJÓRINN
Henry Poulson, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna og Ben Bernanke seðla-
bankastjóri. MARKAÐURINN/AP
Björn Ingi Hrafnsson
skrifar
„Með því að gengisvísitalan fari upp fyrir 180 stig
hafa ræst svörtustu spár um krónuna frá því í
vor,“ segir Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann
í Reykjavík, en gengisvísitala íslensku krónunnar
rauf 180-stiga múrinn í fyrsta sinn í gær og hefur
krónan aldrei verið veikari. „Stjórnvöld mega ekki
láta undan dragast að grípa til úrræða til að auka
framboð á gjaldeyri, efla traust á íslensku efna-
hagslífi og styrkja verðmyndun á krónunni sem
komin er langt frá því sem telja má eðlilegt jafn-
vægisgengi,“ segir Ólafur.
Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri segir bank-
ann ekki hafa upplýsingar um ástæður óróans, en
gengisvísitalan steig hratt í gær og fyrradag. Vil-
hjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir mörg fyrirtæki komin í vand-
ræði út af þessari þróun og menn bíði sífellt þess
að botninum sé náð. Enn sé mikil óvissa á mörkuð-
um í Bandaríkjunum og við Íslendingar séum að
gjalda fyrir það.
Greiningardeild Kaupþings segir í hálffimm-
fréttum sínum, að á meðan óvissa ríki um krónu-
bréf megi ætla að fjárfestar haldi að sér hönd-
um og gæti krónan því veikst frekar á næstunni.
Þýski þróunarbankinn KfW, sem er næststærsti
krónubréfaútgefandinn til þessa, tilkynnti á mánu-
dag um tveggja milljarða króna viðbótarútgáfu í
flokki krónubréfa, samkvæmt greiningu Glitnis.
27,5 milljarðar hafa fallið á gjalddaga í septemb-
er. Heildarútistandandi krónubréf nema nú um 306
milljörðum króna, en næsti gjalddagi er 6. október
næstkomandi en þá fellur á gjalddaga 29 milljarða
króna útgáfa Evrópska fjárfestingarbankans.
Svörtustu spár um
krónuna hafa ræst
Jöklabréfum á gjalddaga kennt um fall krónunnar, einnig
skorti á gjaldeyri og óvissu um ástand á heimsmarkaði.
Útistandandi krónubréf nema nú 306 milljörðum króna.