Fréttablaðið - 24.09.2008, Page 22
GB FERÐIR bjóða upp á helgarferðir til Boston í haust og vetur. Gist er
á Inter Continental Boston þaðan sem stutt er í þjónustu og afþreyingu,
svo sem Chinatown, Boston Harbor, heimavöll NBA-liðsins Boston Celtis,
Sædýrasafnið, Nýlistasafnið, Newbury Street og fleira. Sjá www.gbferdir.is.
KAÐ SÆTAFRAMBOÐ
Sími 49 12345 Netfang ferd@ferd.is Sjá nánar á WWW.FERD.IS
8 DAGAR /
7 NÆTUR
SÓL, STRÖ
ND, VERSL
UN
SÓL, STRÖND & VERSLUN Í DUBAI
Búðarráp í heimsklassa
Upplifið nýja og gamla Dubai
Eyðimerkursafarí, reiðtúr á úlfalda
Grill í eyðimörkinni og fleira
Verð frá 239.450,- á mann
Brottfarir alla fimmtudaga
frá 1. janúar til 12. mars 2009
Pakkað niður fyrir fríið af kostgæfni
ÞAÐ GETUR VERIÐ MIKIL KÚNST AÐ PAKKA OFAN Í FERÐATÖSKU EN HÉR Á
EFTIR FARA NOKKUR GÓÐ RÁÐ.
Tilvalið er að raða eftir þyngd, hafa þyngstu hlutina neðst
en léttan og viðkvæman fatnað efst. Ef skópör eru með
í för er gott að fylla þau með sokkum og bolum en
þannig viðhelst lögun þeirra og um leið er hægt
að spara pláss.
Best er að vöðla fötunum sem minnst saman
til að koma í veg fyrir för. Hlýrabolum og öðru
smálegu má rúlla upp og setja í hliðarnar. Fín föt
er best að setja í sérstakan fatapoka og leggja
efst í töskuna.
Til að forðast að taka of mikið með sér er
gott að velja föt sem passa saman og para
til dæmis buxur eða pils saman við þrjá
mismunandi efriparta. Ekki er gott að
troða í töskur en þær mega heldur ekki
vera hálftómar því hvort tveggja fer illa
með innihaldið. -ve
Taílendingar standa flestum öðrum
framar þegar kemur að dekri á
borð við böð, slökun og nudd. Vel
búnar og seiðandi heilsulindir eru
meðal þess sem þeir bjóða upp á í
ríkum mæli og raunar eitt af því
ómótstæðilega í landinu.
Taílenskt nudd byggir á alda-
gömlum aðferðum sem hver kyn-
slóð af annarri hefur tekið í arf og
tileinkað sér. Nudd og spa er nán-
ast á hverju strái í Taílandi og hátt
á fjórðu milljón gesta heimsækir
slíkar stofnanir árlega. Veitinga-
staðir og íbúðir eru víða undir
sama þaki svo og allskonar heilsu-
rækt. Mörgum almennum ferða-
mönnum finnst þetta ómissandi
partur af upplifun þeirra af land-
inu og aðrir koma þangað eingöngu
til að njóta þess unaðar.
gun@frettabladid.is
Himneskt heilsudekur
Þegar hausthrollurinn sækir að á Fróni er freistandi að hugsa til yls, ilms og andrúmslofts austurlenskra
heilsulinda, að ekki sé minnst á nudd. Slíkra þæginda er víða hægt að njóta í Taílandi.
Vel búnar lúxusíbúðir eru í boði bæði
í Sukko Spa og Bundarika Villa. Þetta
hjónaherbergi tilheyrir síðarnefnda
staðnum.
Heilsusetrið Bundarika Villa er við
heillandi strönd á Phuket-eyju og þar
er gjarnan borð sett niður í fjöru „við
glampandi kvöldsólareld“.
Sukko Spa er veglegt heilsusetur á
Phuk et-eyju með nuddstofum, slök-
unarherbergjum, laugum og böðum,
líkamsrækt, verslun og veitingastöðum.
Í Bundarika Villa á Phuket getur fólk fengið leiðsögn í því hvernig best er að nudda
sína nánustu.