Fréttablaðið - 24.09.2008, Qupperneq 34
18 24. september 2008 MIÐVIKUDAGUR
„Ég kynntist Úlriki Ólasyni þegar ég spilaði víðs vegar um
landið með organistum hvers byggðarlags á vegum Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar 1982. Úlrik var þá organisti í Húsa-
víkurkirkju og ég minnist þess hve ég varð glaður að hitta
svo ungan og færan mann sem beinlínis lék sér að því að
spila verkin með mér, en við áttum mjög góðar stundir
saman,“ segir Gunnar Kvaran, sellóleikari og prófessor
við Listaháskóla Íslands. Hann flytur í kvöld einleikssvít-
ur fyrir selló eftir Johann Sebastian Bach í Kristskirkju í
minningu Úlriks, sem lést í blóma lífsins á vordögum.
„Ég fylgdist með Úlrik næstu árin og spilaði með honum
við athafnir þegar hann fékk stöður organista í Víðistaða-
kirkju og Kristskirkju. Árlega spiluðum við svo saman á
aðventutónleikum Karítasar, hjálparstofnunar kaþólsku
kirkjunnar, en þar var Úlrik alltaf til staðar sem organisti
kirkjunnar og nærvera hans ávallt mjög indæl en hann var
góður drengur og afburðaspilari. Á aðventutónleikunum í
fyrra var Úlrik veikur, sem við í fyrstu ályktuðum að væri
flensa, en reyndist miklu alvarlegra og var Úlrik dáinn fá-
einum mánuðum síðar,“ segir Gunnar sem minnist góðs
drengs, en Úlrik hafði fyrir andlátið beðið þau Guðnýju
Guðmundsdóttur, konsertmeistara og eiginkonu Gunnars,
að halda tónleika til styrktar orgelsjóði Kristskirkju.
„Ég tók fráfall hans nærri mér og hef í haust hugsað
hvernig ég gæti minnst Úlriks. Ég ákvað svo að spila svít-
ur Bachs í minningu hans og láta ágóðann ganga til orgel-
sjóðsins, því það hefði verið honum að skapi,“ segir Gunn-
ar.
„Svíturnar eru óskaplega fræg einleiksverk sem Bach
samdi í kringum 1720. Ég valdi svíturnar því þær, eins og
önnur tónverk Bachs, eru gegnsýrðar af dýpt, visku og
sterku trúarþeli, auk þess að vera samdar af yfirburðatón-
skáldi. Með fullri virðingu hafa aldrei, hvorki fyrr né síðar
í tónverkasögunni, verið samin verk sem eru tilsvarandi
við þessi verk Bachs fyrir selló,“ segir Gunnar sem hefur
notað svítur Bachs við kennslu í yfir 45 ár.
„Mér finnst mikilvægt að ungt fólk varðveiti þessa gömlu
arfleifð. Bach er mjög rómantískur, eins og öll stór tón-
skáld, því rómantík er hluti af mannssálinni. Og ég held að
hafi tónskáld ekki tilfinningalega næringu fyrir sál manns-
ins í sinni tónlist, þá nái þeir ekki til hennar,“ segir Gunn-
ar alvarlegur í bragði.
„Johann Sebastian Bach gleymdist í heila öld eftir and-
lát sitt en það var þýska tónskáldið Felix Mendelssohn sem
vakti aftur athygli á verkum hans þegar hann lét flytja
Matthíasarpassíuna í Leipzig í byrjun 19. aldar. Svítur
Bachs fann svo sellósnillingurinn Pablo Casals fyrir til-
viljun á fornbókasölu, en hann sagði svo fallega: „Bach
gerði hið mannlega guðdómlegt og hið guðdómlega mann-
legt.“ Með öðrum orðum: Bach sameinaði himin og jörð,“
segir Gunnar, sannfærður um að Úlrik hefði líkað dagskrá
kvöldsins því hann hafi sem organisti verið mikill aðdáandi
tónskáldsins.
„Bach var víðfrægur orgelsnillingur og samdi fyrst og
fremst fyrir orgel,“ segir Gunnar. „Athafnasamir org-
elleikarar spila hann því daglega, bæði fyrir sjálfa sig
og kirkjulegar athafnir. Stórkostleg tónlist Bachs er allt-
af fersk og færir okkur sönnur á mikilvægi þess að halda
áfram að spila hana, því hún á alltaf jafn mikið erindi við
okkur mannfólkið og segir okkur djúpa hluti um lífið og
okkur sjálf.“
Gunnar játar að einleikstónleikar taki á taugarnar. „Ég
tala nú ekki um einleiksverk eftir Bach, því það þykir mér
erfiðast. En setji maður sér ekki erfið verkefni inn á milli
veit maður ekki heldur hvað maður getur. Hljóðfæraleik-
ari veit aldrei hvers hann er megnugur heima í stofu, en
frammi fyrir áheyrendum finnur hann áþreifanlega hvað
hann hefur og hvað hann skortir. Á vel heppnuðum tónleik-
um myndast raunverulegt bræðralag því tónlist hefur þá
eiginleika að binda saman flytjanda og áheyrendur og gera
að bræðrum og systrum; hún framkallar eitthvað svo ótrú-
lega djúpt og fallegt hjá manneskjunni.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Miðar eru seldir við inn-
ganginn. thordis@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Í MINNINGU ÚLRIKS Gunnar Kvaran segir Úlrik Ólason organista hafa
verið góðan dreng og félaga sem nú sé sárt saknað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GUNNAR KVARAN SELLÓLEIKARI: SPILAR BACH Í MINNINGU ÚLRIKS ÓLASONAR
Bach sameinar himin og jörð
LINDA MCCARTNEY FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1941.
„Mér er illa við flugvélar því
móðir mín fórst í flugslysi.
Dauðinn kemur svo óvænt. Ég
vil helst vera heima og fara
aldrei neitt.“
Ljósmyndarinn Linda East-
man tók myndir af rokkstjörnum
þegar hún kynntist Bítlinum Paul
McCartney. Hún lést 17. apríl 1998
út brjóstakrabbameini.
GARÐAR
CORTES
ÓPERU-
SÖNGVARI
er 68 ára.
INGA JÓNA
ÞÓRÐARDÓTT-
IR FORSÆTIS-
RÁÐHERRAFRÚ
er 57 ára.
KRISTÍN
ÓMARSDÓTTIR
RITHÖFUNDUR
er 46 ára.
ÓLAFUR
KJARTAN
SIGURÐAR-
SON ÓPERU-
SÖNGVARI
er 40 ára.
Sænska tennishetjan Björn Borg lagði tenn-
isspaðann formlega á hilluna, þá 26 ára að
aldri. Björn er talinn meðal bestu tennis-
leikara íþróttasögunnar. Á árunum 1974 til
1981 sigraði hann ellefu sinnum á stærstu
mótum veraldar, sem eru franska, ástralska
og bandaríska opna meistarakeppnin, ásamt
Wimbledon.
Björn fæddist í Södertälje, litlum bæ rétt
utan við Stokkhólm. Sem barn heillaðist hann af gylltum tennis-
spaða sem faðir hans hafði unnið í tenniskeppni, en spaðinn sá
markar upphaf skærasta tennisferlis sögunnar.
Sem leikmaður hafði Björn mikinn styrk og úthald. Hann var
auðþekktur og óhefðbundinn í stíl og framkomu; hjólbeinóttur og
einkar snöggur. Björn var jafnvígur á báðar hendur og notaði bak-
handarhögg sem hann tileinkaði sér í hokkíi sem strákur.
Björn var á hátindi ferils síns frá 1978 til 1980 þegar hann vann
bæði Franska opna og Wimbledon þrjú ár í röð. Óvænt endalok
ferils hans árið 1982 voru áfall fyrir tennisheiminn.
ÞETTA GERÐIST: 24. SEPTEMBER 1982
Björn Borg hættir leik
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Okkar ástkæri,
Eðvald Einar Gíslason
Suðurbraut 22, Hafnarfirði,
lést mánudaginn 22. september á Landspítala háskóla-
sjúkrahúsi.
Ágústa Hinriksdóttir
Ragnhildur Rósa Eðvaldsdóttir
Andrea Gísladóttir Ólafur Þ. Jóhannesson
Andrea Eðvaldsdóttir
Katrín Rósa Eðvaldsdóttir Þorsteinn Helgi Stefánsson
Fannar Eðvaldsson Árdís Ethel Hrafnsdóttir
Eyrún Eðvaldsdóttir Gunnar Örn Jóhannsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Bergþóra Þorbergsdóttir
Garðvangi, Garði (áður Nónvörðu 11,
Keflavík),
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn
22. september sl. Útför hennar verður gerð frá
Útskálakirkju laugardaginn 27. september kl. 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á Félag aðstandenda
Alzheimersjúklinga á Suðurnesjum (reikn. 1109-05-
412298 kt. 580690-2389).
Guðmundur Jóelsson Anna Margrét Gunnarsdóttir
Axel Jónsson Þórunn Halldórsdóttir
Vignir Jónsson Marteinn Tryggvason
Þorsteinn Jónsson Katrín Hafsteinsdóttir
Íris Jónsdóttir Gylfi Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn, sonur, bróðir og frændi,
Gísli Marteinsson
Þverbrekku 2, Kópavogi,
varð bráðkvaddur 27. ágúst í Kaupmannahöfn.
Jarðarförin hefur farið fram. Við þökkum frændfólki
og vinum auðsýnda samúð.
Arnar Gíslason
Lilja Gísladóttir
Vilborg Marteinsdóttir og fjölskylda
Marteinn Marteinsson og fjölskylda
aðrir aðstandendur.
Steinsmiðja
• Viðarhöfða 1
• 110 Reykjavík
• 566 7878
• Netfang: rein@rein.is
• Vönduð vinna
REIN
Legsteinar
í miklu úrvali
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Guðni
Guðmundsson
skáld og iðnverkamaður,
Sunnuhlíð, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudaginn
25. september kl. 13.00.
Þórarinn B. Guðmundsson Álfheiður Alfreðsdóttir
Úlfar Ágústsson Ína Gísladóttir
Hilda Julnes, Leif Julnes, Jenny Julnes,
Ásta Þórarinsdóttir, Anna Mjöll Líndal
Gísli, Úlfur, Axel Guðni
og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
Monthian Nonchomphu
Djúpavogi 10, Höfnum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn
21. september. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 26. september kl. 14.00.
Jakob Jónatansson
Niyem Phokhot
Ruttanapol Phokhot.