Fréttablaðið - 26.09.2008, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 26.09.2008, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórgunnar Oddsdóttur Vitanlega brá mér svolítið í gær þegar ég kíkti inn á fréttavef Vísis og sá þar stórfrétt undir fyrir- sögninni „Hrukkótt Terminator- stjarna vekur athygli – myndir“. Hugsið ykkur, hin 51 árs gamla Linda Hamilton er komin með eina eða tvær hrukkur, það er svakalegt. Ég sem var nýbúin að jafna mig eftir fréttirnar af bakspiki Jennifer Lopez og slæmu útliti Courtney Love, sem þykir óvenju sjúskuð þessa dagana. Með hverri frétt fylgdu óhugnanlegar myndir en fæstar þó jafn viðbjóðslegar og myndirnar af þeim Celine Dion, Evu Longoriu og Gwyneth Paltrow sem allar höfðu asnast til þess að láta sjá sig ófarðaðar á almannafæri. FRÉTTIR af útlitsskandölum þekktra kvenna eru vinsælt lesefni. Ef ekki væri fyrir fréttina af ofvirk- um svitakirtlum Toms Cruise gæti maður slysast til að álíta að þessi fréttaflokkur væri birtingarmynd kynjamisréttis, sprottinn fram af þeim óraunhæfu kröfum sem við gerum til útlits kvenna. En málið er varla svo einfalt. Þetta er náttúr- lega stórmerkilegur fréttaflutning- ur og nauðsynlegur. Ég veit hrein- lega ekki hvar ég væri stödd í lífinu ef ég vissi ekki að Elle Macpherson er með krumpuð hné og Jerry Hall komin með appelsínuhúð. ÞAÐ er erfitt að vera kona og nær óhugsandi að vera falleg kona. Í gegnum aldirnar hafa skáldin reynt að blekkja okkur með hugljúfum kveðskap um fegurð og þokka kven- kynsins en það liggur auðvitað í augum uppi að konur eru almennt ófríðari frá náttúrunnar hendi en karlar. Karlmönnum nægir að bursta tennurnar ætli þeir að líta vel út en við konurnar getum vart látið sjá okkur án þess að vera vel smurðar af kremum og málningu í framan, hárlausar með öllu og með uppáskrift frá lækni um að við eigum pantaðan tíma í brjósta- stækkun innan skamms. Ég las það í vikunni að lýtaaðgerðir á kyn- færum kvenna yrðu sífellt vinsælli og það bara meðal venjulegra hús- mæðra í Bretlandi. Ég er ekki hissa, hver vill vera með of síða skapa- barma á þessum síðustu og verstu tímum? FRÉTTIRNAR af útlitsvandamál- um átrúnaðargoðanna í Hollywood, sem eru víst með svitaholur og lærapoka eftir allt saman, hljóta að hafa göfugan tilgang. Þær eru eflaust settar fram til að láta okkur, sem tilheyrum ljótara kyninu, líða örlítið betur. Að sjá Pamelu Ander- son án andlitsfarða og fá þannig staðfestingu á að hún er alveg jafn ljót og við hinar gerir miklu meira fyrir sjálfstraustið en innihaldslaus huggunarorð um að fegurðin komi að innan. Ljótara kynið Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Svefnpokapláss kr. 1.500 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is Í dag er föstudagurinn 26. september, 270. dagur ársins. 7.23 13.19 19.13 7.08 13.04 18.57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.