Fréttablaðið - 30.09.2008, Page 2
2 30. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
FLÓTTAMENN Enginn var handtekinn
í framhaldi af aðgerð lögreglu og
Útlendingastofnunar, þann 11. sept-
ember, þegar lögregla réðst inn til
42 hælisleitenda í Reykjanesbæ,
staðfestir Jóhann R. Benediktsson,
fráfarandi lögreglusstjóri á Suður-
nesjum.
Aðgerðin er nú rannsökuð fyrir
Rauða kross Íslands af lögmanna-
stofu. Hefur Kristján Sturluson,
framkvæmdastjóri RKÍ, sagt að
svona aðgerðir eigi að byggja á rök-
studdum grun og að eftirtekjur af
rassíunni hafi verið rýrar, enda
enginn handtekinn.
En Jóhann segir að fólkið hafi
ekki verið grunað um glæp.
„Nei, það sem við grunuðum
þetta fólk um var það sem kom á
daginn; að þau væru með skilríki
og að leyna uppruna sínum og að
torvelda rannsókn málsins. En við
fögnum þessari rannsókn, hún mun
vonandi leiða í ljós að meðalhófs
hafi verið gætt og allra réttinda
þeirra sem leitað var hjá,“ segir
Jóhann.
Haukur Guðmundsson hjá
Útlendingastofnun segir það
„nýstárlega hugmynd hjá Rauða
krossinum að fela lögmönnum
sínum að fara yfir niðurstöðu dóm-
stóla eða yfir framkvæmd þar sem
lögmaður var skipaður til að gæta
hagsmuna þolenda. Það er þó enn
nýstárlegra að slíkt verkefni lög-
manna Rauða krossins eigi að kall-
ast óháð rannsókn.“ - kóþ / sjá síðu 12
Guðbjörg, hafa þessi börn
braggast vel?
„Já. Betur en margir aðrir í þjóðfé-
laginu.“
Guðbjörg Benjamínsdóttir skipuleggur
þessa dagana endurfundi barna sem
bjuggu í braggahverfunum við Suður-
landsbraut, Múlakampi og Herskála-
kampi.
Fráfarandi lögreglustjóri á Suðurnesjum fagnar rannsókn á flóttamannarassíu:
Fólkið lá ekki undir grun
JÓHANN R.
BENEDIKTSSON
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
Suðurnesjum handtók í gær mann
á Fitjum við Njarðvík. Maðurinn
er hælisleitandi og hefst við í
húsnæði, sem ætlað er þeim, við
Fitjar.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni var maðurinn með
yfirgang og talinn hættulegur
umhverfi sínu; þar með talið
öðrum hælisleitendum. Ekki
fékkst uppgefið í hverju sú ógn
fólst.
Sérsveitarmenn voru kallaðir á
staðinn og aðspurð sagði lögregl-
an að þeir hefðu verið á svæðinu
og því kallaðir til. Það væri
alvanalegt við svona aðstæður og
ekki sérstaklega tengt því að um
hælisleitanda var að ræða. - kóp
Lögregluaðgerð á Fitjum:
Hælisleitandi
handtekinn
VEL BÚNIR Lögreglumennirnir sem
handtóku hælisleitandann voru vel
búnir. MYND/VÍKURFRÉTTIR
SLYS Þráinn Bj. Farestveit fram-
kvæmdastjóri bjargaði ökumanni
út úr brennandi bíl á Reykjavegi
um klukkan hálf fimm í gær. Að
sögn lögreglunnar hafði gaskútur
í bíl mannsins sprungið en eldur-
inn fór einnig yfir í bíl Þráins og
urðu báðir bílarnir fljótlega
alelda.
„Ég kom keyrandi út úr hring-
torginu, þá verður þessi rosalega
sprenging í bílnum sem er á undan
mér,“ segir Þráinn. „Ég sé að bíll-
inn er í ljósum logum og það er
maður inni í bílnum svo ég fer út
úr bílnum mínum og fer að huga
að manninum. Þegar ég kem að þá
sé ég að hann er greinilega nokkuð
illa brunninn, það logaði til dæmis
enn í hárinu á honum. Ég náði að
slökkva þar sem logaði í honum.
Ég hugsaði náttúrulega um það
fyrst að reyna að koma honum út
úr bílnum og því gafst mér ekki
færi á að reyna að slökkva eldinn í
bílunum tveim. En það var ekki
hægt að opna dyrnar á bíl manns-
ins. Hurðirnar hafa greinilega
orðið fyrir svo miklum þrýstingi
að þær urðu óvirkar svo ég varð
að reyna að koma honum út um
gluggann. Það gekk reyndar nokk-
uð erfiðlega til að byrja með því
hann var í belti og vildi ekki þýð-
ast mig þegar ég var að reyna að
biðja hann um að losa sig. Kannski
heyrði hann ekkert í mér eða var
bara í svo miklu ójafnvægi. Þegar
það tókst að koma honum úr bíln-
um sá ég að bíllinn var orðinn
alelda.“
Maðurinn var fluttur á spítala
en ekki er vitað frekar um líðan
hans.
Þetta er í annað sinn sem Þráinn
kemur bílstjóra í bráðum háska til
hjálpar því fyrir tveimur árum
kom hann að slysstað á Hellis-
heiði. Í flaki bílsins var ung kona
sem var klemmd þannig að ekki
var hægt að ná henni út en Þráinn
náði að beygja til bílsæti sem
þrengdi svo að henni að hún náði
ekki andanum. „Í báðum þessum
tilfellum fór betur en á horfðist,“
segir Þráinn. Spurður hvort hann
hafi þegið einhverja áfallahjálp
eftir slysið á Reykjavegi segir
hann: „Nei, ég var reyndar að
koma úr Laugum þegar þetta kom
upp á, ætli ég fari ekki þangað
aftur og taki á því til að ná stress-
inu úr mér.“ jse@frettabladid.is
Bjargaði bílstjóra úr
brennandi bifreið
Vegfarandi bjargaði bílstjóra úr logandi bíl skammt frá Laugardalnum í gær.
Gaskútur sprakk í bílnum sem varð alelda rétt eins og bíll bjargvættarinnar.
Þetta er í annað sinn sem hann bjargar bílstjóra í bráðum háska.
Á VETTVANGI Hér er Þráinn á vettvangi. Hann bjargaði lífi manns sem ók um Reykja-
veg þegar gaskútur sem var í bíl hans sprakk. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HAUKUR GUÐ-
MUNDSSON
STJÓRNMÁL Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur utanríkisráðherra
heilsast vel, eftir að hún gekkst
undir aðgerð á Mount Sinai
sjúkrahúsinu í
gær.
Veikindi hennar
uppgötvuðust
fyrir um viku
síðan og eru rakin
til meins í fjórða
heilavökvahólfi,
segir í tilkynningu
frá ráðuneytinu.
Ákveðið var að
hún færi í
aðgerðina í
Bandaríkjunum í kjölfar rann-
sókna síðastliðinn föstudag og í
samráði sérfræðinga á Landspít-
ala og lækna á sjúkrahúsinu ytra.
Óvíst er hversu lengi ráðherra
verður frá vinnu vegna þessa.
- kóþ
Veikindi utanríkisráðherra:
Heilsast vel
eftir aðgerð
INGIBJÖRG
SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Rannsókn á morðinu
á Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur,
sem fannst látin í Cabarete í
Dóminíska lýðveldinu á mánudag
fyrir viku, er enn í fullum gangi
samkvæmt upplýsingum sem
upplýsingadeild lögreglunnar þar
í landi veitti Fréttablaðinu.
Alþjóðadeild Ríkislögreglu-
stjóra hefur verið í sambandi við
Interpol í Dóminíska lýðveldinu
að sögn Smára Sigurðssonar,
yfirmanns deildarinnar. - jse
Morð í Dóminíska lýðveldinu:
Rannsókn er
enn ekki lokið
FJÖLMIÐLAR „Þetta hafa verið mjög
gagnlegar viðræður, þótt endan-
leg ákvörðun liggi ekki fyrir,“
segir Ari Edwald, forstjóri 365, en
góður gangur hefur verið síðustu
daga í viðræðum stærstu eigenda
Árvakurs hf., útgáfufélags
Morgunblaðsins og 24 stunda, og
365 hf., sem rekur meðal annars
Fréttablaðið, Bylgjuna og Stöð 2.
Samkvæmt heimildum Markað-
arins er gert ráð fyrir að Frétta-
blaðið og Pósthúsið renni inn í
Árvakur hf. og eignist 365 með
því hlut í félaginu.
Ari segir að þetta hefði engin
áhrif á útgáfu Fréttablaðsins, en
mikið hagræði geti legið í
samstarfi á sviði framleiðslu og
dreifingu.
Viðskiptin yrðu háð samþykki
Samkeppniseftirlitsins. - bih
365 og Árvakur:
Árangursríkar
viðræður
BANDARÍKIN Bandaríkjaþing felldi
í gær naumlega frumvarp um
700 milljarða dala björgunará-
ætlun fyrir fjármálakerfi lands-
ins. Tveir þriðju repúblíkana
greiddu atkvæði gegn, og fjórir
af hverjum tíu demokrötum.
Andstæðingar frumvarpsins
segja það hroðvirknislega unnið
og að auki sé allsendis óljóst að
það muni binda endi á fjármála-
kreppuna. Demókratar gagn-
rýndu þingflokksforystu rep-
úblíkana fyrir að hafa svikist um
að tryggja frumvarpinu stuðn-
ing, en margir þingmenn rep-
úblíkana sögðust ósáttir við að
demokratar hefðu reynt að gera
frumvarpið flokkspólítískt, og
bentu meðal annars á ræðu Nancy
Pelosi sem fylgdi frumvarpinu
úr hlaði með mjög harðri gagn-
rýni á efnahagsstefnu ríkis-
stjórnar Bush. Forystumenn
beggja flokka hafa heitið því að
gera aðra tilraun til að koma
frumvarpinu í gegn sem fyrst.
Hlutabréf féllu þegar við opnun
markaða, en verðfallið breyttist í
hrun eftir að ljóst var um afdrif
frumvarpsins. Dow Jones hluta-
bréfavísitalan féll um sjö prósent
eða 777,68 punkta, en hún hefur
aldrei fallið jafn mikið á einum
degi. Markaðsvirði skráðra
félaga rýrnaði um 1.200 milljarða
dollara, sem er mesta verðrýrn-
un á einum degi í sögu kauphall-
arinnar. -msh
HRUN Verðfall gærdagsins er hið versta í
sögu Wall Street. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafnar björgunaráætlun fyrir fjármálakerfið:
Mesta hrun í sögu Wall Street
STJÓRNMÁL Jón Magnússon var
kjörinn formaður þingflokks
Frjálslynda flokksins í gær.
Tekur hann við embættinu af
Kristni H. Gunnarssyni en grunnt
hefur verið á því góða milli þeirra
að undanförnu.
„Ég er mjög ósáttur,“ sagði
Kristinn í samtali við Fréttablaðið
í gærkvöldi. „Formaðurinn hafði
áður tilkynnt að hann hygðist
ekki gera breytingar en hann
hefur greinilega látið undan
þrýstingi, hótunum og ófræging-
arherferð Nýs afls.“
Spurður hvort hann ætli að
starfa áfram innan Frjálslynda
flokksins svaraði Kristinn: „Það
mun skýrast fljótlega .“ - bþs
Þingflokkur Frjálslyndra:
Jón formaður
BÍLLINN Í LJÓSUM LOGUM Ekki leið á
löngu uns bíllinn varð alelda.
MYND/SIGURÐUR BJARNI GÍSLASON
SPURNING DAGSINS