Fréttablaðið - 30.09.2008, Side 14
14 30. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 1499
4.701 -4,82% Velta: 11.630 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 6,34 -3,21% ... Atorka 4,84
-13,57% ... Bakkavör 22,20 -7,88% ... Eimskipafélagið 4,11 -0,96% ...
Exista 6,54 -14,17% ... Glitnir 15,70 0,00% ... Icelandair Group 19,00
-5,47% ... Kaupþing 723,00 -3,60% ... Landsbankinn 21,50 -6,73% ...
Marel Food Systems 89,20 -2,83% ... SPRON 2,90 -13,43% ... Straum-
ur-Burðarás 8,59 -8,13% ... Össur 93,70 -2,40%
MESTA HÆKKUN
EIK BANK +3,53%
MESTA LÆKKUN
EXISTA -14,17%
ATORKA -13,57%
SPRON -13,43%
Stjórn Byrs sparisjóðs hefur hætt
sameiningarviðræðum við Glitni
banka. Ákvörðun um þetta var
tekin í gærmorgun eftir fregnir af
kaupum ríkisins á 75 prósenta hlut
í Glitni.
„Viðræður voru á algjöru frum-
stigi og ekki farið að afhenda gögn
ennþá,“ segir Jón Þorsteinn Jóns-
son, stjórnarformaður Byrs.
Jón Þorsteinn segir fullsnemmt
að spá fyrir um framhaldið hvað
varði aðkomu Byrs af samrunum á
fjármálamarkaði. „Menn eru nú
bara rétt að ná andanum á söguleg-
um degi,“ sagði hann í gær, en
ítrekaði um leið að Byr væri öflugt
fyrirtæki og ekkert sem þrýsti á
um breytingar. - óká
Byr og Glitnir
sameinast ekki
Úrvalsvísitalan féll um 4,8 pró-
sent í gær en það er mesta fall
hennar á einum degi frá upphafi.
Þá féll krónan um 3,6 prósent eftir
viðvarandi veikingu fram eftir
degi og hefur krónan aldrei verið
veikari.
Gengisvísitala krónunnar end-
aði í 186,6 stigum í gær. „Krónan
veiktist hratt í upphafi dags og
styrktist svo aftur lítilega rétt
fyrir klukkan tíu. Eftir það hóf
hún veikingarferli á nýjan leik í
mikilli veltu en velta nam 67,4
milljörðum króna,“ bendir grein-
ingardeild Landsbankans á.
Helstu erlendu gjaldmiðlarnir
fóru í hæstu hæðir gagnvart krónu
að Bandaríkjadal undanskildum,
sem til skamms tíma fór í rúmar
100 krónur. Dollarinn hefur ekki
verið dýrari síðan snemma í apríl
árið 2002.
Af Úrvalsvísitölufélögunum
svokölluðu féll gengi bréfa í
Existu mest, eða um 14,17 prósent
en næstmest í Atorku, eða um 13,6
prósent.
Gengi allra íslensku bankanna -
að hlutabréfum Glitnis undan-
skildum sem voru stöðvuð í gær-
morgun – féll á bilinu 13,4 til 3,6
prósenta. Mest var fall Spron en
minnst á bréfum Kaupþings.
Greiningardeild Landsbankans
bendir í Vegvísi sínum á að bendir
á að fyrir gærdaginn hafði mesta
fallið verið í apríl 2006 og í maí
2001. Á fyrri hluta árs 2006 hafi
staðið yfir svonefnd Íslandskrísa
en lækkunin árið 2001 tengdist
endalokum netbólunnar.
Greining Glitnis bendir á að
væntingavísitala Gallup fyrir
september verður birt í dag og
segir lítinn hug hefur verið í neyt-
endum undanfarna mánuði.
„Væntingar jukust þó lítið eitt í
ágúst eftir að hafa mælst í sögu-
legu lágmarki mánuðina á undan.
Ætla má að órói á fjármálamörk-
uðum í september liti mat neyt-
enda á efnahagsástandinu svo og
gengislækkun krónunnar í mánuð-
inum,“ segir í umfjöllun greining-
ardeildarinnar. - jab, óká
Fallið aldrei
verið meira
Krónan veiktist um 3,9 prósent í viðskiptum gær-
dagsins. Hrapið ágerðist eftir fregnir af aðkomu rík-
isins að Glitni. Úrvalsvísitalan féll um 4,8 prósent.
MIÐLARAR Í KAUPHÖLLINNI Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur aldrei fallið
meira á einum degi en hún gerði í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ríkisstjórnir Beneluxlandanna, Hollands,
Belgíu og Luxemborgar hefur komið fjár-
málafyrirtækinu Fortis til bjargar með 11,2
milljarða evra framlagi og tekur í staðinn
49,9 prósenta hlut í fyrirtækinu.
Þá þjóðnýtti ríkisstjórn Bretlands fast-
eignalánastarfsemi fjármálafyrirtækisins
Bradford & Bingley, en spænski bankinn
Banco Santander mun kaupa útibúanet fyrir-
tækisins. Þriðja stóra fjármálastofnunin sem
bjargað var af ríkinu var þýska fasteigna-
lánafélagið Hypo Real Estate Group sem er
hið stærsta í Evrópu. Ríkið, ásamt hópi
þýskra banka, munu veita félaginu 35 millj-
arða evra neyðarlán en með því er tryggt að
félagið geti haldið áfram starfsemi út næsta
ár.
Hlutabréfamarkaðir í Evrópu féllu mikið á
mánudag, en FTSE 100-vísitalan breska féll
um 5,3 prósent og Dax-vísitalan þýska féll
um 4,2 prósent. Mest féllu bréf í fjármálafyr-
irtækjum.
Óttast er að fleiri evrópskir stórbankar
kunni að verða gjaldþrota á næstu vikum, ell-
egar að stjórnvöld neyðist til að koma þeim til
bjargar. Business Week bendir á að hlutabréf
svissneska stórbankans UBS hafi fallið um 30
prósent en UBS hefur tapað miklu á undir-
málslánastarfsemi í Bandaríkjunum. - msh
Þjóðnýting einnig í Evrópu
HÖFUÐSTÖÐVAR FORTIS Fortis, sem hefur höfuð-
stöðvar sínar í Brussel, er eitt stærsta fjármálafyrir-
tæki Evrópu. MARKAÐURINN/AFP
Tryggingasjóður bandarískra inni-
stæðueigenda, FDIC, hefur gengið
frá samningi um kaup Citigroup á
Wachovia, fjórða stærsta banka
Bandaríkjanna. Kaupverðið er 2,2
milljarðar dollara en heildareignir
Wachovia eru yfir 800 milljarðar.
Með kaupunum er komið í veg
fyrir gjaldþrot Wachovia en á
fimmtudaginn í síðustu viku varð
Washington Mutual, áttundi
stærsti banki Bandaríkjanna,
gjaldþrota. Citigroup mun axla allt
að 42 milljarða tap af eignum
Wachovia, en FDIC tap umfram
það. Í skiptum fyrir þessa ábyrgð
mun FDIC eignast 12 milljarða
hlut í Citigroup.
Kaupin styrkja enn Citigroup,
sem er nú einn þriggja stærstu
banka Bandaríkjanna, ásamt
JPMorgan og Bank of America, en
saman eiga þeir þriðjung allra
innistæðna í Bandaríkjunum. -msh
Bandaríska ríkið tek-
ur hlut í Citigroup
VIÐSKIPTI „Ábyrgðin er
ekki umfram það sem
eigandinn ber gagnvart
fjárfestingunni,“ segir
Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra
þegar hann er spurður
um hvort ríkisábyrgð á
skuldbindingum Glitnis
fylgi 75 prósenta
eignarhlut ríkisins.
Skuldatryggingará-
lag á Glitni lækkaði í
gær um 150 punkta og
var 1.250 punktar um
kvöldmatarleytið í gær.
Skuldatryggingarálag á
Kaupþing hækkaði hins vegar um
450 punkta, í 1.650, og um 250
punkta á Landsbankann, í 1.240.
Björgvin G. Sigurðsson segir að
kaup á 75 prósenta hlut
í Glitni, í stað þess að
hann yrði allur keyptur,
hafi ekki verið hugsuð
til að koma í veg fyrir
að ríkisábyrgð myndað-
ist á skuldbindingum
bankans. „Það var metið
svo að þetta væri best
fyrir markaðinn.“
Davíð Oddsson seðla-
bankastjóri sagði í gær
að Glitnir hefði að
óbreyttu farið í þrot.
Kaup ríkisins á 75 pró-
senta hlut fyrir 84 millj-
arða króna þýða að í
stað þess að fyrirliggjandi hlut-
hafar tapi öllu er hlutur þeirra
þrátt fyrir allt yfir 20 milljarða
króna virði. - ikh
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
Ríkisábyrgð fylgir
ekki með hjá GlitniLítill greinarmunur virðist gerður á Glitni og öðrum íslensk-
um bönkum í umræðum á
spjallvefjum skandínavísku
viðskiptablaðanna. Margir
þykjast hafa séð fyrir að umsvif
Íslendinga myndu enda illa.
Norrænir fjölmiðlar hafa einn-
ig vitnað til orða Davíðs Odds-
sonar, seðlabankastjóra, að
Glitnir hefði orðið gjaldþrota ef
ríkið hefði ekki komið bankanum
til bjargar. Dagens Industry
slær ummælunum upp í fyrir-
sögn.
Sænska fréttaveitan E24
vitnar í Tomas Ullman sérfræð-
ing hjá verðbréfafyrirtækinu
Erik Penser, en hann segir að
björgun Glitnis og belgíska
fjármálafyrirtækisins Fortis
sýni að ekki sé hægt að treysta
orðum yfirvalda og banka um
heilbrigði fyrirtækjanna. - msh
Greina ekki á
milli bankanna