Fréttablaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 24
30. SEPTEMBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Antíkbúðin við Strandgötu er
völundarhús gamalla muna.
Þar ræður ríkjum fólk sem les
í gamla gripi og þekkir sögur
þeirra jafn vel og lófann á sér.
Sigurlaug Gunnarsdóttir stend-
ur í miðri verslun og ber Gunnars
majónes á gamla tekkstóla. „Við
lásum það í gamalli Viku að þetta
væri gott á tekkið,“ segir Sigurlaug
skælbrosandi þegar hún sér undr-
unarsvipinn á blaðamanni. „Og það
verður að vera Gunnars majónes,“
segir Jónas Ragnar Halldórsson
þegar hann kemur aðsvífandi og
bætir við: „Þetta þrælvirkar.“
Sigurlaug og Jónas eru eigend-
ur og starfsmenn Antíkbúðarinnar
sem stendur við Strandgötu í Hafn-
arfirði. Þau eru ekki bara sérfróð
um majónes og tekk heldur allt
sem viðkemur antík.
Jónas leiðir blaðamann í gegnum
verslunina, sem er eins og stórt vö-
lundarhús stútfullt af húsgögnum
og ýmsum heillandi gripum, sem
eru sumir hverjir nokkuð hundr-
uð ára gamlir. Engu skiptir hvað á
vegi hans verður, hann þekkir sögu
hvers einasta hlutar og les í silfur
eins og aðrir lesa skáldsögur.
„Sjáðu merkin hérna,“ segir
hann og bendir á bakhliðina á fal-
legri silfurskeið. „Þetta segir mér
allt um hvaðan hluturinn kemur
og hvenær hann var framleidd-
ur.“ Næst grípur hann lítinn platta
með brjóstmynd af Jóni Sigurðs-
syni og rekur ekki bara sögu platt-
ans, heldur ævisögu mannsins sem
bjó hann til.
„Fólk kemur mikið hingað til
að láta okkur meta gamla gripi.
Oft kemur það því í opna skjöldu
hversu verðmæta gripi það er með
í höndunum. Um daginn kom hing-
að til dæmis stúlka með gamla
vasa sem hún hafði erft eftir afa
sinn. Í ljós kom að þeir eru millj-
ónarvirði.“
Það segir sig kannski sjálft
að manni sem rekur antíkversl-
un er annt um varðveislu og með-
ferð gamalla hluta? „Jú, vissulega
en núna er talsvert um að fólk sé
að kaupa gömul húsgögn og láta
sprautulakka þau. Ég skal við-
urkenna að stundum svíður mig
undan því, en ég held að það geti
verndað hlutina að lakka þá.“ Að
því sögðu bendir hann á borð sem
hann segir vera gamla íslenska
hönnun í fúnkístíl. „Eins og sjá
má er farið að brotna upp úr því
og spurning hvort það bjargi ekki
borðinu að lakka það.“
Íslenska hönnun er að finna víða
í versluninni og líka skandinavíska.
„Við höfum verið með Svaninn og
Eggið og alla þessa frægu stóla,“
segir Jónas. „Við fáum allt hingað
inn.“ - keþ
Les silfur eins og sögu
„Sjáðu merkin hérna,” segir Jónas og bendir á bakhliðina á fallegri silfurskeið. „Þetta segir mér allt um hvaðan hluturinn kemur
og hvenær hann var framleiddur.“ Engu skiptir hvað á vegi Jónasar verður, hann þekkir sögu hvers einasta hlutar og les í silfur
eins og aðrir lesa skáldsögur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sumir gripirnir eru nokkur hundruð ára.
Starfsmenn Antíkbúðarinnar við
Strandgötu lásu í gamalli Viku að gott
væri að bera Gunnars majónes á gamla
tekkstóla og hafa fylgt þeirri reglu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Brynhildur Pálsdóttir vöruhönn-
uður er borinn og barnfæddur
Hafnfirðingur:
Uppáhaldsveitingastaður:
„Gamli vinnustaðurinn minn Súf-
istinn. Þar er sérstaklega huggu-
legt að koma við eftir góðan
göngutúr og fá sér kaffibolla.“
Uppáhaldsgönguleið: „Best er
að taka góðan gönguhring úr mið-
bænum upp á Hamarinn og svo
Strandgötuna, Norðurbæinn og
Skúlptúrgarðinn. Labba svo með-
fram sjónum og gömlu sundlaug-
inni og enda á Súfistanum.“ - rat
MINN HAFNARFJÖRÐUR
Brynhildur Pálsdóttir vöruhönnuður
segir gott að enda gönguferðirnar á
Súfistanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sími: 544 2044
STRANDGÖTU 39 • S. 555 70 60
www.sjonlinan.is
I.a Eyeworks
IC! Berlin
Face á Face
D&G
Vogue
Rodenstock
J.F. REY
BOSS
Cucci
KunoQvist
Porsche Design
RayBan
Kaenon Polarized