Fréttablaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 30. september 2008
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 30. september
➜ Kvikmyndir
RIFF Alþjóðleg kvikmyndahátíð
í Reykjavík stendur yfir til 5. okt.
Nánari upplýsingar á www.riff.is.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Röksemdir að láni Dr.
Rachael Lorna Johnstone flytur fyrir-
lestur í Háskólanum á Akureyri, L
201, Sólborg v/Norðurslóð.
12.05 „Með því að óttast má
...“ Guðni Th. Jóhannesson heldur
fyrirlestur um ástæður símhler-
ana í kalda stríðinu í fyrirlestrar-
sal Þjóðminjasafns Íslands við
Suðurgötu.
➜ Fræðsla
20.40 Hagkvæmur rekstur og
heimasæla Hagnýt fræðslukvöld í
safnaðarheimili
Laugarneskirkju.
Bjarni Karlsson
sóknarprest-
ur, Margrét
Sigfúsdóttir
hússtjórnarkenn-
ari og Snorri
Halldórsson
kerfisfræðingur
og bankamaður
annast fræðsluna. Allir velkomnir og
þátttaka ókeypis.
➜ Ljósmyndasýningar
Hjólin í Kína Jóhann Hansen sýnir
ljósmyndir í kaffihúsinu Bifröst í
Háskólanum á Bifröst. Sýningin
stendur til 18. okt. og er opin virka
daga frá kl. 8.00 - 22.00
➜ Myndlist
Fjör í flæði Gegga sýnir verk í
Kaffitári, Stapabraut 7, Reykjanesbæ.
Opið mán. - föst. kl. 9.00 - 17.00 og
lau. kl. 11.00 - 16.00.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Norski danshöfundurinn Ina Chri-
stel Johannessen hlaut í síðustu
viku Norsku gagnrýnendaverð-
launin fyrir verk sitt Ömbru sem
hún samdi fyrir Íslenska dans-
flokkinn og dansflokkinn Carte
Blanche í samvinnu við Listahátíð
í Reykjavík og Listahátíðina í
Bergen. Verkið var sýnt hér á
Íslandi í byrjun sumars við góðar
undirtektir gagnrýnenda og áhorf-
enda, og hefur síðan verið sýnt
bæði í Bergen og í Ósló.
Ina Christel Johannessen er
einn af áhugaverðustu danshöf-
undum Evrópu um þessar mundir.
Hún samdi Ömbru í samstarfi við
íslensku tónlistarkonurnar Kiru
Kiru og Hildi Ingveldardóttur
Guðnadóttur ásamt Þjóðverjanum
Dirk Desselhaus. Um 20 dansarar
taka þátt í sýningunni ásamt
myndarlegri beinagrind úr stór-
eflis hval.
Í umsögn sinni um Ömbru sagði
dómnefnd Norsku gagnrýnenda-
verðlaunanna að verkið væri stór-
sýning sem markaði sannkölluð
tímamót fyrir listgreinarnar dans,
tónlist og sjónræna sköpun. Dóm-
nefndin sagði enn fremur að
hreyfingar dansaranna ljæðu
verkinu sinfónískan blæ og að það
myndi eflaust eiga sér langan líf-
tíma. Ekki amaleg umsögn það.
Í fréttatilkynningu sem Íslenski
dansflokkurinn sendi frá sér í til-
efni verðlaunanna kemur fram
ánægja með vel heppnað samstarf
danshöfundar og dansflokka. „Ina
og hennar samstarfsfólk sem og
dansarar flokkanna beggja eru vel
að þessum verðlaunum komin og
erum við stolt af þessu vel heppn-
aða norræna samstarfi,“ segir
Katrín Hall, listrænn stjórnandi
Íslenska dansflokksins.
- vþ
Ina verðlaunuð
VERÐLAUNUÐ DANSSÝNING Sýningin Ambra hlaut nýverið Norsku gagnrýnenda-
verðlaunin.
DAGSKRÁ:
8.30 – 9.00 Móttaka ráðstefnugesta.
9.00 – 9.05 Opnun ráðstefnu: Þröstur Olaf Sigurjónsson,
Háskólanum í Reykjavík.
9.05 – 9.15 Ásta Möller, alþingismaður og formaður
heilbrigðisnefndar, flytur erindi um stefnu ríkisstjórnarinnar í
heilbrigðismálum.
9.15 – 9.40 Valgarð Sverrir Valgarðsson, Rannsóknarmiðstöð
um einkaframkvæmd: What are they doing? - Private provision
in health care in three neighbour countries.
9.40 – 10.05 Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur,
Ph.D.: Governing the health care system within the framework
of government new policy.
10.05 – 10.20 Kaffi
10.20 – 10.55 Jörgen Lindell, Nutek, Swedish Agency for
Economic and Regional Growth: Profit, private delivery and
patient choice - recent changes in Swedish health care.
10.55 – 11.30 Nigel Edwards, Policy Director of The National
Health Service (NHS), UK: Market mechanisms for reforming
healthcare.
11.30 – 12.00 Panel umræður.
Fundarstjóri er Tinna Laufey
Ásgeirsdóttir, heilsuhagfræðingur.
Þátttaka á ráðstefnunni sem fer fram
á ensku, er ókeypis.
Skráning er á skraning@ru.is
Frekari upplýsingar veitir
Þröstur Olaf Sigurjónsson,
Háskólanum í Reykjavík, 5996200.
FJÖLBREYTT REKSTRARFORM Í
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU: TIL HVERS?
r
Ráðstefna 31. október á vegum Háskólans í Reykjavík
haldin á Grand Hótel, Sigtúni kl. 8:30 - 12:00
Fundarherbergi - Náðu athygli, náðu árangri