Fréttablaðið - 30.09.2008, Blaðsíða 38
22 30. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
Listahópurinn The Weird Girls
Project leitar nú að kalltæki og
tæki sem framleiðir sápukúlur
vegna nýs myndbands sem hann
ætlar að gera fyrir Emilíönu
Torrini.
Tökur á myndbandinu, sem
verður í leikstjórn Bretans Ali
Taylor, hefjast næstkomandi
laugardag og því þurfa þær
stúlkur að hafa hraðann á ætli þær
að hafa allt tilbúið í tæka tíð.
Emilíana fær að hafa lítil sem
engin afskipti af myndbandinu en
þrátt fyrir það samþykkti hún gerð
þess án þess að hika. Stúlkurnar í
The Weird Girls Project fá hvorki
að vita hvar myndbandið verður
tekið upp né hvert þeirra hlutverk
verður fyrr en samdægurs.
Sápukúlur í
myndbandi
SKRÍTNAR STÚLKUR The Weird Girls
Project tekur upp nýtt myndband fyrir
Emilíönu Torrini á laugardaginn.
Drew Barrymore er komin með
nýjan kærasta. Í júlí síðastliðnum
slitu hún og leikarinn Justin Long
sambandi sínu. Barrymore sást
hins vegar láta vel að öðrum
leikara í partýi í New York í
vikunni, en þar er á ferðinni Ed
Westwick sem gerir garðinn
frægan í þáttunum Gossip Girl.
Hann er 21 árs gamall en Drew
varð 33 ára á árinu.
„Drew virtist svo hamingjusöm
og Ed leit út eins og köttur sem
komst í rjóma,“ segir einn
sjónarvotta sem lýsir miklu
kossaflensi hjá parinu. Ekki er
langt síðan Drew var orðuð við
meðleikara Eds í Gossip Girl og
meðleigjanda, Chace Crawford,
en sá orðrómur virðist ekki hafa
verið á rökum reistur.
Drew komin
með kærasta
Hljómsveitin Amiina hefur tekið
upp eigin útgáfu af lagi banda-
ríska sveitasöngvarans Lee
Hazlewood, Leather and Lace.
Síðasta lagið sem Hazlewood tók
upp áður en hann lést í fyrra var
einmitt Hilli (At the Top of the
World) með Amiinu.
Nýja lagið má heyra á myspace-
síðu Amiinu auk þess sem það
verður gefið út á næstunni.
Amiina er nýkomin heim eftir að
hafa hitað upp fyrir Sigur Rós á
tónleikaferð um Evrópu, Mexíkó
og Bandaríkin. Hljómsveitin
Parachutes hitar nú upp í hennar
stað þangað til For a Minor
Reflection tekur við kyndlinum í
nóvember.
Amiina með
nýtt lag
AMIINA Hljómsveitin Amiina hefur tekið
upp sína útgáfu af lagi Lee Hazlewood,
Leather and Lace.
„Stjórinn“ Bruce Springsteen og
hljómsveit hans, The E Street
Band, mun spila í hálfleik á Super
Bowl-úrslitaleik bandaríska
ruðningsins í febrúar á næsta ári.
Um frábæra kynningu er að ræða
fyrir Springsteen enda horfðu
rúmlega 148 milljónir Banda-
ríkjamanna á Tom Petty and the
Heartbreakers spila í fyrra.
Á meðal annarra sem hafa
spilað á þessu eftirsótta augna-
bliki eru Prince, Rolling Stones,
U2 og Paul McCartney. Tónleik-
arnir sem flestir muna þó
vafalítið eftir voru þegar Janet
Jackson beraði annað brjóst sitt
árið 2004.
Bruce spilar
á Super Bowl
„Í þessu lagi fær fólk að skyggnast inn í
hjartatetrið mitt,” segir Ívar Halldórsson,
útvarpsmaður á Bylgjunni og verslunar-
stjóri í Rúmfatalagernum, um lagið Full-
komna vera sem hann sendi nýverið frá
sér. „Ég ákvað að syngja þetta lag sjálf-
ur, að hluta til vegna þess að það er
orðið allt of langt síðan ég þandi
raddböndin síðast opinberlega hér-
lendis en þó aðallega vegna þess að
mér finnst ég á einhvern óútskýran-
legan hátt svo tengdur þessu lagi að ég
tími ekki að láta neinn annan syngja
það,“ bætir hann við.
Ívar er ekki alls ókunnur lagasmíðum því
hann er höfundur lagsins Colors of Love
sem var gefið út í tilefni af tuttugu ára
afmæli ABC-barnahjálpar í flutningi Reg-
ínu Óskar. Einnig komst hann bæði í úrslit
Landslagskeppninnar árið 1990 með laginu
Gluggaást, sem hann söng með Helgu Möll-
er og í forkeppni Eurovision árið eftir þar
sem hann átti tvö lög í keppninni. Í báðum
tilvikum varð hann að lúta í lægra haldi
fyrir Eyjólfi Kristjánssyni tónlistarmanni
sem vann Landslagskeppnina með laginu
Álfheiður Björk og forkeppni Eurovision
sigraði hann ári síðar með laginu Nína.
Aðspurður útilokar Ívar ekki frekari þátt-
töku í sönglagakeppnum í framtíðinni.
„Kannski eigum við Eyjólfur eftir að
mætast aftur í einhverri keppninni, það er
aldrei að vita. Allt er þegar þrennt er,“ segir
Ívar að lokum. Áhugasömum er bent á
vefsíðu hans, myspace.com/ivarhalldorsson.
Syngjandi útvarpsmaður
SEMUR OG SYNGUR Ívar hefur starfað á Bylgjunni í
nokkur ár auk þess sem hann er verslunarstjóri hjá
Rúmfatalagernum og semur tónlist.
FRÉTTABLADID/ARNÞÓR
> ÖÐRUVÍSI NÁTTFÖT
Victoria Beckham sefur eingöngu í
sokkum og hönskum. Það er þó ekki
fyrir lúkkið, að hennar sögn, heldur
er þar á ferðinni eitt helsta fegrunarráð
hennar, þar sem hún smyr bæði
hendur og fætur vel með þykku
kremi áður en hún skríður
upp í í bómullarhönskum
og -sokkum. Eiginmað-
urinn er hins vegar ekki
jafn hrifinn. „Honum
finnst ég klikkuð,“ segir
frú Beckham.
Krakkarnir sem léku í
söngleiknum Bugsy Malone
fyrir tíu árum hittust aftur
um liðna helgi. Margir voru
að hittast í fyrsta skipti síð-
an þau voru í sýningunni.
„Það var ótrúlega skemmtilegt og
fyndið að koma þarna inn því suma
hafði maður ekki séð frá því að við
vorum í sýningunni fyrir tíu
árum,“ segir Álfrún Örnólfsdóttir
leikkona um endurfundi þeirra
sem tóku þátt í söngleiknum
Bugsy Malone. Söngleikurinn var
settur upp í Loftkastalanum árið
1998 í leikstjórn Baltasars Kor-
máks. Þar stigu margir ungir og
efnilegir leikarar, dansarar og
söngvarar sín fyrstu skref og hafa
margir gert það gott á hinum ýmsu
sviðum í seinni tíð. Þar á meðal
var Þorvaldur Davíð Kristjánsson
leikari, Halla Vilhjálmsdóttir leik-
kona, Klara Ósk Elíasdóttir söng-
kona, Unnur Birna Vilhjálmsdótt-
ir fegurðardrottning og Unnur
Elísabet Gunnarsdóttir dansari.
Á föstudaginn var efnt til end-
urfunda á Kaffi Sólon þar sem
bróðurpartur þeirra 32 krakka
sem komu fram í sýningunni hitt-
ist og rifjaði upp gamla tíma.
„Sumir strákanna höfðu nánast
vaxið um hálfan metra frá því í
sýningunni,“ segir Álfrún og hlær.
„Það var gaman að rifja upp þenn-
an tíma og kynnast upp á nýtt.
Margir af þeim sem komu fram í
sýningunni eru ennþá að dansa,
leika eða syngja og þó nokkuð
margir hafa lagt fyrir sig hag-
fræði og viðskiptafræði,“ segir
Álfrún. alma@frettabladid.is
Frábærir endurfundir
Bugsy Malone- krakkanna
Sigrún Huld Gunnarsdóttir og Tinna
Finnbogadóttir dansarar voru hressar.
Klara Ósk Elíasdóttir söngkona og Ásrún
Lára Arnþórsdóttir voru dansmeyjar og
léku ýmis hlutverk í Bugsy Malone, en
Kristín Ósk Wium Hjartardóttir lék eitt af
aðalhlutverkunum.
DANSMEYJAR Hjördís Lilja Örnólfsdóttir og Unnur Elísabet Gunnarsdóttir dansarar skemmtu sér vel á tíu ára endurfundum
krakkanna úr Bugsy Malone. Álfrún Örnólfsdóttir leikkona er lengst til hægri á myndinni. Hún segir endurfundina hafa verið mjög
skemmtilega. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lagerútsala í Faxafeni 11 (gamla Leikbæjarhúsinu)
Jólavörur, gjafavörur, servíettur, kerti og margt fl eira. Tökum daglega upp nýjar vörur.
Opið frá 11 - 18 alla daga, líka um helgar.