Fréttablaðið - 03.10.2008, Qupperneq 44
24 3. október 2008 FÖSTUDAGUR
UMRÆÐAN
Björgvin Guðmundsson
skrifar um kjaramál
Kjarasamningar eru í upp-námi. Forsendur þeirra eru
brostnar vegna mikillar verð-
bólgu. Samningar verða lausir í
byrjun næsta árs og verða ekki
framlengdir nema til komi veru-
legar kjarabætur. Verðbólgan
hefur étið upp allar kjarabætur
samninganna frá því í febrúar sl.
Kjaraskerðing verkafólks sl. 12
mánuði er 5%.
Örlitlar þreifingar hafa verið
milli verkalýðshreyfingarinnar
og ríkisstjórnarinnar um ástand
efnahags- og kjaramála. Það hefur
ekkert komið út úr þeim
þreifingum. ASÍ
og SA hafa einnig
rætt saman en
fundir þessara
aðila hafa verið
líkastir óformleg-
um fundum. Sú
hugmynd svífur
yfir vötnunum að
gera þyrfti ein-
hvers konar
þjóðar sátt um
efnahags- og
kjaramál nú en ekki virðist að
mínu mati grundvöllur fyrir
henni. Verkalýðshreyfingin er
ekki tilbúin til þess að taka á sig
kjaraskerðingu. Guðmundur
Gunnarsson, formaður Raf iðnaðar-
sambandsins, var mjög harðorður
eftir að Orkuveitan hækkaði
gjaldskrá sína um 9,7% fyrir
skömmu. Hann sagði, að þessi
hækkun væri bein ávísun á jafn
mikla kauphækkun verkafólks.
Sama segja verkalýðsforingjar
um kauphækkun ljósmæðra. Þær
fengu 21% kauphækkun í nýgerð-
um kjarasamningum. Verkalýðs-
foringjarnir segja, að með þeim
samningum hafi verið sett for-
dæmi fyrir kauphækkun væntan-
legra samninga.
Verkafólk fái kauphækkun eða
ígildi hennar
Ljóst er, að annaðhvort verður
verkafólk að fá talsverða beina
kauphækkun eða þá að ríkis-
stjórnin verður að gera ráðstaf-
anir, sem jafngilda verulegum
kauphækkunum. Þar kemur
margt til greina, svo sem frekari
lækkanir á tekjuskatti einstakl-
inga, lækkanir á tollum og virðis-
aukaskatti, ráðstafanir í húsnæðis-
málum, þar á meðal hækkun
húsaleigubóta og fleira. Ef ríkis-
stjórnin gerir ekki slíkar ráðstaf-
anir er talsverð bein kauphækk-
un óumflýjanleg.
Bæta þarf kjör aldraðra
Samhliða kjarabótum til verka-
fólks þarf að stórbæta kjör aldr-
aðra og öryrkja. Það sem ríkis-
stjórnin hefur gert í því efni til
þessa hefur verið í skötulíki og
vigtar lítið, alla vega gagnvart
þeim sem hættir eru að vinna en
það er um 2/3 allra eldri borgara.
Aldraðir fengu aðeins 7,4%
hækkun á lífeyri sínum í upphafi
ársins, þegar lágmarkslaun
hækkuðu um 16% og fóru í 145
þús. á mánuði. Í september var
bætt við hækkun til aldraðra ein-
hleypinga og ákveðið, að lág-
marksframfærslutrygging líf-
eyrisþega skyldi vera kr. 150 þús.
á mánuði. En aldraðir hafa enn
enga leiðréttingu fengið fyrir
tímabilið 1. febrúar til 1. sept-
ember þessa árs. Krafa þeirra er
sú, að þeir fái uppbót fyrir það
tímabil, þar eð þeir fengu aðeins
7,4% þegar lágmarkslaun hækk-
uðu um 16%. Þeir vilja fá mis-
muninn.
Áhyggjur af efnahagsmálum
Verkafólk hefur nú miklar
áhyggjur af þróun efnahagsmála.
Það geisar mikil verðbólga (14%)
og samdráttur er verulegur í
atvinnulífinu. Þegar eru byrjaðar
uppsagnir starfsmanna fyrir-
tækja, einkum í byggingariðnaði,
og búast má við að þær aukist í
haust og í vetur. Fólk hefur einnig
áhyggjur af bönkunum, sem virð-
ast hafa farið óvarlega í erlend-
um lántökum og eiga nú í erfið-
leikum með endurfjármögnun
vegna hinnar alþjóðlegu fjár-
málakreppu. Það er hörð barátta
fram undan hjá verkalýðshreyf-
ingunni. Hún þarf að verja kjör
sín og fá bætur fyrir kjaraskerð-
ingu yfirstandandi árs.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
BJÖRGVIN GUÐ-
MUNDSSON
Verkafólk og aldraðir þurfa kjarabætur
Ljóst er, að annaðhvort verður
verkafólk að fá talsverða beina
kauphækkun eða þá að ríkis-
stjórnin verður að gera ráðstaf-
anir, sem jafngilda verulegum
kauphækkunum.
Auglýsingasími
– Mest lesið