Fréttablaðið - 31.10.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
31. október 2008 — 298. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég elda nokkurn veginn á hverj-
um degi og finnst mikilvægt að fá
bæði hollan og góðan mat,“ segir
Unnur María Bergsveinsdóttir og
viðurkennir að hún sé matargat. „Ég er alin upp við góðan mat
og mamma er ofb ð lk
arbókhlöðunni. Hún eldar oftast
einfalda rétti eins og grænmetis-
rétti með hrísgrjónum eða núðl um
og salöt. Spurð um uppáhalds-
matinn segist hún eiga erfittað g
eftir tilbúnum uppskriftum, les
þær einungis til innblásturs. Hún
segir æfinguna skapa meistarannþegar kemu ð
Eldar sjaldan vondan mat
Unnur María Bergsveinsdóttir sagnfræðingur er matargat. Hún er tilraunaglöð í eldhúsinu og vill borða
góðan og hollan mat og segir langt síðan henni tókst að elda eitthvað vont.
Unnur María Bergsveinsdóttir sagnfræðingur eldar á hverjum degi eitthvað gott og hollt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÚTVARPSLEIKHÚSIÐ frumflytur nýtt leikrit eftir
írsk-íslenska leikskáldið Brian FitzGibbon á Rás 1 á
sunnudaginn klukkan 14. Leikritið heitir Annar maður
og er í leikstjórn Eddu Heiðrúnar Backman.
Verð 7.750 kr.
Villibráðar-hlaðborð
16. október - 19. nóvemberMatreiðslumeistarar Perlunnar velja hráefni frá öllum heimshornum til að útbúa bestu villibráð sem hægt er að bjóða upp á. Nú getur þú notið þess besta í villibráðarhlaðborði Perlunnar.Fyrir mat er gestum boðið að bragða á sérvöldum eðalvínum frá Chile og Argentínu.
Gjafabréf Perlunnar
Góð tækifærisgjöf!
Jólahlaðborð Perlunnar hefst 20. nóvemberTilboð mán.-þri. 6.250 kr. — Verð: 7.250 kr.
VEÐRIÐ Í DAG
UNNUR MARÍA BERGSVEINSDÓTTIR
Mikilvægt að fá bæði
hollan og góðan mat
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 31. október 2008
KOKKUR Í KLÆÐUM
Hrefna Björk
Jóhannsdótt-
ir Sætran kippir sér ekkert upp við það að vera eina stelpan í
kokkalands-
liðinu
Öflug
höfundasmiðja
Hugleikur fagnar 25
ára starfsafmæli
með stuttverka-
dagskrá og
leiksýningu.
TÍMAMÓT 20
TAKIÐ VEL Á MÓTI SÖLUFÓLKI OKKAR
UM HELGINA. KAUPUM NEYÐARKALL!
HLÝNAR Í dag verða suðvestan 10-
20 m/s á Vestfjörðum og norðan til,
hvassast með ströndinni, en 5-10
m/s víðast annars staðar. Fer að
rigna vestan til nálægt hádegi. Hiti
víðast 5-10 stig síðdegis.
VEÐUR 4
8
8
3
4
10
MENNING „Já, það hlýtur að vera
mikið gleðiefni hvernig gengið
hefur með þessar bækur mínar um
allan heim; í Þýskalandi, Frakk-
landi, Svíþjóð, Noregi, Hollandi og
svo í 36 útgáfulöndum öðrum,“
segir Arnaldur Indriðason
metsöluhöfundur.
Arnaldur hefur nú náð þeim
einstæða áfanga að rjúfa fimm
milljóna múrinn. Það er, hann
hefur selt fleiri eintök bóka sinna
en fimm milljónir á heimsvísu.
Mest er salan í Þýskalandi, eða
þrjá milljónir eintaka seld. Egill
Örn Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Forlagsins, segir ekki
nákvæmar tölur til um sölu eintaka
á Íslandi en það láti nærri að eitt
eintak sé til á hvern íbúa í bókahill-
um landsmanna. - jbg / sjá síðu 34
Enn eitt met Arnaldar:
Fimm milljóna
múrinn rofinn
ARNALDUR INDRIÐASON Þrjár milljónir
eintaka bóka hans hafa selst í Þýska-
landi.
HREFNA RÓSA JÓHANNSDÓTTIR SÆTRAN
Eina stelpan
í hópnum
FÖSTUDAGUR FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Átaka-
hljómsveit
Jón Egill Berg-
þórsson frumsýnir
heimildarmynd um
Sálina hans Jóns
míns.
FÓLK 28
Jafnvægið raskast
„Deila má um, hvort skipan
peningamála á Íslandi hin síðari
ár hafi verið heppileg. En henni er
ekki um að kenna“, skrifar Hannes
Hólmsteinn Gissurarson.
Í DAG 18
Minnsta
kaffihús Íslands
Íslendingar kunna vel
að meta sterkan og
góðan kaffisopa
á Café D‘Haiti.
TILVERA 12
EFNAHAGSMÁL Stjórnendur Norður-
áls hafa nýverið kynnt stjórnvöld-
um hugmyndir um að álver í
Helguvík verði reist í fjórum
áföngum. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er gert ráð fyrir 90
þúsund tonna ársframleiðslu í
hverjum áfanga. Því verði í heild
framleidd 360 þúsund tonn af áli
árlega, þegar upp er staðið.
Ragnar Guðmundsson, forstjóri
Norðuráls, vildi aðeins segja að
engar ákvarðanir hefðu verið
teknar um framhaldið.
Upphaflega var gert ráð fyrir
150 þúsund tonna ársframleiðslu í
fyrsta áfanga, stækkun í 250 þús-
und tonna framleiðslu í öðrum
áfanga og svo hugsanlega frekari
stækkun. Framleiðsla átti að hefj-
ast árið 2010.
Mat á umhverfisáhrifum gerir
ráð fyrir allt að 250 þúsund tonna
framleiðslu. Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri í Reykjanesbæ, hefur sagt
að yrði álverið stærra, þá þyrfti
nýtt umhverfismat og leyfi.
Vinna við byggingu álversins
hófst í haust. Margir hafa áhyggj-
ur af framhaldinu. Forsvarsmenn
Íslenskra aðalverktaka sem starfa
í Helguvík bíða ákvarðana Norð-
uráls.
Yfir 200 manns hefur verið sagt
upp í byggingariðnaði á Suður-
nesjum undanfarið. Engir starfs-
menn í Helguvík hafa misst vinn-
una. Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis segir
Fréttablaðinu frá einum verktaka
í Helguvík, sem hefur ákveðið að
fella niður yfirvinnu. Að öðru leyti
sé vinna í fullum gangi.
Engar breytingar hafa verið gerð-
ar á tekjuáætlunum hjá Reykjanes-
höfn. Efnissala til framkvæmdanna
mun þó vera í endurskoðun.
Eftir því sem næst verður kom-
ist eru opinberir aðilar bjartsýnir
á að fjármögnun framkvæmdanna
í Helguvík gangi vel. - ikh
Álver í Helguvík
í fjórum áföngum
Hugmyndir um álver Norðuráls í Helguvík eru í endurskoðun. Stjórnvöldum
hafa verið kynntar hugmyndir um fjóra níutíu þúsund tonna áfanga. Gangur er
í framkvæmdum og engum hefur verið sagt upp. Óvissa er þó um framhaldið.
MENNING Óvissa ríkir um hvort
fyrirtæki Björgólfs Guðmunds-
sonar, Ólafsfell, geti staðið við
samning sem það gerði á síðasta
ári um að styrkja framleiðslu
leikins innlends efnis hjá Ríkis-
sjónvarpinu. Sá samningur
hljóðaði upp á 100 til 150 milljónir
en RÚV átti að láta jafn háa
upphæð af hendi. Samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins hefur
45 milljónum af þessum samningi
þegar verið ráðstafað.
„Við vorum búnir að fá átta
milljónir af 25 og því vantar enn
sautján milljónir upp á,“ segir
Snorri Þórisson hjá Pegasus, sem
framleiðir spennuþættina
Hamarinn. - fgg / sjá síðu 8
Ólafsfell í vanda:
Óvissa með
sjónvarpsþætti
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandslið-
ið varð í gær fyrsta A-landsliðið í
knattspyrnu sem tryggir sér sæti í
úrslitakeppni á stórmóti þegar
liðið vann Írland 2-0 á gaddfreðn-
um Laugardalsvellinum. Stelpurn-
ar okkar verða því meðal tólf
þjóða sem taka þátt í EM í Finn-
landi sem fram fer 23. ágúst til 10.
september á næsta ári.
„Ég táraðist bara úr gleði þegar
leikurinn var flautaður af. Ég er
búin að vera í þessu lengi og þetta
er einfaldlega toppurinn og við
munum njóta sigursins í botn,“
segir Katrín Jónsdóttir fyrirliði.
„Við erum búnar að bæta okkur
ótrúlega upp á síðkastið og hópur-
inn er frábær. Við misstum heldur
aldrei trúna á þessu markmiði
okkar. Stuðningurinn skipti öllu
máli. Að fá svona marga á völlinn í
þessum kulda var stórkostlegt,“
segir Katrín. - óój, óþ /sjá síðu 30
Kvennalandsliðið vann öruggan 3-0 sigur á liði Íra á Laugardalsvellinum í gær:
Stelpurnar okkar spila á EM 2009
TIL HAMINGJU! Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra faðmar hér Margréti Láru Viðarsdóttur eftir að sætið á EM
var í höfn. Margrét Lára skoraði tólfta mark sitt í undankeppninni í leiknum á móti Írum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL