Fréttablaðið - 31.10.2008, Page 11
FÖSTUDAGUR 31. október 2008 11
VIKA 38
DAGBÓK NÝRRA
ÍSLENDINGA
„Mér finnst Íslend-
ingar almennt
jákvæðir, þrátt
fyrir fjármála-
kreppuna,“ segir
Charlotte sem er
nýkomin heim
úr starfsnámi í
Lundúnum. Hún
segir fátt hafa breyst á meðan
hún var erlendis, „fyrir utan hvað
verð á vörum hefur hækkað
stórkostlega. Ég hef eytt meira í
matvöru síðastliðnar tvær vikur en
ég myndi annars eyða á tveimur
mánuðum. Samt hef ég bara keypt
það sem mig vantar og sleppt öllu
kjöti. Mér finnst þetta framtak,
indefence.is alveg frábært. Ég hef
fylgst með heimasíðunni og tel
líklegt að þeim takist að safna að
minnsta kosti 100 þúsund und-
irskriftum. Mér finnst mjög mikil-
vægt að koma réttum skilaboðum
til bresku þjóðarinnar, að þetta
bankahrun sé nú ekki íslensku
þjóðinni að kenna.“
Charlotte Ólöf Jónsdóttir Ferrier:
Matur kostar
miklu meira
„Þetta ástand hér
á landi getur ekki
farið fram hjá
manni. Ég tek eftir
því að verð hækkar
og svo eru vinnu-
félagarnir mikið
að tala um það og
ekki nóg með það
heldur er móðir mín í Portúgal að
spyrja um þetta en Ísland er mikið
í fréttum þar úti þessa dagana.
Ég er hérna áfram í Reykjavík
en vonast til að komast vestur á
Ísafjörð fljótlega. Ég kann betur við
mig í norðrinu, ég var til dæmis
fyrir stuttu á Sauðárkróki og það
var verulega gaman. En svo er ég
að fara til Amsterdam eftir tvær
vikur og þar mun ég hitta kærust-
una. Síðan þegar ég kem aftur líður
aðeins einn mánuður þar til ég sé
hana aftur; í jólafríinu í Portúgal.“
Filipe Figueiredo:
Mamma spyr um
ástandið
„Nú er kominn
vetur svo það er
voða notalegt að
leggjast í prjóna-
skapinn,“ segir
Junphen sem sagði
okkur meðal ann-
ars frá því síðasta
vetur að hún hefði
hannað og saumað á sig kjól sem
hún fór í á áramótagleði Taílendinga
hér á landi. „Nú er ég að sauma
húfu og vettlinga, ekki veitir af í
kuldanum og þegar ég er orðin
nógu fær þá ætla ég að gera peysu.
En það er ekki síður upplagt að
fara í Bláa lónið í kuldanum sem
ég og gerði um síðustu helgi með
nokkrum vinum. Það var síðan afar
gott að fá sér heitt kaffi á eftir.“
Junphen Sriyoha:
Farin að prjóna
PAKISTAN, AP Leiðtogar Afganist-
ans og Pakistans hafa ákveðið að
bjóða uppreisnarleiðtogum tali-
banahreyfingarinnar til viðræðna,
í þeirri von að binda megi enda á
átök með þeim hætti.
Abdullah Abdullah, utanríkis-
ráðherra Afganistans, og Shah
Mahmoud Qureshi, utanríkisráð-
herra Pakistans, komust að þess-
ari niðurstöðu eftir að hafa setið
öldungaþing ættbálka frá Afgan-
istan og Pakistan, sem haldið var í
borginni Islamabad í Pakistan.
Fulltrúar á þinginu hafa skipað
nefndir, sem fá nú það hlutverk að
setja sig í samband við leiðtoga
uppreisnarmanna. Annað öldunga-
þing verður svo haldið eftir tvo
mánuði, þar sem þessar nefndir
skýra frá árangri sínum.
Átök hafa aukist og versnað síð-
ustu misserin, bæði í Pakistan og
Afganistan. Uppreisnarmenn gegn
stjórn Afganistans og erlenda her-
liðinu þar hafa margir hverjir
flúið yfir landamærin til Pakist-
ans, þar sem þeir hafa bækistöðv-
ar í skjóli vinveittra ættbálka og
gera þaðan árásir yfir landamær-
in til Afganistans.
Abdullah sagði að einungis verði
rætt við þá uppreisnarhópa sem
fallast á stjórnarskrár beggja
landanna. Hann tók ekki fram
hvort kröfur væru um að þeir
afvopnist áður en af viðræðum
yrði. - gb
Leiðtogar Pakistans og Afganistans að loknum öldungafundi:
Bjóða talibönum til viðræðna
Á ÖLDUNGAÞINGINU Í ISLAMABAD Owis
Ahmed Ghani, héraðsstjóri Norðvestur-
landamærahéraðsins í Pakistan, ásamt
utanríkisráðherrunum Shah Mahmoud
Qureshi frá Pakistan og Abdullah
Abdullah frá Afganistan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VERSLUN „Fólk er að kaupa ódýrari
vörur, það er alveg ljóst. Hins
vegar er ég ekki viss um að salan
væri jafn mikil á sviðum og slátri
og fleiru í þeim dúr ef kreppan
hefði til dæmis komið upp í júní,“
segir Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónuss.
Guðmundur segir birgðastöðu
verslana í ágætis málum. „Ein-
hverjir vöruflokkar detta út, en
það er tímabundið. Miðað við
óbreytt ástand hef ég ekki
áhyggjur. Það er þó aldrei að vita
hvað gerist ef ástandið versnar
mikið,“ segir Guðmundur, og bætir
við að Bónus auglýsi mikið
íslenskt, það er allra hagur.“ - kg
Birgðastaða verslana:
Fólk kaupir
ódýrari vörur
DÓMSMÁL Landpítalinn hefur
verið sýknaður í skaðabótamáli
sem hjúkrunarfræðingur, er þar
starfaði, höfðaði gegn honum.
Hjúkrunarfræðingurinn var að
aðstoða sjúkling úr rúmi í
hjólastól, þegar sá fyrrnefndi féll
við og fékk slink á bakið.
Var örorka metin 12 prósent í
kjölfarið.
Niðurstaða dómsins var sú að
hjúkrunarfræðingurinn hefði
getað nálgast nauðsynleg
hjálpartæki við að koma sjúkl-
ingnum í hjólastólinn. Hafi hún
sjálf kosið að haga verkum sínum
með þeim hætti sem hún gerði og
beri því fulla ábyrgð. - jss
Skaðabótamál:
Landspítalinn
var sýknaður