Fréttablaðið - 31.10.2008, Side 12
31. október 2008 FÖSTUDAGUR
LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
Lestu fyrsta ka ann í
nýjustu bók Arnaldar
Indriðasonar
Við fjöllum um W,
kvikmynd Oliver Stone um
George W. Bush
Umræða um dauða
krúttsins heldur áfram
Njóttu laugardagsins til fulls.
Tryggðu þér áskrift á mbl.is
eða í síma 569 1100
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Hjónin Elda og Methúsal-
em reka minnsta kaffihús
landsins, Café D‘Haiti, við
Tryggvagötu. Þau segja Ís-
lendinga kunna vel að meta
sterkan og góðan kaffisopa.
„Við erum nýbúin að stækka við
okkur og finnst kaffihúsið bara
frekar stórt núna,“ segir Elda Þór-
isson Faurelien, sem ásamt eigin-
manni sínum, Methúsalem Þóris-
syni, rekur Café D‘Haiti á
Tryggvagötu 16. Kaffihúsið tekur
sex manns í sæti og telst því að
öllum líkindum minnsta kaffihús á
Íslandi og þó víðar væri leitað.
Samt rúmar húsnæðið talsvert
fleiri ef einhverjir sætta sig við að
standa og sötra bragðgóðan kaffi-
sopann í verstu vetrarhörkunum.
Elda og Methúsalem kynntust í
sveitinni Nippes á Makaya-svæð-
inu á suðurhluta Haítí, þar sem
Methúsalem starfaði á vegum
Húmanistahreyfingarinnar. Eftir
að hafa gift sig á Haítí fluttu þau
til Íslands árið 2006 með soninn
Þóri Guðmund sem nú er átta ára.
Elda hóf fljótlega að reyna fyrir
sér í kaffigerð og -sölu. „Ég er
sveitakona, hef unnið mörg sveita-
störf og meðal annars starfað við
kaffiræktun. Ég er því vel kunnug
öllu ferlinu, frá því að fræjunum
er sáð og þar til kaffið er komið
heitt ofan í bollann. Þetta er mín
reynsla og mitt upplag,“ segir
Elda. Hún hóf að búa til kaffi úr
baunum sem hún fékk beint frá
bændum á Haítí og seldi afurðirn-
ar víða, meðal annars á föstudags-
mörkuðum í Mjóddinni, í Mos-
fellsbæ og fyrir jólin á Smáratorgi.
„Við urðum vör við að fólki líkaði
kaffið vel og upp úr því fórum við
að framleiða í meira magni. Kaffi-
húsið hóf svo göngu sína á Skóla-
vörðustíg áður en það flutti á
Tryggvagötuna í apríl síðastliðn-
um,“ bætir Methúsalem við.
Hjónin segja rekstur kaffihúss-
ins hafa gengið vel, og að Íslend-
ingar séu þakklátir fyrir gott
kaffi. „Það er kannski orðum aukið
að tala um aðdáendahóp, en marg-
ir koma aftur og aftur til okkar,“
segir Methúsalem, en auk þess að
bjóða upp á kaffi til að drekka á
staðnum og taka með selja þau
einnig kaffi í pokum og kruðerí
víðs vegar að úr heiminum, meðal
annars frá Damaskus í Sýrlandi.
„Flestar vörurnar okkar eru vott-
aðar sem sanngjörn viðskipti (fair
trade), og við borgum bændunum
á Haítí meira en heimsmarkaðs-
verð fyrir kaffið,“ segir Elba.
Spurð um væntingar fyrir vet-
urinn eru hjónin bjartsýn. „Við
höldum að þetta verði allt í góðu
lagi, en að efnahagsástandinu und-
anskildu hefur veðrið líka áhrif á
starfsemina hjá okkur. Færri
koma og fá sér kaffi í miklum
kulda, sem er í raun skrýtið því
góður, heitur kaffibolli er það
besta í heimi þegar kalt er í veðri,“
segir Methúsalem og hefst því
næst handa við að undirbúa mál-
verkasýningu sem haldin verður á
Café D-Haiti um helgina, þar sem
verk Þórs Magnúsar listamanns
og annars listamanns frá Haítí
verða hengd upp á háa veggi kaffi-
hússins.
kjartan@frettabladid.is
Minnsta kaffihús Íslands
MANNAMÓT Vel á þriðja hundrað
karla í átta karlakórum munu sam-
einast á Heklumóti 2008 í Íþrótta-
höllinni á Húsavík á morgun, laug-
ardaginn 1. nóvember. Það er
Hekla, samband norðlenskra
karlakóra, sem stendur fyrir mót-
inu, en Heklumót eiga sér ríflega
sjö áratuga sögu. Fullyrða aðstand-
endur mótsins að um sé að ræða
veislu fyrir áhugafólk um kór-
söng, sem enginn unnandi megi
láta fram hjá sér fara.
Undirbúningsnefnd mótsins
fékk Guðmund Óla Gunnarsson,
tónlistarkennara og stjórnanda, til
að semja nýtt lag sérstaklega fyrir
mótið. Verkið ber heitið „Þú, sem
eldinn átt í hjarta,“ og er samið við
texta Davíðs Stefánssonar. Þarna
verður því um frumflutning að
ræða á nýju íslensku tónverki,
sem samið er fyrir karlakóra.
Kórarnir sem taka þátt í mótinu
að þessu sinni eru Karlakór Akur-
eyrar-Geysir, Karlakór Bólstaðar-
hlíðarhrepps, Karlakór Dalvíkur,
Karlakórinn Drífandi á Fljótsdals-
héraði, Karlakórinn Ernir á norð-
anverðum Vestfjörðum, Karlakór
Eyjafjarðar, Karlakórinn Heimir í
Skagafirði og sjálfir gestgjafarn-
ir, Karlakórinn Hreimur á Húsa-
vík.
Fjörið hefst klukkan 14.00 í
Íþróttahöllinni á Húsavík. - kg
Heklumót norðlenskra karlakóra verður haldið á Húsavík á morgun:
Veisla fyrir kóraunnendur
KÓRRÉTT Frá Heklumóti 2004.
HÁTT TIL LOFTS OG ÞRÖNGT TIL
VEGGJA Elbu og Methúsalem segja
Café D´Haiti búa yfir nægu plássi,
sérstaklega ef einhverjir láta sér
nægja að standa meðan bragðmik-
ill sopinn er sötraður.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
Bjánagangur
„Frá mínum bæjardyrum
er þetta bara hugsanalaus
bjánagangur.“
DÓRA ÍSLEIFSDÓTTIR, FAGSTJÓRI Í
LHÍ, UM FÁNA SAMTAKANNA NÝRRA
TÍMA, SEM HÚN TELUR MINNA Á
MYNDMÁL FASISTA.
Fréttablaðið, 30. október.
Glimrandi gangur
„Hins vegar er glimrandi
gangur hjá okkur og ekkert
gjaldþrot í spilunum.“
HANS ANDREASEN, VERT Á
VEITINGA- OG SKEMMTISTAÐNUM
GLITNI Í FÆREYJUM.
Fréttablaðið, 30. október.
■ Mikil harðindi sem geisuðu
á Íslandi á árunum 1881-1887
komu einna verst við bændur
í Vestur-Skaftafellssýslu. Þetta
kemur fram í samantekt Sigrúnar
Lilju Einarsdóttur á heimasíðu
Mýrdalshrepps, vik.is:
■ Kuldakast og með afbrigðum
slæmt árferði árið 1881 átti eftir
að hafa örlagaríkar afleiðingar fyrir þetta litla hérað.
Grasbrestur var mikill, forðaheimtur brugðust þar eð
engin spretta var á túnum sökum kulda, fjárfellir var
mikill og klaki fór ekki úr jörðu. Hafísinn hjúfraði sig
upp að landi, ísbirnir ráfuðu um bæi og gerðu mikinn
usla og jökulfljótin börðust við að éta af ræktuðu landi
austan Mýrdalssands.“ Þá kemur fram að í nágranna-
löndunum hafi verið safnað gjafakorni fyrir sveltandi
Íslendinga.
HÖRMUNGAR
GJAFAKORN HANDA
SOLTNUM ÍSLENDINGUM