Fréttablaðið - 31.10.2008, Síða 16
16 31. október 2008 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 45
639 -0,55% Velta: 58 milljónir
MESTA HÆKKUN
ATORKA 8,33%
ÖSSUR 4,87%
EIMSKIPAFÉLAGIÐ 2,31%
MESTA LÆKKUN
ALFESKA 21,05%
BAKKAVÖR 5,00%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,00 -21,05% ... Atorka
0,65 +8,33% ... Bakkavör 4,75 -5,00% ... Eimskipafélagið 1,33
+2,31% ... Exista 4,62 +0,00% ... Icelandair Group 13,43 +0,37%
... Kaupþing 0,00 +0,00% ... Marel Food Systems 71,00 +0,00% ...
SPRON 1,90 +0,00% ... Straumur-Burðarás 7,08 +0,00% ... Össur
90,50 +4,87%
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR: 205,9 +0,93%
„Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir
Ungverjum ekki fyrir verkum,“
segir Ferenc Gyurcsány, forsætis-
ráðherra Ungverjalands. Á
þriðjudag tilkynnti Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn (IMF) um 12,5
milljarða evra lán til landsins.
Gyurcsány segir sjóðinn hafa sett
„tvö mjög skynsamleg skilyrði“.
Annars vegar megi fjárlagahalli
ekki fara fram úr 2,6 prósentum af
landsframleiðslu og hins vegar að
stjórnvöld skuldbindi sig til að lækka ekki
skatta. Seðlabankastjóri Ungverjalands
staðhæfir að í samkomulaginu séu engin
skilyrði umfram þau markmið sem bankinn
hefur þegar sett sér í peningamálum.
Ungverskir fjölmiðlar hafa greint frá því
að Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn hafi farið
fram á að ríkisútgjöld yrðu skorin niður um
1,2 milljarða evra, eða nærri 13
prósent. Niðurskurðinum verði náð
með lækkun launa- og lífeyrisupp-
bóta opinberra starfsmanna.
Þá hefur Gyurcsány lýst því yfir
að stjórnendur allra ríkisfyrirtækja
muni missa launauppbætur í ár og
á næsta ári. Árlega nema þær
margra mánaða launum, en að auki
verði laun þeirra lækkuð um 10
prósent. Áætlað er að æðstu
stjórnendur ríkisfyrirtækja taki
þannig á sig allt að 30 prósenta launalækk-
un.
Aðrar heimildir herma að stjórnvöld
hyggist mæta skilyrðum IMF með því að
skera niður í velferðarmálum, meðal annars
verði húsnæðisbætur skertar. Forsætisráð-
herra landsins hefur borið þær fréttir til
baka. - msh
Ungverjar skeri niður
FERENC
GYURCSANY
„Uppgjörið er í takt við aðstæður,“
segir Ágúst Guðmundsson, for-
stjóri Bakkavarar.
Félagið tapaði 19,5 milljónum
punda, jafnvirði tæpra 3,8 millj-
arða króna, á þriðja ársfjórðungi,
samanborið við 11,3 milljóna
punda hagnað á sama tíma í fyrra.
Þetta er 273 prósenta samdráttur
á milli ára. Þá dróst rekstrarhagn-
aður saman um 26 prósent. Svip-
uðu máli gegnir um aðrar afkomu-
tölur að veltu undanskilinni.
Félagið lokaði skiptasamningi
upp á 10,9 prósenta hlut í írska
samlokurisanum Greencore
Group í mánuðinum og nam tapið
af honum 10,7 milljörðum króna á
fyrstu níu mánuðum ársins, þar af
2,2 á þriðja ársfjóðungi. Í ofanálag
tapaði félagið 700 milljónum króna
vegna framvirks samnings á 6,1
prósents hlut í grænmetisfram-
leiðandanum Camposol í Perú.
Bakkavör keypti hlutinn áður en
Camposol var skráð á markað á
fyrri hluta árs.
Bakkavör hefur flaggað kaup-
um á hlut í nýju fyrirtæki svo til í
hverju uppgjör síðustu misseri.
Því er ekki að skipta nú.
„Við horfum nú til hagræðing-
ar,“ segir Ágúst og vísar til þess að
fyrirtækið sé að loka verksmiðj-
um í Bretlandi með tilheyrandi
uppsögnum. - jab
ÁGÚST GUÐMUNDSSON Forstjóri Bakka-
varar segir fyrirtækið hagræða í rekstrin-
um um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bakkavör skilar tapi
LYKILTÖLUR BAKKAVARAR*
Liður 2008 2007
Sala 402,8 375,7
Rekstrarhagnaður/-tap 18,2 30,1
Hagnaður/-tap -19,5 11,3
Eignir 1.716,7 1.482,8
Eigið fé 205,2 278,7
Skuldir 1.511,2 1.204,1
Handbært fé frá rekstri 44,3 81,3
Hagnaður/-tap -0,2 0,5**
* Á þriðja ársfjórðungi. Allar upphæðir í
milljónum punda.
** Leiðréttur hagnaður á hlut í pensum.
Forstjórar tryggingafélag-
anna þriggja segja mikil-
vægt að upplýsa um stöðu
bótasjóða félaganna. TM,
VÍS og Sjóvá hyggjast öll á
næstunni gera grein fyrir
stöðu sinni. Fjármálaeftir-
litið segir félögin nú grípa
til fyrirbyggjandi ráð-
stafana vegna erfiðleika á
fjármagnsmarkaði.
„Það kemur sterklega til greina
að birta níu mánaða uppgjörið
fljótlega. Við íhugum einnig að
birta sérstaklega upplýsingar um
eignir sem eru á bak við bótasjóð-
inn. Það þarf að eyða allri óvissu,“
segir Sigurður Viðarsson, for-
stjóri Tryggingamiðstöðvarinnar.
Fjármálaeftirlitið kannar nú
stöðu bótasjóða tryggingafélag-
anna, í ljósi hruns bankakerfsins
og hefur kallað eftir upplýsingum
frá VÍS TM og Sjóvá. Heimildir
Morgunblaðsins herma að umtals-
vert fé vanti í sjóðina, sem eigi að
nema um 48 milljörðum króna.
Fjármálaeftirlitið segir í yfir-
lýsingu að það afli nú upplýsinga
um fjárhagsstöðu tryggingafélag-
anna. „Fjárhagsstaða félaganna
er mismunandi, en að öllu óbreyttu
er ekkert sem bendir til annars en
að þau geti staðið við fjárskuld-
bindingar sínar gagnvart vátrygg-
ingatökum og vátryggðum.
Vátryggingafélög, líkt og önnur
fjármálaþjónustufyrirtæki, eru
að grípa til fyrirbyggjandi ráð-
stafana í tengslum við þá erfið-
leika sem fyrir hendi eru á fjár-
málamarkaði,“ segir í
yfirlýsingunni.
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár,
segir undirliggjandi rekstur
félagsins ekki
hafa verið betri
um árabil. „Auð-
vitað verður
félagið vart við
það öldurót sem
nú er á fjár-
málamarkaði.
Við teljum að
félagið eigi
ágætar eignir á
móti tjónaskuld.
Við munum
kynna 9 mánaða uppgjörið okkar
innan skamms þegar uppgjör
Moderna liggur fyrir. Með ágætar
eignir og traustan bakhjarl í
sænska móðurfélaginu okkar,
Moderna, þá teljum við stöðu
félagsins vel ásættanlega,“ segir
Þór.
Guðmundur Örn Gunnarsson,
forstjóri Vátryggingafélags
Íslands, segir að bótasjóðir félags-
ins séu tryggðir með góðum eign-
um. Hann tekur undir það að eyða
þurfi óvissu. Hann geri ráð fyrir
því að tölur um stöðu félagsins
fyrstu tíu mánuði ársins liggi
fyrir eftir helgina og verði birtar
fljótlega. ingimar@markadurinn.is
Birta stöðu bótasjóða
GUÐMUNDUR ÖRN
GUNNARSSON
forstjóri VíS.
ÞÓR
SIGFÚSSON
forstjóri Sjóvár.
SIGURÐUR
VIÐARSSON
forstjóri TM.
Icelandair tilkynnti á fimmtudag
að félagið hygðist fækka fram-
kvæmdastjórum úr sex í þrjá. Um
leið voru kynntar skipulagsbreyt-
ingar á félaginu, sem hafa að sögn
Birkis Hólms Guðnasonar, for-
stjóra Icelandair, að markmiði að
auka „hraða ákvarðanatöku og
færa stjórnendur nær daglegum
rekstri.“ Í vor var kynnt um fækk-
un millistjórnenda.
Eftir breytingarnar verður
Andri Áss Grétarsson fram-
kvæmdastjóri framleiðslusviðs,
sem sér um flugrekstur, Helgi
Már Björgvinsson framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs og
Hlynur Elísson verður fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs. Þeir
munu, ásamt Birki, skipa fram-
kvæmdastjórn félagsins.
- msh
Breytingar hjá Icelandair
Skilanefndir Kaupþings, Lands-
banka Íslands og Glitnis hafa nú
allar auglýst eftir erlendum kröf-
um í þrotabú bankanna.
Endurskoðunarfyrirtækið
Deloitte & Touche í Bretlandi
hefur verið ráðið til að eiga sam-
skipti við erlenda skuldunauta
gömlu bankanna þriggja, og safna
saman kröfum þeirra á þrotabúin.
Þá mun Deloitte setja upp nefndir
þessara erlendu kröfuhafa, sem
munu semja við þrotabú bank-
anna um ráðstöfun eigna og
greiðslur upp í skuldir þegar þar
að kemur. - msh
Auglýst eftir kröfum
Landsframleiðsla Bandaríkjanna
dróst saman á þriðja ársfjórðungi
um 0,3 prósent. Hagfræðingar
höfðu spáð 0,5 prósenta sam-
drætti. Samdrátturinn hefði verið
meiri ef ekki hefði komið til stór-
aukning í ríkisútgjöldum. Þessar
tölur eru taldar auka líkur á að
bandarísk stjórnvöld lýsi form-
lega yfir að efnahagskreppa sé
hafin.
Þyngst vó samdráttur í einka-
neyslu, sem dróst saman um 3,1
prósent. Einkaneysla hefur ekki
dregist jafn mikið saman síðan
1980. Bloomberg fréttastofan
bendir á að samdráttur útgjalda
neytenda til fatnaðar og matvæla
, 6,4 prósent, sé hinn mesti í meira
en hálfa öld. Fara þyrfti allt aftur
til 1950 til að finna sambærilegar
tölur. Ein af ástæðum samdráttar
í einkaneyslu er 8,7 prósenta sam-
dráttur í ráðstöfunartekjum
launafólks.
Hagfræðingar sem Wall Street
Journal ræddi við voru flestir
þeirrar skoðunar að samdráttur-
inn nú væri ávísun á hvað koma
skyldi. Sérstaklega væri hrun
einkaneyslu alvarlegt vandamál.
- msh
Samdráttur í Bandaríkj-
unum er undir spám
Samþykkt var í gær að taka
Existu af markaði. Stjórn-
arformaður félagsins segir
mikla óvissu um framtíð
Existu en mistök hafi verið
að flytja ekki höfuðstöðvar
Kaupþings úr landi í fyrra.
„Ég vil ekki fegra myndina. Exista
er í erfiðri stöðu og framtíðin
óviss,“ segir Lýður Guðmundsson,
stjórnarformaður Existu. Félagið
hélt sérstakan hluthafafund í gær
vegna þeirrar stöðu sem komin er
upp eftir fall bankanna.
Á fundinum var samþykkt að
taka félagið af markaði og veita
stjórninni heimild til að sigla í
gegnum ólgusjó á fjármálamörk-
uðum, svo sem með ótakmarkaðri
sölu eigna. Leitað verður eftir því
að skrá félagið aftur á markað
þegar íslenskur hlutabréfamark-
aður jafnar sig.
Exista var stærsti hluthafi
Kaupþings með 24,7 prósenta hlut.
Við fall bankans fyrir um þremur
vikum varð eignin að engu og
hurfu á annað hundrað milljarða
króna úr bókum félagsins.
Þá átti Exista hundruð milljarða
króna inni í bönkunum þremur,
þegar þeir féllu, í formi inneigna
og óuppgerðra samninga auk þess
sem bankarnir áttu kröfur á hend-
ur Existu. Óljóst er um lyktir
málsins og skýrir það að miklu
leyti óvissuna um framtíð Existu.
Stjórnendur félagsins eru nú að
skoða möguleikann á lögsókn gegn
breskum yfirvöldum, sem réðust
til inngöngu í dótturfélag Kaup-
þings í Bretlandi með þeim afleið-
ingum að bankinn fór á hliðina.
Megi reikna með niðurstöðu af
forkönnun á því máli innan
skamms. Bauð Lýður smærri hlut-
höfum að fylgja með í þeim mála-
rekstri.
Lýður sagði Existu þrátt fyrir
allt hafa gert nokkur mistök upp á
síðkastið. Muni mest um að hafa
ekki flutt höfuðstöðvar Kaupþings
úr landi þegar lá fyrir að bankinn
fengi ekki að gera upp í annarri
mynt en krónu í fyrra. Þá falli
stuðningur við hlutafjáraukningu
norska fjármálafyrirtækisins
Storebrand í tengslum við kaup á
sænska líftryggingafélaginu SPP
síðastliðið haust og kaup á 14 pró-
senta hlut í bresku íþróttavöru-
versluninni JJB Sports upp á tólf
milljarða króna fyrir rúmu ári í
sama flokk. Eignarhluturinn er nú
næstum að engu orðinn. „Við
vorum með áætlun um breytingu
á félaginu en náðum því ekki áður
en fjármálakreppan reið yfir,“
segir Lýður.
jonab@markadurinn.is
LÝÐUR GUÐMUNDSSON Stjórnarformaður Existu sér eftir því að hafa ekki beitt sér
fyrir því að flytja höfuðstöðvar Kaupþings úr landi á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Exista tekið af markaði
Fjallað er ítarlega um viðræður
íslenskra stjórnvalda og breskra
um Icesave reikninga Landsbank-
ans í viðskiptablaðinu Het Financi-
ele Dagblad síðasta þriðjudag.
Rætt er við bæði forsætis- og
utanríkisráðherra, sem lýsa stöðu
landsins sem smáþjóðar sem reiði
sig á alþjóðalög í deilunni.
Daginn áður fjallaði blaðið í
stórri grein um hvernig mótlæti
síðustu daga „efldi fyrirtæki hér
til dáða“. Var þar rætt við Hörð
Arnarsson fostjóra Marel Food
Systems, Jón Sigurðsson forstjóra
Össurar, Gylfa Arnbjörnsson hjá
Alþýðsambandinu og Vilhjálm
Egilsson hjá Samtökum atvinnu-
lífsins. - óká
Fylgjast grannt
með þróun mála