Fréttablaðið - 31.10.2008, Page 24
2 föstudagur 31. október
núna
✽ innrás í stað útrásar …
þetta
HELST
Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta
María Jónasdóttir martamaria@365.is
Penni Alma Guðmundsdóttir alma@frettabla-
did.is Forsíðumynd Arnþór Birkisson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsing-
ar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstu-
dagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512
5000
Ekki nefbrotinn
Síðan bankahrunið átti sér staða
hefur bærinn logað í sögum um
bankastjórana fyrrverandi. Ein líf-
seigasta sagan er sú að Lárus
Welding, fyrr-
verandi for-
stjóri Glitnis,
hafi verið nef-
brotinn af reið-
um viðskipta-
vini bankans
fyrir utan World
Class. Föstu-
dagur hafði
samband við Ágústu Margréti Ól-
afsdóttur, eiginkonu Lárusar.
Hún sagðist ekki kannast við
þetta og sagði að Lárus væri
við góða heilsu. Fyrir tveimur
árum keyptu Lárus og Ágústa
húsið Árskóga af Írisi Björk Tönyu
Jónsdóttur á 130 milljónir.
Húsið er falt fyrir 100
millur
Meira af Írisi því í viðtali við Föstu-
dag fyrir tveimur vikum sagði hún
frá húsabraski sínu og játaði að hafa
tapað töluverðum peningum. Hún
sagðist samt ætla að búa áfram í
húsinu sínu að Tjarnarflöt 10 sem
hún er búin að taka allt í gegn. Nú
er húsið hins vegar komið á sölu og
er falt fyrir rúmar hundrað milljón-
ir. Þegar Föstudagur hafði samband
við Írisi sagðist hún hafa augastað á
öðru húsi. Hún viðurkenndi að þetta
væri ekki í fyrsta skipti sem þetta
gerist. Þegar hún hafi sýnt húsið
Árskóga í Veggfóðri hafi hún verið
búin að selja það nánast áður en
blaðið kom úr prentun.
MARÍA MAGNÚSDÓTTIR SÖNGKONA Helgin mín
verður bara skemmtileg og kósí. Ég verð með skrautlegt dívupartí heima á
föstudagskvöldið þar sem verður örugglega mikið sungið. Laugardaginn ætlaði
ég síðan að nota í afslöppun og vinnu. Á sunnudaginn ætlaði ég að hafa kaffiboð, en dagur-
inn endar vonandi á því að mér verði boðið í mat til mömmu. Er það ekki, mamma?
helgin
MÍN
Þ rátt fyrir allt flakkið og rótið er þetta rosalega gefandi,“ segir Gísli Örn
Garðarsson leikari, sem fer með hlut-
verk kvennabósans Don Juan í sýning-
unni Don John. Leiksýningin verður sett
upp í Royal Shakespeare Company
í desember og er byggð á hinni
þekktu óperu Don Giovanni.
Nína Dögg Filippusdóttir,
eiginkona Gísla, fer einn-
ig með hlutverk í sýningunni
og því munu þau leigja út íbúð
sína fullbúna í Bergstaða-
strætinu meðan á dvöl þeirra
í Englandi stendur. Gísli
Örn situr ekki auðum hönd-
um þessa dagana því hann
fer einnig með hlutverk
í kvikmyndinni Prince
of Persia: The sands of
time, og hefur verið
við tökur í Marokkó
og London síðastliðið
hálft ár.
„Við Nína verðum
úti í nokkra mán-
uði og höfum ekki
endanlega ákveð-
ið hvenær við
komum heim.
Við byrjum að æfa Don John í næstu
viku, frumsýnum um miðjan desember
og svo verður leikið á hverju kvöldi. Ég
verð því eins og jójó á milli æfinga í leik-
húsinu og við tökur á bíómyndinni,“ út-
skýrir Gísli og brosir.
Aðspurður segist hann vera með
mörg járn í eldinum og eftir að
sýningum lýkur í Royal Shake-
speare Company er stefnan
tekin heim.
„Ég er að vinna að leikgerð á
leikritinu Faust ásamt bresk-
um leikara og rithöfundi sem
leikur með mér í Don John.
Ég ætla sjálfur að leikstýra,
en Nick Cave mun semja
tónlistina við verkið,
sem verður sett upp
á Íslandi, Þýskalandi
og London. Það
er búið að bjóða
okkur að set ja
verkið upp í Berlín
í ágúst á næsta ári,
svo við stefnum á
að frumsýna það
næsta haust,“ segir
Gísli að lokum.
alma@frettabladid.is
Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir:
ÍSLENSKIR LEIKARAR
VINSÆLIR Í BRETLANDI
„Við erum að vinna í þessu á
fullu og opnum von bráðar,“ segir
Anna Sigríður Pálsdóttir sem á og
rak hárgreiðslustofuna Gel í sjö
ár þangað til stofan lokaði í byrj-
un hausts. Anna og Aron Berg-
mann Magnússon, meðeigandi
hennar, hafa nú ákveðið að opna
bíósal og leikhús þar sem stofan
var áður til húsa, á Hverfisgötu
37, undir heitinu Barber theatre.
„Við erum búin að vera með
galleríið í fjögur ár og langaði að
breyta til. Hugmyndin kviknaði í
haust þegar við fórum að ræða
hvernig við gætum nýtt rýmið
og ákváðum að nota helming-
inn undir leikhús og bíósal. Aron
verður skipaður leikhússtjóri,
en ég verð áfram með aðstöðu
til að klippa. Fólk getur svo leigt
rýmið sem fundaraðstöðu eða
fyrir einkasamkomur og nokkr-
ir leikarar hafa nú þegar sýnt því
áhuga að setja upp sýningar,“ út-
skýrir Anna og segir fyrstu sýn-
inguna þegar vera tilbúna. „Lilja
Nótt Þórarinsdóttir er búin að
semja einleik, sérstaklega með
þetta rými í huga, en við verð-
um með svolítið öðruvísi sýn-
ingar þar sem áhorfendur munu
taka mikinn þátt. Þetta verður án
efa minnsta leikhús og bíósalur í
Reykjavík,“ segir Anna og brosir.
-ag
Barber theatre verður opnuð í lok
nóvember og verður minnsta leik-
hús og bíósalur í Reykjavík.
Anna Sigríður Pálsdóttir og Aron Bergmann Magnússon:
Opna leikhús og bíósal
- Léttir á verkjum og bætir líðan.
- Dregur út vöðvaspennu.
- Flýtir fyrir bata.
— leiðin að betri líðan
Back on Track vörunar byggja á fornri kínverskri þekkingu og reynslu.
Niðurstaðan er einstök vefnaðarvara með innbrenndu keramik sem
endurvarpar líkamshita í formi hitageislunar og eykur svæðisbundið
blóðflæði sem hefur góð verkjastillandi áhrif.
Hálskragi
Í Back on Track vörulínunni er að finna vörur fyrir hesta, hunda og manneskjur.
Pantanir i síma 694 - 2333 / 691 - 5005, á http://www.natturaogheilsa.com
Síðastlið-
ið hálft ár
hefur Gísli
Örn Garð-
arson verið
við tökur á
kvikmynd-
inni Prince
of Persia:
The sands of
time, í Mar-
okkó og
London.
Nína Dögg Fil-
ippusdóttir fer
með hlutverk í
sýningunni Don
John, þar sem
Gísli Örn, eigin-
maður hennar,
leikur kvenna-
bósann Don
Juan.