Fréttablaðið - 31.10.2008, Side 30
8 föstudagur 31. október
✽ er hið nýja heimili svona?
BLEIKT GÓLFTEPPI Þegar landið hristist til skiptir ógur-
legu máli að hafa svolítið hlýlegt og notalegt í kringum sig. Gólfteppi
er það sem koma skal og ekki er verra ef teppin eru í einhverjum
litum. Þetta bleika teppi getur dimmu í dagsljós breytt …
heima
MARTA MARÍA JÓNASDÓTTIR martamaria@365.is
ER ÞETTA NÝJA ÍSLAND?
Yfirleitt hefur hið nýja þótt betri kostur en hið
gamla en þegar hið Nýja Ísland er annars vegar
sýnist mér dæmið snúast við. Í fyrstu hugsaði ég
þetta sem spennandi verkefni. Að spara í alvörunni
með því að kaupa engan óþarfa og hugsa mig alltaf
tvisvar um áður en ég renndi kortinu í gegn í stað
þess að hugsa bara um það meðan ég gæddi mér á
parmesanosti og klettasalati. Síðan ég fór að temja
mér þennan hugsunarhátt hefur hvert áfallaði eftir annað dunið yfir
og þótt kona reyni að spyrna við fótum dugir það ekki til. Ómyndar-
legustu húsmæður eru farnar að ræða það af alvöru að taka slátur á
laugardagskvöldi í stað þess að hittast yfir vínglasi á smartheitabar.
Þá finnst mér vera fokið í flest skjól þótt slátur sé herramannsmatur.
EKKERT MYSUPRÓTEIN Síðan ég stofnaði heimili hef ég vanið mig á
að kaupa ákveðna hluti. Ég á til dæmis alltaf mysupróteinduft inni í
skáp sem ég þeyti í blandaranum út í sojamjólk og frosin ber. Þetta er
ljómandi fínn morgunmatur og bragðast eins og rjómaís. Það fór um
mig hrollur þegar ég fór í heilsuverslun í vikunni og ætlaði að kaupa
próteinið. Dunkurinn hafði hækkað um 1.500 krónur, úr þrjú þúsund í
fjögur og fimm. Þetta fannst mér algert glapræði og hugsaði með mér
að þessu myndi ég sleppa í kreppunni. Samt gat ég ekki annað en
brosað út í annað því ég hafði aldrei flokkað undraduftið sem lúxus,
heldur bara hluta af því að vera til.
500 KRÓNA POKI Næsta dag var því bara sojamjólk, ber og banani í
drykknum enda var ég að borða góðærisleifarnar úr frystinum. Mér
brá því töluvert þegar ég fór í mína vikulegu Bónusferð og tók eftir
því að berin sem ég hef verið að kaupa kosta núna rúmlega fimm
hundruð krónur pokinn. Ég kunni nú ekki við að skila pokanum fyrst
stúlkan á kassanum var búin að stimpla hann inn en ákvað að þessi
ber yrðu ekki keypt aftur fyrr en kreppunni lyki.
ÓGEÐSDRYKKUR Nú er það bara gamli góði hafragrauturinn á morgn-
ana eða „ógeðsdrykkur“ þar sem afgöngum af káli og ávöxtum er
skellt í blandarann með vatni og þeytt í öreindir. Nú er enginn tími
til að spá í hveiti-, ger- eða sykurlausa tilveru. Maður fer að verða
þakklátur að fá bara eitthvað í bumbuna ... Kannski verður kreppan
til þess að ummál landans minnki og þegar öllu er á botninn hvolft
komumst við kannski niður fyrir offitumörk. Er það ekki bara málið?
W New York Downtown heitir splunkunýtt lúxusíbúðahótel
sem er á 123 Washingston Street.
Það er hannað af bandarísku arkí-
tektastofunni Gwenthney Siegel.
Sú stofa hefur verið starfrækt frá
árinu 1968 og hlotið fleiri en 100
hönnunarverðlaun. Þótt bygging-
in sé falleg þá er það innanstokks-
hönnunin sem vekur hvað mesta
athygli. Það er þýska arkitektastof-
an Graft sem sá um innréttingarn-
ar en sú stofa hannaði meðal ann-
ars sumarhús og vinnustofu Brads
Pitt ásamt fjölda hótela, veitinga-
staða og heimila víða um heim. W
lúxushótelið er einfalt en um leið
ákaflega fallegt, stílhreint og hlý-
legt. Innanhússarkitektarnir nota
skálínulögun til að tengja saman
eins og sést á eldhúsinnrétting-
unni og speglinum á baðinu. Þeir
leggja mikla áherslu á falda lýs-
ingu og einföld smáatriði setja
svip sinn á hönnunina. Á baðher-
bergjunum er til dæmis ekki verið
að flísaleggja í hólf og gólf heldur
eru flísar aðeins notaðar á þeim
svæðum sem mest mæðir á. Þeir
sem vilja upplifa ævintýri í New
York geta pantað sér gistingu á /
www.123washingtonstreet.com.
martamaria@365.is
W íbúðahótel í New York slær í gegn
FRAMÚRSKARANDI
Ekkert flísafyllirí. Skálínurnar fá að njóta
sín í speglinum og baðherbergið er alls ekki
flísalagt í hólf og gólf heldur bara að hluta.
Hið nýja Ísland kallar á nýjar áherslur inn á heimilin. Svart/hvít-
ir smartheitakassar víkja fyrir veggfóðruðum veggjum og gamaldags
gluggatjöldum. Það er þó ekki þar með sagt að smartheitin séu eitt-
hvað minni, þau eru bara öðruvísi. Það þarf ekki nema eina spegla-
kommóðu til að gera heimilið svolítið glamúrlegt. Það er líka auð-
velt að breyta svart/hvíta smartheitakassanum í hlýlegt glamúrheim-
ili með réttum fylgihlutum. Loðnar mottur eru fallegar á gólfin, ásamt
púðum, teppum og stórum vösum. Þegar farið er út í að gera smart-
heitakassann hlýlegri er mikilvægt að velja sér þrjá liti sem passa vel
saman. Fjólublár, bleikur og drapp eru til dæmis mikið móðins núna
og því auðvelt að finna eitthvað í þeim litum. - mmj
Hlýlegur smartheitakassi
Leikur með rými. Hér eru skápar
notaðir til að skilja herbergi að og
beinar línar fá að njóta sín.
Óhefðbundin Eldhúsinnréttingin virkar vel og til að gera
hana enn þá flottari nota þeir falda lýsingu.
Notalegt svefnherbergi. Falda lýsingin gerir herberg-
ið dásamlega fallegt.
Ármúla 36 – s. 588 1560
Fótboltaskór á góðu verði.
EKKI LÁTA ÞETTA FRAMHJÁ ÞÉR FARA!
31. október – 7. nóvember
Opið til kl. 16:00 laugardaginn 1. nóvember.
MORGUNMATURINN: Á Delí á 44. stræti eða 45. stræti.
SKYNDIBITINN: Starbucks.
RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA: Spicemarket eða Budda
kahn!!!
LÍKAMSRÆKTIN: Fer ekki í líkamsrækt þar í borg.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ: Píanóbarinn
Don´t tell mama.
BEST VIÐ BORGINA: Fólksfjöldinn, maturinn, verslan-
irnar og leikhúsin.
UPPÁHALDSVERSLUNIN: Barns and Nobels-bókabúðirnar.
AFÞREYINGIN: Leikhús og matur, matur, matur !
NEW YORK
Þrúður Vilhjálmsdóttir
BORGIN
mín