Fréttablaðið - 31.10.2008, Síða 32
10 föstudagur 31. október
tíðin
✽ taktu Madonnu á þetta
DÍANA MIST
Söngkonan Madonna
er alltaf með puttana á
púlsinum þegar kemur
að fatavali. Þrátt fyrir
að vera í miðju skilnað-
arferli lét hún sig ekki
vanta í Dolce & Gabb-
ana teiti sem haldið var
á The Thompson hót-
elinu í New York. Eins
og hún á vanda til sóp-
aði hún að sér athygli. Í
þetta sinn var það reyndar ekki út á eigin hæfileika
heldur út á skótauið. Hún klæddist svörtum Dolce &
Gabbana skóm og það sérstaka við þá er að hællinn
er eins og byssa í laginu. Geri aðrar betur.
Madonna veit að hún kemst langt
í réttu fötunum
Mætti í byssu-
skóm í teiti
Svaðalegir skór Takið eftir
hælnum, hann er eins og byssa
í laginu. MYND/GETTYIMAGES
Föstudagur 24. október: Dagur til að endur-
skipuleggja …
Þessi vika var ekkert smá klikkuð. Hef ekki upplifað það
lengi að hafa nægan tíma. Fyrst ég var heima var ekkert
annað í stöðunni en að taka til í geymslunni og reyna að
hafa uppi á einhverjum verðmætum. Eftir massíva tiltekt
fann ég svo mikið af flöskum og
dósum að ég ákvað að fara með
þær í endurvinnsluna. Viti menn,
fékk heilan fimm þúsund kall fyrir
það. Það sem eftir lifði dags dund-
aði ég mér við að mynda flík-
ur sem ég hafði aldrei farið í og
setti myndirnar síðan á netið. Ef öll
góðærisfötin eiga eftir að seljast
mun ég geta framfleytt mér næstu
mánuði án þess að þurfa að setja
rautt ljós í gluggann. Ákvað að
eyða 5000 kallinum á 101 í stað
þess að kaupa prótíduft í Heilsu-
húsinu. Þar voru hárgeiðslugæj-
arnir Simbi og Svavar Örn, Kalli og Esther í Pelsinum
og Bentína Björgólfsdóttir Guðmundssonar. Eftir fjög-
ur rauðvínsglös var ég orðin alveg helluð og fór heim …
Kíkti aðeins á Boston á heimleiðinni. Eina fræga andlitið
sem ég hnaut um var Björk í allri sinni dýrð.
Laugardagur 25. október: Vér mótmælum allir …
Hef sjaldan upplifað eins mikinn skítakulda og þenn-
an laugardag. Ekki nóg með að maður eigi engan pen-
ing heldur frýs maður alveg inn að beini. Klæddi mig
í dúnkápuna og arkaði niður í
bæ með mótmælaspjald. Fyrir
utan ráðherrabústaðinn í Tjarn-
argötu var Guðný Halldórsdótt-
ir í dúnúlpu, Dagur B. Eggertsson,
stjörnuarkitektinn Rut Káradótt-
ir og Gísli Örn Garðarsson leik-
ari. Eftir mótmælin fór ég í heitt
bað, kíkti í tölvuna og viti menn, ég fékk boð í fimmt-
án flíkur og það sem eftir lifði dags hafði ég ekki undan
því að taka á móti fólki sem vildi
eignast gömlu fötin mín. Endaði
á að selja tólf flíkur og var því
með þó nokkurn aur í vasan-
um þegar ég kíkti á Boston um
kvöldið. Þar var Tómas Lem-
arquis, Urður í Gus Gus, Na-
talie plötusnúður og Hrafnhildur
töskuhönnuður. Retró Stefson var
líka á svæðinu... Sá samt enga
sleik væna og ákvað að
drífa mig heim áður
en ég væri búin að
eyða öllum ágóð-
anum.
Flottur kjóll
Madonna mætti
í svörtum glæsi-
kjól í Dolce &
Gabbana teitið í
New York á dög-
unum. Skótau-
ið vakti þó meiri
athygli
M
Y
N
D
/G
E
T
T
Y
IM
A
G
E
S
MAGNÚS SIGURÐUR JÓNSSON
leikari
GAMLI BENSINN.
LUKKUHESTUR STÚDÍÓSINS
MÍNS, sem Hekla dóttir mín
gerði í smíði.
BULLWORKER, allrahanda líkams-
ræktartæki frá 1965.
FATASTANDUR frá afa
mínum, Magnúsi Sigur-
lássyni frá Þykkvabæ.
SNÁKASTÓLL
frá ömmu og afa í
Þykkvabænum.
BESTA „PROSACIГ Í DAG.
ERMAHNAPPAR FRÁ AFA.
TOPP
10
FÖSTUDAGUR Ef þú ert í massa stuði skaltu kíkja á
Óliver í kvöld en þar verður magnað kvennakvöld. Beggi
og Pacas eru veislustjórar ásamt því að sjá um veiting-
arnar, vaxtarræktargæjar hnykla vöðvana og allar konur
labba út með glaðning.
LAUGARDAGUR Samtökin 78 standa fyrir glæsilegu
grímuballi á Tunglinu í anda hrekkjavökunnar. Dj Yamaho
og manny halda uppi stuðinu. Sá sem mætir í besta bún-
ingnum fær ferðavinning frá Iceland Express. Það er ekk-
ert annað í stöðunni en að taka fram saumavélina og
keppast við að vera flottust/astur.
Laugavegi 80 • sími 561 1330
www.sigurboginn.is
MÁLVERK eftir Hrafnhildi Ingu Sig-
urðardóttur, mömmu mína.
LAMBALOÐHÚFA sem pabbi
gaf mér og er ótrúlega þægileg.
ÚR SEM
ÉG ERFÐI
frá Magnúsi
afa mínum.