Fréttablaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 6
6 11. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
VIÐSKIPTI Jón Ásgeir Jóhannesson,
stjórnarformaður fjölmiðlafyrir-
tækisins 365, segir að hann hlíti
lögum um að hætta setu í stjórnum
íslenskra fyrirtækja. Hann hafi
þegar sagt sig úr stjórnum sautján
fyrirtækja.
Páll Ásgrímsson lögmaður benti
á í aðsendri grein í Morgunblaðinu
í gær að Jón Ásgeir sæti enn í
stjórnum þrettán fyrirtækja, þrátt
fyrir ákvæði um hæfi stjórnar-
manna í hlutafélagalögum. Þar
segir að menn megi ekki sitja í
stjórnum fyrirtækja í þrjú ár eftir
að þeir hafa hlotið dóm fyrir refsi-
verðan verknað í rekstri fyrirtæk-
is. Jón Ásgeir hlaut þriggja mán-
aða skilorðsbundinn dóm í hinu
svokallaða Baugsmáli 5. júní síð-
astliðinn.
Jón Ásgeir segist ósáttur við
þetta ákvæði laganna en hann muni
hlíta því. Hann segist fylgja leið-
beiningum Hlutafélagaskrár um
hvernig standa skuli að því að
hætta í stjórn í kjölfar dóms. Þar
komi fram að krefjist aðrir stjórn-
armenn ekki afsagnar skuli stjórn-
armaðurinn víkja á næsta aðal-
fundi.
„Þetta er ótrúlega ósmekklega
sett fram [hjá Páli], það er gefið í
skyn að ég sé lögbrjótur á forsíðu
Morgunblaðsins,“ segir Jón Ásgeir.
„Ég hef sagt mig úr 17 stjórnum
frá því að dómurinn féll, af hverju
minnist hann ekki á það,“ spyr Jón
Ásgeir. Hann segir grein Páls hluta
af smjörklípuaðferð manna í rógs-
herferð gegn 365.
Páll skoraði á forstöðumann
Hlutafélagaskrár að bregðast við,
og á viðskiptaráðherra, bregðist
Hlutafélagaskrá skyldum sínum.
Svala Hilmarsdóttir, deildarlög-
fræðingur og staðgengill forstöðu-
manns Hlutafélagaskrár, segir að
stjórnarseta Jóns Ásgeirs sé til
skoðunar hjá Hlutafélagaskrá. Hún
vildi ekki upplýsa hvenær reikna
mætti með niðurstöðu úr þeirri
skoðun.
Páll sagði einnig í grein sinni að
vanræksla Jóns Ásgeirs á því að
segja sig úr stjórnum gæti varðað
við grein hlutafélagalaga sem fjall-
ar um tilkynningar til Hlutafélaga-
skrár. Brot á þeirri lagagrein geti
varðað sektum eða allt að eins árs
fangelsisvist.
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota hjá Ríkislög-
reglustjóra, segir að það sem fram
kom í grein Páls verði rætt innan
stofnunarinnar. Hann segist hafa
talið að eðlilegur framgangsmáti
slíkra mála væri sá að Hlutafélaga-
skrá kærði meint brot á þessum
reglum, en útilokaði ekki að málið
yrði kannað nánar hjá Ríkislög-
reglustjóra. brjann@frettabladid.is
Hver króna er dýrmæt fyrir venjulegt
fólk. Hægt er að spara með því að bera
saman verð á útsölustöðum í stað þess að
rétta hugsunarlaust fram kortið. Hannes
þurfti að gera stórinnkaup í apóteki og bar
saman tvö apótek á sama svæði. „Mig
vantaði hitt og þetta,“ skrifar Hannes.
„Læknirinn hafði skrifað upp á tvö krem
fyrir mig vegna sveppasýkingar. Svo var
kominn tími á nýjar birgðir af blóðþrýst-
ingstöflunum. Einnig er ég að myndast við
að hætta að reykja og vantaði nikótín-
tyggjó. Það hefur að vísu hækkað svo
svakalega að undanförnu að maður er bara
að spá í að hætta á tyggjóinu og taka út sitt
„cold turkey“. Þá vantaði mig Carbamid-
krem fyrir þurra húð og varasalva á þurrar
varir. Ég hafði heyrt að Lyfjaver væri ódýrt
apótek og að Lyfja dýrt. Ég ákvað því að
athuga verðið hjá þessum tveimur stöðum,
Lyfjaveri á Suðurlandsbraut og Lyfju í
Lágmúla. Lyfjaver var ódýrara í öllum
tilfellum og ég sparaði mér næstum því
þrjú þúsund krónur með því að velja rétt
apótek. Niðurstöður mínar koma hér.“
Neytendur: Það borgar sig alltaf að bera saman verð
Valdi rétt apótek og sparaði
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is VERÐMUNUR Í APÓTEKUM:
Vörutegund Lyfjaver Lyfja
Pevisone-krem 30g 2.434 kr. 2.693 kr.
Lamisil-krem 10 mg/g, 30 g 3.281 kr. 3.582 kr.
Atacand 8 mg, 98 töflur 2.186 kr. 3.350 kr.
Nicotinell Mint/4 mg/204 stk. 7.530 kr. 8.243 kr.
Labello classic varasalvi 207 kr. 247 kr.
Carbamid-krem 10% 538 kr. 791 kr.
Samtals 16.176 kr. 18.906 kr.
Mismunur: 2.730 kr.
STJÓRNMÁL EES-samningurinn er
rétti farvegurinn fyrir lausn á
deilum Íslendinga við Breta og
Hollendinga.
Þetta er mat Katrínar Júlíus-
dóttur, þingmanns Samfylkingar-
innar og formanns Íslandsdeildar
þingmannanefndar EFTA.
„Það hefði verið eðlilegra að
málin hefðu farið í einhvern far-
veg innan EES í stað þess að ræða
þau tvíhliða,“ segir Katrín.
Deilan snýst um innstæður í úti-
búum íslensku bankanna í Bret-
landi og Hollandi, og eftir atvikum
í öðrum Evrópuríkjum. Greinir
þjóðirnar á um hvernig trygging-
um vegna innstæðnanna skuli
hagað eftir hrun
bankanna. Hefur
Geir H. Haarde
forsætisráðherra
sagt að finnist
ekki lausn með
viðræðum sé ekki
óeðlilegt að dóm-
stólar skeri úr
um enda grund-
vallast málið á
ólíkum skilningi
alþjóðalaga.
Katrín bendir
á að íslensku bankarnir hafi starf-
að í öðrum ríkjum Evrópu í krafti
EES-samningsins. Samningurinn
hafi í raun afmáð landamæri milli
ríkjanna en nú, þegar deilur ríkja,
séu þau sömu landamæri orðin til
á ný.
Hún tekur fram að hún viti ekki
fyrir víst hvort gerlegt hefði verið
að leysa deiluna á vettvangi EES
en það hefði í það minnsta verið
réttur farvegur sáttatilrauna.
Málið hefur vakið Katrínu til
umhugsunar um áhrif fjármála-
kreppunnar á EES-samninginn og
lagði hún til á fundum þingmanna-
nefnda EFTA og EES í Brussel í
vikunni að slík áhrif yrðu skoðuð.
Var henni í framhaldinu falið að
skoða það á næstu mánuðum
ásamt þýskum þingmanni á Evr-
ópuþinginu. - bþs
Telur EES rétta farveginn fyrir lausn á deilu Íslendinga við Breta og Hollendinga:
Undrast tvíhliða viðræður
KATRÍN JÚLÍUS-
DÓTTIR
Hefði átt að gera íslensku
bönkunum kleift að gera upp í
evrum?
Já 84%
Nei 16%
Finnst þér stjórnvöld á Norður-
löndum hafa reynst okkur vel í
efnahagsvandanum?
Segðu skoðun þína á vísir.is
SITUR ENN Jón Ásgeir Jóhannesson situr enn sem stjórnarformaður fjölmiðlafyrirtækisins 365, þrátt fyrir að hafa hlotið dóm sem
lögum samkvæmt útilokar hann frá stjórnarsetu í þrjú ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hættur stjórnarsetu í
sautján fyrirtækjum
Jón Ásgeir Jóhannesson segir ásakanir um að hann brjóti lög með setu í stjórn-
um íslenskra fyrirtækja í kjölfar dóms í Baugsmálinu hluta af rógsherferð. Lög-
maður hvetur Hlutafélagaskrá til að bregðast við. Þar er málið sagt í skoðun.
LÖGREGLUMÁL Lögregla á Selfossi
rannsakar nú tvö alvarleg
líkamsárásarmál sem upp komu
aðfaranótt sunnudags. Í öðru
tilvikinu sló maður annan í
höfuðið með flösku fyrir utan
skemmtistaðinn Hvíta húsið á
Selfossi. Hann lét ekki þar við
sitja og sló annan mann nokkur
hnefahögg í andlitið. Árásarmað-
urinn var handtekinn og yfir-
heyrður á lögreglustöð.
Þá réðst unglingur á mann á
sextugsaldri á Stokkseyri og
skallaði í höfuðið með þeim
afleiðingum að maðurinn missti
meðvitund. Unglingurinn var
handtekinn og yfirheyrður. - jss
Stórfelldar líkamsárásir:
Missti meðvit-
und eftir árás
KJÖRKASSINN