Fréttablaðið - 14.11.2008, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 14.11.2008, Blaðsíða 28
2 föstudagur 14. nóvember núna ✽ settu disk í spilarann Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is Penni Alma Guðmundsdóttir alma@frettabladid.is Forsíðumynd Anton Brink Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 augnablikið M argir spurðu mig af hverju ég söng ekki á tónleikun- um í Laugardalshöllinni því ég hef sungið lög Vilhjálms í nokkur ár,“ segir Friðrik Ómar Hjörleifs- son söngvari sem gefur út plötu með upptöku af minningartón- leikum Vilhjálms Vilhjálmsson- ar í næstu viku. Tónleikana hélt hann í Salnum á dánardegi Vil- hjálms, 28. mars, en uppruna- lega ætlaði hann að halda minn- ingartónleikana í Laugardalshöll- inni. „Ég fékk þessa hugmynd og bókaði höllina haustið 2007. Ég var búinn að borga staðfest- ingargjald og hafði kynnt hugmyndina fyrir aðstand- endum Vilhjálms þegar haft var samband frá Bravo, sem vildi koma að tónleikunum með mér. Við töluðum svo við Magn- ús Kjartansson um að koma fram sem fyrrum samstarfsmaður Vil- hjálms, en hann tjáði okkur að hann ætlaði frekar á móti okkur með aðra tónleika á sama degi,“ útskýrir Friðrik. „Rétt eftir áramótin fékk ég svo símtal frá Bravo og mér til- kynnt að búið væri að ganga frá samkomulagi við Jón Ól- afsson og Magnús Kjart- ansson um að halda tón- leikana, en þá var ég staddur í fríi á Taí- landi. Þeir sögðust samt vilja hafa mig með og endurgreiða mér staðfestingar- gjaldið á höllinni svo ég gaf þeim húsnæðið eftir, en þá hættu þeir við tónleik- ana á fyrirhuguðum tíma því þeir voru á byrjunarreit hvað varðar skipulagningu,“ segir Friðrik. „Ég vildi ekki standa í neinu veseni. Ætlaði bara að halda flotta tón- leika og var meðal annars búinn að sýna Magnúsi og aðstandend- um Vilhjálms hugmynd um að stofa minningarsjóð í nafni hans í tengslum við tónleikana,“ bætir hann við. „Tónleikarnir var eitt- hvað sem mig hafði lengi langað til að gera svo ég ákvað að slá til, pantaði Salinn í Kópavogi og fékk Guðrúnu Gunnarsdóttur, Stefán Hilmarsson og Pálma Gunnarsson til að syngja með mér. Sú ákvörð- un varð til þess að minnar nær- veru var ekki óskað á tónleikun- um í höllinni,“ útskýrir Friðrik. „Lögin hans Vilhjálms verða aldrei of oft sungin svo við ættum að gleðjast yfir hversu margir fóru á tónleika í ár til að hlýða á þau, hvort sem það var í Salnum eða annars staðar,“ segir Friðrik. - ag Friðrik Ómar gefur út plötu með lögum Vilhjálms Vilhjálmssonar: LÖG VILLA VILL ALDREI OF OFT SUNGIN „Ég er búin að bíða eftir svona bók á íslensku heillengi og finnst hálf skrítið að það var ég sem var fyrst til að gera hana,“ segir Þuríður Stefánsdóttir, höfundar bók- arinnar Förðun, þín stund. Í bókinni kennir hún alla helstu grunntækni í förð- un fyrir konur á öllum aldri, en Þuríður hefur starfað sem snyrti- og förðunarfræðingur um árabil, hann- að eigin förðun- arlínu og hald- ið námskeið. „Þessi bók er í s - lensk fram- leiðsla frá a til ö. Yngsta m ó d e l i ð e r þrettán ára og það elsta er 83 ára, svo hún er fyrir konur á öllum aldri þó svo að hún líti út fyrir að vera svona ungpíubók,“ bætir hún við og segist sannfærð um að bækur verði vinsæl- asta jólagjöfin í ár. „Fólk er kannski ekki að gefa demanta og flatskjái þessi jól. Það er til mikið af sjálfshjálparbókum um andlega líðan, en ég lít á þessa bók sem svona sjálfshjálpar- útlitsbók, því þegar maður lítur vel út líður manni betur,“ segir Þuríður. - ag Þuríður Stefánsdóttir gefur út bók: Kennir konum réttu handtökin Förðun Í nýrri bók Þuríðar kennir hún konum grunntækni í förðun. Þjóðareign „Vilhjálm- ur er þjóðareign og mér þykir afar vænt um lögin hans,“ segir Friðrik Ómar. LITRÍK Katy Perry hefur víða vakið athygli fyrir klæðaburð sinn og mætti í þessum bláa kjól og gulum skóm á MTV-verðlaunahátíðina í Liverpool á dögunum. Takið líka eftir litla veskinu. Spila Stolt siglir fleyið mitt Það eru fleiri að gera það gott úti á landi því hjónin svavar pétur ey- steinsson og Berglind Häsler, sem búa á seyðisfirði, hafa gert nýja út- gáfu af hinu sígilda lagi Gylfa Ægis- sonar, Stolt siglir fleyið mitt. Lagið er nú fáanlegt ókeypis á síðunni skakkappopp.is og er dúett þeirra, Létt á bárunni, skráður fyrir gjörn- ingnum. Svavar og Berglind eru einnig forsprakkar hljómsveitarinn- ar Skakkamanage sem gefur út sína aðra plötu, All over the Face, á næstunni. Í magadansi á Akureyri Útvarpskonan Margrét Erla Maack er ekki aðeins að gera það gott í Popplandinu á Rás 2, því hún starfar einnig sem plötusnúður á Thorvaldsen og kennir maga- dans í Kramhúsinu. Margrét Erla hefur nú verið fengin til Akureyrar til að kenna maga- og Bollywood- dansa í líkamsræktarstöðinni Átak um helgina og þrátt fyrir fimm tíma kennslu báða dagana ætlar hún ekki að láta sig vanta á tónleika með 200.000 naglbítum og Lúðra- sveit verkalýðsins í íþróttahöll- inni. ÁRNI RÚNAR HLÖÐVERSSON TÓNLISTARMAÐUR „Það verður hljómsveitaræfing í dag en eftir mótmælin á morgun klukkan fjögur verð- um við í FM Belfast með tónleika á Smiðjustíg. Seinna um kvöldið ætlum við að spila í Laugardalshöllinni á tónleikum sem kallast áfram með lífið. Mér dettur ekkert í hug hvað ég ætla að gera á sunnudaginn. Ég hugsa ekki svo langt.“ þetta HELST helgin MÍN Hvaða Spirulina ert þú að taka? Árangur fer eftir gæðum Gott fyrir ræktina og mikið álag. Spirulina inniheldur mikið af blaðgrænu og glyccogen, því meira glycogen sem er til staðar í líkamanum við æfingar því betri árangur. Blaðgræna eykur súrefnisflutning í blóðinu. Ef Spirulina er tekið inn 1/2 tíma fyrir æfingar eða annað álag gefur það aukið þrek, úthald og einbeitingu. Dregur úr pirringi, sleni og sætindaþörf, truflar ekki svefn. Gæðastaðall ISO9001, ISO1401. 29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum. Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni. Aukið úthald, þrek og betri líðan V o ttað 100% lífræ nt www.celsus.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.