Fréttablaðið - 14.11.2008, Page 50
30 14. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Skilaboðaskjóðan
Þorvaldur Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson
sun. 16/11, örfá sæti laus
Sýningum að ljúka
Klókur ertu, Einar Áskell
Bernd Ogrodnik
sun. 16/11 örfá sæti laus
Síðasta sýningarhelgi
www.leikhusid.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Utan gátta
Sigurður Pálsson
Snarskemmtileg sýning. JVJ, DV
fös. 14/11 uppselt, lau 15/11 uppselt
Aukasýningar komnar í sölu
Sá ljóti
Marius von Mayenburg
Er hægt að vera of fallegur? EB, FBL
fös. 14/11, örfá sæti laus, lau. 15/11 uppselt
Örfá sæti laus í nóvember
Hart í bak
Jökull Jakobsson
Verk sem snertir okkur öll. EB, FBL
fös. 14/11 uppselt, lau. 15/11 uppselt
Örfá sæti laus í nóvember
Kardemommubærinn
Leitin að jólunum
Sýningar komnar í sölu.
Tryggðu þér sæti á frábærar
fjölskyldusýningar!
Tónskáldið Atli Heimir Sveins-
son varð sjötugur nú í haust
og hafa íslenskir tónlistarmenn
keppst við að heiðra hann á
þeim tímamótum. Nú um helg-
ina mun Fífilbrekkuhópurinn,
ásamt Skólakór Varmárskóla og
Gradualekór Langholtskirkju,
flytja vinsæl lög Atla, en tónleik-
arnir eru hluti af tónlistarhátíð
sem haldin er í vetur í tilefni af
afmæli hans.
Fífilbrekkuhópinn skipa
söngvararnir Hulda Björk
Garðarsdóttir sópran og Eyjólfur
Eyjólfsson tenór, ásamt þeim
Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara, Önnu Guðnýju
Guðmundsdóttur píanóleikara, Hávarði Tryggva-
syni kontrabassaleikara og Sigurði Ingva Snorra-
syni klarínettuleikara.
Tónleikar Fífilbrekkuhópsins um helgina verða
tveir, þeir fyrri fara fram á
morgun kl. 16 í Hátíðarsal
Varmárskóla í Mosfellsbæ.
Þar kemur fram með hópnum
Skólakór Varmárskóla undir
stjórn Guðmundar Ómars
Óskarssonar. Miðaverð er 1.000
kr. og fer miðasala fram við
innganginn. Seinni tónleikarnir
fara fram á sunnudag kl. 13 í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar kemur
fram með hópnum Gradualekór
Langholtskirkju undir stjórn
Jóns Stefánssonar. Aðgangur
að tónleikunum er ókeypis og
öllum opinn.
Með tónleikunum heiðrar Fífilbrekkuhópurinn
þó ekki aðeins Atla Heimi sjötugan, heldur minnist
einnig afmælis Jónasar Hallgrímssonar hinn 16.
nóvember. Á efnisskrá tónleikanna verða þannig
meðal annars nokkur Jónasarlög Atla Heimis. - vþ
Atli Heimir og Jónas heiðraðir
ATLI HEIMIR SVEINSSON TÓNSKÁLD
Verður heiðraður á tvennum tónleik-
um Fífilbrekkuhópsins og barnakóra
nú um helgina.
Kl. 16
Sýningin Minningar verður opnuð í
menningarmiðstöðinni Gerðubergi kl.
16 í dag, en á henni má sjá olíumál-
verk Halldórs Viðars Garðarssonar
af landslagi, uppstillingum og
minningum sínum. Á opnuninni
koma fram Gerðubergskórinn undir
stjórn Kára Friðrikssonar og Tákn-
málskórinn undir stjórn Eyrúnar
Ólafsdóttur. Sýningin stendur til 11.
janúar næstkomandi.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 14. nóvember
➜ Tónleikar
20.00 Sprengju-
höllin og Hjaltalín
verða með tón-
leika í Kirkju- og
menningarmiðstöð
Fjarðabyggðar á
Eskifirði.
22.00 Þjóðlaga-
pönkhljómsveitin
Croisztans verður
með tónleika
ásamt Dýrðinni á Grand Rokk, Smiðju-
stíg 6. Aðgangur ókeypis.
22.00 Þórir Baldursson, Jón Páll
Bjarnason, Ingvi Rafn Ingvason og
Geir Ólafsson, spila djass og swingtón-
list á Græna hattinum, Hafnarstræti 96,
Akureyri.
➜ Síðustu forvöð
Kyrrð í kreppunni Sýningu Didda í
Hinu húsinu lýkur á laugardaginn. Opið
föst. kl. 9-17 og lau. 14-18.
Vera Sörensen og Árni Björnsson sýna
verk á Tangarhöfða 6, II hæð. Sýningu
lýkur á sunnudaginn. Opið kl. 12-20.
Sýningu á verkum Tamy Ben-Tor í 101
Gallery lýkur á sunnudaginn. Opið fös.-
sun. kl. 14-17, 101 Gallery, Hverfisgötu
18a.
New Beginning Rannveig Helgadóttir
sýnir verk í Jónas Viðar Gallery í Lista-
gilinu á Akureyri, Kaupvangsstræti 12.
Opið fös.-sun. kl. 13-18. Sýningu lýkur á
sunnudaginn.
➜ Listahátíð
Unglist – Listahátíð ungs fólks stend-
ur yfir 7.-15. nóv. Ókeypis er á alla
viðburði. Nánari upplýsingar á www.
unglist.is.
20.00 Bít og blástur. Tónleikar tileink-
aðir djass og spunatónlist í Norræna
Húsinu, Sturlugötu 5.
20.00 Framhaldshópur Lindyravers
æfir swing-rútínu fyrir opnum tjöldum í
Hinu húsinu, Pósthússtræti 3-5.
➜ Sýningar
Náttúra – manngert umhverfi Í Te
og kaffi í verslun Eymundssonar við
Austurstræti eru til sýnis ljósmyndir af
verkefnum unglinga frá Íslandi, Dan-
mörku og Finnlandi. Opið virka daga
9-22 og um helgar 10-22.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
> Ekki missa af …
sýningunni „Ekvador að fornu
og nýju“ í Gerðarsafni, en
henni lýkur nú um helgina.
Á sýningunni má sjá listmuni
og málverk frá Ekvador; elstu
munirnir eru rúmlega fimm
þúsund ára gamlir en þeir
yngstu tilheyra nútímanum.
Boðið verður upp á leiðsögn
um sýninguna á sunnudag kl.
15. Aðgangseyrir er 600 kr., en
12 ára og yngri fá frítt inn.
Tvær áhugaverðar sýningar
verða opnaðar í Hafnar-
borg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar,
á morgun kl. 15. Í báðum
tilfellum er listamaðurinn
Sveinn Björnsson í aðalhlut-
verki, en annars er nálgun
sýninganna heldur ólík.
Á sýningunni „Sjórinn og sjávar-
plássið“ eru valin málverk Sveins
Björnssonar sem sýna vel hve
nátengdur hann var sjónum og
sjávarútvegi í listsköpun sinni.
Sveinn hóf starfsævi sína sem
sjómaður, en hætti síðar til sjós og
gerði myndlist að meginviðfangs-
efni ævi sinnar.
Elsta verkið á sýningunni vann
hann veturinn 1948-49 af ísjökum
á Halamiðum og er það jafnframt
fyrsta verkið sem hann málaði
innblásinn af fegurð og ógnum
hafsins.
Einnig verður opnuð sýningin
„Charlottenborgarárin 1961-1968
– tækifæri og örlög“. Á henni er
leitast við að setja verk Sveins í
samhengi við verk eftir lítinn hóp
málara sem lagði stund á nám við
Listaakademíuna í Kaupmanna-
höfn á sama tíma og sýndi saman
í Charlottenborg á árunum 1961-
1968.
Undirtitill sýningarinnar dreg-
ur fram að þó að tækifæri gefist
til að helga sig listinni verður ekki
vikist undan örlögunum sem oft
hafa annað í huga. Þetta á við um
alla þá listamenn sem eiga verk á
sýningunni, en þeir eru auk Sveins
þeir Henrik Vagn Jensen, Niels
Vagn Jensen, Per Henrik Friis og
Ib Thorup.
Verkin á sýningunni eru öll frá
náms- og mótununarárum lista-
mannanna; teikningar og málverk
sem sýna einkenni hvers og eins.
Sýningarnar standa báðar til 4.
janúar og eru liður í 100 ára
afmælisdagskrá Hafnarfjarðar-
bæjar. Sveinssafn hefur átt veg
og vanda að undirbúningi þeirra
ásamt listamanninum Henrik
Vagn Jensen sem verður viðstadd-
ur opnunina, en hann er sá eini
þeirra Charlottenborgarfélaga
sem enn er á lífi.
Auk rits um Charlottenborgar-
árin gefur Sveinssafn út rit um
sýninguna Sjórinn og sjávarpláss-
ið þar sem lesa má grein eftir
Erlend Sveinsson, forstöðumann
safnsins.
vigdis@frettabladid.is
INNBLÁSINN AF HAFINU
FAGUR FISKUR ÚR SJÓ Eitt af verkum Sveins Björnssonar sem sjá má á sýningunum í
Hafnarborg. MYND/HAFNARBORG