Fréttablaðið - 14.11.2008, Side 52

Fréttablaðið - 14.11.2008, Side 52
32 14. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR folk@frettabladid.is > HÆTTIR AÐ LEIKA FYRIR BÖRNIN Angelina Jolie stefnir að því að hætta að leika í kvikmyndum til að sinna fjölskyldu sinni betur. Jolie á sem kunnugt er sex börn með leikar- anum Brad Pitt. „Mig langar að gera nokkra hluti til viðbótar en láta mig svo smám saman hverfa og búa mig undir að verða amma í framtíðinni,“ segir hún. Sprengjuhöllin hélt útgáfu- tónleika í Íslensku óperunni á þriðjudagskvöld til að fagna útkomu sinnar ann- arrar plötu, Bestu kveðjur. Hljómsveitin spilaði lög af nýju plötunni í bland við eldra efni við mjög góðar undirtektir. Kynnir kvöldsins var Árni Vilhjálmsson, söngvari í FM Belfast, og sá hljómsveitin Motion Boys um upphitun. Sprengjuhöllin fagnaði í Óperunni SPRENGJUHÖLLIN Strákarnir í Sprengjuhöllinni spiluðu lög af sinni nýjustu plötu, Bestu kveðjur, á útgáfutónleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Elísabet og Anna Rós brostu breitt á útgáfutónleikum Sprengjuhallarinnar. Kristinn H. Þorsteinsson, Auður Jóns- dóttir og Ólafur Viðarsson létu sig ekki vanta á tónleikana. Þær Valgerður og Ástrós hlustuðu á Sprengjuhöllina spila lög af nýjustu plötu sinni. Þjóðlagapönkhljómsveitin Croisztans er komin til landsins frá Kaupmannahöfn og ætlar að styðja þjóðina á veginum til byltingar. Sveitin spilar í kvöld á Grand rokk ásamt Dýrðinni. „Við viljum vekja upp uppbyggilega byltingarreiði,“ segir Sigurður Óli Pálmason, hinn dimmraddaði söngvari sveitarinnar. Hljómsveitin hefur verið starfandi síðan 1997 og sérhæft sig í byltingar- og uppreisnarsöngvum í austurevrópskum stíl. Í bandinu eru fimm Íslending- ar búsettir í Danmörku og tveir Danir. „Það hefur verið þokkalegt rennirí á okkur í neðanjarðarsen- unni í Köben og við eigum okkar „krád“. “ Sigurður hefur búið í Danmörku í sjö ár og kann því ágætlega. „Það er voða fínt og flatt og allt svo þægilegt. Danska samfélagið er dálítið eins og landslagið, auðvelt og engar hindranir.“ Tónleikarnir hefjast í kvöld kl. 22 og það er ókeypis inn. Uppbyggileg byltingarreiði Björk Guðmundsdóttir er í sextugasta sæti yfir bestu söngvara allra tíma á heimasíðu bandaríska tímaritsins Roll- ing Stone. Í efsta sæti er Aretha Fran- klin, Ray Charles er í öðru og Elvis Presley í því þriðja. Þekktar manneskjur úr tónlistar- lífinu tjá sig um marga söngvara á síðunni og er Chris Martin, söngvari Coldplay, með Björk á sinni könnu. „Þegar þú lendir á Íslandi líður þér eins og þú sért kominn á töfrandi stað. Kannski er það eldfjallavirknin eða harðfiskurinn en það er alltént eitthvað í loftinu: Allir sem þú hittir eru ótrúlega fallegir og allir virðast geta sungið. Söngvararnir í landinu eru mun framar öllum öðrum, sér- staklega Björk,“ segir Martin. „Rödd- in hennar er virkilega sérstök og frumleg. Núna þegar hún er búin að vera í bransanum í tuttugu ár virðast allir gleyma því hversu ótrúleg hún er. Ef hún myndi syngja stefið úr Sesame Street myndi það hljóma allt öðruvísi en aðrir myndu syngja það, en samt myndi það hljóma æðislega.“ Martin segist fyrst hafa hrifist af Björk í myndbandinu við lagið Big Time Sensuality og síðar sökkti hann sér í plötu hennar, Homogenic. Bætir hann við að ótrúlegt raddsvið hennar heyrist best í laginu It´s Oh So Quiet. „Hún gæti verið óperusöngvari eða poppsöngvari. Hún getur gert allt. Í hljóðverinu okkar eru myndir af uppá- haldstónlistarmönnunum okkar, þar á meðal Mozart, Jay-Z, Gershwin, PJ Harvey og Björk.“ Fyrir neðan Björk á lista Rolling Stone eru stjörnur á borð við Axl Rose, Thom Yorke, Dolly Parton, Mariah Carey, Morrissey og Mary J. Blige. Björk gæti verið óperusöngvari BJÖRK Björk er í sextugasta sæti yfir bestu söngvara allra tíma á heimasíðu Rolling Stone. Giljagaur fremstur í fjósið rann því froðu af mjólkinni þráði hann. Hann óttaðist menn og alls kyns dýr – nema auðvitað góðar mjólkurkýr. (Kaffihúsin nú karlinn þræddi, keypti sér latté og málin ræddi.) Fjörugar vísur um jólasveinana í takt við nýja tíma. gömul og ný PRAKKARASTRIK

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.