Fréttablaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 24
24 20. nóvember 2008 FIMMTUDAGUR
UMRÆÐAN
Hallgrímur Helgason
skrifar um pólitíska
ábyrgð
Með hverjum deginum sem líður síast inn sú
furða og sú staðreynd að
hér hefur land verið sett á
hvolf og enn hefur ekki
nokkur maður sagt af sér. Þeir
sem blésu upp þá bankabólu sem
sprakk svo illa framan í þjóðina
eru reyndar flestir flúnir ofan í
sínar vel fóðruðu matarholur en
þeir og þau sem áttu að hemja
vandann sitja enn.
Og nú er von á tröllaláni frá
alþjóðasamfélaginu, mörg hundr-
uð milljörðum króna, sem afhent-
ar skulu þeim sem mesta ábyrgð
bera á efnahagshruninu. Er
skippernum, sem svaf af sér sigl-
inguna en vaknaði við strandið,
treystandi fyrir líflínu þjóðarinn-
ar? Nei. Það má ekki gerast að
sömu mönnum og settu Ísland á
hausinn sé ætlað að reisa það við.
Það bara gengur ekki.
Og með hverjum deginum sem
líður vex ábyrgð Samfylkingar.
Allt frá því Glitnir brotlenti í
Seðlabankanum í lok september
var tilfinningin lengi sú að Sjálf-
stæðisflokkurinn réði för í öllum
helstu viðbrögðum. Samfylking-
arráðherrar voru ekki með í
þeirri bílferð. Meira jafnvægi
virtist nást eftir að Inigibjörg
Sólrún sneri heim úr veikinda-
leyfi. Myndugleiki hennar og
mælska var vel þegin eftir lang-
ar vikur af moðmælum og mis-
vísandi skilaboðum. Á blaða-
mannafundum stjórnarpars gaf
að líta tvo leiðtoga; þann sem
kann að tala við þjóð sína og hinn
sem kann það ekki.
En það verður að segjast
eins og er að vikurnar á
undan hafði Samfylkingin
verið jafn veik og stýra
hennar. Án formanns síns
var hún sem höfuðlaus her.
Það var líkt og Sjálfstæðis-
flokkurinn sæti einn í
stjórn. Og þrátt fyrir end-
urkomu formannsins, sem
létti nokkuð af brjóstum
samfylkingarmanna og kvenna,
er þessi tilfinning því miður ekki
alveg horfin, um leið og hún er
blönduð áhyggjum af heilsu Ingi-
bjargar Sólrúnar.
Hvað sem því líður virðist
mörgum formaðurinn ekki alveg
með á þeim nótum sem nú eru
leiknar í íslensku samfélagi. Ekki
síst þegar hún þvertekur fyrir
mannabreytingar í ríkisstjórn.
Stundum virðist manni megin-
markmið Samfylkingar með
stjórnarsetunni sé það eitt að
sýna þá ábyrgð að slíta því ekki á
örlagastundu.
En það er hægt að sýna ábyrgð
með öðrum hætti.
Nýjan ráðherra bankamála
Samfylkingar er ráðuneyti við-
skipta og bankamála. Undir það
heyrir Fjármálaeftirlitið, það
eldvarnareftirlit sem brást svo
herfilega að eftir stendur land í
ljósum logum. Það er gersamlega
óverjandi að þeir sem því stjórna
sitji áfram. Og það er jafn óverj-
andi að ráðherrann sem fyrir því
fór sitji áfram. Þegar allir bank-
ar eru hrundir er augljóst að
bankamálaráðherra er ekki leng-
ur sætt. Þau rök að hann hafi ekki
vitað um aðsteðjandi hættur, að
Fjármálaeftirlitið hafi ekki sagt
honum frá þeim, halda ekki. Ráð-
herra getur ekki skýlt sér á bak-
við undirstofnun sína. Hann er og
verður YFIR henni en ekki á
BAKVIÐ hana.
Samfylkingunni er skylt að
sýna gott fordæmi og stokka upp
Fjármálaeftirlitið og skipa nýjan
mann eða konu í ráðuneyti banka-
mála. Enginn á lengur von á því
að sjálfstæðismenn segi sjálfvilj-
ugir af sér en þegar Samfylking-
in þvertekur fyrir það, sitjandi í
ríkisstjórn sem farið hefur með
okkur í gegnum heilt þjóðargjald-
þrot, er fokið í flest skjól. Við
sem héldum að við værum að
kjósa „nútímalegan jafnaðar-
mannaflokk“, flokk sem væri
eitthvað aðeins skárri en gömlu
helspilltu helmingaskiptaflokk-
arnir. Við héldum að við værum
að kjósa flokk lýðræðis, sam-
ræðustjórnmála og siðbótar í
stjórnmálum.
Á Norðurlöndum hafa kollegar
jafnaðarmanna sagt af sér af
ýmsum tilefnum svo frægt er.
Ráðherra jafnréttismála í Noregi
varð uppvís að því að skora á vin-
konu sína að sækja um stöðu sem
hann átti að úthluta. Mona Sahlin
varð uppvís að því að kaupa
bleyjur og toblerone á kreditkort
ríkisins. Hér á landi þyrfti ráð-
herra sjálfsagt að kaupa bleyjur
og toblerone handa öllum kjós-
endum sínum á kostnað ríkisins
áður en honum dytti í hug að
segja af sér.
Fjármálaráðherra verður að víkja
Þegar Samfylkingin er búin að
skipa nýja manneskju í banka-
málaráðuneytið og reka yfir-
stjórn FME er hún komin með
„móralskt umboð“ til að þrýsta
enn og aftur á breytingar í yfir-
stjórn Seðlabanka og fjármála-
ráðuneytis. Á báðum stöðum sitja
menn í umboði þjóðarinnar sem
eru rúnir öllu trausti. Hennar
jafnt sem umheimsins.
Ráðuneytisstjóri fjármálaráðu-
neytisins varð uppvís að því að
selja bréf í Landsbankanum
nokkrum vikum fyrir hrun, stuttu
eftir að hann sat fund bankamála-
ráðherrans okkar og fjármála-
ráðherrans breska, um málefni
þessa sama banka. Fjármálaráð-
herra verður að lúta sömu örlög-
um og bankamálaráðherra,
honum er ekki sætt eftir að fjár-
málakerfið, peningamálastefnan,
gjaldeyrisviðskiptin, krónan,
bankarnir … allt er hrunið.
Um Seðlabankann þarf svo
ekki að fara mörgum orðum.
Raðmistök stjóra hans eru nú
orðið tíunduð í erlendum miðlum
og jafnvel virtustu stórblöð Evr-
ópu eru farin að uppnefna hann
„König David“ svo aðeins er
tímaspursmál hvenær nafn hans
öðlast endemisfrægð á heims-
vísu. Og á meðan sá maður situr
enn með sín víðtæku baktjalda-
völd mun traust og heiður Íslands
njóta sömu frægðar.
Nú síðast undirstrikaði Seðla-
bankastjóri eigið vanhæfi með
sínum sérlundaða hætti þegar
honum var ætlað að tala við þjóð
sína undir yfirskriftinni „Fjár-
málakreppan – Er lausn í sjón-
máli?“ en eyddi klukkutíma
sínum í ræðustól í að tala ein-
göngu um sjálfan sig og aðeins í
fortíð. Peningamál þjóðarinnar
eru ein rjúkandi rúst en yfirmað-
ur þeirra „lætur allt snúast um
sjálfan sig,“ svo vitnað sé í hans
næstbesta vin. Og auðvitað var
tilgangurinn sá að frýja sig
ábyrgð og benda á alla aðra. Stór-
mannlegt.
Að auki las svo seðlastjórinn
yfir hausamótunum á ríkisstjórn
með alvarlegum ásökunum um
dug- og ráðaleysi. Hvers konar
stjórn er það sem situr undir slík-
um ávirðingum frá manni sem á
að heita embættismaður hennar?
Hve lengi enn þurfum við að
vakna við slíkar ræður? Hve
lengi enn ætlar hin undirgefna
ríkisstjórn að leyfa manninum að
„persónugera“ vanda heillar
þjóðar í sjálfum sér?
Þolinmæði á þrotum
Á meðan Samfylkingin situr í rík-
isstjórn sem býður okkur upp á
þennan farsa getur hún ekki búist
við stuðningi okkar mikið lengur.
Ríkisstjórn sem ekki getur
rekið þá sem reka þarf verður á
endanum rekin sjálf. Ef ekki
næsta laugardag, þá þarnæsta
laugardag. Og ef ekki þá, þá þann
þar á eftir. Hún verður rekin á
hverjum laugardegi fram að
kosningum. Því loforð um bráð-
legar kosningar er eina loforðið
sem þjóðin getur tekið af þessari
ríkisstjórn.
Þolinmæði okkar er ekki enda-
laus en af réttlætiskenndinni
eigum við meira en nóg.
Höfundur er rithöfundur.
Og með hverjum deginum sem
líður vex ábyrgð Samfylkingar.
Allt frá því Glitnir brotlenti í
Seðlabankanum í lok septem-
ber var tilfinningin lengi sú
að Sjálfstæðisflokkurinn réði
för í öllum helstu viðbrögðum.
Samfylkingarráðherrar voru
ekki með í þeirri bílferð.
HALLGRÍMUR
HELGASON
Ábyrgð Samfylkingarinnar
Sparar pening Sparar tíma
3
0
4
3
/
T
A
K
T
ÍK
1
1
.2
0
0
8