Fréttablaðið - 20.11.2008, Side 24

Fréttablaðið - 20.11.2008, Side 24
24 20. nóvember 2008 FIMMTUDAGUR UMRÆÐAN Hallgrímur Helgason skrifar um pólitíska ábyrgð Með hverjum deginum sem líður síast inn sú furða og sú staðreynd að hér hefur land verið sett á hvolf og enn hefur ekki nokkur maður sagt af sér. Þeir sem blésu upp þá bankabólu sem sprakk svo illa framan í þjóðina eru reyndar flestir flúnir ofan í sínar vel fóðruðu matarholur en þeir og þau sem áttu að hemja vandann sitja enn. Og nú er von á tröllaláni frá alþjóðasamfélaginu, mörg hundr- uð milljörðum króna, sem afhent- ar skulu þeim sem mesta ábyrgð bera á efnahagshruninu. Er skippernum, sem svaf af sér sigl- inguna en vaknaði við strandið, treystandi fyrir líflínu þjóðarinn- ar? Nei. Það má ekki gerast að sömu mönnum og settu Ísland á hausinn sé ætlað að reisa það við. Það bara gengur ekki. Og með hverjum deginum sem líður vex ábyrgð Samfylkingar. Allt frá því Glitnir brotlenti í Seðlabankanum í lok september var tilfinningin lengi sú að Sjálf- stæðisflokkurinn réði för í öllum helstu viðbrögðum. Samfylking- arráðherrar voru ekki með í þeirri bílferð. Meira jafnvægi virtist nást eftir að Inigibjörg Sólrún sneri heim úr veikinda- leyfi. Myndugleiki hennar og mælska var vel þegin eftir lang- ar vikur af moðmælum og mis- vísandi skilaboðum. Á blaða- mannafundum stjórnarpars gaf að líta tvo leiðtoga; þann sem kann að tala við þjóð sína og hinn sem kann það ekki. En það verður að segjast eins og er að vikurnar á undan hafði Samfylkingin verið jafn veik og stýra hennar. Án formanns síns var hún sem höfuðlaus her. Það var líkt og Sjálfstæðis- flokkurinn sæti einn í stjórn. Og þrátt fyrir end- urkomu formannsins, sem létti nokkuð af brjóstum samfylkingarmanna og kvenna, er þessi tilfinning því miður ekki alveg horfin, um leið og hún er blönduð áhyggjum af heilsu Ingi- bjargar Sólrúnar. Hvað sem því líður virðist mörgum formaðurinn ekki alveg með á þeim nótum sem nú eru leiknar í íslensku samfélagi. Ekki síst þegar hún þvertekur fyrir mannabreytingar í ríkisstjórn. Stundum virðist manni megin- markmið Samfylkingar með stjórnarsetunni sé það eitt að sýna þá ábyrgð að slíta því ekki á örlagastundu. En það er hægt að sýna ábyrgð með öðrum hætti. Nýjan ráðherra bankamála Samfylkingar er ráðuneyti við- skipta og bankamála. Undir það heyrir Fjármálaeftirlitið, það eldvarnareftirlit sem brást svo herfilega að eftir stendur land í ljósum logum. Það er gersamlega óverjandi að þeir sem því stjórna sitji áfram. Og það er jafn óverj- andi að ráðherrann sem fyrir því fór sitji áfram. Þegar allir bank- ar eru hrundir er augljóst að bankamálaráðherra er ekki leng- ur sætt. Þau rök að hann hafi ekki vitað um aðsteðjandi hættur, að Fjármálaeftirlitið hafi ekki sagt honum frá þeim, halda ekki. Ráð- herra getur ekki skýlt sér á bak- við undirstofnun sína. Hann er og verður YFIR henni en ekki á BAKVIÐ hana. Samfylkingunni er skylt að sýna gott fordæmi og stokka upp Fjármálaeftirlitið og skipa nýjan mann eða konu í ráðuneyti banka- mála. Enginn á lengur von á því að sjálfstæðismenn segi sjálfvilj- ugir af sér en þegar Samfylking- in þvertekur fyrir það, sitjandi í ríkisstjórn sem farið hefur með okkur í gegnum heilt þjóðargjald- þrot, er fokið í flest skjól. Við sem héldum að við værum að kjósa „nútímalegan jafnaðar- mannaflokk“, flokk sem væri eitthvað aðeins skárri en gömlu helspilltu helmingaskiptaflokk- arnir. Við héldum að við værum að kjósa flokk lýðræðis, sam- ræðustjórnmála og siðbótar í stjórnmálum. Á Norðurlöndum hafa kollegar jafnaðarmanna sagt af sér af ýmsum tilefnum svo frægt er. Ráðherra jafnréttismála í Noregi varð uppvís að því að skora á vin- konu sína að sækja um stöðu sem hann átti að úthluta. Mona Sahlin varð uppvís að því að kaupa bleyjur og toblerone á kreditkort ríkisins. Hér á landi þyrfti ráð- herra sjálfsagt að kaupa bleyjur og toblerone handa öllum kjós- endum sínum á kostnað ríkisins áður en honum dytti í hug að segja af sér. Fjármálaráðherra verður að víkja Þegar Samfylkingin er búin að skipa nýja manneskju í banka- málaráðuneytið og reka yfir- stjórn FME er hún komin með „móralskt umboð“ til að þrýsta enn og aftur á breytingar í yfir- stjórn Seðlabanka og fjármála- ráðuneytis. Á báðum stöðum sitja menn í umboði þjóðarinnar sem eru rúnir öllu trausti. Hennar jafnt sem umheimsins. Ráðuneytisstjóri fjármálaráðu- neytisins varð uppvís að því að selja bréf í Landsbankanum nokkrum vikum fyrir hrun, stuttu eftir að hann sat fund bankamála- ráðherrans okkar og fjármála- ráðherrans breska, um málefni þessa sama banka. Fjármálaráð- herra verður að lúta sömu örlög- um og bankamálaráðherra, honum er ekki sætt eftir að fjár- málakerfið, peningamálastefnan, gjaldeyrisviðskiptin, krónan, bankarnir … allt er hrunið. Um Seðlabankann þarf svo ekki að fara mörgum orðum. Raðmistök stjóra hans eru nú orðið tíunduð í erlendum miðlum og jafnvel virtustu stórblöð Evr- ópu eru farin að uppnefna hann „König David“ svo aðeins er tímaspursmál hvenær nafn hans öðlast endemisfrægð á heims- vísu. Og á meðan sá maður situr enn með sín víðtæku baktjalda- völd mun traust og heiður Íslands njóta sömu frægðar. Nú síðast undirstrikaði Seðla- bankastjóri eigið vanhæfi með sínum sérlundaða hætti þegar honum var ætlað að tala við þjóð sína undir yfirskriftinni „Fjár- málakreppan – Er lausn í sjón- máli?“ en eyddi klukkutíma sínum í ræðustól í að tala ein- göngu um sjálfan sig og aðeins í fortíð. Peningamál þjóðarinnar eru ein rjúkandi rúst en yfirmað- ur þeirra „lætur allt snúast um sjálfan sig,“ svo vitnað sé í hans næstbesta vin. Og auðvitað var tilgangurinn sá að frýja sig ábyrgð og benda á alla aðra. Stór- mannlegt. Að auki las svo seðlastjórinn yfir hausamótunum á ríkisstjórn með alvarlegum ásökunum um dug- og ráðaleysi. Hvers konar stjórn er það sem situr undir slík- um ávirðingum frá manni sem á að heita embættismaður hennar? Hve lengi enn þurfum við að vakna við slíkar ræður? Hve lengi enn ætlar hin undirgefna ríkisstjórn að leyfa manninum að „persónugera“ vanda heillar þjóðar í sjálfum sér? Þolinmæði á þrotum Á meðan Samfylkingin situr í rík- isstjórn sem býður okkur upp á þennan farsa getur hún ekki búist við stuðningi okkar mikið lengur. Ríkisstjórn sem ekki getur rekið þá sem reka þarf verður á endanum rekin sjálf. Ef ekki næsta laugardag, þá þarnæsta laugardag. Og ef ekki þá, þá þann þar á eftir. Hún verður rekin á hverjum laugardegi fram að kosningum. Því loforð um bráð- legar kosningar er eina loforðið sem þjóðin getur tekið af þessari ríkisstjórn. Þolinmæði okkar er ekki enda- laus en af réttlætiskenndinni eigum við meira en nóg. Höfundur er rithöfundur. Og með hverjum deginum sem líður vex ábyrgð Samfylkingar. Allt frá því Glitnir brotlenti í Seðlabankanum í lok septem- ber var tilfinningin lengi sú að Sjálfstæðisflokkurinn réði för í öllum helstu viðbrögðum. Samfylkingarráðherrar voru ekki með í þeirri bílferð. HALLGRÍMUR HELGASON Ábyrgð Samfylkingarinnar Sparar pening Sparar tíma 3 0 4 3 / T A K T ÍK 1 1 .2 0 0 8

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.