Fréttablaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 34
● fréttablaðið ● veljum íslenskt 20. NÓVEMBER 2008 FIMMTUDAGUR4
„Núna á mánudaginn seldi ég
fyrsta úrið til Kínverja sem er þar
með orðinn eini Kínverjinn í heim-
inum sem á svona úr,“ segir Gil-
bert Ólafur Guðjónsson úrsmiður,
sem hefur framleitt íslensk karl-
mannsúr síðustu þrjú ár sem hafa
að hans sögn farið sigurför um
heiminn.
„Núna er stanslaus straumur af
útlendingum sem koma til okkar
að kaupa. Svo erum við einnig með
verslun á netinu sem við auglýsum
í Atlantica, bæklingum Icelandair,“
segir hann og bætir við: „Margt
fólk pantar hjá okkur úr í gegnum
netið og við sendum vöruna út um
allan heim. Til dæmis er fullt af ís-
lenskum úrum í Ástralíu.“
Hönnunin er öll í höndum Ís-
lendinga og smíðar Gilbert úrin
úr hlutum sem eru sér-framleidd-
ir í verksmiðjum í Sviss og Þýska-
landi. Sigurður Gilbertsson, sonur
hans, Júlíus Heiðarsson og Grím-
kell Sigurþórsson hanna úrin og
öskjurnar, en íslenskur listamaður
hefur auk þess grafið í þær.
Úrsmíðin og frágangurinn
tekur rúman hálfan mánuð. „Eftir
að við fáum alla hlutina byrjum
við að raða saman. Svo fer úrið í
alls konar prufur, meðal annars í
tæki sem líkist því að vera með úr
á hendi og þar er það í tíu til fjór-
tán daga.“
Gilbert verður svo með nýja
línu til sölu í desember. „Þetta eru
tíu karlmannsúr. Aðeins tíu verða
gerð og hafa níu þegar verið pönt-
uð.“ - aóv
Sigurför um heiminn
Gilbert Ó. Guðjónsson úrsmiður og
Sigurður Gilbertsson hönnuður.
Aðeins tíu úr verða búin til og er þegar
búið að panta níu. Úrið kostar 1,3 millj-
ónir króna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Glófi ehf. er stærsti prjónavöruframleiðandi á Íslandi.
Helstu framleiðsluvörur fyrirtækisins eru sokkar,
vettlingar, húfur, hárbönd, treflar og sjöl. Einnig alls
kyns flíkur úr íslenskri ull svo sem slár, peysur og
kápur ásamt ýmsum vörum úr íslensku lambaskinni.
Eigendur fyrirtækisins eru þeir Logi A. Guðjóns-
son og Páll Kr. Pálsson en Logi hefur verið viðriðinn
prjónaiðnaðinn síðastliðin 40 ár og upplifað bæði upp-
sveiflu og miklar lægðir. Um þessar mundir segir hann
mikinn meðbyr með íslenskri prjónaframleiðslu.
„Iðnaðurinn var um það bil að líða undir lok rétt
fyrir síðustu aldamót, eða um það leyti sem við keypt-
um Glófa, enda margir af fyrri eigendum komnir á
efri ár. Við keyptum nokkur bitastæðustu fyrirtækin
og reyndum að púsla þeim saman í heildstæða lífvæn-
lega einingu.
Nú fer starfsemin fram á þremur stöðum.
Á Akureyri er framleiðsla á smávörum og
mokkavörum. Á Hvolsvelli eru flíkur og
stærri vörur framleiddar og í Kópa-
vogi er sölu- og markaðsstarfsemin til
húsa,“ segir Logi.
Hann segir mikla aukningu í allri
starfsemi fyrirtækisins, bæði eigin
framleiðslu og framleiðslu fyrir
aðra og þá einkum hönnuði og tísku-
verslanir. Auk þess selur Glófi af-
urðir sínar, sem framleiddar eru
undir merkinu Varma of Iceland,
hjá hinum ýmsu smásölukeðjum og
sérverslunum bæði hér heima og
erlendis. - ve
Meðbyr með prjónavöru
Logi, framkvæmdastjóri Glófa, hefur verið viðriðinn prjóna-
iðnaðinn síðastliðin 40 ár en hér er hann ásamt Pamelu J.
Svavarsson, sölu- og markaðsstjóra fyrirtækisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Glófi framleiðir sjöl, húfur,
vettlinga og trefla í úrvali.
Á ráðstefnunni Hönnum
framtíðina! í Iðnó í dag verður
vöngum velt yfir nýsköpun í
hönnun.
„Hefði ég ekki orðið rithöfundur
væri ég sennilega arkitekt en þegar
ég var yngri að velja mér ævistarf
ríkti kreppa og þá las ég í viðtali við
Steve Christer, arkitekt ráðhússins
við Tjörnina, að hann hefði teikn-
að einn bílskúr síðan hann teikn-
aði ráðhúsið. Ég veit ekki hvort það
voru ýkjur, en fannst þá liggja bein-
ast við að fara að skrifa. Þannig er
maður líka frjálsari og getur byggt
sína loftkastala án þess að setja
traust sitt á verktaka,“ segir rithöf-
undurinn Andri Snær Magnason,
einn sjö frummælenda í Iðnó í dag.
„Undanfarin ár hef ég deilt skrif-
stofu með arkitektum og þeir plat-
að mig til að taka þátt í hönnunar-
keppnum með sér. Þannig hef ég
getað nært þennan áhuga um leið
og við höfum unnið nokkrar keppn-
ir, eins og Krikaskóla sem nú rís í
Mosfellsbæ og Íslandsbankakeppn-
ina um endurhönnun fallega frysti-
hússins á Kirkjusandi,“ segir Andri
Snær, sem í hlutverki rithöfundar
hefur einnig mikla skoðun á bóka-
hönnun.
„Hönnun og nýsköpun hverfa oft
fyrst þegar slaknar á atvinnulífinu,
en eru þó lykill að endurreisn í alls
kyns greinum. Á sama tíma snýst
þróunin við og í stað þess að hanna
eftir pöntun, þurfa hönnuðir að ger-
ast uppfinningasamir á nýsköpun,“
segir Andri Snær og bætir við að
90 prósent nýrra íbúða nú séu eft-
iröpun og lítil sem engin hönnun í
gangi.
„Nú þurfum við að endurhugsa
borgarlandið okkar, því borgin fór
algjörlega úr böndum í bullinu.
Mikið af nýuppbyggðum hverfum
eru ekki eins vel gerð og við hefð-
um viljað gera þau og því þurf-
um við að endurmeta hlutina, svo
þeir standist tímans tönn og séu til
sóma,“ segir Andri Snær og minnir
á að borgin hafi oftast byggst upp á
góðæristímum, en í kjölfarið komið
svo djúpar lægðir að menn geti vart
ímyndað sér að byggt verði aftur í
Reykjavík.
„Og svo verða menn svo fegnir
þegar eitt hús verður byggt að þeir
gera engar kröfur og þannig varð
Borgartún til. Þá fær verktakinn
svo mikil völd að hann byggir eftir
eigin höfði og sveitarfélögin þora
ekki að standa í lappirnar vegna
innbyrðis samkeppni um verkefni.
Þannig hefur myndast vítahringur
sem við þurfum að komast út úr,“
segir Andri Snær sem í fyrirlestri
sínum ætlar einnig að róa á önnur
mið.
„Við eigum svo margt til, sem nú
er tími til að sinna; hvort sem það er
vetrarferðamennska eða sérstaða
okkar í forngripum. Nú er tímabært
að huga að framsetningu á menn-
ingar- og náttúruarfi okkar, sem
enn hefur ekki verið gert gagnvart
skólakerfi og í söfnum. Þjóðminja-
safnið er flott, en öll náttúruvísindi
eru enn óframsett, sem og fram-
setning á handritum Íslendinga,
sem ætti að vera á miklu stærra
sviði; eitthvað í ætt við Smithsoni-
an-söfnin. Nú er því góður tími til
að vera viðbúin þegar við getum
farið að byggja aftur og hafa þá
einhverja sýn. Því við höfum farið
óhannaðar leiðir inn í framtíðina
og því miður ekki ólíklegt að tekin
verði Hringbrautarnálgun á næstu
stórframkvæmd, því skortur er á
vinnu fyrir vélar og verktaka. Ein-
göngu af því við höfðum aldrei tíma
til að hugsa.“
Ráðstefnan Hönnum framtíðina!
stendur frá 16 til 18 í dag. - þlg
Spekingar hanna framtíðina
Andra Snæ Magnasyni rithöfundi fannst skynsamlegt að kveðja arkitektadrauminn
og hefja ritstörf þegar arkitektar höfðu úr litlu að moða í síðustu kreppu. FRÉTTABLAÐIÐ/