Tíminn - 23.02.1982, Síða 11
Þri&judagur 23. febriiar 1982
11
■ 4. jantiar 1982. á 75 ára afmæli Núpsskóla. Guöný Gilsdóttir og Ingimar Jóhannesson.
í Núpsskóla
skólahald gæti byrjaö fyrren eftir
áramótin.
Ingimar segist ekki muna til að
hann haf i nokkru sinni orðið glað-
ari en þegar móðir hans sagði
honum einhverntima á jólaföst-
unni 1906 að hún væri búin að
sækja um skólann fyrir hann.
Fyrsta skóladaginn 4. janúar var
kalsaveður, austanátt og rigning.
Ingimar hafði þá bókapúlt sitt á
baki sér undir regnkápunni á leið
til skólans.
I upphafi var ráðgert að þetta
væri tveggja vetra skóli. Því var
annað námsefni i sögu, landa-
fræði og náttúrufræði ákveðið
næsta vetur svo að farið væri yfir
það allt á tveimumr vetrum. Ingi-
marvari skólanum veturinn eftir
en Guðny ekki. Ég spuröi hana
um frekari skólagöngu sina.
— Þvi'er fljótsvarað, segir hún.
Ég hef ekki verið á skólabekk
nemaþessa þrjá mánuði. Raunar
fór ég til Reykjavikur eitt haust-
ið,aðleita mér lækninga við liða-
gigt. Ég held það hafi verið 1911.
Það bar nú litinn árangur en
konan sem ég var hjá kom mér i
starf hjá klæðskera. Þar var ég
um veturinn, á þvi lærði ég. Svo
gerði hann ekki endasleppt við
mig klæðskerinn, en sagði við mig
undir vorið: Jæja, Guðný. Þú
verður núað læra aö taka mál svo
þú getir notað þér það sem þú
hefur lært. Svo kenndi hann mér
það.
Og þá er fullsagt frá minni
skólagögnu.
Ungmennaskólinn var kvöld-
skóli þennan fyrsta vetur.
Kennslutimi var frá kl. 3-8. Það
var af þvi að framan af degi var
barnakennsla i húsinu. Séra Sig-
tryggur var einn um kennsluna.
Nemendur sátu við langborð,
fjórir við hvert, á einföldum tré-
bekkjum. Eitt borð var aftast við
vegg og siðan tvöhvoru megin, en
kennari stóð i kvinni sem
myndaðist milli þeirra.
Þeim Guönýju og Ingimar
kemur saman um að árangur
þeirra þriggja mánaða kennslu
sem var þennan vetur hafi verið
undra mikill. Okkur langaði öll til
að læra.
Þau minnasl einstakra atriða
og atvika frá þessum skólatima.
Guðný segist ekki oft hafa séð sr.
Sigtrygg með gáskasvip þennan
vetur. En einhvern tima i
kennslustund var hann að kenna
þeim bragfræði, stuðla og höfuð-
stafi. Þegar kom út úr kennslu-
stolunni heyrði hann að strákarn-
ir voru að reyna að hnoða ein-
hverju saman. Þá leyndi sér ekki
að hann naut þessara tilrauna.
Ingimar segist aldrei hafa
komið saman óskakkri visu fyrr
en hann var i námi á Núpi.
Svo heyri ég að Guðný fer með i
lágum hljóðum, erindi sem ég
kannast ekki við.
Hvað er þetta? segi ég.
Þetta er frá Arnarnesi, svarar
hún.
Þaö er eftir þig sjálfa, segir
Ingimar.
Láttu mig heyra þetta aftur,
segi ég.
A ég að gera það, segir Guðný
og endurtekur siðan:
Ljáðu mér á lifsins kveldi
ljóssins Guð i þinu veldi
ljós af þínum lifsins eldi
að lýsa siðasta áfangann.
Svo heim ég rati i himnarann
Lát mig þar um eilifð alla
elska þig og hlýða.
Veitmér þetta, vinur allra lýða.
Þau rifja upp skólaminningar
og Ingimar minnist á hve sr. Sig-
tryggur var áhugasamur um
náttúrufræði almennt og ekki si'st
grasafræði, sem mér leiddist þá
enda þekkti ég fáar jurtir. En
sumarið eftir var hann nokkuð
með sr. Sigtryggi við ræktunar-
störf og lærði þá að þekkja jurtir.
Siðan hefur honum þótt grasa-
fræðin flestu skemmtilegri og
naut þess á Hvanneyri.
Svo kemur það i tali þeirra, að
Ingimar segir:
Það var nú löngu seinna sem
við vorum trúlofuð.
Nú legg ég við hlustir, því þó ég
teldi mig vita ýnislegt um þau,
haföi ég aldrei heyrt neitt um
aukatrúlofanir.
Þau segja mér þá að eftir að
Ingimar var á Hvanneyri var
hann við barnakennslu i Mýra-
hreppi. Stúkan Gyöa lék þá Borg-
ir Jóns Trausta og mun sr. Sig-
tryggur hafa snúið sögunni ileik-
búning. Þeir gátu allt, segir
Guðný.
Ingimar lék séra Gisla en
Guðný Þórdísi unnustu hans.
Þegar sr. Gi'sli kemur heim úr
kaupstaönum eftir fundinn mikla
og alllanga dvöl á undan honum,
biður Þórdis hans, og leikur
sorgarlag á harmonium.
— Viö áttum að heilsast meö
kossi.það var lokaatriðiö. En það
varð einhver dráttur á að tjöldin
drægjust fyrir svo við uröum að
kyssast lengur þess vegna, sagði
Ingimar.
En Guðný hefur skýringu til-
tæka.
Það var bölvuö striðni úr hon-
um Torfa og ekkert annaö. Og
þegarviðskömmuðum hann fyrir
þetta sagði hann bara: — Leið
ykkur nokkuö illa?
Þetta gerðist á Flateyri þegar
leikurinn var sýndur þar. Og
Ingimar segir að Kristján As-
geirsson verslunarstjóri hafi sagt
að kveðjustundin hafi verið svo
sönn og trúverðug að slikt sýni
engir nema sannir elskendur.
Þau segja mér fleira af Borgr
um. Guðný segist alltaf hafa
dáðst af þvi hve vel Kristinn á
Núpi lék sr. Torfa og Björn
Guðmundsson Pramma, hval-
veiðimanninn norska. Og þaö
kemur f ljós aðhún kann sitthlut-
verkenn, a.m.k. lokaatriðið. Séra
Gisli spyr hvort pabbi hennar sé
kominn heim.
— Já, hann er kominn. Veðriö
var vont, en honum var samt
heitara en þér.
Og hún sýnir mér hvernig hún
vermir kalda hendi unnustans.
Enda þótt þetta snerti ekki
skóla sr. Sigtryggs beinlinis felli
ég það ekki undan hér. Það er
vitnisburður um það menningar-
lif sem var umhverfis skólann.
Svo neita ég mér heldur ekki
um að segja hér smásögu sem
Ingimar spurði mig hvort ég
kynni.
Þegar Guðný var lyftuvörður í
Hallgrimskirkju kom sóknar-
prestur hennar einhverntima
með kvennahóp — prestkonur
tókst mér eftir — og segir við
Guðnýju að þessar konur fái nú
fria ferð upp i turninn.
—Nei.segirGuðný. Þær munar
ekkert um þetta gjald hverja
eina, en kirkjuna munar um það
þegar það kemur saman.
— Þú veist nú, Guðný min, aö
það stendur i Bibliunniaö sælla sé
að gefa en þiggja, segir prestur,
en konurnar fara að taka til lyftu-
gjaldiö.
— Veit ég það, segir Guðný, en
ég hef aldrei fundið i Bibliunni
neitt um það, að maður eigi að
gefa það sem maður á ekki.
Ingimar minnir mig á að
unglingaskólar hafi starfað á
ýmsum stöðum kringum alda-
mótin. Hann nefnir Ljósavatn,
Heydalsá, Hjarðarhoit og Hvitár-
bakka. Núpur hefur verið skóla-
setur frá þvi að söfnuðurinn hóf
þar skólakennslu 4. janúar 1907.
H. Kr
landfari
Málefni sjómanna
■ Þann 9. febrúar s.l. birtist á
þriðju siðu dagblaðsins
Timanum, athyglisverð
greinagerð um skattafriðindi
sjómanna frá sjálfum for-
sætisráðherra Gunnari Thor-
oddsen, en hann útvaldi sér-
staka spekinga til þess að
vinna þetta verk. Vonandi gef-
ur þessi nefnd Gunnars upp
laun þau sem hún fékk fyrir
verkið til skatts, en það er
nefnilega núna þessa dagana,
sem menn berjast á hæl og
hnakka við það að stela sem
mestu undan skatti til rikis-
sjóðs. Það verkefni hefði
Gunnar fremur átt að láta
gera úttekt á, en sá stuldur
nemur væntanlega mörgum 55
milljónum króna, sem annars
ættu að hafna i rikissjóði, og
geröi kleyft að lækka skatta
landsmanna um 20 til 30% ef
leiðrétt væri.
Er hugmynd forsætisráð-
herra að ráðast á sjómenn og
fella niður sjómannafrádrátt-
inn??? sem þýddi að leggja
sjómannástéttina i rúst hér á
landi, svo sjómenn færu úr
landi, en erlendis hafa sjó-
menn margfalt hærri laun en
hér.
Það er augljóst, að lagapró-
fessorinn, doktorinn og for-
sætisráðherran hefur ekki
hundsvit á sjómennsku, frekar
en Reykjavikurmaðurinn sem
hugðist fara að gera út bát og
fór inni veiðarfæraverslun i
Reykjavik og spurði hvort
hann gæti fengiö keyptar gæft-
ir. Það vita auðvitað allir að
góöar gæftir eru forsenda fyr-
ir þvi að fiska. Og ég vil benda
Gunnari á það, að þýðingar-
mesta og um leið grundvallar-
forsenda fyrir þvi að byggja
upp góða sjómenn er aö greiða
þeim góð laun, hjá þvi verður
ekki komist og á þvi byggjast
skattaivilnanirnar. Skipstjóri
fiskar ekki mikið með tóma
ónytjunga um borð, frekar en
ef forsætisráðherra færi að
gera út bát meö skrifstofulið
sitt úr ráðuneytinu. Nei, það
þarf enginn að láta sér til hug-
ar koma að sjómenn eigi
nokkurn þátt i efnahagsvanda
þjóðarinnar, þótt forsætisráð-
herra láti sér detta slika
fáránlega vitleysu i hug. Þjóð-
inni skal stjórnaö með réttlæti
en engri slægvisku. Arásir for-
sætisráðherra á sjómenn,
þræla hafsins.er sama og fall
hans eigin rikisstjórnar, það
þarf engan speking til þess að
sjá það.
Forsætisráðherra, sem er
og formaður stjórnarskrár-
nefndar ætti að vaka yfir þvi,
að stjórnarskrá lýðveldisins
sé virt af stjórnendum þessa
dvergrikis, en ekki brotin meö
lagasetningum eins og gert er.
Vik ég að þvi hér á eftir.
Það er staðreynd aö skatta-
löggjöfin viröist i megin efn-
um vera byggð upp gagngert
til þess að allir sem hafa ein-
hvern rekstur með höndum, sé
gefinn ómældur réttur til þess
að stela peningum, sem ella
ættu að fara i rikissjóö, þar
liggur eitt aðal meinið að
efnahagsvandanum, þó ég
minnist ekki á allt brjálæöið i
fjármálabruöli i kringum
stjórnun þess litla eylands.
Okkur ætti t.d. að nægja fimm
ráðherrar og 30 þing-
menn????.
Ég kem hér þá að stjórnar-
skrár-broti gagnvart islensk-
um sjómönnum, sem forsætis-
ráðherra Gunnari Thoroddsen
væri réttara aö leiðrétta frek-
ar en huga aö árásum á sjó-
menn. Sjómenn, aðall islensku
þjóðarinnar, er beittur fjár-
kúgun meö lögum, sem brjóta
i bága við stjórnarskrána,
með þvi að krefja sjómenn til
þess að borga 10% af sinum
launum til að borga fiskiskip-
in. Meö lögum skal land
byggja, en ólögum eyöa. Það
er nefnilega með ólögum sem
landi er eytt, og er engin goðgá
að telja það stefnu stjórn-
valda, þegar svona er staðið
að málum. 67. gr. stjórnar-
skrárinnar hljóöar svo:
Eignarétturinn er friðhelgur.
Engan má skylda til aö láta af
hendi eign sina, nema al-
menningsþörf krefji: þarf tii
þess lagafyrirmæli og komi
fullt verð fyrir, fer ekki milli
mála að sjómennirnir eiga og
eignast hluta og sumir aö fullu
fiskibátana, með þvi að greiða
af launum sinum til greiðslu
bátanna, og á þvi hver einasti
sjómaður kröfu til þess að fá
sinn eignarhlut endurgreidd-
ann þegar viðkomandi hættir
störfum og skilyrðislaust þeg-
ar fiskiskip er selt, þvi annars
hirðir skráður eigandi and-
virði bátsins, en skráður eig-
andi getur aldrei átt bátinn
sem sjómennirnir hafa borg-
að.
Hér er og hefur verið látin
viðgangast grófleg aöför að
mannréttindum, sem sjómenn
krefjast leiðréttingar á. Ekki
er að efa að sjómenn munu
höfða mál til þess að endur-
heimta eignarhlut sinn i við-
komandi skipum.
Læt hér staðar numið að
sinni.
Magnús Guömundsson, sjóm.
Strandgötu 3,
450 Patreksfiröi.
Byrgjum brunninn
■ Að undanförnu hafa stjórn-
málaflokkarnir undirbúið
framboðslista sina fyrir kom-
andi sveitarstjórnarkosning-
ar. Ýmsar aðgeröir eru við-
hafðar i þvi sambandi, en þó
viröast prófkjör sem bundin
eru við þátttöku flokksbundins
fólks vera vinsælasta
ákvörðunaraðferöin.
Alþýðuflokkurinn reiö að
nokkru leyti á vaðið i próf-
kjörsmálum þ.e. fyrir kosn-
ingarnar 1978 þótt vissulega
hafi prófkjörum verið beitt
litillega áöur m.a. af Fram-
sóknarflokknum. Alþýöu-
flokkurinn hefur státað sig af
svokölluðum opnum prófkjör-
um þar sem nánast allir geta
kosið. Þannig hefur hinsvegar
skapast sú hætta að menn úr
öðrum flokkum gela haft áhrif
á skipan framboðslista við-
komandi flokks. Ég tel að
reynsian hafi sýnt að opin
prófkjör eru stórgölluð m.a. af
þeirri ástæðu aö hætta er á að
framboöslisti sýni oft á tiðum
ekki vilja hins raunverulega
flokksmanns á skipan efstu
sæta. Siöast en ekki sist er
hætta á þvi að opin prófkjör
leiði af sér innri baráttu milli
frambjóðenda i prófkjöri sem
birtist m.a. i smölun fólks á
kjörstaö. Allt slikt er þvi til að
ala á sundurlyndi og átökum
innan viðkomandi flokks.
Þetta tel ég að glöggt megi sjá
hjá Alþýðuflokknum, þar sem
stöðug innri barátta virðist
eiga sér stað. Ég hef þá skoð-
un að prófkjör séu ágæt svo
framarlega sem þess er gætt
að þau sýni vilja þess fólks
sem er flokksbundiö innan
viðkomandi flokks. En þaö er
ekki nóg að þátttakendur séu
flokksbundnir, það þarf lika
að koma i veg fyrir að menn
gangi i flokkana um leið og
þeir greiöa atkvæði i próf-
kjöri, og gangi siöan úr
flokknum daginn eftir. Slikt er
auövitaö alveg fráleitt, en hef-
ur eigi aö siður gerst aö ég
hygg. Til þess að koma i veg
fyrir aö prófkjör séu misnotuö
þá þarf að minu mati að gæta
sérstaklega aö eftirtöldum
atriðum.
1) Reglur um framkvæmd
prófkjörs þurfa að vera
skýrar hvaö varðar fram-
kvæmd prófkjörsins.
2) Skýrt þarf að vera kveöiö á
um hverjir séu gjaldgengir
til þátttöku t.d. aldur og bú-
seta.
3) Félagaskrár þurfa að vera i
lagi t.d. hvaö varöar hvort
menn hafi greitt árgjöld sín
ef um slikt er aö ræða.
4) Miöa ætti við að menn hafi
veriö flokksbundnir i við-
komandi flokk i einhvern
lágmarks tima t.d. 8 mán,
og iullnægi öllum þeim
skilyrðum að teljast reglu-
legur félagi.
Fyrrgreind atriði tel ég að séu
frumskilyrði þess að prófkjör
geti á einhvern hátt sýnt raun-
hæfa mynd af óskum hins
raunverulega flokksmanns á
það hverjir skipi efstu sæti á
lista flokks þeirra, en ekki
hverjar veikar sálir sem
smalað og heíur verið saman
eins og tryppum á afrétti til
þátttöku i prófkjöri og kveðja
siöan flokkinn meö simtali
daginn eftir.
Arnar Bjarnason (0448-5017)
frá Þykkvabæ