Tíminn - 02.03.1982, Blaðsíða 9

Tíminn - 02.03.1982, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 2. mars 1982 lSiíl'SAÍÍ //Þótt ýmislegt þyki miður fara í landbúnaði, þá stendur hann sem heild traustum fót- um og alltaf miðar fram á leið. Framkvæmdir eru miklar bæði félagslegar og á bænda- býlum. Tækni og vísindi ryðja sér þar rúm ekki síður en annarsstaðar". a) að styrkja nýjar tekjuöflunar- leiðir i landbúnaði og auka fjölbreytni i framleiðslu bú- vara. b) stuðla að bættri heyverkun c) til hverskonar hagræðingar, sem orðið getur til þess að bæta tekjur bænda án fram- leiðsluaukningar i nautgripa- rækt og sauðfjárrækt. A BUnaðarþingi voru skiptar skoðanir um þessar breytingar á jarðræktarlögum. Meirihluti þingsins taldi að þarna væri um skynsamlega bráðabirgðaráð- stöfun fjár að ræða á meðan að hagræðing ætti sér stað, sem hlaut að kosta talsvert. Það hefur lika sýnt sig á undanförnum ár- um, að þessir fjármunir hafa komið að góðum notum i sam- bandi við nýjar búgreinar og bætta aðstöðu hjá mörgum bænd- um. Það er þegar farið að fit ja upp á nýjum búgreinum, t.d. refa- og minkarækt. Ræktun og veiði ferskvatnsfiska i stærri sti'l en áður,aukin og bætt nýting hlunn- inda og enn þá er það svo, sums staöar á landinu, að auka mætti nokkuð framleiðslu eggja og svinakjöts, að þvi ógleymdu að viða vantar afurðir gróðurhúsa. Kornrækt er hafin i veðursælum sveitum og sömuleiðis skdgrækt. Allt getur þetta hjálpað, skapað tekjur og komið i staðinn fyrir hefðbundnar búgreinar. Þvi miður lita þessi mál ekki einsvel útog áður, vegna þess að hagræðingarféð smá minnkar með sifelldum niðurskurði fjár- laga. Það fölust fyrirheit í jarð- ræktarlagabreytingunni 1979. Menn gerðu sér vonir og höfust handa.byrjuðu á nýjum bUgrein- um og hagræddu öðrum. Með niðurskurði fjárlaga erkippt und- an einu stoöinni sem opinberir aðilar^ Alþingi, taldi sér fært að veita til að ná settum mark- miðum i framleiðslumálum land- búnaðarins. Þetta kemur sér illa. Málefni landsbyggðarinnar eru margþætt og aðstaða fólks þar misjöfn. Flestir landsmenn vilja nýta landsins gögn og gæði. Rikisvaldið verður ef vel á að fara að styðja við bakið á þeim sem byggja dreifðar byggðir og eiga ;,i vök aö verjast”. Búnaöarþing hefur bent á það að hagfræðilegar leiðbeiningar væru nauðsynlegar og einnig færsla búreikninga. Þessi mál hafa verið í athugun hjá BUnaðar- félagi íslands meðal annars af þaulkunnugum mönnum á þessu sviði og liggur fyrir itarlegt álit frá þeim. 1 ráði er eftir þvi sem fjárráð leyfa að auka þjónustu þessa, bæði hjá Búnaðarfélaginu og búnaðarsamböndunum. Færsla búreikninga verður i framtiðinni auðveldari þar sem tölvan er að ryðja sér rUm og mörg fyrirtæki bænda að taka hana i notkun. 1 búreikningum er að finna margar upplýsingar. Arið 1980 færðu 216 bændur bú- reikninga i samvinnu við Bú- reikningastofu landbúnaðarins. Til úrvinnslu kom 141 búreikning- ur frá bændum, sem hafa megin- tekjur sinar af sauðfjárrækt og/eða m jólkurframleiðslu. Meðaltekjur fjölskyldu af land- búnaði á þessum búum voru kr. 9.082.000 en voru mjög misjafnar milli búa. Þegar gerður er samanburður á bestu og lökustu kúabúunum og miðaövið20árskýrábúi,kemur i ljos tekjumunur, sem nemur nær 5milljónum gömlum krónum. A lakara búinu þyrfti kúnum aö fjölga um 9 til að vega upptekju- muninn, megi gefa sér að fullt verö fengist fyrir framleiðsluna. Likur samanburður á sauðfjárbú- um með 400 vetrarföðraðar kindur sýndi að til að ná tekjum bestu búanna þurfti 169 kindum fleira á lökustu búunum til að ná jöfnum fjölskyldutekjum. Megin orsök fyrir þessum mis- mun á nettótekjumfrá einu búitil annars er munur á afurðamagni eftir grip, ársnyt kúnna og frjó- semi ánna og fallþunga dilka. Margir kostnaðarliðir i búrekstri fara ekki eftir bústærð. Þeir eru hinirsömu fyrir lélegt og gottbú- fé. Nettótekjur búsins vaxa með auknum afurðum eftirhvern grip góðu heimaiíluöu fóðri og fjár- festingu við hæfi búsins. BUfjár- talan,hausatalan segir ekki nema takmarkað um afkomu búanna. BUreikningar gefa glögga mynd af þvi hvernig búrekstur gengur. Reikningarnir eiga að geta gefið mynd af þvi sem miður fer og má i ljósi þess leita lag- færinga. Starfsemi nautgripa- og sauðf járræktarfélaganna hefur reynstmörgum bóndanum góður búreikningur og leitt til bættrar afkomu i' búrekstri án fjölgunar búfjár. Skýrslur nautgripa- ræktarfélaganna árið 1981 sýnda að meðalnyt árskunna er 3710 kg. sem er 81 kg minna en árið 1978. Kjarnfóöurgjöf er árið 1981 144 kg minni á árskú en árið 1978.Þannig virðist nú nokkuð hafa verið dreg- ið úr hlut aðkeypta fóðursins — kjarnfóðursins — i mjólkurfram- leiðslunni. Eftir hverja vetrar- fóðraða á fengust um 23 kg af dilkakjöti áriö 1980 i fjárræktar- félögunum. Þaö væri ástæða til að fara nánar út i ýmsa hagfræðilega þætti i landbúnaði en þetta verður að nægja. Ég vil undirstrika það að þess er meiri þörf nú en áður fyrir bændur að færa búreikninga og það er lika brýn nauðsyn á auknum hagfræðilegum leiðbein- ingum. Við lifum i landi eldfjalla og isa og höfum þreifaö á þvi undan- farin ár, bæði hvaö eldfjöllin snertir og kalda veöráttu. Árið sem leið var kalt.vetur kom viöa snemma að með hörkufrostum og fannkomu. Innistaöa búfjár er orðin óvenjulöng á þessum vetri og gefa varð sláturfé inni sum- staðar i haust er leið og er það óvenjulegt. Tún voru mikið kalin einkum sunnanlands og heyöflun viöast hvar með m inna móti enda tiðarfar óhagstætt. Grænfóður- rækt var mikil, enda kom það sér vel. Kartöfhir fóru sums staðar undir snjó og frusu i jörðu annars staðar svo nothæf uppskera varð litil. Övenjulegt rok gekk yfir landið 16. og 17. febrúar 1981 og olli þaö miklu tjóni. Bjargráðasjóður lánaði tjónþolum vegna þessa 8 milljónir króna til 5 ára með Byggðasjóðsvöxtum. Seðlabanki tslands gerði sjóðnum kleift að veita fyrirgreiöslu þessa með þvi aö lána honum 5 milljónir króna. Málefni Bjargráöasjóðs standa þannig aö sjóöurinn skuldar 25 millj. króna vegna lána er hann varö að taka er haröindin geisuðu 1979 og fokveöurs i fyrra. Nú vantar sjóðinn 15 milljónir króna til að lána vegna heyskorts, upp- skerubrests og haröinda frá siðastliðnu ári. Þetta er erfið staöa ogóhugsanditilframbúðar. Endurskoöun stendur yfir á lög- um um viðlagatryggingu en til hennar borga allir sem bruna- tryggja. Fjárhagsstaða Viðlaga- tryggingar er góð en Bjargráða- sjóðurer févana. Þessi tvenn lög sem varða stórtjón, þarf að skoða i samhengi og gera báðum kleift að standa við sitt. Þóttýmislegt þyki miður fara i landbúnaði, þá stendur hann sem heild traustum fótum og alltaf miðarfram á leiö. Framkvæmdir eru miklar bæði félagslegar og á bændabýlum. Tækni og visindi ryðja sér þar rúm ekki siður en annarsstaðar. Tilraunastarfsemi og rannsóknir ná yfir viöara sviö en áður. Uppbygging öll og að- staða á Keldnaholti hefur gjör- breytst til batnaðar. Hinsvegar verður að segja það eins og er, að Tilraunastöövarnar út á lands- byggðinni lfða fyrir fjárskort, bæði til uppbyggingar og við- halds. Garðyrkjuskóli rikisins og 9 orðaleppar bændaskólamir eru fullsetnir af ungu og fjörmiklu fólki. Þetta spáir góöu. Búvisindadeildin á Hvanneyri feerir út kviarnar til hagsbóta fyrir landbúnaðinn. Aö Hvanneyri eru haldin námskeið fyrir bændur og bændaefni og þangað fer bændafólk i orlof og þaðan koma ungir kandidatar til þjónustustarfa i landbúnaði. Haldiö er nánum tengslum á milli hinna mörgu stofnana i landbúnaöi með ýmsum hætti. Fyrir stuttu siðan var t.d. hald- inn hér i Bændahöllinni ráðu- nautafundur á vegum Búnaðarf. Isl. og RALA. Hann var fjölsóttur og tókst mjög vel, þar voru flutt yfir 40 framsöguerindi um mis- munandi efni en öll nauðsynleg. Þessi starfsemi endurnýjar menn I starfi og sameinar krafta margra til að fást við vandamál landbúnaöarins. Eftirgreindar stofnanir stóðu aö framsögu- erindum: Veðurstofa Islands, Skógrækt rikisins, Veiðimálastofnun, Stéttarsamband bænda, Búvis- indadeildin Hvanneyri, Rann- sóknarstofnun landbúnaðarins, Búnaðarfélag Islands. Samvinna á milli allra þeirra sem starfa við hinar mismunandi land búna ðars tofn anir er nauðsynleg, ef vel á til að takast með lausn þeirra vandamála sem við er að etja. Samstarf þetta hef- ur aukist og orðið nánara I seinni tið. Fyrir hönd Búnaðarfélags Is- lands þakka ég samstarfið. Forfallaþjónusta i landbúnaði hefur komið sér vel og vonandi verður þess ekki langt að biða að þjónusta þessi geti náð til allra sem þurfa eins og lögin gera ráð fyrir. Lifeyrissjóður bænda veitir bæði ellilifeyrisþegum og öryrkj- um hlutfallslega hækkaðan lif- eyrir, siðan að sjóöurinn fór að verðtryggja útlán, auk þess sem komin eru til framkvæmda sér- stök lög um þetta efni. Þá veitir lifeyrissjóðurinn bændum lán til ibúðabygginga, bústofnskaupa og lánóháðframkvæmdum og siðast en ekki sist jarðakaupalán og hefur sjóðsstjórn beitt sér árlega fyrir hækkun þeirra og fyrir- hugað er aö hækka þau um helm- ing frá i fyrra. Það veitir heldur ekki af, þvi' kynslóðaskiptin i landbúnaöi veitast mörgum erfið. Stofnlánadeild landbúnaðarins annast útlán lifeyrissjóösins og eru lán þessi ómetanleg, þar sem Stofnlánadeildin hefur lengst af búið við fjárskort. Þau góðu um- skipti uröu á efnahag Stofnlána- deildar á siðasta ári að nú er hún komin meö jákvæðan höfuðstól eftir áföllin frá 1977-’78 eins og ykkur er kunnugt. Aukinn iönaður i sveitum á meiri framtið fyrir sér nú en áður.siðan vegakerfiö batnaði og raforkan náöi til flestra byggðar- laga landsins. En nauðsynlegt er að jafna raforkuverðiö sem er mjög misjafnt, það léttir undir með bæði upphitun húsa og aukn- um iðnaöi. Matvælaiðnaður úr kjöti og sláturafurðum þykir nú nauðsynlegur. Hann á ekki siöur aö geta tekist vel hjá þeim slátur- leyfishöfum, sem hafa góða aö- stöðu til þess út á landsbyggðinni en smjör og ostagerð tekst hjá mjólkurbúum landsins. Sé rétt á málum haldiö, getur allt þetta veittbjörg i bú á komandi timum. Góöir Búnaðarþingsfulltrúar, góöir gestir. Búnaðarþing er að hefja störf sin og fyrir þingið verða lögö mörg mál og vanda- söm. 1 upphafi máls mins m inntist ég stofnana sem starfað hafa i heila öld og rúmlega þaö. Þær eru ung- ar, þrátt fyrir aldur. Þær hafa vaxið með auknum verkefnum. Frumherjarnir kunnu að hlaða grunninn/varða veginn og færa út kviamar. Um leið og við minn- umst þeirra og þökkum þeim, skulum við hugleiöa framtiðina og ganga dtrauðir til verks með bjartar vonir landi og þjóð til heilla. Ég þakka forseta íslands, frú Vigdisi Finnbogadóttur fyrir að heiðra Búnaðarþing með komu sinni og vera við setningu þings- ins. Að lokum þakka ég meöstjórn- endum minum, búnaöarmála- stjóra, ráðunautum og öðru starfsfólki Búnaðarfélags íslands gott samstarf og vel unnin störf. 64. Búnaðarþing er sett. Hin dularfulla blygðar- menning ■ Við höfum heyrt getið um margskonar menningu og heyrt samsett orð eins og siðmenning, vélamenn- ing, umferðamenning, veizlumenning og jafnvel drykkjumenning (þó að Halldóri á Kirkjubóli þyki það kyndug samsetning.) En hvað haldið þið, að blygðarmenning sé? Blygðarmenning er: „menning, sem styðst við áhrif aðhláturs og gagn- rýni til varðveizlu ein- staklingsdyggða." Og svo er okkur sagt, að blygðar- menning sé sama og shame culture. Ætli þetta sé ekki ein- hver „menningarkiminn", sem ég nefndi einu sinni í þessum þáttum? Að minnsta kosti höfum við hér í sveit ekki spurnir af fólki, sem lýsingin gæti átt við. Raunar eru til menn, sem með réttu eða röngu óttast stöðugt, að verið sé að skopast að þeim. Þetta er kölluð spéhræðsla. En varla er hægt að hugsa sér, að hópur manna myndi samtök vegna spehræðslu sinnar og fái þannig styrk til að lifa lífinu. Enskan shame culture hlýtur að eiga við víðtækara fyrir- brigði en spéhræðslu ein- stöku manna. Nú brást mér bókin mín góða. Hún skýrir þetta ekki nógu vel. Hún nefnir ekki einusinni, hvort hér er um að ræða „frumhóp", „fjarhóp", eða „nærhóp". Ég hef einmitt hérna á blaði ítarlegar skýringar á eðli og einkennum þeirra hópa. En ekkert dugir. Ég er engu nær um, hvað „blygðarmenning" er. Grannkona min segir, að þetta hljóti að vera einn minnihlutahópurinn. Fólki, sem kann að skammast sin veitir ekki af að standa saman gegn ofureflinu, sagði hún. Ég efast um, að hennar skýring sé rétt. Þetta sýn- ir, hve varasamt það er að sieppa út i umferðina orð- um, sem menn skilja og skýra hver á sinn hátt. Blygðarmenning gæti líka verið árátta f ólks, sem hefur slíka nautn af að standa uppi i hárinu á al- menningi, að það hikar ekki við að verða til at- hlægis, fremur en láta af að þjóna lund sinni. (Ekki sel ég þessa skýringu dýr- ar en ég keypti hana.) En við nýyrðasmiði er hægt að segja eins og Festus sagði forðum við Pál postula: Lærdómur þinn hefur gert þig óðan. (Hins vegar var varla rétt- mætt að tala svona við Pál.) Oddný Guð mundsdóttir skrifar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.