Tíminn - 02.03.1982, Side 12
12
Þriðjudagur 2. mars 1982
Þriðjudagur 2. mars 1982
Húsgögnin eru nú þegar i notkun i mörg-
um dagheimilum viðsvegar um landið,
t.d. i hinu nýja glæsilega dagheimili á Sel-
tjarnarnesi. Myndalistar fást i búðinni og
upplýsingar um verð o.fl.
Húsgögn og
innréttingar
Suðurlandsbraut 18
Sími 86-900
Finnsk barnahúsgögn
fyrir dagheimili
Þjóöarbókhlaða
Tilboð óskast i að smiða þak á Þjóðarbók-
hlöðuhús við Birkimel.
Húsið er 4 hæðir, um 2600 ferm. að flatar-
máli. Mestur hluti þaksins er álklætt
timburþak ofan á steyptri plötu.
Hluta verksins skal lokið 1. ágúst, en öllu
verkinu að fullu 15. október 1982.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri gegn 1000.- kr. skilatryggingu. Til-
boð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
23. mars 1982, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Snjóþotur m/stýri
Snjóþotur m/bremsum
Einnig BOB-BORÐ
o.m.fl.
Enginn póstkröfu-
kostnaður
Póstkröfusími
14806
13
tekinn tali
„EF NIÐURGREIÐSUIR EIGfl
NOKKURS STADAR RÉTT fl SÉR
Þfl ER ÞAÐ í HdSNÆNSMfllilNUM
— segir Ólafur Jónsson, stjórnarformaður Húsnædisstofnunar
77
■ ,/Það hefur aldrei verið
erfiðara en nú fyrir ungt
fólk að koma sér upp þaki
yf ir höfuðið" — „Stefnan í
húsnæðismá lum hefur
kæft alla sjálfsbjargarvið-
leitni/ — nú gera menn
jafnvel í þvi að lækka sig í
tekjum til þess að komast
inn í verkamannabústaða-
kerfið" — //Nýju húsnæðis-
lögin/ sem sagt var að ættu
að auka félagslegt réttlæti
í húsnæðismólum, hafa
beint og óbeint stuðlað að
meiri ójöfnuði á þessu
sviði en verið hefur árum
saman" — „Almenn hús-
næðislán hafa ekki í langan
tíma verið jafn lágt hlut-
fall af raunverulegum
byggingarkostnaði".
Þessar og viðlika full-
yrðingar hafa oft heyrst á
undanförnum misserum,
og er mála sannast að
gífurlegur styrr stendur
um þá stefnu sem nú er
ráðandi í húsnæðismálum.
Það er heldur ekki undar-
legt að hart sé deilt því
þarna koma við sögu ýmis
grundvallaratriði í pólitik-
inni, auk þess sem fáir
máiaflokkar snerta jafn
marga jafn mikið.
ólafur Jónsson,
stjórnarformaður Hús-
næðisstofnunar, er sá
maður sem mestu hefur
ráðið við mótun stef nunnar
i húsnæðismálum, — í
samráði við flokksbróður
sinn Svavar Gestsson,
félagsmálaráðherra.
— Fjölmargir kunnugir aöilar
fullyröa aö hlutfall húsnæöislána
af byggingarkostnaöi hafi stór-
lega lækkaö aö undanförnu.
Gunnar Björnsson, meöstjórnar-
maöur þinn I Húsnæöisstofnun,
segir aö lánshlutfalliö viö bygg-
ingu meöalibúöar fyrir meöalfjöl-
skyldu hafi veriö 23% fyrir gildis-
töku núgildandi laga, en sé nú
komiö niöur I 16-17%. Er mark-
visst stefnt aö þvi aö draga úr ai-
mennum lánum Byggingarsjóös
rikisins?
„Þetta er mikil mistúlkun sem
er aö baki þessari fullyröingu,
hver sem hana hefur sett fram.
Þaö sem gerst hefur er aö tekin
hefur veriö upp ný viömiöun. I
nýju lögunum er ákveöiö aö
reiknuö skuli út staöalibúö og
niöurstaöa tæknimanna, sem um
þaö fjölluöu, var sú aö taka til
viömiðunar vandaöa Ibúö i par-
húsi. Aöur hafði viömiöunaribúð-
in veriö svonefnt visitöluhús, þaö
er aö segja ibúö i tiu ibúöa húsi. I
ööru lagi var Rannsóknastofnun
byggingariðnaöarins meö ein-
býiishús, sem litiö hefur veriö tal-
að um, en var af vandaöri gerö og
meö allt aörar tölur. Parhúsiö,
sem nú er miöaö viö, er af vönd-
uöustu gerö eins og reyndar fjöl-
margir byggja nú i Reykjavik.
Þaö er meö frágenginni lóð og
öllu i toppstandi, og ibúðin er dýr.
Þegar búiö var aö hanna þessa
Ibúð og reikna hana út samkvæmt
nákvæmum verölistum, þá var
lániö aöeins 17.4%. Þaö raskaði
auðvitaö ekki þvi aö áfram var
lániö yfir 30% af visitöluibúðinni.
Þaö er þvi ekki rétt aö lániö hafi
veriö lækkað, en vegna þess aö
viömiöunin breyttist þá lækkaöi
hlutfalliö.
t tilefni af þessum ummælum
sem þú tilgreindir var gerö sér-
stök athugun á þvi hvernig þessi
mál stæöu nú. A undanförnum ár-
um hafa lán Húsnæðisstofnunar
aöeins hækkaö um áramót. Þau
fóru þá oft aöeins yfir 30% I byrj-
un árs, en voru svo að lækka aö
hlutfalli allt áriö miöaö viö bygg-
ingarkostnað og komust stundum
niöur I 20%, og siðast á árinu 1980
niöur i 23%. Þessu var lika breytt
meö nýju lögunum. Nú hækkar
lánið meö visitölunni fjórum sinn-
um á ári og heldur þess vegna
sama hlutfalli allt áriö. Af fyrr-
greindu tilefni var kannað hvaö
þetta þýddi á síöasta ári I sam-
bandi viö visitöluibúöina, og þá
reyndist hlutfalliö vera hærra en
þaö haföi áöur veriö. Þaö haföi
einu sinni reynst vera eins hátt en
þaö var i byrjun árs 1979, þá
reyndist þaö vera 33%.”
— Nú varst þú eini stjórnar-
maðurinn i Húsnæöisstofnun, sem
lagðist gegn þvi aö þeir hlutar
húsnæöislánsins sem koma tii út-
borgunar löngu eftir aö fyrsta
hlutanum er úthlutaö, yröu verö-
tryggöir. Skýtur þaö ekki skökku
viö þar sem núverandi fyrir-
komulag þýöir i raun að lánshlut-
falliö er mun lægra en tölur gefa
til kynna?
„Það er rétt aö þarna var nokk-
ur ágreiningur, en ég held að allir
sem gæta sjóöa og bera ábyrgö á
fjármunum hljóti aö gera sér
grein fyrir þvi aö þaö er gjörsam-
lega óraunhæft að vera meö
óverötryggöa tekjustofna, sem
standa óhreyföir allt áriö, en
verötryggja I óöaveröbólgu öll út-
lán. Slikt er ekki framkvæman-
legt og þess vegna var þessi til-
laga húsnæðismálastjórnar fróm-
ar óskir en gjörsamlega óraunhæf
miöað viö þá stööu sem sjóöurinn
var i, þar sem hans tekjustofnar
eru ákveönir i byrjun árs og
breytast ekki með neinni visitölu.
Þess vegna tók ég þá afstööu i
samráöi við ráöuneytiö aö ekki
væri raunhæft aö ganga inn á
þessa visitölu”.
— Nú sjáum viö á lánsfjáráætl-
un, aö gert er ráö fyrir þvi aö út-
lán Byggingarsjóös rikisins
minnki töluvert aö raungildi miö-
aö viö þaö sem var i ár. Er þetta
ekki enn ein sönnun þess aö veriö
er aö draga saman almennu lán-
in?
„Nei, þaö er ekki rétt. Þaö er
gert ráö fyrir nokkurri aukningu
á þeim, enda er veriö aö taka upp
nýja lánaflokka. Það er ekki bara
veriö aö færa til fjármuni frá
Byggingasjóöi rikisins til Bygg-
ingasjóös verkamanna, heldur er
lika I verulegum mæli verið aö
færa til verkefni, þannig aö verk-
efni eru færö frá Byggingasjóöi
rikisins yfir á Byggingasjóö
verkamanna i rikara mæli en
þetta segir til um. Raunfjármagn
Byggingasjóös rikisins mun auk-
ast á þessu ári vegna þess, aö til
dæmis leiguibúöir sveitarfélaga,
sem hafa verið mjög fjárfrekar á
undanförnum árum, veröa mjög
léttar á Byggingasjóði rikisins á
þessu ári, og eftir þaö hverfa þær
alfariö yfir á Byggingasjóö
verkamanna. Fleira kemur
þarna til þannig aö þaö er fjarri
lagi aö veriö sé aö draga úr
möguleikum Byggingasjóös
rikisins til þess aö halda sömu
starfsemi og hann hefur haft. Þaö
er stööugt veriö aö bæta á hann
nýjum lánaflokkum, svo sem
dvalarheimilum aldraöra og
barnaheimilum. Einnig er verið
aö taka upp lán til orkusparandi
endurbóta á ibúöum, — þaö er
veriö aö taka upp lán til endur-
bygginga á eldri Ibúöum. Þessir
lánaflokkar fóru hægt af stað, —
menn eru aö kynnast þeim, en
þeir eru mjög vaxandi og veröa
þungir á næsta ári. I þetta allt
saman þarf aukið fjármagn, en
þaö er ótvirætt gert ráö fyrir þvi
aö Byggingasjóöur rikisins geti
aö minnsta kosti haldiö sér viö
óbreyttar lánareglur. Auk þess
vil ég geta þess aö nú nýlega
skrifaði félagsmálaráöherra hús-
næöismálastjórn og óskaöi eftir
þvi, aö fyrir gerð næstu fjárhags-
áætlunar yröu sérstaklega teknir
til athugunar möguleikar á þvi aö
hækka lán til þeirra sem enga
ibúö eiga fyrir. Þetta veröur tekiö
til skoöunar, en veröur vafalaust
erfitt að koma þvi heim og saman
viö fjármagnsgetu sjóösins. Ég
vona þó aö þarna verði hægt aö
ganga aö einhverju leyti til móts
við þessar óskir ráöherra”.
— 1 lánsfjáráætlun segir einnig
aö útlán Byggingasjóös ríkisins
muni dragast saman næstu tvö
árin vegna minnkandi eftirspurn-
ar eftir lánum. Er ekki hér veriö
aö rugla saman orsök og af-
leiöingu, — hefur eftirspurnin eft-
ir lánunum ekki minnkað einfald-
lega vegna þess aö lánsupphæöin
hefur lækkaö og fólk treystir sér
ekki I húsnæöisútvegun meö þau
upp á vasann?
„Nýbyggingar hafa dregist
saman i nokkrum mæli á siðustu
tveimur árum. Þaö er meöal ann-
ars vegna þess aö það er ekki
lengur veruleg gróöavon aö fara
út I þaö aö byggja Ibúö og selja
hana tilbúna eöa hálfgeröa nú
þegar lánin eru orðin verötryggö.
Nú fjárfesta ekki aörir i Ibúöum
en þeir sem eru aö byggja fyrir
sjálfa sig eða hafa þetta sem at-
vinnu. Dýrtiöin léttir ekki af
mönnum skuldunum eins og hún
hefur gert á undanförnum árum.
Þeir sem eru raunhæfir og gera
sér grein fyrir þessu fara varleg-
ar I aö byrja. Af þessum orsökum
hafa nýbyggingar dregist saman
á siðustu tveimur árum, en i okk-
ar áætlunum gerum viö ekki ráö
fyrir að samdrátturinn haldi
áfram á þessu ári”.
— Fyrir nokkru lét gamai-
reyndur fasteignasali hér i borg-
inni þau orö falla i samtali viö
Timann, aö lánshlutfali hús-
næöislánanna heföi lækkaö, hvaö
svo sem öllum stofnanaútreikn-
ingi liði. Tók hann sem dæmi
þrjár sambærilegar þriggja her-
bergja ibúðir, sem hann haföi selt
á niu ára timabili. Ariö 1972 seidi
hann ibúö viö Blikahóla, — veröiö
var 1.5 milljónir gkr., húsnæöis-
lániö GOOþúsund eöa 40%. Ibúö viö
Furugrund seldi hann 1978 á 10.4
miiljónir gkr„ lániö var 3.6
miiljónir eöa 34.6%. Loks seldi
hann ibúö viö Kambasel áriö 1980
á 33.2 milljónir, — þá var iániö 8
milljónir eöa 24%. Sýnir þetta
ekki á óyggjandi hátt, aö hvaö
sem öllum ykkar útreikningum
liður þá hefur lánshlutfaliiö iækk-
aö?
„Ég fullyröi aö þetta er ekki
rétt. Lánsfjármagn til Ibúöa-
bygginga hefur aldrei veriö
hærra en þaö var á siöasta ári og
aldrei verið hærra en nú.”
— Gildir þaö lika um lánshlut-
fall húsnæðislána Byggingasjóös
rikisins?
„Já, þaö gildir lika um þá lána-
fyrirgreiðslu sem þeir fá sem eru
aö byggja nýjar ibúöir. Þaö hefur
ekki hækkaö aö marki hjá okkur,
en lifeyrissjóöirnir hafa aukiö
sinar lánveitingar veru-
lega og þaö er ekki aöalatriöiö
hvaöan fjármagnið kemur, en
þaö kemur tii nýbygginga. Til
viöbótar kemur aö bankakerfið
hefur aldrei lánaö jafn rikulega
til húsbygginga eins og i hitteö-
fyrra. Sá hlutur viöskiptabanka
og sparisjóða, sem merktur er
húsbyggingum, hækkaöi um
100%, enda staöhæföi einn lög-
fræöingur, sem kunnugur er lána-
starfsemi til húsbygginga, aö i
hitteöfyrra hafi veriö lánaö
80-87% af byggingarkostnaöi
ibúöa. Þaö er þvi min staöhæfing,
að þjóöfélagiö hafi aldrei lánaö
jafn rikulega til húsbygginga og
nú. Hitt er svo annaö mál aö þetta
eru ekki hagstæö lán, — eru ekki
gjafir eins og áöur var.”
— Byggingarsamvinnufélag,
sem er um þaö bii aö hefja fram-
kvæmdir I nýja miðbænum I
Reykjavik, býöur félagsmönnum
sinum eftirfarandi kjör miöaö viö
fjögurra herbergja ibúö:
Byggingarkostnaöur er áætiaöur
930 þúsund krónur og af þvi
greiddust 10% nú fyrir áramótin.
Afgangurinn greiöist meö jöfnum
mánaöargreiöslum á byggingar-
timanum, eöa nærri 30 þúsund
krónur á mánuöi i 30 mánuöi og
fylgir upphæðin lánskjaravisi-
tölu. Er þá búiö aö taka meö i
reikninginn húsnæöisián fjögurra
manna fjölskyldu. Geturöu gefiö
ungu fóiki, sem er aö eignast sina
fyrstu ibúö, forskrift aö þvi
hvernig hægt er aö láta þetta
dæmi ganga upp?
„Þessi lánastarfsemi er aug-
ljóslega óraunhæf viö þær aö-
stæöur, sem nú er búiö aö skapa i
þjóðfélaginu. Þegar búiö er aö
gerbreyta svona lánakjörum, —
frá þvi aö vera aö verulegu leyti
styrkur til húsbyggjenda i það aö
verðtryggja öll lán, þá getur þetta
lánafyrirkomulag ekki gengiö.
Svona gerbreytingu á lána-
markaönum veröur aö fylgja, aö
lánin séu lengd mjög verulega.
Það munu ekki vera aöstæöur til
annars en aö halda áfram aö hafa
þau verötryggö meö einhverju
móti, en á móti þvi veröur aö
koma bæöi veruleg hækkun lána
og lenging lánstima. Allt annaö er
óraunhæft. En ég vil taka þaö
fram aftur, aö þaö er ekkert aðal-
atriöi hvaðan lánin koma. Þaö
viröist ekki vera grundvöllur fyr-
ir þvi að fá þaö fjármagn sem
þarf inn i byggingasjóöi Hús-
næöisstofnunar, eins og ég tel
eðlilegast, en þá veröur að koma
þvi á, aö lifeyrissjóöirnir láni sitt
fjármagn til húsbygginga i rikari
mæli en gert hefur veriö og aö
bankakerfiö taki upp fasta lána-
starfsemi sem um munar og til
miklu lengri tima en gert hefur
veriö hingaö til.”
— Margt af þvi fólki, sem er I
umræddu byggingarsamvinnu-
félagi, haföi einungis nokkurra
þúsunda króna of miklar tekjur til
þess aö geta gengiö inn I verka-
mannabústaöakerfiö, en þá heföi
dæmiö litið svona út: Útborgun
10%, afgangurinn, eöa 90% iánaö-
ur til 42ja ára. Mánaöarlegar
greiösiur i afborganir og vexti
heföu oröið um 1300 krónur, eöa
kannski um helmingur þess sem
fólkiö I byggingarsamvinnufélag-
inu þarf aö greiöa I húsaleigu á
meöan þaö er aö byggja. Er þetta
þaö félagslega réttlæti sem stefnt
var aö meö nýju húsnæðislöggjöf-
inni?
„Þarna er óeðlilega mikill
munur, þaö er alveg rétt. En þaö
er nú ekki svo I dag, aö allir þeir
sem eiga rétt á ibúð I verka-
mannabústööum teknanna vegna
geti fengið þar ibúö. Þaö kerfi er
á sliku byrjunarstigi, aö þar fá
aðeins þeir fyrirgreiöslu, sem eru
i brýnum vanda og jaörar viö aö
búi viö neyðarástand i húsnæöis-
málum, og hafa enga möguleika
til að leysa sinn vanda meö öðrum
hætti. Þess vegna er þessi saman-
buröur ósanngjarn, þarna er ekki
aðeins um aö ræöa tekjulægra
fólkiö heldur fólk sem er i hrein-
um vandræöum. En auövitaö þarf
aö stuðla aö þvi, aö sem allra
flestir geti fengiö sambærileg
kjör og minnka þarna muninn á
milli. En munurinn er ekki eins
mikill og litur út fyrir i þvi dæmi
sem þú tiltókst, þvi þeir sem fá
húsnæöislánin eiga möguleika á
öðrum lánum, en þeir sem eru i
verkamannabústaöakerfinu fá
engin önnur lán. Þaö má ekki
veösetja þeirra ibúöir fyrir neinu
til viöbótar. Hinir eiga aö hafa
rétt á lifeyrissjóösláni og eiga aö
hafa aögang aö bankakerfinu,
sem veröur aö fara aö auka og
breyta sinni lánastarfsemi til
húsbyggjenda, — aö vera ekki aö
lána þar vaxtaaukalán og vixla,
sem eyöileggja möguleika fólks á
aö byggja i staö þess aö hjálpa
þvi, heldur veröa bankarnir að
taka upp raunhæf fjárfestingar-
lán til lengri tima.
En þarna er vissulega um mik-
inn mun aö ræöa, og ég taldi alltaf
vafasamt aö ganga svo langt aö
lána fólki 90% þótt sú hafi oröið
niðurstaöan hjá Byggingasjóöi
verkamanna. Ég tel eölilegt aö
lána fólki 80% og þeir sem byggja
á svona tveimur árum geta á
byggingartimanum safnað veru-
legum hluta af þeim 20% sem á
vantar. Flestir geta leyst þann
vanda með einum eöa öörum
hætti.
Þaö þarf sem sé aö stefna aö
þvi aö minnka þarna muninn, en
þaö þarf ekki allt aö gerast i
gegnum lánasjóöi Húsnæöisstofn-
unar. Ef að lifeyrissjóöirnir halda
áfram aö reka sina starfsemi og
lánakerfi viöskiptabankanna
breytist og lagast, þá má fjár-
magniö alveg eins koma eftir
þeim leiöum, en þaö þarf aö vera
■ ólafur Jónsson: „Lifeyrissjóöirnir veröa aö lána til húsbygginga írikari mæli”
skipulega og meö þeim kjörum
sem húsbyggjendur ráöa viö.”
— A ráðstefnu, sem þinn flokk-
ur Aiþýöubandalagiö hélt fyrir
nokkru um húsnæðismál, kom
fram aö auka ætti lánafyrir-
greiöslu til byggingasamvinnufé-
laga. Af þessu sést hvorki tangur
né tetur i fjáriagafrumvarpi eöa á
iánsfjáráætlun. Hvaö veldur?
„Nei, þaö er mjög vandasamt
aö taka einhvern ákveöinn hóp út
úr þeim stóra hópi fólks sem er aö
byggja. En ég held aö þaö felist I
ósk félagsmálaráöherra, aö láta
athuga hvort ekki sé hægt aö auka
lánafyrirgreiöslu til þeirra sem
eru aö byggja sina fyrstu ibúö, aö
þaö sé raunhæfasta leiöin til að
aöstoöa þá sem eru i bygginga-
samvinnufélögunum. Þar er fyrst
og fremst-ungt fólk sem er aö
byggja sina fyrstu ibúö.”
— A sama tima og þú talar um
aö lifeyrissjóöirnir eigi i auknum
mæii að taka aö sér lánsfjár-
mögnun almennra fbúöabyggj-
enda er sifelit veriö aö auka
kvaöirnar á sjóöina I sambandi
viö fjármögnun byggingasjóöa
Húsnæöisstofnunar. Er ekki
meiriháttar mótsögn falin I þess-
um málflutningi þinum?
„Sú stefna hefur nú veriö tekin
upp aö fjármagna fjárfestinga-
lánasjóöi með lánsfé fremur en
meö beinu rlkisframlagi, — að
undanteknum Byggingasjóöi
verkamanna, sem hefur mjög
sterkan tekjustofn. Þarna koma
lifeyrissjóðirnir sterklega inn i
myndina vegna þess hve mikiö
fjármagn þeir hafa. Þeir hafa á
undanförnum árum keypt skulda-
bréf fyrir allt aö 40% af sinu fjár-
magni, — mest af byggingarsjóð-
um rikisins. Ef þeir halda þvi
áfram að kaupa sem þessu nem-
ur, og það kemur til bygginga-
sjóða rikisins, held ég aö þaö sé
viðunandi. En þetta er aöeins 40%
af ráöstöfunarfé sjóöanna, og er
þá búiö aö taka tillit til lifeyris-
greiöslna þeirra. Þeir hafa sem
sé eftir sem áöur verulegt ráö-
stöfunarfé.
Ég held hinsvegar aö þurfi aö
koma til sterkara aöhald á sjóö-
ina þannig aö þeirra fé fari til
húsbygginga. Ég tel nokkra hættu
fyrir þjóöfélagið hve stór hluti af
sparifé, sem kemur i gegnum lif-
eyrissjóöina, fer i eyöslulán.”
— En er ekki þarna verið aö
ræöa um sama fjármagnið, —
þeim mun meira sem bygginga-
sjóöirnir fá frá Hfeyrissjóðunum
þeim mun minna hafa þeir tii ráö-
stöfunar fyrir þá félaga sina sem
ráöast i aö byggja eöa kaupa hús-
næöi?
„Þaö mætti segja þaö ef gengið
væri lengra i þessa átt, en ég tel
núverandi hlutfal) ekki óeölilegt.
Ég tel aö lifeyrissjóöirnir hafi
samt sem áöur sæmileg fjárráö,
en þaö þyrfti aö tryggja betur aö
þeirra fé fari i húsbyggingar en
ekki eyöslulán. Ég tel að sjóöirnir
séu komnir út á hála braut meö aö
lána verötryggö eyöslulán”.
— Þú talar um aö bankakerfiö
og iifeyrissjóöirnir eigi aö auka
sinn hlut i sambandi viö almenn
lán tii húsbyggjenda. Nú er þaö
svo aö sumir eiga greiöari aögang
aö bankakerfinu en aörir, auk
þess sem sumar fjöiskyldur geta
kannski fengiö tvenn stór lifeyris-
sjóöslán, en aörar nánast ekkert.
Finnst þér þetta stuöla aö þvl
féiagslega réttlæti sem sagt er aö
sé takmarkiö I þessum málum?
„Þessi hætta er fyrir hendi og
þess vegna hef ég alltaf stutt að
sem stærstur hluti af þessu fari i
gegnum húsnæöislánakerfið, þar
sem allir eiga rétt á láni. Þaö er
hins vegar mikil andstaða við aö
sameina þetta lánsfé á þennan
hátt. Lifeyrissjóðirnir vilja ráöa
sinu fé og bankarnir sinu. Þess
vegna veröur aö Jcoma föstu
Tfmamynd: Róbert.
skipulagi á útlán þessara aðila til
húsbyggjenda”.
— Nú er gert ráö fyrir þvi aö
byggingarsjóðirnir tveir taki
samanlagt 374.4 milljónir króna -
aö láni á næsta ári. Þessi lán eru
yfirleitt meö 3.25% raunvöxtum,
en eru lánuö aftur meö ýmist
2.0% eöa 0.5% vöxtum. Hvaö get-
ur svona fjármáiapólitik gengiö
lengi?
„Viö hjá Húsnæöismálastjórn
höfum itrekaö vakiö athygli
stjórnvalda á þessum lánakjörum
sem viö búum viö, og þau væru
ekki talin boöleg neinni lánastofn-
un, en viö höfum ekki átt annars
kost. Ég túlka þetta sem slæman
kost, en ekki alveg fordæmanleg-
an. Þarna er i gangi eitt af niöur-
greiöslukerfum þjóöfélagsins.
Viö tökum þarna fjármagn frá lif-
eyrissjóöunum meö þeim kjörum
sem þeir telja sér óhjákvæmilegt
aö fá. Viö hjá Húsnæöismála-
stjórn teljum óforsvaranlegt, eft-
ir aö búiö er aö verötryggja lánin,
aö hafa á þeim hærri vexti en 2%.
Viö teljum aö húsbyggjandinn
þoli ekki hærri vexti.
Þarna á sér þvi staö niöur-
greiösla, sem ég tel aö eigi fullan
rétt á sér vegna þess aö þeir sem
nú eru að byggja eru i svo gjör-
ólikri stööu miöaö viö þá sem
byggöu fyrir nokkrum árum, —
þegar veröbólgan nánast fjár-
magnaöi húsbyggingar manna.
Lifskjör manna ráöast meira af
þvi hvernig þeir standa i hús-
næðismálum en nokkru ööru, —
launaflokkar eru aö veröa auka-
atriöi. Lifskjör manna ráöast
mest af þvi hvernig lán þeir hafa
fengiö til húsbygginga.
Ég tel aö ef niöurgreiöslur eiga
nokkurs staöar rétt á sér i þjóö-
félaginu, þá eiga þær rétt á sér á
þessu sviöi. Þaö veröur beinlinis
aö fara aö ætla fjármagn til þess-
ara niöurgreiöslna”.
— P.M.