Tíminn - 02.03.1982, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 2. mars 1982
15
Iþróttir
Enska knattspyrnan:
Ipswich lá
fyrir Wolves
— Wayne Clarke skoraði bædi mörkin í 2-1 sigri
Úlfanna — „Dýrlingarnir” með fjögurra stiga
forystu í 1. deild
■ Southampton heldur
enn forystunni i 1.
deildinni ensku, á
laugardaginn sigruðu
þeir Birmingham 3-1.
Southampton hefur nú
hlotið 53 stig i 28 leik.i-
um og Swansea skaust
upp i annað sæti eftir 0-
2 sigur yfir Arsenal.
Swansea hefur 49 stig
og Man. United hefur
47 stig en United gerði
1-1 jafntefli við Man.
City.
Óvæntustu úrslitin i 1. deild-
inni i Englandi á laugardaginn
urðu I leik Wolves og Ipswich.
Úlfarnir sigruöu 2-1, Wayne
Clarke var hetja Úlfanna en
hann skoraði bæöi mörkin.
Clarke skoraði fyrra mark sitt á
4min leiksins með skoti af löngu
færiog Clarke var siðan aftur á
feröinni á 19. min. Eric Gates
minnkaði muninn fyrir Ipswich
tveimur miniítum siðar er hann
skoraöi eftir að Mich Dávray
hafði átt skalla i slána.
Keegan kom ..Dýrling-
unum” á bragðið::
Kevin Keegan kom „Dyrling-
unum” á bragðið er hann skor-
Úrslit
l.deild
Arsenal-Svansea....... ó:2
Aston Villa-Coventry .... 2:1
Brighton-W.B.A......... 2:2
Everton-West Ham .....o o
Leeds-Liverpool ....... 0:2
Man.Utd.-Man.City .... i:i
Nottm.For.-Middlesb. .. i:i
Southampton-Birmingh.. 3:1
Stoke-Tottenham ....... 0:2
Sunderl.-NottsCounty ... i;i
Wolves-Ipswich...... 2:1
2. deild
Barnsley-Blackburn ..
Cambridge-Grimsby ....
Cardiff-Sheff. Wed....
Charlton-Shrewsbury .
Derby County-Newcastlt
Leicester-Bolton ....
Luton-Oldham ......
Norwich-Q.P.R......
Orient-Watford ....
Rotherh.-Cr. Palace
Wrexham-Chelsea ..
1. deild
0:1
2:2
0:2
1:0
2:2
1:0
2:0
0:1
1:3
2:0
1:0.
South.ton .28 16 5 7 52:39 53
Swansea ..27 15 4 8 40:34 49
Man. Utd.. 26 13 8 5 39:20 47
Liverpool .25 13 6 6 46:22 45
Arsenal .. 26 12 6 7 22:18 45
Ipswich ... 23 14 2 7 44:34 44
Tottenhan.23 13 4 6 38:22 43
Man.City. 27 12 7 8 41:31 43
Brighton ..26 911 6 31:27 38
Nott. For. 26 10 8 8 28:31 38
Everton. „27 9 10 8 34:31 37
NottsCo . 26 9 6 11 40:40 33
A. Vilia .. 27 8 9 10 30:34 33
West Ham 25 7 11 7 41:35 32
Stoke .... 27 9 5 13 30:36 32
W.B.A... . 22 7 8 7 28:25 29
Birmingh 25 5 9 11 36:41 24
Coventry. 27 6 6 15 36:51 24
Leeds .... 23 6 6 11 20:37 24
Wolves... 27 6 5 16 17:45 23
Sunderl. 26 4 7 15 18:40 19
Midd.boro 25 2 9 14 18:37 15
aði fyrir þá úr vitaspymu á 17.
min i' leiknum gegn Birming-
ham. Frank Worthington jafn-
aöi metin fimm min. fyrir lok
fyrri hálfleiks einnig úr vita-
spyrnu.
Graham Baker bætti sfðan
tveimur mörkum viö i seinni
hálfleik fyrir Southampton.
Birmingham hefur ekki tekist
að sigra á Utivelli i 16 mánuöi og
Rush með mark...
þessi leikur var engin undan-
tekning þar á. Mark Kevins
Keegans var hans 23. mark á
keppnistimabilinu þar af 19
deildarmörk.
A undravtrðan hátt tókst
Man. City aö halda öðru stiginu i
viðureigninni við Man. United á
Old Trafford. City sem lék án
Trevor Francis sem er meiddur
átti i vök aö verjast svo til allan
leikinn. United sótti nær stans-
laust allan timann og þauvoru
teljandi þau skipti sem City
komst i sókn.
Kevin Reeves tók forystuna
fyrir City I fyrri hálfleik, er 18
min voru liönar af leiknunij meö
skalla. Stuttu siöar jafnaöi
KevinMoran metin fyrir United
er hann skallaöi boltann i
markið eftir fyrirgjöf frá John
Gidman. United tók siðan öll
völd i seinni hálfleik en Joe
Corrican markvörður City
reyndist þeim erfiður.
Forest heppið:
Middlesboro sem ekki hefur
unnið sigur á Utivelli siöan i
nóvember 1980 tók forystuna i
fyrri hálfleik i leiknum gegn
Nottingham Forest meö marki
frá David Hodgson. Þaö var
ekki fyrr en komið var framyfir
venjulegan leiktima sem Forest
tókst að jafna metin og þaö var
Stuart Gray sem var þar að
verki.
Ian McCulloch framherji
Notts County kom i veg fyrir aö
Sunderland tækist aö sigra og
hirða öll þrjú stigin er þessi
félög áttust viö á heimavelli
Sunderland. McCulloch skoraði
jöfnunarmarkið aðeins fimm
min. fyrir leikslok. Alan Brown
hafði tekið forystuna fyrir
Sunderland i seinni hálfleik.
Góður sigurhjá Swan-
sea:
Það er ekki á færi hvaða
félagssem er að ná sigriá High-
bury, heimavelli Arsenal.
Arsenal þykir ákaflega erfitt
heim að sækja.
En Swansea lék góða knatt-
spyrnu og þeir uppskáru sann-
gjarnan sigur 0-2. Ray Kennedy
fyrrum leikmaöur með Arsenal
ogLiverpoolskoraðifyrra mark
Swansea á 16. min leiksins.
Robbie James innsiglaöi siöan
sigur Swansea 1 seinni hálfleik
er hann skoraði Ur vltaspyrnu
eftirað brotið haföi veriö á Alan
Curtis.
Varamaöurinn Nicky Cross
bjargaöi ööru stiginu fyrir West
Bromwic Albion i leiknum gegn
Brighton. A 10 min kafla i seinni
hálfleik skoraöi hann fyrir
Albion og hann áttiallan heiöur-
inn af marki Martyn Bennets
jöfnunarmarkinu. Andy Ritchie
14 min og Mike Robinson 60 mín
skoruðu mörkBirghtonen Cross
geröi þessa forystu að engu.
Graeme Souness miðvallar-
spilarinn snjalli hjá Liverpool
kom þeim á bragöiö i leiknum
gegn Leeds á Elland Road er
hann skoraði glæsilegt mark af
25 m etra færi i fyrri hálfleik. Ian
Rush innsiglaöi sanngjarnan
sigur Liverpool er hann skoraði
á 76 min leiksins, hans 22. mark
á keppnisti'mabilinu.
Garth Crooks var hetja
Tottenham i leiknum gegn
Stoke, Crooks skoraöi bæöi
mörk Tottenham i 0-2 sigri
þeirra. Tottenham hefur nú
leikið 14 leiki án taps!
brátt fyrir 19 hornspyrnur þá
tókstleikmönnum Everton ekki
að fylgja þeim eftir og skora i
leiknum gegn West Ham. Leik-
menn West Ham féllu oft i rang-
stöðutaktik varnarmanna Ever-
ton nánast f hvert einasta skipti
sem þeir sóttu fram.
Garry Thompson var heldur
betur i' sviösljósinu er Aston
Villa og Coventry léku á Villa
park. Thompson tók forystuna
fyrir Coventry er hann skoraði
eftir tveggja min. leik. En i
seinni hálfleik var hann rekinn
af velli fyrir aö sparka i Allan
Evans. Gordon Cowans jafnaöi
metin á 5 min úr vitaspyrnu og
Gary Shaw skoraöi sigurmark
Villa á 19 min. Aston Villa að-
eins farnir að naga sig upp töfl-
una, komnir úr fallhættu I bili.
Úrslitin i 2. deild voru
nokkum veginn eftir bókinni ef
svo er hægt aö komast aö orði.
Efstu félögin Luton og Watford
unnu sina leiki. Luton sigraöi
Oldham 2-0 með mörkum David
Moss og sjálfsmarki McDon-
ald.
Blisset skoraði tvö mörk i 3-1
sigri Watford yfir Orient. Luton
er i efsta sæti i 2. deild með 53
stig en Watford hefur 49 stig.
röp-.
Keegan kom Southampton á bragöiö...
Crooks skoraöi tvö..
Souness heilinn á bak viö leik Liverpool...
2. deild
I Luton 24 16 5 3 52:26 53
| Watford. .. 26 14 7 5 44:28 49
lOldham ■ •• 29 12 10 7 38:30 46
| Rotherham 28 14 3 11 41:34 45
Blackburn 29 12 9 8 33:26 45
Sheff.Wed 28 13 6 9 37:36 45
Q.P.R 27 13 5 9 3 4:23 44
Charlton .. 29 11 9 9 39:38 4 2
Newcastle 26 12 5 9 35:26 41
Barnsley .. 27 11 6 10 36:26 39
1 Chelsea .. . 26 11 6 9 35:35 39
| Norwich . 28 11 4 13 34:39 37 |
Leicester .23 9 8 6 30:23 35 1
Cambridge 26 9 5 12 29:32 32 |
Derby Co.. 27 8 6 13 35:50 30 1
Orient .... 26 8 5 13 22:32 29 |
Bolton .... 27 8 4 15 23:37 28
Sh. bury... 24 7 6 11 22:34 27
C. Palace . 23 7 5 11 16:20 26
Cardiff.... 26 7 4 15 24:38 25
Wrexham . 25 6 4 15 22:36 22 1
Grimsby .. 22 4 8 10 25:38 20 |