Tíminn - 28.03.1982, Síða 11

Tíminn - 28.03.1982, Síða 11
Sunnudagur 28. mars 1982 ■ Guðmundur Þór Guðmunds- son við komuna til Reykjavikur I gær. á dekk. Enda fór ekkert á milli mála hvað var að ske þvi hallinn var orðinn svo mikill á skipinu”, hélt Steinar áfram. „Annars er eiginlega ómögu- legt að útskýra það sem þarna skeði. Menn stóðu sig allir með mikilli prýði og ég held að við megum bara vera forsjóninni þakklátir fyrir að ekki fór ver”. — Hvernig gekk björgunin fyrir sig? „Það var greinilegt að björg- unarmennirnir kunnu vel til verka, bæði þeir dönsku og skosku”, sagði Steinar. —Sjó. ■ Steinar Guðjónsson, 2. stýri- maður var sofandi i koju sinni þegar brotið reið yfir. Tima- myndir Róbert. Guðmundur Ásgeirsson, forstjóri Nesskips: Höfum ekki fyrr misst mann af skipum okkar ■ ,,Við höfðum átt Suðurlandið i átta ár og tvo mánuði, þegar það fórst. Þetta var happaskip og hafði nær allan þann tima sem við gerðum það út verið i saltfisk- flutningum á Miðjaröarhafi”, sagði Guðmundur Asgeirsson for- stjóri Nesskip, þegar viö hittum hann á Reykjavikurflugvelli I gær, skömmu áður en skipsbrots- mennirnir komu heim frá Fær- eyjum. „Það er eftirsjá i þessu skipi”, sagði Guðmundur, „en samt er það svo að allt má bæta nema mannslifið. Ævar Ragnarsson hafði verið bátsmaður og áður háseti hjá okkur i f jögur ár og var dugandi og góður sjómaður. Skipafélagið hefur verið svo lán- samt að við höfum ekki misst mann af skipum okkar, fyrr en þab gerist nú. Þetta er okkur vissulega mikið áfall”. —AM ,,Omurleg reynsla” — sagdi Guðmundur Þór Guðbrandsson, háseti ■ „Þetta var vægast sagt ömur- leg reynsla. Ég var i matsalnum rétt að ljúka við að borða þegar brotið reiðyfir,” sagði Guðmund- ur Þór Guðbrandsson, háseti á Suðurlandinu við komuna til Reykjavikur i gær. „Það fór ekk- ert á milli mála hvað var að ske, maður gekk á veggjum og sá hurðir fyrir ofan sig. Við drifum okkur strax út á dekk til að kom- ast i bátana og fórum þá allir i einn álbát nema Ævar bátsmaður sem var eitthvaö að reyna að losa björgunarbátinn og tveir aðrir sem þurftu að synda talsverðan spöl. Siðan vorum við eitthvað á annan tima i álbátnum en náðum þá gúmbát sem var á reki og fórum þá allir i hann. Skömmu seinna kom litla þyrlan frá Hvita- birninum og ég var annar þeirra sem fóru i hana,” sagði Guðmundur. — sjó. Á skíða- fatnaðj barna- óg barna- skíðum Sendum í urlandsbraut 8 - i 84670 Vorum að fá þessa frábæru URVAN díesel sendibíla með stórum hleðsluhurðum að aftan og á hlið Stærð á afturhurð: 1125x1125 m.m. Á hliðarhurð: 1100x1350 m.m. Stærð farangursrýmis: 3040x1530x1335 Hafið samband við sölumenn okkar, sem gefa nánari upplýsingar Datsun »0- umboðið INGVAR HELGASON Vonarlandi vid Sogaveg • Sími 33560 idSri datsun urvan W DIESEL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.