Tíminn - 25.04.1982, Side 5

Tíminn - 25.04.1982, Side 5
Sunnudagur 25. aprll 1982 5 Meyjarnar og unnustar þeirra, söðlasmiöurinn og sótarinn. (Timamynd ELLA) Schuberts Og Berté var af þessu forrfkur maður en Schubert hafði hinsveg- ar andast i sárustu fátækt tæpri öld áður, svo sem kunnugt er. Um söguþráð Meyjaskemm- unnar er óþarfi að fjölyrða hér. Þetta er ofureinföld saga af ást- um og ástarraunum Schuberts, en aö visu ekki byggð á raunveru- legum atvikum gagnstætt þvi sem nokkuð almennt er álitið. Margar helstu persónurnar voru að visu til á sinum tima og aðrar eiga sér fyrirmyndir Ur raun- veruleikanum, en verkið lýtur að öllu leyti lögmálum skáldskapar- ins. 50 söngvarar og leikarar Mikillfjöldisöngvara. ogleik- ara koma fram i sýningunni á Meyjaskemmunni — alls um fimmtíu manns— og margir nýir kraftar á ferðinni. Það er Sigurður Björnsson sem fer með hlutverk tónskáldsins Franz Schubert, Július Vifill Ingvarsson er i hlutverki vinar hans Franz Schober, þess sem rænir tón- skáldið stúlkunni en JUli'us hefur undanfariö verið við söngnám á ltaliu og kemur nU i' fyrsta skipti fram i ÞjóöleikhUsinu. Systurnar þrjár i Meyjaskemmunni eru Katrin Sigurðardóttir, sem leikur Hönnu, Kristin Sædal Sigtryggs- dóttir, sem leikur Heiöu og Elisa- bet F. Eiriksdóttir sem leikur Hildu. Þetta er frumraun Katrin- ar hér i Þjóðleikhúsinu en hún hefur verið viö söngnám i Svi- þjóð, Kristin og Elfsabet hafa hinsvegar báöar verið hér i sýningum meö Þjóðleikhússkórn- um og Elisabet söng einsöngs- hlutverk i Sögum Ur Vínarskógi nú i vetur. Guðmundur Jónsson og Þuriöur Pálsdóttir eru foreldr- ar stúlknanna i sýningunni. þeir Kristinn Hallsson, Halldór Vil- helmsson og Bergþór Pálsson eru félagar þeirraSchuberts og Scho- bers, og Bergþór er einnig nýr maður á sviöi Þjóöleikhússins. Anna Júliana SveinsdótUr er i hlutverki Guidittu Grisi óperu- söngkonu. Fjöldi leikara kemur einnig fram i sýningunni eins og áöur sagði og meö stærstu leikarahlutverkin fara Jön S. Gunnarsson, Kristján Viggósson, Arni Tryggvason, Erlingur Gisla- son og Herdls Þorvaldsdóttir. Sem fyrr segir er frumsýningin i kvöld 24. april en önnur sýning óperettunnar verður annaðkvöld. ■ Katrin Siguröardóttir (Timamynd G.E.) Söngáhuginn vaknaði í Tónlistar skólanum Rætt við Katrínu Sigurðardóttur ■ „Ahugi minn á söng vaknaði þegar ég var i Tónlistarskólan- um. Ég tók þar tónlistarkennara- próf og liður i náminu var söng- nám,” segir Katrin Sigurðardótt- ir ættuð frá Húsavik, sem fer með hlutverk Hönnu, hina yngstu systranna þriggja i „Meyjar- skemmunni.” ,,Ég fór aðlæra á pianó átta ára gömul”, segir Katrin, ,,og hafði alltaf gaman af tónlist. Að loknu tónlistarkennaraprófinu 1978 fór ég til Húsavikur og var þar við tónlistarkenslu um tima, en fór svo i Söngskólann i Reykjavik, þar sem ég starfaði sem undir- leikari og var nemandi um leið. Söngkennaraprófi lauk ég svo i fyrravor.” Þá lá leiö þin til Sviþjóöar? „Já, ég fór til Stokkhólms i fyrrahaust og hef verið þar viö nám i einkatimum hjá Karin Langebo. Ég kom heim nú i end- aðan febrúar til þess að syngja þetta hlutverk i „Meyjaskemm- unni”. Svo liggur ieiöin til Sviþjóöar aö nýju? „Já, það ætla ég að vona. Það er að minnsta kosti von min, að ég getihaldið áfram aðlæra.” Við þökkum Katrinu fyrir spjallið, en hún er aðeins 24 ára og á timann fyrir sér, þvi við höf- um sannspurt að hún sé þegar ein okkar efnilegasta sópransöng- kona. —AM „Falleg mynd af Schubert og lífl hans” — segir Sigurður Björnsson, sem senn á 20 ára söngafmæli og hefur sungið á annað hundrað hlutverk Við höfum spurnir af þvi að Sigurður Björnsson, sem fer meö hlutverk Schuberts i Meyja- skemmunni, ætti tuttugu ára söngafmæli á næstunniog til þess að fá úr þessu skorið lá beinast við að spyrja hann sjálfan. Það gerðum við á æfingunni sl. þriðju- dagskvöld. „Já, það er rétt. Þann 22. októ- ber nk. eru tutlugu ár liðin frá þvi er ég söng fyrst i Stuttgart, sem fastráðinn söngvari þar. Ég fór fyrst út árið 1956 til söngnáms i Múnchen og var þar i sex ár, en 1962 kom ég að óperunni i Stutt- gart þar sem ég var svo sex næstu árin. Þaðan fór ég til óperunnar i Kassel og það var af þvi að þeir gömlu sátu fyrir stóru hlutverk- unum. En ég vildi reyna mig við þau hlutverk og fór þvi til óperu af miðlungsstærð. Þar var ég i 4 ár.” Og þá lá leiö þin til Munchen? „Nei, ekki var það nú, þvi ég var eftir það i 3 ár i Graz og á samningi við Volksoper um leið. Þá barst mér boð um aö starfa við Gartnerplatztheater i Munchen. Já, hver hefði neitað boði frá Miinchen? Þar hafði ég lært og leit á borgina sem mitt annað heimili.” Hve mörgeru hlutverkin orðin? „Þau munu vera orðin áannað hundrað. Sjálfsagt hefðu þau orð- ið fleiri ef ég hefði veriö áfram ytra, en þegar þar að kom að börnin voru komin á þann aldur að við urðum að velja á milli þess að „fara heim”, eins og konan min sagði, eða vera áfram ytra völdum við fyrri kostinn. Þetta snerist um það hvort við vildum að börnin yröu útlendingar eða Islendingar. Þegar mér svo barst boð um að taka viö starfi fram- kvæmdastjóra S.t. þá þáði ég það. Það var árið 1977.” llvað um hlutverk Schuberts I Meyjaskemmunni núna? „Ég hafði aldrei sungið hlut- verk Schuberts, þótt ég hefði sungiö mikið ljóð eftir hann. Raunar hafði ég ekki séð þessa óperettu fyrr þvi hún er ekki mik- ið flutt erlendis, þótt i henni séu öll þessi fallegu lög, sem hljómað hafaaftur ogafturi allraeyrum. En það er gaman að fást viðað syngja Schubert „i eigin persónu” og það hefur veriö gam- an að fást við þessa uppfærslu, sem ekki er sist að þakka austur- riska leikstjóranum Wilfried Steiner. Hér i óperunni kemur einmitt fram vinur Schuberts Vogel, sem hann skrifaði flest sinna 700 laga fyrir. Þetta verk er gætt miklum þokka og að minu mati er þetta falleg mynd af Schubert og lifi hans. —AM ■ Sigurður Björnsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.