Tíminn - 25.04.1982, Qupperneq 5
Sunnudagur 25. aprll 1982
5
Meyjarnar og unnustar þeirra, söðlasmiöurinn og sótarinn.
(Timamynd ELLA)
Schuberts
Og Berté var af þessu forrfkur
maður en Schubert hafði hinsveg-
ar andast i sárustu fátækt tæpri
öld áður, svo sem kunnugt er.
Um söguþráð Meyjaskemm-
unnar er óþarfi að fjölyrða hér.
Þetta er ofureinföld saga af ást-
um og ástarraunum Schuberts,
en aö visu ekki byggð á raunveru-
legum atvikum gagnstætt þvi
sem nokkuð almennt er álitið.
Margar helstu persónurnar voru
að visu til á sinum tima og aðrar
eiga sér fyrirmyndir Ur raun-
veruleikanum, en verkið lýtur að
öllu leyti lögmálum skáldskapar-
ins.
50 söngvarar og
leikarar
Mikillfjöldisöngvara. ogleik-
ara koma fram i sýningunni á
Meyjaskemmunni — alls um
fimmtíu manns— og margir nýir
kraftar á ferðinni. Það er
Sigurður Björnsson sem fer með
hlutverk tónskáldsins Franz
Schubert, Július Vifill Ingvarsson
er i hlutverki vinar hans Franz
Schober, þess sem rænir tón-
skáldið stúlkunni en JUli'us hefur
undanfariö verið við söngnám á
ltaliu og kemur nU i' fyrsta skipti
fram i ÞjóöleikhUsinu. Systurnar
þrjár i Meyjaskemmunni eru
Katrin Sigurðardóttir, sem leikur
Hönnu, Kristin Sædal Sigtryggs-
dóttir, sem leikur Heiöu og Elisa-
bet F. Eiriksdóttir sem leikur
Hildu. Þetta er frumraun Katrin-
ar hér i Þjóðleikhúsinu en hún
hefur verið viö söngnám i Svi-
þjóð, Kristin og Elfsabet hafa
hinsvegar báöar verið hér i
sýningum meö Þjóðleikhússkórn-
um og Elisabet söng einsöngs-
hlutverk i Sögum Ur Vínarskógi
nú i vetur. Guðmundur Jónsson
og Þuriöur Pálsdóttir eru foreldr-
ar stúlknanna i sýningunni. þeir
Kristinn Hallsson, Halldór Vil-
helmsson og Bergþór Pálsson eru
félagar þeirraSchuberts og Scho-
bers, og Bergþór er einnig nýr
maður á sviöi Þjóöleikhússins.
Anna Júliana SveinsdótUr er i
hlutverki Guidittu Grisi óperu-
söngkonu. Fjöldi leikara kemur
einnig fram i sýningunni eins og
áöur sagði og meö stærstu
leikarahlutverkin fara Jön S.
Gunnarsson, Kristján Viggósson,
Arni Tryggvason, Erlingur Gisla-
son og Herdls Þorvaldsdóttir.
Sem fyrr segir er frumsýningin
i kvöld 24. april en önnur sýning
óperettunnar verður annaðkvöld.
■ Katrin Siguröardóttir (Timamynd G.E.)
Söngáhuginn
vaknaði
í Tónlistar
skólanum
Rætt við Katrínu
Sigurðardóttur
■ „Ahugi minn á söng vaknaði
þegar ég var i Tónlistarskólan-
um. Ég tók þar tónlistarkennara-
próf og liður i náminu var söng-
nám,” segir Katrin Sigurðardótt-
ir ættuð frá Húsavik, sem fer með
hlutverk Hönnu, hina yngstu
systranna þriggja i „Meyjar-
skemmunni.”
,,Ég fór aðlæra á pianó átta ára
gömul”, segir Katrin, ,,og hafði
alltaf gaman af tónlist. Að loknu
tónlistarkennaraprófinu 1978 fór
ég til Húsavikur og var þar við
tónlistarkenslu um tima, en fór
svo i Söngskólann i Reykjavik,
þar sem ég starfaði sem undir-
leikari og var nemandi um leið.
Söngkennaraprófi lauk ég svo i
fyrravor.”
Þá lá leiö þin til Sviþjóöar?
„Já, ég fór til Stokkhólms i
fyrrahaust og hef verið þar viö
nám i einkatimum hjá Karin
Langebo. Ég kom heim nú i end-
aðan febrúar til þess að syngja
þetta hlutverk i „Meyjaskemm-
unni”.
Svo liggur ieiöin til Sviþjóöar aö
nýju?
„Já, það ætla ég að vona. Það
er að minnsta kosti von min, að ég
getihaldið áfram aðlæra.”
Við þökkum Katrinu fyrir
spjallið, en hún er aðeins 24 ára
og á timann fyrir sér, þvi við höf-
um sannspurt að hún sé þegar ein
okkar efnilegasta sópransöng-
kona.
—AM
„Falleg
mynd af
Schubert og
lífl hans”
— segir Sigurður
Björnsson, sem
senn á 20 ára
söngafmæli og
hefur sungið á
annað hundrað
hlutverk
Við höfum spurnir af þvi að
Sigurður Björnsson, sem fer meö
hlutverk Schuberts i Meyja-
skemmunni, ætti tuttugu ára
söngafmæli á næstunniog til þess
að fá úr þessu skorið lá beinast
við að spyrja hann sjálfan. Það
gerðum við á æfingunni sl. þriðju-
dagskvöld.
„Já, það er rétt. Þann 22. októ-
ber nk. eru tutlugu ár liðin frá þvi
er ég söng fyrst i Stuttgart, sem
fastráðinn söngvari þar. Ég fór
fyrst út árið 1956 til söngnáms i
Múnchen og var þar i sex ár, en
1962 kom ég að óperunni i Stutt-
gart þar sem ég var svo sex næstu
árin. Þaðan fór ég til óperunnar i
Kassel og það var af þvi að þeir
gömlu sátu fyrir stóru hlutverk-
unum. En ég vildi reyna mig við
þau hlutverk og fór þvi til óperu
af miðlungsstærð. Þar var ég i 4
ár.”
Og þá lá leiö þin til Munchen?
„Nei, ekki var það nú, þvi ég
var eftir það i 3 ár i Graz og á
samningi við Volksoper um leið.
Þá barst mér boð um aö starfa við
Gartnerplatztheater i Munchen.
Já, hver hefði neitað boði frá
Miinchen? Þar hafði ég lært og
leit á borgina sem mitt annað
heimili.”
Hve mörgeru hlutverkin orðin?
„Þau munu vera orðin áannað
hundrað. Sjálfsagt hefðu þau orð-
ið fleiri ef ég hefði veriö áfram
ytra, en þegar þar að kom að
börnin voru komin á þann aldur
að við urðum að velja á milli þess
að „fara heim”, eins og konan
min sagði, eða vera áfram ytra
völdum við fyrri kostinn. Þetta
snerist um það hvort við vildum
að börnin yröu útlendingar eða
Islendingar. Þegar mér svo barst
boð um að taka viö starfi fram-
kvæmdastjóra S.t. þá þáði ég það.
Það var árið 1977.”
llvað um hlutverk Schuberts I
Meyjaskemmunni núna?
„Ég hafði aldrei sungið hlut-
verk Schuberts, þótt ég hefði
sungiö mikið ljóð eftir hann.
Raunar hafði ég ekki séð þessa
óperettu fyrr þvi hún er ekki mik-
ið flutt erlendis, þótt i henni séu
öll þessi fallegu lög, sem hljómað
hafaaftur ogafturi allraeyrum.
En það er gaman að fást viðað
syngja Schubert „i eigin
persónu” og það hefur veriö gam-
an að fást við þessa uppfærslu,
sem ekki er sist að þakka austur-
riska leikstjóranum Wilfried
Steiner. Hér i óperunni kemur
einmitt fram vinur Schuberts
Vogel, sem hann skrifaði flest
sinna 700 laga fyrir. Þetta verk er
gætt miklum þokka og að minu
mati er þetta falleg mynd af
Schubert og lifi hans.
—AM
■ Sigurður Björnsson.