Tíminn - 25.04.1982, Side 8

Tíminn - 25.04.1982, Side 8
8 Sunnudagur 25. aprfl 1982 utqefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiöslustjóri: Sigurður Brynjólfs son. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi. Oddur V. Olafsson. Fréttastjóri: Páll Magnusson. Umsjónarmaöur Helgar Tim ans: lllugi Jókulsson. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghild ur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friörik Indriöason, Heiöur Helgadóttir, Jónas Guömundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Orn Pétursson (iþróttir), Sigurjón Valdimarsson, Skafti Jónsson. Utlitsteiknun. Gunnar Trausti Guöbjórnsson. Ljósmyndir: Guöjon Einarsson, Guöjón Róbert Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjorn, skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Aug lýsingasimi: 18300. Kvóldsimar: 86387, 86392. — Verö i lausasólu 7.00, en 9.00 um helgar. Askriftargjald á mánuói. kr. 110.00. — Prentun: Blaöaprent hf. Skipulagning bankakerfisins ■ Á ársfundi Seðlabanka íslands s.l. miðvikudag flutti Halldór Ásgrimsson, formaður bankaráðs Seðiabankans, ræðu, þar sem hann vék að endur- skipulagningu bankakerfisins i landinu, en sér- stök bankamálanefnd vinnur nú að tillögum þar að lútandi. í ræðu sinni ræddi Halldór fyrst gagnrýni á bankakerí ið: „Margháttuð gagnrýni hefur komið fram á undanförnum árum á starfsemi peninga- og lána- stofnana hér á landi. Hefur sú gagnrýni að nokkru leyti byggst á þvi, að þjónustan við át- vinnulifið væri ekki nógu viðtæk og eins markviss og æskilegt væri. Bankakerfið væri dýrt og þjón- usta við einstök byggðarlög væri ófullnægjandi. Gagnrýni þessi á að nokkru leyti við rök að styðj- ast. Hluti af vandamálinu liggur i þvi ástandi á peninga- og lánsfjármarkaðnum, sem er af- leiðing langvarandi verðbólguþróunar. Hin skýringin er, að aldrei hefur tekist að vinna úr þeim tillögum um skipulagningu bankakerfisins, sem gerðar hafa verið á undanförnum áratugum. Á meðan ekki liggur fyrir stefna um heildar- skipulag bankakerfisins, sem byggð er á rekstrarhagkvæmni og mati á eðlilegri og æski- legri þjónustustarfsemi þess, má vænta þess, að bankakerfið liggi áfram undir sömu gagnrýni”. Halldór vék siðan að störfum bankamála- nefndarinnar, en með skipan nefndarinnar er gerð enn á ný tilraun til að endurskipuleggja bankakerfið, laga uppbyggingu þess að þörfum þjóðfélagsins og setja starfseminni nútimalega löggjöf. Hann sagði þá m.a.: ,,Meðal þeirra atriða, sem að minu mati hljóta óhjákvæmilega að móta alla tillögugerð um breytingar á skipulagi og starfsháttum banka- kerfisins, eru eftirfarandi: 1. Tryggja þarf hagsmuni innstæðueigenda og annarra, sem kröfu eiga á stofnanirnar. 2. Tryggja þarf atvinnulifinu og viðskiptaaðilum bankakerfisins sem viðtækasta alhliða banka- þjónustu. 3. Tryggja þarf rekstrarhagkvæmni banka- kerfisins og sem ódýrasta þjónustu”. Halldór benti siðar i ræðu sinni á, að til að ná ofangreindum markmiðum væri m.a. eftirfar- andi nauðsynlegt: 1. Setja i löggjöf ákvæði sem hvetja innlánsstofn- anirtil sameiningar. Af þvi er mikilvægast eig- infjárákvæði. Auk þess kemur til álita að lög- festa ákvæði, er miði að samvinnu milli inn- lánsstofnana á ýmsum sviðum. 2. Að uppfylltum vissum lágmarksskilyrðum séu innlánsstofnunum heimiluð öll venjuleg viðskiptastörf, þ.m.t. verslun með erlendan gjaldeyri. 3. Fyrirkomulag varðandi veitingu útibúaleyfa verði breytt i grundvallaratriðum. 4. Málefni bankanna heyri undir einn og sama ráðherra”. Bankamálanefndin vinnur nú mjög þarft en er- fitt starf, sem vonandi verður meira gert með en álit fyrri bankamálanefnda, sem safna ryki i skrifborðsskúffum. —ESJ ■ í valdastöðum þjóðfélagsins eru yfirleitt karlmenn. Þar eru heimildarmenn f jölmargra frétta fjöl- miðlanna. Þegar konur hafa ruttsértil rúms i þessum valdastöðum mun hlutur þeirra i fjölmiðlunum að sjálfsögðu aukast. Timamynd: Tryggvi. Konur og fjölmiðlar KlONUR BEINDU SPJÓTUM SINUM AÐ FJÖL- MIÐLUNUM A RAÐSTEFNU, SEM HALDIN VAR UM SÍÐUSTU HELGI. Þar var fjallað um hlut kvenna i fjölmiðlum, þ.e. fréttum, viðtölum og öðru efni dagblaða, útvarps og sjónvarps. Mörgum kon- um, sem ráðstefnuna sóttu, þótti sá hlutur rýr i meira lagi. Það er út af fyrir sig ekkert óeðlilegt, þótt ljósi sé beint að þætti kvenna i fjölmiðlunum eins og á öðrum þjóðfélagssviðum. Eneigi slik gegnumlýsing að koma að gagni verður að fjalla um málið af þekkingu og sanngirni, og byggja á traustum gögn- um. Hjá ýmsum þótti mér nokkuð skorta á allt þrennt á umræddri ráðstefnu. Tökum sem dæmi fréttaflutning dag- BLAÐANNA OG ANNARRA FJÖLMIÐLA. Þar voru sett fram einföld rök, sem sé að karlar séu margfalt oftar heimildarmenn frétta en konur. Niðurstaða: mismunun. Enginn ber á móti þvi, að karlar séu mun oftar bornir fyrir fréttum i fjölmiðlum en konur. Það sjá allir sem fletta dagblöðunum. En orsök þessa liggur auðvitað jafn ljóslega i augum uppi. Hún er sú, að þeir, sem eru i aðstöðu til að veita umbeðnar upp- lýsingar, eru i flestum tiifellum karlmenn. Niður- staða: konur verða ekki i verulegum mæli heimildarmenn frétta i fjölmiðlum fyrr en þær koma sér i þau störf i þjóðfélaginu, þar sem oftast er ieitað eftir fréttum. Konur verða þvi að breyta kynskiptingunni i valdakerfinu i landinu til þess að hiutur þeirra sem heimildarmenn frétta i fjölmiðl- um batni. Þessi sannindi verða augljósari þeg- AR DAGBLöÐUNUM ER FLETT. Tökum sem dæmi Timann i næstsiðustu viku. Þar birtist fjöldi frétta, smárra og stórra — sennilega nokkuð á ann- að hundrað samtals. i langflestum, sennilega tveimur þriðju, tilfella er um ókyngreinda heimildaraðila að ræða — þ.e. stofnun, félag eða eitthvað slikt. En i þeim tilvikum, þar sem beint er vitnað til heimildarmanns, er i flestum tilvikum um karlmann að ræða. Ef litið er á fréttirnar þá sést auðvitað fljótlega, að ekki voru tök á að fá þær upplýsingar, sem þess- ar tilteknu fréttir segja frá, hjá konum, þar sem þær voru ekki, og eru ekki, i þeim embættum, þar sem slikar upplýsingar er að fá. Ein af stærri frétt- um blaðsins i vikunni er þannig fengin hjá formanni Samtaka grásleppuhrognaframleiðenda. Hann er karlmaður. Önnur frétt er um viðbrögð fram- kvæmdastjóra sjónvarpsins við truflunum á mót- töku sjónvarpssendinga. Hann er karlmaður. Eða stutt fréttaviðtal við þekktan útlending, sem hingað kom i heimsókn — Rolv Wesenlund, sem er ýmis- legt til lista lagt en er nú karlmaður samt. Viðtal við ungan mann sem hafði óaívitandi verið með bút af loftneti i höfðinu i' 13 vikur. Hann var vist karl- maður. Viðhorf ráðamanna, svo sem ráðherra og háttsettra embættismanna i stjórnarráðinu, við ýmsum málum sem upp komu. Þeir eru allir karl- menn. Alrangt er að setja samasemmerki a MILLI KYNFERÐIS HEIMILDARMANNANNA OG AHUGA KYNJANNA A VIÐKOMANDI FRÉTTUM. Sumir virðast telja, að ef heimildar- maðurinn sé karlmaöur þá hljóti karlmenn fyrst og fremstað hafa áhuga á fréttinni. Þetta er auðvitað út i hött. Staðreyndin er sú, að allar almennar fréttir blaðanna höfða til lesenda án tillits til kynferðis. Það eru allt aðrir hlutir, sem ráða þvi, hvort lesandi blaðs hefur áhuga á þessu eða hinu efninu. Þetta á jafnt við um fréttir af þjóðmálum, sem vissulega taka mikið pláss i dagblöðunum, og fréttir af öðrum málum, svo sem listum og menningu, fristunda- málum og iþróttum, svo dæmi séu nefnd. Sumir karlmennhafa áhuga á þjóðmálum en aðrirekki og eins er þaö með konur. Að segja að fréttir af t.d. stjórnmálum.eínahagsmálum, kjaramálum og öðru sliku séu „kallafréttir”, er þvi ekki aðeins rangt, heldur einnig niðurlægjandi fyrir konur. Auðvitað hafa þær áhuga á þessum málum engu siður en karlar. Hins vegar er ljóst, að heimildarmenn að slikum fréttum eru og verða fyrst og fremst karlmenn á meðan kynskiptingin i valdakerfinu i þjóðfélaginu breytist ekkert. Á meðan enginn ráðherra er kona, enginn ráðuneytisstjóri, enginn forstöðumaður helstu rikisstofnana, enginn forstjóri stærstu fyrir- tækjanna, enginn formaður meiriháttar launþega- samtaka, enginn formaður helstu hagsmunasam- taka atvinnuveganna — á meðan engir þeirra, sem þessum og öörum svipuðum störfum gegna i þjóð- félaginu,eru kvenkyns,er óhjákvæmilegt að fréttir, sem fjalla um það sem þessir aðilar eru að gera, byggist á upplýsingum frá körlum. Góður vilji á fjölmiðlunum fær ekki breytt þess- um staðreyndum. E MARGT FLEIRA EFNI ER í FJÖL- MIÐLUNUM. Og á sumum sviðum er vissulega stundum hægt að draga frekar fram en verið hefur starfsemi og viðhorf kvenna, enda sýnist mér ein- sýnt að þróunin haíi verið i þá áttina siöustu árin. Þetta á til dæmis við um stærri viðtöl, sem birtast idagblöðunum. I Timanum birtist t.d. daglega svo- nefnt baksiðuviðtal, þar sem rætt er við einhvern tiltekinn einstakling dag hvern um iif hans og starf. I umræddri viku birtust fjögur slfk viðtöl i blaðinu, og var þar mikið jafnræði með kynjunum — tvö viö- töl við karlmenn og tvö við konur. Held ég að yfir- leitt sé hlutur kvenna i þessum viötölum góður. Dagblöðin eru nú mjög opin fyrir birtingu greina, sem lesendur blaðanna skrifa og birtar eru undir nafni. Flest blöðin fá svo mikið sent af slikum grein- um, að erfitt er að birta þær allar, og leita þess vegna ekki eftir sliku efni. Frumkvæðið kemur frá greinarhöfundum sjálfum. Það verður að segjast eins og er, að konur hafa ekki nýtt sér þessa möguleika til að koma skoðun- um sinum á framfæri eins og karlarnir. Greinar eftir karlmenn eru margfaltfleiri en eftir konur. En um það þýðir litið að sakast við fjölmiðlana. Þetta er tækifæri sem blöðin veita lesendum sinum. Ef konur eru tregar til að nýta það tækifæri, þá er litið við þvi að segja annað en aö itreka, að mögu- leikarnir eru fyrir hendi. Tengsl við fjölmiðla er mikilvægur LIDUR i STÖRFUM SAMTAKA OG AHUGAHÓPA, SEM VILJA KOMA VIÐHORFUM SÍNUM A FRAMFÆRI, Afleiðingin er sú, að fjölmörg fyrir- tæki og samtök hafa ráðið til sin sérstaka menn til þess að annast samskiptin við fjölmiðla. Slikir blaðafulltrúar geta unnið ómetanlegt starf. Á það var bent á áðurnefndri ráðstefnu, að þau samtök, sem vinna að jafnrétti karla og kvenna, gætu vafalaust fengið meira rúm fyrir baráttumál sin og fréttir af starfsemi sinni en nú er. Það er mik- il samkeppni um takmarkað rými i fjölmiðlum og þess vegna mikilvægt að færa mál sin i þann bún- ing, sem aðgengilegur og áhugavekjandi er. Slikt starf skilar tvimælalaust árangri. *TAÐ ER VAFALAUST HÆGT AÐ AUKA HLUT KVENNA i FJÖLMIÐLUNUM. Það á bæði við um greinaskrif, viðtöl og fréttir af starfsemi samtaka, sem berjast fyrir jafnrétti og sérstökum málefnum kvenna. Hvort svo verður er að verulegu leyti undir konum siálfum komið. En hins vegar er ekki að búast við þvi, að heimildarmenn almennra frétta dagblaðanna verði konur til jafns við karla fyrr en hægt er að hringja i segjum helming islensku ráðherranna, ráðuneytis- stjóranna, forstjóranna, formannanna og annarra áhrifamanna og hitta þar fyrir konur. Leiðin til jafnréttis hlýtur að felast i þvi að koma slikri grundvallarbreytingu i framkvæmd. —ESJ Elías Snæland Jónsson skrifar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.