Tíminn - 25.04.1982, Qupperneq 10

Tíminn - 25.04.1982, Qupperneq 10
ÍO Sunnudagur 25. apríl 1982 Til sölu Subaru station árgerð 1980 fjórhjóladrifinn. Billinn er ekinn 10 þús. km. og er sem nýr. Verð kr. 110 þús. staðgreitt. Upplýsingar i sima 40033. H Frá Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla, Seltjarnarnesi Innritun nýrra nemenda fer fram i skólun- um þriðjudaginn 27. april n.k. kl. 9-15. Innritun i forskólabekkinn og 1.-6. bekk i sima 17585 i 7.-9. bekk i sima 27744. Skólastjórar Félag járniðnaðarmanna FELAGSFUNDUR verður haldinn miðvikudaginn 28. april 1982 kl. 8.30 e.h. að Hótel Esju, 2. hæð. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. Kosning fulltrúa á 10. þing M.S.Í. 3. Kjaramálin 4. Önnur mál Mætið vel og stundvislega Stjórn Félags járniðnaðarmanna. Hestamenn Stykkishólmi og nágrenni Hafið þið athugað að reiðtygin frá ÁSTUflD SÉRVERSLUN HESTAMANNSINS fást í Stykkishólmi hjá Kaupfélagi Stykkishólms Þeir ve/ja vandað sem ve/ja reiðtygin frá ftSTUnD SÉRVERSLUN HESTAMANNSINS |Háaleitisbraut 68 Sími 8-42-40 | DREYPIFÓRN ■ Ég get ekki aö þvi' gert: mér kemur dálitið skrýtilega fyrir sjónir þetta afmæli rithöfundar- ins úr Mosfellssveit. Attræður já, og kominn langan veg, en ég hall- ast helst að þvi að Halldór Lax- ness hljóti að vera eilifur. Þá á ég ékki einungis við bækur hans sem auðvitað verða lesnar meðan dagur ris f þessu landi, heldur er maðurinn sjálfur orðinn óað- skiljanlegur hluti íslenskrar menningar, að ekki sé minnst á þjóðarsálina — ef svoleiðis fyrir- bæri er þá til! Halldór sagði i blaðaviðtali um daginn að enn hefði hann, sem betur færi, ekki verið tekinn i guðatölu, og það má verabæöi sattog réttaðhonumer ekki reist ölturu svo vitað sé og ekki færðar dreypifórnir nema þá á prenti. En svo langt aftur sem ég man eftir mér (játa fúslega að það er ekki langur tfmi) hefur Halldór Laxness verið einn fastastur púnktur í tilverunni, ef svo má að orði komast og jafnvel áður en ég las staf eftir manninn þótti mér ekki f jarri lagi að lita á hann sem ágætan kunningja og hefur sá vinskapur náttúrlega vaxið stórum eftir því sem ég hef orðið betur læs. Ætli það hafi ekki býsna margir sömu eöa svipaða sögu að segja? Altént: maður sem hefursett á bók alla islensku þjóðina eins og hún leggur sig, allar hugsanir hennar, reynslu og einkenni, og sé þessi maður þar á ofan heimsborgari f allra besta skilningi þess orðs — þá hlýtur hann eiginlega aö vera eilifur, eöa þvi sem næst. Erik Sönderholm, danskur maður og höfundurmonografi um Laxness, varpaði fram athyglis- verðri spurningu i grein sem hann ritaði i Morgunblaðiö og birtist á fimmtudaginn var. Hvað hefði orðið ef Halldór Laxness hefði á sinum tima kosið aö feta i fótspor Jóhanns Sigurjónssonar, Gunn- ars Gunnarssonar og fleiri is- lenskra rithöfunda sem skrifuöu á dönsku af hégómaskap elleger misskildum metnaði? Halldór hefur að vfsu sjálfur tekiö fram oftar en einu sinni aö slikt hafi aldrei komið til greina, en spyrj- um samt: hvað hefði orðið? Ég má ekki til þess hugsa! Þó þaö kunni ef til vill að virðast helsti hástemmt lof um einn mann þá ætla ég aðtaka svostórt upp i mig aðfullyrða aðánHalldórs væri is- lensk menning ekki sú sem hún nú er, og snöggtum fátækari i ofaná- lag. Þá ekki aðeins af snilldarvel samansettum bókum, heldur hefur maðurinn einnig haft þvflik áhrif á hugsanir oldtar og þánka- gang allan aö það verður ekki metið fyrr en á tuttugustuogann- arri öld ef nokkurn tfma. Þetta get ég sagt með góða samvisku, enda þótt mér falli, privatog per- sónulega, misvel við bækur hans, hverja fyrir sig: sem er eðliíegt. En ég sé ekki annað en við getum slegið þessu föstu og bæði af- mælisbamiö frá þvi i gær og aðrir verða að gera svo vel að sætta sig við það. Þeir eru vissulega til, og meðal ungs fólks lika, sem hafa ekki lesið eitt einasta orð eftir Halldór Laxness og munu kannski aldrei gera. Þeir um það. En reyni þeir bara að halda þvi fram að þeir séu með öllu friir við skugga hans! Meðþessum oröum er ekki litið lagt á einn mann en hann hefur fyrir löngu sýnt að hann hefur sterk bein. Það er tilmarksum þetta að nú er mjög tæpt á þvi' hver áhrif skoðanir hansí pólitík eða jafnvel trúmálum hafi haft á samferða- mennina. Þau voru vist mikil. Meira viröi hygg ég samt að séu almennariáhrif,áhrif sem snerta kvikuna i fyrrnefndri þjóðarsál. Vist erum við furðanleg þjóð, ís- lendingar, eins og viö þreytumst liklega seint á að tyggja hver ofan i annan. Nokkrar hræður úti i hafi, það erum við með glæsta fortið á kálfskinni en myrkar miðaldir siðan og áttum og eigum enn erfitt með aö fóta okkur á hálu svelli nútiðarinnar. Langt i frásistan stuöning höfum viðhaft af Halldóri sem hefur verið óspar á gagnrýni og það haröa gagn- rýni, svo enn er til fólk sem fussar og sveiar er það heyrir hans minnst, tautandi jafnframt: „Sjálfstætt fólk!” eða annað i þeim dúr. Við höfum hins vegar ekki haft nema gott eitt af þessari gagnrýni, eða þeirri uppörvun sem einnig kom og kemur úr pennanum. Ég hef þetta úr skrif- um annarra manna, ég viður- kenni þaö, er. þykist sjálfur viss um að margt sé skárra en þaö væri ef Halldór Guöjónsson hefði aldrei verið til, eða þá skrifað á dönsku. Hástökkvari sem fer léttilega yfir fjóra metra og til hvers þá að reyna sifellt við skitna tvo? Ja, það hefur áreiðanlega margt vit- lausara verið sagt eða skrifað i tilefni afmælisins en þetta eilitið frumlega samliking Péturs Gunnarssonar. Maður sem hefur hrist fram úr erminni karakter eins og Jón Hreggviðsson og skrifað bækur á borð við Gerplu, tslandsklukkuna — svo ég nefni aðeins þær sögur sem sjálfum mér eru efetar i huga þessa stundina, og gáið að þvi að sum bestu dæmin um stilsnilld Hall- dórs er að finna i greinum hans og ritgerðum — er ekki hætt við að slikur maður drepi i dróma alla þá ritlist i landinu sem ekki ris jafn hátt? Svo hefur nú að visu ekki farið, en verða ekki skrif annarra höfunda sem blek- iðnaður, hrafnaspark i saman- burði? Og er yfirleitt hægt að mæla hann alveg sömu einingum og aðra? Fávíslegar spurningar, geri ég ráð fyrir og verður ekki svarað. Það er á hinn bóginn laukrétt sem Málfriður Einars- dóttir — sú dásamlega kona! — sagði i sjónvarpsþætti að sérhver islendingur hneigist til að dæma Laxness út frá sjálfum sér. Þannig má til að mynda tala um hann i hálfkæringi eins og gamla hátimbraöa höll — en fyrir mína parta ætla ég ekki að draga neina dul á aðég verð alltaf jafn hissa i hvert sinn sem ég opna eftir hann bók, hissa á að þessi maöur skuli vera til.ogaöhann skrifiíslensku á þennan hátt. Þeim mun sár- grætilegra þykir mér að fullnaðarviðkenningu fékk hann vistekki hérlendis fyrr en nokkrir menn i Stokkhólmi komu sér saman um að gefa honum verö- laun.og einshitt að hér séu ennþá menn sem tala helst ekki um hann nema sem „Nóbelskáld”. Hver var eiginlega þessi Nóbel? Halldór Laxness er á sinn hátt skáld heimsins alls, en umfram allt er hann okkar skáld. Og veröur. Illugi Jökulsson, blaöamaður, skrifar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.