Tíminn - 25.04.1982, Page 25
Sunnudagur 25. aprfl 1982
25
á bókamarkadi
i\
TheOrignisoftheCoklWar3ncl m
the NationalSecurityState W
HATTERED
PEACE
Dan>el Yergin:
Shattered Peace
Penguiin / Pelican 1981
■ Bókin hefst á Yalta þar sem
Stalin, Churchill ogRoosev elt
ræddu saman árið 1945 um
hvernig heimurinn skyldi lita
út eftir stríö. Stalin lét svo um
mælt eftir fundinn að friður
myndi haldast milli Banda-
manna svo lengi sem þeir þrir
væru allir við völd. En þar var
ekki lengi. Roosevelt dó
skömmu siðar, mjög óvænt, og
Churchill féll i kosningum, á-
lika óvænt, svo Stali'n var einn
eftir. Og ófriðarblikur voru á
himninum. Kaldastriðiö hófst.
Hér rekur Daniel Yergin or- •
sakir þess á ákaflega ná-
kvæman og visindalegan hátt
en auðnast jafnframt aö gera
frásögnina bæði læsilega og
spennandi. Hann er ákaflega
hlutlaus i málflutningi sinum,
vill hvorugum aðila kenna al
gerlegaum hvemig fór — báö-
iráttu sina sök. Bókin einbeit-
ir sér að timanum milli Yalta
og loftbrúarinnar til Berlin —
mjög fróðleg bók...
Chapman. Pincher:
Their Trade is Treachery
Sidgwick & Jackson 1982
■ Bök um allar þessar enda-
lausu njósnir Sovétmanna á
Englandi — er þetta orðið dá-
litið þreytandi? En þessi bók
vakti gifurlega athygli er hún
kom út á Bretlandi i fyrra,
Pincher sakar sem sé Sir Rog-
er Hollis, fyrrum yfirmann
MI5, gagnnjósnadeildarinnar
þar I landi, um aö hafa verið i
þjónustu RUssa, rett eins og
Philby, Blunt, Maclean, Bur-
gess og allt þaö pakk.. Nema
hvað Roger Hollis er löngu
dauður og gat ekki svarað
fyrirsig. Thatcher gaf þinginu
skýrslu, kvað málið hafa
veriö rannsakaö en ekkert
komiðiljós sem benti til sekt-
ar hans. Margir urðu til að
saka Pincher um æsifrétta-
mennsku og ónákvæm vinnu-
brögð, maður hneigist sem
sérfræðingur i faginu til að
taka undir þaö... En bókin er
jú fróöleg, gefur á tiðum
ágæta mynd af þvi undarlega
samfélagi sem njósnarar
byggja...
AHce'sAöventures
In Wonderland &
Throughthe
£ Looking-Glass
by Lewis Carroll
William Golding:
Rites of Passage
Faber & Faber 1982
■ Þessi nýjasta skáldsaga
Goldings þykir aðgengilegri
öllum almenningi en bækur
hans hafa verið, æ siðan Lord
of the Flies kom út. Hún kom
út á Bretlandi i fyrra og fékk
mikið lof gagnrýnenda, sem
veittu henni hin eftirsdttu
Booker-bdkmenntaverðlaun,
og almennings.Golding sagði
sjálfur um bókina að hún væri
„einhvers konar sjó-saga” og
má það til sanns vegar færa.
Hún gerist fyrir sirka 150 ár-
um eöa svo, um borö i gömlu
herskipi Breta sem nú flytur
farþega til Astraliu. Söguna
segir Edmund Talbot, ungur
yfirstéttarstrákur, i formi
ferðasögu til guöfööur sins, og
ber margt til tiðinda. Persón-
ur eru margar og liflegar, frá-
sögnin oft mjög skemmtUeg
og Golding kann hvaö sem
öðru liður að skrifa góða
ensku. Þaö segir sig sjálft að
söguna má skoða táknrænum
skilningi, siglingin veröur e.k.
ferðalag gegnum lifið, mann-
dómsvigsla stráksins...
Lewis Carroll:.
Alice’s Adventures in Wonder-
land & Throughi the Looking-
Glass and What Alice Found
There
A Bantam Classic /
Bantam Books 1982
■ Bandariska forlagið Bant-
am hefur nýlega hafiö útgáfu
á ýmsum klassískum bókum
Vesturlanda og Mál og menn-
ing hefur flutt þærinn i stórum
stil. Að sjálfsögðu hlaut Lisa i
Undralandi aö vera meöal
þeirra bóka sem valin var til
útgáfu i þessum flokki, þó það
nú væri. Þess má og geta að
útgáfan er mun vandaöri
(betri pappir og svo framveg-
is) en titt er um bandariskar
pappírskiljur, og hana prýða
að sjálfsögöu hinar ódauðlegu
myndir John Tenniel sem
mega heita óaðskiljanlegar
frá sögunni. Mér verður ekki
meira sagt um Lisu i Undra-
landi, við hvetjum bara alla
þá sem hafa látið bókina fram
hjá sér fara að kynna sér hana
hið bráðasta.
■ Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Bókabúö Máls og
menningar. Tekið skal fram aö hér er um kynningar að ræöa en
öngva ritdóma.
51
Si'ii'i’*
ÉG BYRJAÐI
1. OKTÓBER
— ÞETTA ER
EKKERT MÁL
||U^FERÐAR
SLEPPIR ÞÚ
BENSÍNGJÖFiNNI
VIÐ MÆTINGAR
AMALARVEGUM?
Laus staða
Kennarastaða i islenskum fræðum við Menntaskólann að
Laugarvatni er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, *
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik fyrir 21. mai n.k. — Um-
sóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráöuneytið
21. april 1982
Lausar stöður
Við Menntaskólann á Akureyri eru lausar til umsóknar
fjórar kennarastöður. Kennslugreinar: islenska, saga,
efnafræði, eðlisíræöi, liffræði og stærðfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og stört skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik fyrir 21. mai n.k. — Um-
sóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamáiaráðuneytið
21. april 1982
Laus staða
Staða aðstoðarskólastjóra við Menntaskólann við Hamra-
hlið er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Samkvæmt reglugerð er gert ráð fyrir að aðstoðarskóla-
stjóri sé ráðinn til fimm ára i senn úr hópi fastra kennara
á framhaldsskólastigi.
Umsóknir, með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og
störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 101 Reykjavik fyrir 21. mai 1982. Umsóknareyðu-
blöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytiö
21. april 1982
Fjórhjóladrifnar dráttarvélar
70 og 90 ha.
Kynnið ykkur verð og kosti
BELARUS
O
Guðbjörn Guðjónsson
heildverslun
Kornagarði 5 — simi 85677.
§