Tíminn - 08.04.1982, Page 23
'jH.U.Hi.lll.1
Fimmtudagur g. april 1982
23
bókamarkadi
Virafco Modorn Uassic s
Rosamond Lehmann
John Fraser: The Chinese —
Portrait of a People. Fontana
1982.
Höfundurinn, John Fraser
var i tvö ár, milli 1977 og 79
fréttaritari kanadfska stór-
blaðsins „Globe and Mail” i
Peking. Reyndar var hann
nokkuð óvenjulegur maður i
þvi hlutverki.áður hafði hann
nefnilega starfað sem leik-
húss- og dansgagnrýnandi
blaðsins. 1 Kina varð Fraser
vitni að miklum umbrotum i
sögu alþýðulýöveldisins, þetta
var timi harörar valdabaráttu
og uppgjörs við arfleifð Maös
formanns og Fraser naut þess
að um hrið var stefnan sú að
opna landið upp á gátt fyrir
vestrænum áhrifum og þvi
gátu útlendingar á borð við
hann komist i nánari kynni við
innfædda en áður hafði
tiðkast. Þetta var lika enda-
sleppt vor mál- og tjáningar-
frelsis í Kinaveldi, timi hins
svokallaða „lýðræðisvegg” og
mótmælaaðgerða á götum úti.
Bók Frasers er þvi merkur
vitnisburður um innri þróun
og togstreitu meðal þessarar
dularfullu þjóðar sem telur
um fjórðung mannkyns og
hann gerir efninu skörp og
persónuleg skil.
Gloria Swanson: Swanson on
Swanson. Hamlyn 1981
Ævisögur kvikmynda-
stjarna skærra og fölnaðra lita
dagsins ljós meö reglulegu
millibili og virðast vera gúll-
trygg söluvara. Ég tala nú
ekki um ef þær ljóstra upp um
eitthvað misjafnt á ferli
stjörnunnar. Muna menn ekki
eftir Gloriu Swanson? Jú, hún
var mikil filmstjarna á tima
þöglu myndanna, ein af ást-
konum veraldarinnar, kona
sem var fyrirmynd milljóna
kvenna og draumadis ekki
færrikarlmanna. En Swanson
náði ekki að stökkva Ur þöglu
myndunum yfir í talmyndirn-
ar, þó hún virðist hafa tekið
þvimeðmeiriyfirvegun en titt
var. En ferill hennar var æði
litrikur og i aðra röndina er
þessi bók eðlilega saga Holly-
woodborgar á uppgangsskeiði,
hér koma við sögu frægar
filmstjörnur og leikstjórar að
ógleymdum sex eiginmönnum
Gloriu og ástmanni hennar
einum, sem var enginn annar
en Joseph Kennedy ættfaðir
þess mikla slektis. Arið 1950
árri Gloria Swanson sfðan
nokkuð „come back” i hlut-
verki aldraðrar kvikmynda-
drottningar i „Sunset Bouie-
vard” f rægri mynd Billy Wild-
ers um kvikmyndaiðnaðinn.
Sú mynd veröur einmittsýnd i
sjónvarpi nú um helgina.
Gloria Swanson er enn á lifi á
niræðisaldri — málglöð svo
maður segi ekki kjaftfor,
kona...
Rosamond Lehmann: The
Weather in the Streets. Virago
1981
Bókaverslun Máls og
menningar hefur nýverið
fengið væna sendingu af bók-
um frá breska kvennaforlag-
inu Viragos Press (virago er
latina og þýðir kvenskass).
Þetta forlag var stofnaö fyrir
fáeinum árum og hefur aö
markmiöi að gefa út gamlar
og nýjar bækur um og eftir
konur, væntanlega til að striöa
mót karlveldi i menningu og
bókmenntum. Flestir af titl-
unum i Máli og menningu eru
úr ritröðinni „Virago Modern
Classics”, en það eru einkum
bækur eftir breska kvenhöf-
unda frá fyrri hluta þessarar
aldar. Þessi bók er ein af
mörgum bókum Rosamond
Lehmann sem Virago hefur
gefið út en hún fæddist árið
1901, systir leikkonunnar
frægu Beatrix Lehmann og
rithöfundarins John Leh-
mann, hóf rithöfundarferil
sinn ung af árum, hefur siðan
gefið út fjölda bóka og er enn
að. Þetta er nokkúð óvenjuleg
ástarsagaum konu sem er að
komast á miðjan aldur og á að
baki sér misheppnað hjóna-
band. Siðan ber svo viö að hún
verður ólánlega ástfangin i
æskukunningja si'num, mikl-
um hjartaknosara sem i
ofanálag er giftur. Ast þeirra
nær þvi hvergi aö dafna nema
i skúmaskotum, i lffi hennar
skiptast á stuttir og heitfengn-
ir ástarfundir og langar
stundir einveru milli vonar og
ótta. Þetta ernæmlega skrifuö
bók um sársauka og þjáningar
og höfundurinn fellur aldrei i
þá gildru að verða væminn eða
viðkvæmnislegur.
Eric Ambler: The Care of
Time. Fontana 1982
Eric Ambler (f. 1909) hefur
veriö aö skrifa spennubækur
og reyfara i' rúm fimmtiu ár
og að margra viti af óvenju
mikilli iþrótt. Þó er stundum
haft að orði að hann hafi
skrifað bestu bækur sinar á
4ða áratugnum,en hann hefur
þó verið að æ siðan og i fyrra
kom út þessi nýjasta bók hans
— „The Care of Time”. Þetta
er saga af bandariskum rit-
höfundi Robert Holliday sem
i upphafi bókar er varaður við
þvi aö hann eigi von á
sprengju i pósti. Tveimur dög-
um siðar kemur sprengjan
skilvislega. Annars er Halli-
day þessi aö vinna aö bók um
terrorisma en þegar liður á
söguna erhann sjálfur kominn
á kaf i blóðsúthellingar og
önnur stórmerki,meöal annars
færhann heilan austurlenskan
eiturlyfjahring upp á móti sér.
Það hefur kannski ekkert upp
á sig að reyna aö lýsa sögu-
þræöinum nánar — Ambler
skrifar altént harðsoöinn og
kaldrifjaðan stil auk þess er
lengdin á bókum hans innan
skynsamlegra marka, nokkuð
sem ekki verður sagt um ame-
riska kollega hans. Hann er
óneitanlegaeinn af þeim betri
á sviði glæpasagna og það eru
enginsérstök ellimerki á þess-
ari bók.
■ Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Bókabúð Máls og
menningar. Tekið skal fram að hér er um kynningar aö ræöa en
öngva ritdóma.
I
>
<
m
J3
Ertu að byggja? Viltu breyta? Þarftu að bæta? |
>
<
m
J3
>
<
m
jj
>
<
m
jj
>
<
m
J3
dPLITAVER AUGLYSIR
Teppi
■
Nylon-Akríl-Filtteppi.
Akríl + Ull-Ullarteppi.
Stök teppi-Mottur-Baðteppi
Gólfdreglar-Baðmottusett
Gólfdúkar
Ný þjónusta
Sérpöntum:
Ullar-Akríl-Nylon teppi
Líttu við í Litaver
því það hefur ávallt borgað sig
OPIÐ: Til kl. 7 á föstudögum. Grensásvea 18
Til hádegis á laugardögum. ------
Hreyfilshúsinu nr> m m .
Simi 82444
>
<
m
33
2
<
m
J3
I
>
<
m
J3
>
<
m
J3
m
J3
i LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER i
| ■ ^ Hinir velþekktu 300 og 800
AlÍCOnijíitra áburðardreifarar
fyrirliggjandi
Dreifararnir eru úr tæringarfríu efni/
stillanlegri dreifibreidd frá 6—14 m og
hleðsluhæð er aðeins 94—100 cm.
Vicon áburðardreifarinn er búinn öflug-
um hrærara í botni, og reikningsstokkur
fylgir til útreikninga í áburðarmagni
miðað við mismunandi gerð áburðar.
BÆNDUR ATHUGIÐ AÐ SAMKVÆMT
BÚREIKNINGUM 1980 VAR ABURÐ-
ARKOSTNAÐUR UM 15.1%. AF HEILD-
AR FRAMLEIÐSLUKOSTNAÐI BÚS-
INS. ÞAÐ ER ÞVI FULL ASTÆÐA TIL
AÐ VANDA VAL ÁBURÐAR-
DREIFARA.
Globuse
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555