Fréttablaðið - 08.12.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Uppáhaldshluturinn minn er
píanóið mitt. Ég spila bara fyrir
sjálfa mig og nýt þess að leika á
hljóðfærið og láta það leika viðmig. Því þetta er skk
gerðinni Petrof. „Petrof er
skemmtilegt nafn því ef maður les
það aftur á bak þýðir það íforte pi
þegar spilað hefur verið á þaðhafa áreiðanle
Píanó sem leikur á móti
Á svörtu og hvítu nótnaborði gamals píanós Bergljótar Arnalds flæðir litríkur skali tilfinninga í takt við
himneskan tónskalann, um leið og stafrófið allt og hið ótrúlegasta lifnar við í kátínu, gleði og söng.
Bergljót Arnalds spilar bara fyrir sjálfa sig á gamla Petrof-píanóið sitt, sem fylgt hefur henni hálfa ævina, en við nótnaborðið fær
hún uppörvun og gleði þegar kreppir að og semur fagrar tónsmíðar í sérstæðum hljómi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
JÓLAKORT sem eiga að fara til Evrópu í B-pósti eða
til landa utan Evrópu í A-pósti verða að fara í póst strax
í dag. Síðasti skiladagur jólakorta til Evrópu í A-pósti er
15. desember.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
fyrir
MatvinnsluvélMCM21B1, 450 W.Jólaverð: 19.900 kr. stgr.
TöfrasprotiMSM62PE, 750 W.Jólaverð: 12.900 kr. stgr.
Sjáið jólatilboðin áwww.sminor.is
fasteignir 8. DESEMBER 2008
Fasteignasalan Remax/Lind hefur til sölu parhús á tveim-ur hæðum ásamt bílskúr við Sölkugötu í Mosfellsbæ.
E ignin er samtals 250 fer-metrar. Neðri hæðin skipt-ist í þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, snyrting þh
varpshol, gang, hjónaherbergi með fataherbergi og útgengi á svalir og baðherbergi.Húsið er steypt á hefðbundinn hátt, sökklar, botnplata, útveggir, stigi, innri burðarveggir og gólf-plata efri hæðar eru staðsteyptBurðarvirki þ k
mahónílitaðir með þekjandi lit. Í gluggum er tvöfalt K-gler. Úti-hurð er úr oregon-furu eða ma-hóníi. Bílskúrshurð er hvít álhurð. Aðrar hurðir eru úr furu. Lóðin er grófjöfnuð. Bílastæði er meðarf lli
Svefnherbergi með svölum
Húsið afhendist fullbúið að utan en fokhelt að innan.
M
Bæjarhrauni 10 - Hafnarfirði - Sími 520 7500 - www.hraunhamar.is
Aðeins
ein íbú
ð eftir
- 100%
lán
Klukkuvellir 3 - HfAfnemum öll stimpilgjöld
Frábær fyrstu kaup• Gott aðgengi með lyftu• Glæsilegar innréttingar frá HTH• Eldhústæki frá AEG að vandaðri gerð• Öll gólfefni fylgja vandað parket og fl ísar frá Parka
• Fullkomið gólfhitakerfi • Halegonlýsing• Húsið klætt að utan með álkæðningu
• Hagstætt verð- Hagstæð greiðslukjör
3ja herb. 95 fm.Verð 23,5 millj. Til afhendingar strax.
Fasteignasala/ Leigumiðlun
Fasteignasala :: Lágmúla 7 :: 108 Reykjavík :: sími 535_1000
Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
8. desember 2008 — 336. tölublað — 8. árgangur
Mamma
segir,
mamma
segir
Í dag er síðasti
öruggi skiladagur
fyrir jólakort
utan Evrópu
www.postur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
8
-2
2
1
8
BERGLJÓT ARNALDS
Stafakarlalögin samin
á uppáhaldspíanóið
• heimili • jólin • koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
FASTEIGNIR
Parhús á tveimur
hæðum ásamt bílskúr
sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Í minningu
Rúnars
Bubbi Morthens
orti ljóð til
heiðurs Rúnari
Júlíussyni.
FÓLK 34
Horft yfir farinn veg
Loftur Guttormsson hefur ritstýrt
sögu um íslenska skyldumenntun
sem er hin fyrsta sinnar tegundar.
TÍMAMÓT 20
ÉL FYRIR NORÐAN Í dag verða
norðvestan 5-13 m/s, en 13-18 m/s
austan til. Bjart á Suðausturlandi
og yfirleitt úrkomulaust en stöku él
á Norðurlandi. Hiti víða í kringum
frostmark og niður í 6 stiga frost.
VEÐUR 4
-3
-5
-4
-1
1
FH vann bæj-
arslaginn
FH sigraði Hauka í
átta liða úrslitum
Eimskipsbikars
karla í gær.
ÍÞRÓTTIR 30
VEÐRIÐ Í DAG
VEÐUR „Maður er nú orðinn ragari
við að spá í þessa hluti en áður. En
ef maður leyfir sér aðeins að spá,
með öllum nauðsynlegum fyrir-
vörum, þá stefnir í hvít jól á Norð-
urlandi en rauð jól sunnanlands og
í borginni,“ segir Sigurður Þ.
Ragnarsson veðurfræðingur,
betur þekktur sem Siggi stormur.
Að sögn Sigurðar eru yfir fjöru-
tíu prósent líkur á að hiti verði
yfir meðallagi á sunnanverðu
landinu í desember.
Spurður hvort veðurfræð-
ingnum sjálfum hugnist betur hvít
eða rauð jól segist Sigurður lítið
spá í slík mál. „Veistu, mér er bara
alveg sama. Ég er ofsalega lítið
jólabarn. Ég kann best við mig í
sólarlöndum. Ég hef haldið jól og
áramót á Spáni og það er ekki
síðra, skal ég segja þér, að þurfa
ekki að dúða sig allan upp áður en
maður fer út.“
Sigurður segir þetta þó nokkurt
hitamál hjá mörgum Íslendingum.
„Mín reynsla er sú að stór hluti
þjóðarinnar gerir miklar kröfur
um hvít jól í 24 tíma frá klukkan
18 á aðfangadag til klukkan 18 á
jóladag, og svo búið og basta og
ekki orð um það meir,“ segir Siggi
stormur. - kg
Sigurður Þ. Ragnarsson telur nokkrar líkur á rauðum jólum í höfuðborginni:
Stefnir í hvít jól á Norðurlandi
SVÍÞJÓÐ, AP Upplýsingaflóðið á
Internetinu hefði hugsanlega
komið í veg fyrir að Adolf Hitler
og nasistasveitir hans hefðu
nokkurn tímann
komist til valda,
segir Jean-
Marie Gustave
le Clezio,
Nóbelsverð-
launahafi ársins
í bókmenntum.
„Ef Netið
hefði verið til á
þeim tíma, þá
hefðu glæpsam-
leg áform Hitlers hugsanlega ekki
náð fram að ganga,“ sagði hann í
ræðu í Stokkhólmi í gær.
Hann segir að með Netinu hafi
heimurinn eignast öflugt tæki til
að koma í veg fyrir átök.
Nóbelsverðlaunin verða afhent
í Stokkhólmi á miðvikudag. - gb
Franskur Nóbelshafi:
Netið getur
stöðvað stríð
JEAN-MARIE
GUSTAVE LE CLEZIO
FÓLK Almenningi gefst kostur á að
njóta jólatónleika á vegum
tónlistardeildar Listaháskóla
Íslands fyrir jólin. Tónleikarnir
verða sendir beint út á vefsíðu
skólans.
Þetta er í fyrsta skipti sem
slíkar útsendingar fara í loftið en
það eru nemendur í upptöku-
stjórnun sjá um tæknihliðina.
Tilgangurinn er tvíþættur; að
nemendur í upptökustjórn öðlist
reynslu og að tónlist nemenda nái
eyrum sem flestra. - ve / sjá allt
Listaháskólanemar í jólaskapi:
Jólatónlist send
út á Netinu
VIÐ UPPTÖKUSTJÓRN Jólatónleikar Lista-
háskólans verða aðgengilegir á Netinu.
VIÐSKIPTI Vonir standa til þess að
samningar takist á næstunni við
erlenda kröfuhafa íslensku við-
skiptabankanna um að þeir komi að
eignarhaldi nýju bankanna að ein-
hverju eða öllu leyti. Boðað hefur
verið til samningafundar með full-
trúum erlendra lánardrottna hér á
landi á fimmtudag í því skyni, þar
sem hugmyndin er að kynna leiðir
til að greiða fyrir uppgjöri með
þessum hætti.
Innan stjórnkerfisins hefur verið
rætt um þann möguleika að eftir
slíka samninga geti nýja Kaupþing
orðið að verulegu eða öllu leyti í
eigu erlendra aðila og hinn nýi Glitn-
ir að einhverju leyti. Flóknara gæti
reynst að fá erlenda kröfuhafa að
eignarhaldi hins nýja Landsbanka í
ljósi deilna sem hafa staðið um upp-
gjör vegna Icesave-innlánsreikn-
inganna, en það hefur þó ekki verið
útilokað.
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir
því að stjórnvöld vilji hraða þessari
vinnu eins og kostur er í því skyni
að efla bankastarfsemi í landinu og
koma hjólum atvinnulífsins í gang á
nýjan leik. Í aðgerðaáætlun sem for-
sætisráðherra og utanríkisráðherra
kynntu á dögunum til stuðnings fyr-
irtækjum var beinlínis lýst yfir vilja
til þess að greiða fyrir uppgjöri við
erlenda kröfuhafa með því að bjóða
þeim hlutafé í nýju bönkunum,
meðal annars í því skyni að tryggja
endurfjármögnun þeirra, fjölbreytt-
ara bankaumhverfi og greiða fyrir
erlendum lánaviðskiptum innlendra
aðila og erlendra banka.
Til skoðunar hefur verið í þessu
ljósi að steypa saman nýja Kaup-
þingi og danska bankanum FIH,
sem var áður dótturfélag gamla
Kaupþings. Seðlabanki Íslands tók
hlutabréf í bankanum sem veð fyrir
þrautavaraláni Kaupþings skömmu
fyrir fall bankans og eftir það er
danski bankinn nú eign íslenska rík-
isins. Er hugmyndin sú að samein-
aður banki gæti orðið álitlegri
rekstrareining í augum erlendra
kröfuhafa. - bih
Erlendir aðilar gætu
eignast Kaupþing
Efnt verður til fundar með fulltrúum erlendra kröfuhafa í bankana að nýju á
fimmtudag. Vonast eftir samningum um verulegt erlent eignarhald í Glitni og
Kaupþingi á næstunni. Til skoðunar að sameina Kaupþing og hinn danska FIH.
Í amerísku
raunveruleika-
sjónvarpi
Berglind Ólafsdóttir í
hlutverki veiðimanns
á Sci-Fi Channel.
FÓLK 34
HEIMS UM BÓL Fátæk börn frá bænum Maraisburg í Suður-Afríku fengu far með „jólasveinabíl“ í árlegri jólagleði sem haldin var í
gær. Rétt rúmlega tvær vikur eru nú til jóla og víst að börn víða um heim eru farin að hlakka mikið til. NORDICPHOTOS/AFP