Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 34
P
IP
A
R
• S
ÍA
P
IP
A
R
•
S
ÍA
Opið til kl. 18.00 laugardag
afsláttur
af öllum nýjum vörum
um helgina
„Ég gerði fyrstu slaufuna núna í
haust en ég er svo nýjungagjörn
og vantaði eitthvað nýtt og
skemmtilegt skraut á mig sjálfa.
Eflaust er það frumhvöt allra fata-
hönnuða að búa til eitthvað nýtt
þegar maður er kominn með leiða
á öllu í kringum sig,“ segir Guð-
björg Jakobsdóttir fatahönnuður
og brosir.
„Mér þótti slaufuhugmyndin
prýðisgóð og hún hlaut góðar und-
irtektir, vakti eftirtekt og eftir-
spurn. Þannig að þegar kreppan
skall á þótti mér það bara kjörið
tækifæri til að gera eitthvað meira
úr þessu og setti ég allt á fullt eig-
inlega um leið og slæmu fréttirnar
tóku að berast,“ útskýrir Guðbjörg
áhugasöm og segir að hún hafi því
ákveðið að snúa vörn í sókn.
Slaufurnar má nota á ýmsan
máta. Þær er hægt að nota á barm-
inn, um hálsinn, í hárið eða sem
belti. „Slaufurnar eru tilvaldar til
að flikka upp á gamla jólakjóla en
annars er um að gera að láta hug-
myndaflugið ráða. Ég útbý tvenns
konar slaufur. Annars vegar eru
það fíngerðar silkislaufur sem eru
fyrst og fremst hugsaðar um háls-
inn og svo beltisslaufur. Annars
má nota þær hvernig sem er,“
segir Guðbjörg og nefnir að ein-
faldur klæðnaður breyti algjör-
lega um svip með slaufunni.
Slaufurnar fást í alls konar
litum og mynstrum og eru hand-
gerðar úr silki. „Þær fást í Trilog-
iu á Laugaveginum og engin þeirra
er eins. Þær eru allar skrautlegar
og eru bara fyrir djarfar konur,“
segir Guðbjörg og hlær. „Við þurf-
um líka á litagleðinni að halda í
þessu ástandi.“ Hægt er að skoða
verk Guðbjargar nánar á vefsíð-
unni myspace.com/goodbjork.
hrefna@frettabladid.is
Flikkað upp á flíkurnar
Þegar ætlunin er að klæða sig upp á til hátíðarbrigða er fátt sparilegra en slaufur. Breyta má hversdags-
legum klæðnaði í spariföt á svipstundu með slaufum frá Guðbjörgu Jakobsdóttur fatahönnuði.
Guðbjörg skartar hér einni af slaufum
sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SOKKABUXUR eru mikið notaðar af kvenþjóðinni um jólin. Ágætt
er að eiga sokkabuxur fyrir ólík tilefni um hátíðarnar og jafnvel nokkrar auka
ef eitthvað kemur upp á þegar allar búðir eru lokaðar.