Fréttablaðið - 23.12.2008, Page 4
4 23. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Tæplega fertugur
Íslendingur situr nú í gæsluvarð-
haldi í Pattaya í Taílandi eftir að
lögreglan handtók hann með
amfetamín í fórum sínum.
Maðurinn var í leigubíl þegar
lögreglunni barst til eyrna að
hann væri með fíkniefni á sér.
Þegar maðurinn sá lögregluna tók
hann töflurnar og tróð þeim upp í
munninn. Lögreglan reyndi að ná
þeim út úr honum, en honum
tókst að gleypa þær. Þegar á
lögreglustöðina var komið sat
maðurinn og steinþagði hvernig
sem á hann var yrt. Þvagsýni sem
þá var tekið úr honum sýndi að
hann hafði neytt amfetamíns. - jss
Handtekinn í Taílandi:
Gleypti eiturlyf
í leigubílnum
VIÐSKIPTI Samkeppniseftirlitið
gerir athugasemdir við fyrirhug-
aðan samruna Árvakurs og 365
miðla. Verið er að skoða athuga-
semdir og vinna að svari, segir Ari
Edwald, forstjóri 365 miðla.
Samkomulag um að 365 miðlar
renni inn í Árvakur, útgáfufélag
Morgunblaðsins, er háð samþykki
Samkeppniseftirlitsins. Páll Gunn-
ar Pálsson, forstjóri eftirlitsins,
staðfestir að málið sé enn til með-
ferðar. Beðið sé upplýsinga frá
Árvakri og 365 miðlum, sem gefa
meðal annars út Fréttablaðið.
Ari segir að alltaf hafi legið
fyrir að Samkeppniseftirlitið
myndi setja skilyrði fyrir slíkum
samruna. Þá þurfi að meta skil-
yrðin út frá því hvað vinnist við
samrunann. Svör 365 miðla og
Árvakurs verði líklega ekki send
fyrr en eftir áramót. „Því fyrr sem
við getum unnið úr þeim hug-
myndum sem Samkeppniseftirlit-
ið hefur í sambandi við þetta mál
og svarað, því fyrr fáum við niður-
stöðu í þetta mál,“ segir Ari.
Fréttablaðið hefur verið prent-
að í Landsprenti, prentsmiðju
Árvakurs, frá því á föstudag. Ari
segir það ekki tengjast fyrirhug-
uðu samstarfi. Staðan á pappírs-
birgðum Ísafoldarprentsmiðju sé
með þeim hætti að rétt hafi þótt að
semja um tímabundna prentun hjá
Landsprenti. Fréttablaðið hafi
nokkrum sinnum áður verið prent-
að þar þegar það hafi hentað. - bj
Samkeppniseftirlitið gerir athugasemdir við samruna 365 miðla og Árvakurs:
Unnið að svari til eftirlitsins
PRENTUN Fréttablaðið hefur verið prent-
að í prentsmiðju Árvakurs undanfarna
daga sökum slæmrar stöðu á pappírs-
birgðum Ísafoldarprentsmiðju, segir Ari
Edwald, forstjóri 365 miðla.
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Ósló
París
Róm
Stokkhólmur
16°
9°
5°
4°
7°
9°
7°
6°
3°
5°
20°
11°
0°
22°
-2°
9°
14°
1°
4
4 4
3
2
5
5
6
6
5
1
18
15
10
8
13
8
15
8
16
20
10
AÐFANGADAGUR JÓLA
10-15 m/s
JÓLADAGUR
13-20 m/s vestan til
annars 8-13 m/s
6 7
VÆTUSÖM JÓL SUNNAN
OG VESTAN TIL
Það er runnin upp Þor-
láksmessa. Hún verður
hvöss norðvestan til í
dag en í kvöld verður
víða sunnanstormur á
vestanverðu landinu og
á miðhálendinu. Það er
aðfangadagslægðin sem
þá verður að störfum.
Í fyrramálið verður all-
hvöss suðvestanátt með
talsverðri rigningu sunn-
an og vestan til. Verulega
dregur úr úrkomu
eftir hádegi á morgun
og lægir heldur þótt víða
verði strekkingur.
3 0
-2
43
6
78
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Fjárhagsáætlun frestað
Borgarráð hefur samþykkt að fresta
afgreiðslu fjárhagsáætlunar Reykjavík-
urborgar. Síðari umræða og afgreiðsla
mun fara fram á fundi borgarstjórnar
6. janúar á næsta ári.
REYKJAVÍKURBORG
ALÞINGI Ríkissjóður verður rekinn
með meiri halla á næsta ári en
dæmi eru um í seinni tíð. Gjöld
ríkisins verða 154 milljörðum
króna hærri en tekjurnar. Þegar
fjárlagafrumvarpið var lagt fram
1. október var gert ráð fyrir rúm-
lega 60 milljarða króna halla. Við
hrun bankanna og efnahagsþreng-
ingarnar hefur gatið stækkað um
næstum 100 milljarða króna.
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra sagði við atkvæðagreiðslu
fjárlaganna í gærkvöldi að líklega
væri afstaðin fjárlagavinna sú
erfiðasta í sögunni.
Þegar frumvarpið var lagt fram
í október lýstu stjórnarandstæð-
ingar því strax yfir að forsendur
þess hefðu brostið um leið og það
kom úr prentun. Þó ekki hafi þeir
séð fyrir hrun bankanna og aðra
óáran höfðu þeir rétt fyrir sér.
Frumvarpið þurfti því svo gott
sem að vinna upp á nýtt. Raun-
verulegar forsendur breyttust
sem og nauðsynlegar þjóðhags-
spár.
Stjórnarandstaðan mótmælti
allar götur síðan vinnubrögðum
ríkisstjórnarinnar sem stýrði fjár-
lagavinnunni þar til alveg undir
það síðasta. Var þess krafist allt til
síðustu stundar að afgreiðslu fjár-
laga yrði frestað, gerðar yrðu
nauðsynlegar ráðstafanir til að
halda ríkisrekstrinum áfram og
nýtt frumvarp yrði unnið fyrir
miðjan febrúar.
Stjórnarflokkarnir fóru aðra
leið, þeir samþykktu fjárlögin.
Engu að síður er þeim ljóst sú
mikla óvissa sem einkenna mun
efnahagslíf næsta árs.
Fjáraukalög ársins 2008 voru
einnig samþykkt í gær. Breyta þau
áður samþykktum fjárlögum um
45 milljarða króna.
Við frestun þingfunda í gær-
kvöldi upplýsti Sturla Böðvarsson
þingforseti að til athugunar væri á
hans á vegum að fækka fasta-
nefndum Alþingis úr tólf í sjö.
bjorn@frettabladid.is
Fjárlagahalli upp á
154 milljarða króna
Fjárlög voru samþykkt í gær þó mikil óvissa ríki um forsendur. Fjáraukalög
skekkja fjárlög þessa árs um 45 milljarða. Þingforseti vill fækka fastanefndum.
LESIÐ, HLUSTAÐ, HUGSAÐ Óvenju margir voru í þingsalnum í gær. Þar eru stundum bara fjórir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL Hópur manna mætti
á Bessastaði í gær og hvatti Ólaf
Ragnar Grímsson forseta til að
skrifa ekki undir fjárlög frá
Alþingi.
Forsetinn bauð fólkinu upp á
heitt súkkulaði og ræddi við það
drykklanga stund, hátt í 40
mínútur. Fyrir utan fjárlögin bar
á góma þátt forsetans í útrásinni
síðustu ár. Að því loknu kvöddu
gestirnir en sögðu svör forsetans
hafa verið fremur fátækleg.
Ekki fæst uppgefið hvort
Ólafur Ragnar ætlar að verða við
beiðni fólksins, því hann hefur þá
starfsreglu að tjá sig ekki um
frumvörp sem eru til umræðu á
Alþingi. - kóþ
Mótmælt við Bessastaði:
Forsetinn bauð
upp á kaffi
ALÞINGI Edda Heiðrún Backman,
leikkona og leikstjóri, er ný í hópi
listamanna sem njóta heiðurs-
launa Alþingis.
29 listamenn fá slík heiðurslaun
sem nema 150 þúsund krónum á
mánuði. - bþs
Heiðurslaun listamanna:
Edda Heiðrún
fær heiðurslaun
ÞAU FÁ HEIÐURSLAUN
Auk Eddu Heiðrúnar
Atli Heimir Sveinsson
Ásgerður Búadóttir
Erró
Fríða Á. Sigurðardóttir
Guðbergur Bergsson
Guðmunda Elíasdóttir
Gunnar Eyjólfsson
Hannes Pétursson
Herdís Þorvaldsdóttir
Jóhann Hjálmarsson
Jón Nordal
Jón Sigurbjörnsson
Jón Þórarinsson
Jónas Ingimundarson
Jórunn Viðar
Kristbjörg Kjeld
Kristján Davíðsson
Magnús Pálsson
Matthías Johannessen
Megas
Róbert Arnfinnsson
Thor Vilhjálmsson
Vigdís Grímsdóttir
Vilborg Dagbjartsdóttir
Þorbjörg Höskuldsdóttir
Þorsteinn frá Hamri
Þráinn Bertelsson
Þuríður Pálsdóttir
Tjaldsjúkrahús til Tsjad
Norðmenn hafa ákveðið að senda
tjaldsjúkrahús til Tsjad ásamt 150
starfsmönnum. Um 1,2 milljónir
flóttamanna eru í Tsjad.
NOREGUR
VERSLUN „Það er ákveðinn hópur
fólks sem borðar alltaf skötu á
Þorláksmessu. Skötusalan er því
svipuð og síðustu ár en humar og
rækjur seljast ekki neitt,“ segir
Geir Vilhjálmsson, einn eigenda
fiskbúðarinnar Hafbergs við
Gnoðarvog í Reykjavík.
Geir segir greinilegt að
viðskiptavinir horfi meira í
aurinn en áður. „Mér sýnist vera
mikið um það að fólk slái saman
fyrir matnum í skötuveislunum í
ár,“ segir Geir. - kg
Slegið saman í skötuveislur:
Svipuð skötu-
sala og í fyrra
BRUGÐIÐ Á LEIK Algengt er að fólk slái
saman í skötuveisluna þetta árið.
GENGIÐ 22.12.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
217,5214
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
121,19 121,77
179,01 179,89
169,95 170,91
22,801 22,935
17,291 17,393
15,602 15,694
1,3464 1,3542
187,14 188,26
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR