Fréttablaðið - 23.12.2008, Page 6
6 23. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Reiðufé er vinsælasta jólagjöfin í
ár því allir halda að sér höndum og
bíða eftir útsölunum sem byrja
eftir áramót. Mörgum finnst hálf
ópersónulegt og glatað að gefa
peningaseðla og Valgerður Vigdís
Þráinsdóttir vildi nýta sér þjónustu
Kaupþings sem býður svokölluð
gjafakort. „Ég ætlaði að kaupa
gjafakort handa þremur börnum
fyrir tvö þúsund krónur á hvert
kort. Þegar upp komst að ég er ekki
viðskiptavinur bankans þurfti ég að
gjöra svo vel að borga aukalega 450
krónur fyrir hvert kort, sem sagt
1.350 krónur. Það sem hefði átt að
kosta mig 6.000 krónur hefði þá
orðið 7.350 krónur. Ég hætti
snarlega við allt saman.“
Það er auðvitað ekkert nýtt
að bankar geri betur við
viðskiptavini sína umfram aðra.
Hægt hefði verið að koma í veg
fyrir nokkrar fýluferðir ef skýrt
hefði verið tekið fram í kynningu
á þjónustunni að hún sé aðeins
ókeypis fyrir viðskiptavini í
Vexti Kaupþings. Að öðru leyti
er þetta ágætlega sniðug
þjónusta því kortið kemur í
gjafaumbúðum sem hægt er
að pakka inn í stærri pakka en
sem nemur einu plastkorti.
Neytendur: Um gjafakort Kaupþings
Bara frítt fyrir viðskiptavini bankans
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
Ertu sammála launalækkun
forseta Íslands?
Já 91,7%
Nei 8,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur afstaða flokka til eftir-
launafrumvarps áhrif á hvernig
þú kýst í næstu kosningum?
Segðu skoðun þína á Visir.is
STJÓRNSÝSLA Borgarráð hefur ekki
synjað ósk bílafyrirtækisins
Brimborgar um að fá að skila
atvinnulóð á Esjumelum eins og
sagði í Fréttablaðinu í gær held-
ur var afgreiðslu erindis fyrir-
tækisins frestað.
„Brimborg býst fastlega við að
borgarráð fari að lögum á endan-
um og greiði fyrirtækinu útlögð
gatnagerðargjöld í kjölfar skila á
lóðinni í samræmi við lög um
gatnagerðargjöld,“ segir Egill
Jóhannsson, forstjóri Brimborg-
ar.
Brimborg var úthlutað lóðinni
á Esjumelum árið 2006. Ætlunin
var að byggja þar framtíðarað-
stöðu fyrir
atvinnutækja-
sölu fyrirtæk-
isins og sölu
notaðra bíla
ásamt öðru. Nú
hefur Brim-
borg hætt við
þessi áform og
vill fá að skila
lóðinni og fá
113 milljóna
króna gatna-
gerðargjöld
endurgreidd.
Peningana vill Brimborg frekar
nýta til að styrkja fjárhag fyrir-
tækisins.
Að sögn Óskar Bergssonar, for-
manns borgarráðs, er Brimborg
með frestun afgreiðslu erindis-
ins gefinn kostur á að koma fram
andmælum við umsögn skrif-
stofustjóra framkvæmda- og
eignasviðs borgarinnar. Eins og
kom fram í Fréttablaðinu í gær
segir skrifstofustjórinn í umsögn
til borgarráðs að borginni sé ekki
skylt að taka aftur við lóð Brim-
borgar. Aðstæður fyrirtækisins
séu ekki sérstakari en annarra
sem glíma við núverandi efna-
hagsástand. Í bréfi lögmanns
Brimborgar kemur hins vegar
fram það sjónarmið að fyrirtæk-
ið eigi rétt á að skila lóðinni. - gar
Borgarráð hefur ekki afgreitt ósk Brimborgar um að skila 113 milljóna króna lóð:
Frestun en ekki synjun á lóðaskilum
22. desemb
STJÓRNSÝSLA Borgarráð hefur synjað Brimborg ehf. um að fá að skila 24 þúsund fermetra atvinnu-lóð á Esjumelum og fá 113 millj-óna króna gatnagerðargjöld end-urgreidd.
Lögmaður Brimborgar, Tómas Jónsson, telur fyrirtækið eiga skýlausan rétt á að skila lóðinni en Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri hjá framkvæmdasviði Reykjavík-urborgar, telur borginni ekki skylt að leysa lóðina til sín.Í bréfi til borgaryfirvalda rekur Tómas Jónsson þær áætlanir sem Brimborg hafði með lóðina sem fyrirtækið fékk úthlutað á Esju-melum í febrúar árið 2006. Þar hafi átt að vera framtíðaraðstaða sölu og þjónustu fyrir vörubíla, vinnuvélar og bátavélar auk sölu notaðra bíla og þjónustu við fólks-bíla. Þrátt fyrir mikinn samdrátt sem byrjað hafi í mars á þessu ári hafi Brimborg talið mögulegt að ljúka verkefninu. Forsendurnar hafi hins vegar brostið þegar bíla- og atvinnutækjamarkaðurinn féll eftir hrun bankakerfisins í byrj-un október.
„Telur umbjóðandi minn að það muni taka ár og jafnvel áratugi fyrir þann markað að ná aftur fyrri styrk. Þeir fjármunir sem fást við endurgreiðslu gatnagerð-argjalda verða að sjálfsögðu not-aðir í þeim tilgangi að styrkja fyrirtækið í þeirri varnarbaráttu sem fram undan er,“ segir lög-maður Brimborgar í bréfi sínu. Tómas bendir á að starfsmenn fyrirtækisins séu um 200 talsins og segir mikla áherslu hafa verið lagða á að vernda störf þeirra.
Að sögn Tómasar telur Brim-borg sig hafa skilað inn umræddri lóð 9. október. Það hafi verið 41 degi áður en borgarráð ákvað, 20. nóvember, að breyta verklagi við skil á lóðum.
Ágúst Jónsson hjá fram-kvæmdasviði borgarinnar segir
hins vegar að í lóðaskilmálunum hafi hvergi verið gert ráð fyrir að lóðarhafinn gæti einhliða skilað lóðinni til baka. Samþykkt borg-arráðs frá 20. nóvember hafi hins vegar aðeins verið árétting á fyrri skilmálum. Ástand efna-hagslífsins snerti alla og Reykja-víkurborg verði að gæta sinna hagsmuna. Aðstæður Brimborg-ar séu ekki svo sérstakar umfram aðra lóðarhafa að víkja beri frá almennum reglum vegna fyrir-tækisins.
Að tillögu skrifstofustjórans samþykkti borgarráð að synja Brimborg um skil á lóðinni.
gar@frettabladid.is
Brimborg fær ekki að skila 113 milljóna lóðReykjavíkurborg neitar Brimborg um að skila lóð á Esjumelum og fá 113 millj-ónir endurgreiddar. Lögmaður Brimborgar segir forsendur brostnar og bíla- og atvinnutækjamarkaðinn jafnvel verða áratugi að jafna sig eftir bankahrunið.
HJÁ BRIMBORG Í BÍLDSHÖFÐA Lögmaður Brimborgar segir fyrirtækið berjast við að
halda starfsólkinu og vilja fá gatnagerðargjöld á Esjumelum endurgreidd til að nota í
varnarbaráttu sem fram undan sé.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Telur umbjóðandi minn
að það muni taka ár og jafnvel áratugi fyrir þann markað að ná aftur fyrri styrk.
TÓMAS JÓNSSON LÖGMAÐUR BRIMBORGAR
FORSETINN Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur óskað eftir því að laun hans verði lækk-uð til samræmis við launalækkan-ir annarra ráðamanna.Forsetinn sendi fjármálaráð-herra bréf fyrir helgi þar sem hann, „vegna hins mikla vanda sem nú steðjar að þjóðinni“, fer fram á að laun sín verði lækkuð á sama hátt og laun forsætisráð-herra og forseta Alþingis, hand-hafa forsetavalds.
Í bréfi sínu vísar forsetinn til 2. málsgreinar 9. greinar stjórnar-skrárinnar sem kveður á um bann við skerðingu kjara forseta á kjör-tímabili hans. Slíkt ákvæði hafi verið sett til að vernda forsetann gagnvart löggjafar- og fram-kvæmdavaldinu. „Þetta ákvæði kemur hins vegar ekki í veg fyrirað for ti
launalækkun þegar þjóðarhagur kallar á lækkun launa fjölmargraan
aðstæður er bæði sjálfsagt oglegt að hið sama gildi um foann,“ segir í bréfi forsetans.Sigurður Líndal lagaprófetelur engin lagaleg rök mæla gþví að laun forsetans megi læmeð þessum hætti. „Ef þettaþáttur í almennum aðgerðumforsetinn óskar þessa sérstakleþá myndi ég skilja stjórnarskráþannig að þetta stæðist,“ seSigurður.
Alþingi samþykkti á laugardað beina því til kjararáðs að laalþingismanna og ráðherra lækum 5 til 15 prósent frá áramótuLaun forseta Íslands eru n1.827.143 krónur á mánuði. 15 prsenta launalækkun myndi þýða alaun forseta Íslands lækkuðuú l
Forsetinn óskar eftir launalækkun í samræmi við lækkanir annarra ráðamannÞjóðarhagur kallar á lækkun
FRÁ ÞINGSETNINGU Laun forseta Íslands gætu lækkað um rúmlega 274 þúsund, gangi 15 prósenta launalækkun æðstu embættismanna eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ingólfur, þurfið þið að vísa fólki í fjárhúsin um jólin?
„Er ekki allt fullt þar?“
Allar flottustur svíturnar á hótelum í Reykjavík eru bókaðar um áramótin. ngólfur Haraldsson, hótelstjóri á Nordica Hilton, þarf að sjá til þess að sá sem reiðir 125 þúsund krónur fyrir nóttina forsetasvítunni verði ánægður með völina.
SKOTLAND, AP Þess var víðí gær að rétt 20 ár voru liðþví risaþota Pan Am-flugfhrapaði á skoska smábæinLockerbie eftir að sprengjí þotunni. Alls fórust 270 mþar af ellefu á jörðu niðri. Þotan var á leið frá Heatflugvelli til New York þegasprengjan sprakk, rétt eftirað staðartíma 21. desemberGuðsþjónustur voru haldnarkirkjum í Lockerbie, sem ogHeathrow og vestanhafs. Árið 2001 var lýbískur leyþjónustumaður, Abdel Basseal-Megrahi, dæmdur í Haag aðild að tilræðinu. .
20 ár frá Lockerbie-ti
Athafnir au
hafs og vest
INDLAND Lögreg
höggi við skotg
menn í Taj Mah
Mumbai í fyrra
gestum að þeim
yfirgefa herberg
afleiðingum að þ
á morðingjunum
fólkið niður.
Talsmenn lögr
bug þessum ásök
fréttavefur BBC
hótelgestum sem
Alls féllu yfir 1
borgarar fyrir he
morðóðu hryðjuv
höfðu það eitt að m
drepa sem flesta.
Skotæðið í M
Lögreg
um afg
STJÓRNSÝSLA Margrét Frímanns-dóttir, forstöðumaður á Litla-Hrauni, vill halda áfram sem for-stöðumaður í fangelsinu.Dómsmálaráðuneytið auglýsti forstöðumannsembættið laust til umsóknar um helgina. Athygli vekur að í auglýsingunni eru engar kröfur gerðar um hæfni umsækj-enda. Ekki liggur fyrir hvort það þýði að engar sérstakar hæfnis-kröfur séu gerðar yfirleitt eða hvort þeirra sé einfaldlega ekki getið í auglýsingunni. Ekki tókst að fá svör frá Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra um þetta atriði í gærkvöld.
Margrét, sem er gagnfræðingur
og fyrrverandi alþingismaður, hefur gegnt embætti forstöðu-manns á Litla-Hrauni í afleysing-um frá 1. febrúar á þessu ári og
rennur það tímabil út 1. febrúar á nýja árinu. Frá því haustið 2007 hafði Margrét áður verið verktaki hjá dómsmálaráðuneytinu og starfað við hlið þáverandi for-stöðumanns.
Að sögn Margrétar er starfið á Litla-Hrauni bæði gefandi og skemmtilegt. „Það er langt síðan ég hef hlakkað til að fara í vinnuna á hverjum degi,“ segir hún.Margét býst við að margir sæki um embættið og kveðst ekki átta sig vel á möguleikum sínum til að halda starfinu. „Ég hef að minnsta kosti ekki fengið neinar kvartanir yfir mínum störfum,“ bendir hún á.
- gar
Embætti forstöðumanns á Litla-Hrauni auglýst án þess að gera hæfniskröfur:Margrét vill halda starfinu
MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR Forstöðu-maðurinn segist hlakka til hvers vinnu-dags á Litla-Hrauni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI „Við endurrlífsins er mjög mikiekki sömu aðilana h
at
he
af
eig
ge
tæ
tak
end
inn
Árm
Óla
alþium þingsályktunartillendurskoðun á samkepHann segir mikla fákeríkt á íslenskum marktil krosseignatengsla í eignarhaldsfélögum á Samson, Stoðir og FL-GHann segir menn þar í þáttum atvinnulífsins, hþað er bankastarfsemi,starfemi, smásöluverslufjölmiðlar.
Vill skoða samke
Jöfn tæki
endurreis
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON
NMÁL „Við vonum auðvitað ð takist að ljúka sem mestu gun [í dag] en það er aldrei að gefa nein ákveðin eit um þá framvindu,“ sagði Böðvarsson, forseti Alþing-störf þingsins fyrir jólahlé endur til 20. janúar. Á ndi í dag er lokaumræða rlagafrumvarp næsta árs a málið á dagskrá. Þess að ræða breytingar á m lögum frá 2003 um n ráðamanna, frumvarp ytingu á afnotagjöldum varpsins í nefskatt, auk gra breytinga á lagaheim-rir stimpilgjaldi af sendurritum. - gar
ngi í fjögurra vikna frí:
lja ljúka sem
estu fyrir jól
RLA BÖÐVARSSON Forseti Alþingis st til að störfum þingsins ljúki í dag.
kattar íslenska ríkisins legri olíu- og gasvinnslu æðinu verða allt að 59 tekjum sem olíulind-að því er kom fram á rkvöld. Þetta er lægra nn taka hæst en svipað jum og Kanada. „Lagt nnslugjald, sem á
illjónir tunna verður 5 fer síðan stighækk-p í 58 prósent af
sagði Stöð 2. - gar
á Drekasvæði í janúar:
skattur allt
9 prósent
FRÉTT BLAÐSINS
Í GÆR
Útvarpshúsið keypt
Ríkissjóði er heimilt að kaupa hús
Ríkisútvarpsins við Efstaleiti 1. Heim-
ild þess efnis er í fjárlögum næsta
árs. Til skoðunar er að ríkið yfirtaki
lífeyrisskuldbindingar RÚV og eignist
húsið í staðinn.
ALÞINGI
Hlýtur nafnið Fagfélagið
Sameinað félag Trésmiðafélags
Reykjavíkur og Félags bygginga-
manna Eyjafirði hefur hlotið nafnið
Fagfélagið. Félagið vinnur á Stór-
Reykjavíkursvæðinu utan Hafnar-
fjarðar og á Eyjafjarðarsvæðinu til
Siglufjarðar en þjónustar félagsmenn
hvar sem þeir vinna á landinu.
VINNUMARKAÐUR
HVERAGERÐI Ferðamannastaðnum
Eden hefur verið lokað þar sem
reksturinn í húsinu er farinn í
þrot. Sparisjóður Suðurlands
hefur auglýst fasteignirnar og
reksturinn til sölu eða leigu og
eru nokkrir aðilar að velta fyrir
sér að gera tilboð, að sögn Ólafs
Elíssonar sparisjóðsstjóra.
Hann býst við að reynt verði að
ná samkomulagi á næstu dögum,
helst fyrir áramót. Ólafur segir
að leigan nemi nærri 20 milljón-
um króna á ári en vill ekki segja
hverju ársveltan gæti numið.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjar-
stjóri í Hveragerði,hefur fullan
trú á að rekstur verði hafinn í
Eden innan tíðar. - ghs
Eden í Hveragerði:
Fór í þrot og
var lokað
EFNAHAGSMÁL Vísitala neysluverðs
hefur hækkað um 18,1 prósent
síðastliðna tólf mánuði, sam-
kvæmt nýjum útreikningum Hag-
stofunnar og hefur ekki hækkað
jafn mikið síðan í maí 1990. Verð-
bólgan nú hækkaði um 1,52 pró-
sent frá því í nóvembermánuði.
Vísitölutryggðar skuldir Íslend-
inga eru, gróflega áætlaðar, um
1.100 milljarðar, samkvæmt Ólafi
Darra Andrasyni, deildarstjóra
hagdeildar ASÍ. Samkvæmt því
hækkuðu vísitöluskuldir um 16,7
milljarða við þessa hækkun verð-
bólgu.
Frá og með 1. desember gátu
lántakendur, með innlend verð-
tryggð veðlán, fengið greiðslu-
jöfnun. Fylgja afborganir þá
greiðslujöfnunarvísitölu í stað
vísitölu neysluverðs. Í greiðslu-
jöfnunarvísitölu er vegin launa-
þróun og þróun atvinnustigs. Í
niðursveiflunni fylgja því
greiðslujöfnuð lán mun lægri vísi-
tölu en lán sem fylgja vísitölu
neysluverðs. Mismuninum á
greiðslum er frestað, þar til kaup-
máttur atvinnutekna hefur aftur
náð sama stigi og um síðustu ára-
mót.
Tímabundið verður greiðslu-
byrðin af greiðslujöfnunarlánum
því léttari, en þegar upp er staðið
munu slík lán verða dýrari þegar
tekið er tillit til vaxta og verð-
bóta.
Hægt er að taka dæmi af láni,
sem fylgir neysluverðsvísitölu,
þar sem afborgun í desember var
100 þúsund krónur. Í janúar mun
afborgunin hækka í 102 þúsund
og um þúsund krónur að auki í
febrúar, miðað við verðbólgu og
útreikninga sérfræðinga félags-
málaráðuneytisins.
Afborgun sama láns, sem breytt
var í greiðslujöfnunarlán, var 1.
desember verður 94 þúsund og 91
þúsund í febrúarmánuði, miðað
við spár um launaþróun og
atvinnuleysi.
Munurinn á afborguninni eftir
því hvor leiðin er farin verður því
um tólf þúsund krónur í febrúar
og líkur eru á að hann muni auk-
ast fram undir mitt ár 2009.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum hafa tæplega tvö
hundruð manns óskað eftir
greiðslujöfnun og upplýsingafull-
trúi Kaupþings segir að á annað
hundrað lánum hafi verið
umbreytt í greiðslujöfnunarlán
hjá þeim. Ekki fengust upplýsing-
ar hjá Glitni og Íbúðalánasjóði, en
hægt er að sækja um breytingu
fyrir 20. hvers mánaðar.
svanborg@frettabladid.is
Hækkun verðbólgu
ekki meiri í átján ár
Verðbólga síðastliðna 12 mánuði hefur ekki verið meiri síðan í maí 1990. Með
tilkomu greiðslujöfnunarlána lækkar afborgun í febrúar um 12 þúsund krónur
á láni sem var með 100 þúsund króna afborgun í desember.
BREYTINGAR Á MÁNAÐARLEGUM AFBORGUNUM LÁNA
Í þúsundum króna
Mánuður M.v. vísitölu neysluverðs M.v vísitölu greiðslujöfnunar
des 2008 100 94
jan 2009 102 93
feb 2009 103 91
Miðað við lán þar sem afborgun var 100 þúsund nú í desember.
BREYTINGAR Á VÍSITÖLU NEYSLUVERÐS FRÁ 1989
Ársbreyting síðustu 12 mánuði í %
18,1%
25,2%
júní 1989 desember 2008
25
20
15
10
5
0
VIÐSKIPTI Félag kráareigenda
hefur sent frá sér yfirlýsingu þar
sem mótmælt er harðlega aðför
stjórnvalda að veitingastöðum
með hækkun áfengisgjalda.
Í tilkynningunni kemur fram
það álit félagsins að með hækkun-
inni séu stjórnvöld að beina
viðskiptum frá veitingahúsum,
sem séu einkarekin fyrirtæki, til
vínbúða sem séu í eigu ríkisins.
Þannig sé verið að stuðla að
miklum erfiðleikum í rekstri
veitingahúsa, enda neyðist
veitingamenn til að mæta
hækkuninni með frekari verð-
hækkunum en hafi nú þegar átt
sér stað. - kg
Félag kráareigenda:
Mótmæla aðför
stjórnvalda
KJÖRKASSINN