Fréttablaðið - 23.12.2008, Qupperneq 10
10 23. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Fólk erlendis áttar
sig kannski ekki á því
raunverulega álagi sem hvílir á
Ísraelum í sunnanverðu landinu
sem búa við hættuna af flug-
skeytaárásum.“
YIGAL PALMOR
TALSMAÐUR UTANRÍKISRÁÐUNEYTIS
Er síminn til þín?
Lifðu núna
Settu flottan síma í jólapakkann
Nokia 6120 – gylltur
0 kr. út
1.000 kr. inneign á mán. í 12 mán.
Þú greiðir 0 kr. út og 2.000 kr. á mán. í 12 mán.
eða staðgreiðir 24.000 kr.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Nokia 1680
0 kr. út
1.000 kr. inneign á mán. í 12 mán.
Þú greiðir 0 kr. út og 1.500 kr. á mán. í 12 mán.
eða staðgreiðir 12.900 kr.
ÍSRAEL, AP Erindrekar Ísraels-
stjórnar erlendis hafa fengið fyr-
irmæli um að draga athygli
umheimsins að erfiðu hlutskipti
þeirra Ísraela sem búa næst
landamærum Gazastrandar. Til-
gangurinn er sá að búa umheim-
inn undir væntanlegar hernaðar-
aðgerðir á Gazaströnd.
„Fólk erlendis áttar sig kannski
ekki á því raunverulega álagi sem
hvílir á Ísraelum í sunnanverðu
landinu sem búa við hættuna af
flugskeytaárásum,“ segir Yigal
Palmor, talsmaður ísraelska utan-
ríkisráðuneytisins.
Tzipi Livni, utanríkisráðherra
Ísraels, tók af allan vafa um að
Ísraelar myndu senda herinn á
vettvang, þegar hún sagði við
Condoleezzu Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, að Ísraelar
„geti ekki sætt sig við það ástand
að Hamas haldi áfram að ráðast á
ísraelska borgara“.
Síðan hálfs árs vopnahléi
Hamas-samtakanna og Ísraels
lauk í síðustu viku hafa íbúar í
næsta nágrenni landamæramúrs-
ins mátt búa við flugskeytaregn
nánast daglega, þótt hrein hend-
ing sé hvort tjón hlýst af vegna
þess að flugskeytin eru heima-
smíðuð og án miðunarbúnaðar.
Hamas-liðar á Gazaströnd segj-
ast ekki geta framlengt vopna-
hléið nema Ísraelar opni landa-
mærin og aflétti þar með þeirri
nánast algjöru einangrun sem
íbúar þar hafa mátt búa við.
Flugskeytaárásirnar frá Gaza
efla andstöðu margra Ísraela við
friðarsamninga, sem hvort eð er
virðast engar líkur á nú þegar
stutt er í þingkosningar í Ísrael.
Á Vesturbakkanum gætu einn-
ig brotist út átök hvenær sem er,
eins og sjá mátti af viðbrögðum
harðsnúinna landtökumanna
nýlega þegar ísraelski herinn
rýmdi hús í borginni Hebron, sem
landtökumenn höfðu eignað sér.
Herinn mætti að vísu lítilli mót-
spyrnu, sem vakti vonir um að
framhald yrði á slíkum aðgerð-
um, en í framhaldinu tóku land-
tökumenn til við skotárásir og
íkveikjuárásir á Palestínumenn.
Landtökumennirnir ætla greini-
lega að koma í veg fyrir að Ísra-
elsstjórn rými fleiri landtöku-
byggðir, sem eru ein helsta
hindrunin í vegi fyrir friðarsamn-
ingum. gudsteinn@frettabladid.is
Ísraelar boða
átök á Gaza
Ísraelskir ráðamenn reyna nú að beina athygli um-
heimsins að hlutskipti íbúa við landamæri Gaza-
svæðisins, í návígi við sprengiflaugaregn frá Hamas-
liðum. Engar líkur virðast á friðarsamkomulagi.
BEÐIÐ EFTIR BRAUÐI Langar biðraðir mynduðust við bakarí á Gazaströnd í gær af
ótta við að hveitibirgðir væru á þrotum. Nánast algjör einangrun svæðisins veldur því
að brýnustu nauðsynjar berast ekki þangað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÍKAMSMÁLUNARLIST Módel sýna
líkamsmálunarlist ekvadorska lista-
mannsins Johns Vargas á sýningu í
Cali í Kólumbíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
REYKJAVÍK Borgarráð samþykkti á
laugardag drög að samkomulagi
við Samtök iðnaðarins um að verð-
tryggja samninga við verktaka, og
kostar þetta borgina um 250 millj-
ónir.
Meirihlutinn gerist með þessu
sekur um ósanngirni, með því að
semja um „verðbætur aftur í tím-
ann við einn aðila umfram aðra“,
segir í bókun VG.
Jafnframt var bent á að í ágúst
hefði borgarráð fengið bréf frá
fjármálaskrifstofu borgarinnar,
þar sem „ekki var talið heimilt að
endurskoða og taka upp verðbóta-
ákvæði í stuttum samningum, með
tilvísun til útboðsreglna og jafn-
ræðisreglu“. Einnig hafi skrifstof-
an ekki talið slíkt fyrirkomulag
æskilegt út frá samkeppnissjónar-
miðum.
Sagði fulltrúi VG, Svandís Svav-
arsdótttir, ljóst að Samtök iðnað-
arins ættu „fleiri, sterkari og
háværari talsmenn“ en til dæmis
Stígamót og sjúklingasamtök sem
ekki fá verðbætur.
Fulltrúi Samfylkingar tók undir
margt í málflutningi VG og Ólafur
F. Magnússon lét bóka andstöðu
sína.
Borgarráðsfulltrúar Framsókn-
ar og Sjálfstæðisflokks létu þá
bóka að samningurinn væri gerð-
ur með það að markmiði að „draga
úr hættu á að verktakar segi sig
frá verkum“. Engu var svarað um
brot á jafnræðisreglu, né álit fjár-
málaskrifstofu. - kóþ
Meirihluta brigslað um ósanngirni, ójafnræði og ístöðuleysi í borgarráði í gær:
Verðtryggja verktakagreiðslur
BORGARSTJÓRN Á FUNDI Borgarráð
er harðlega gagnrýnt fyrir að ætla að
verðtryggja samninga við verktaka fyrir
250 milljónir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐSKIPTI Íslenska hugbúnaðarfyr-
irtækið Crossroads Partner og
ráðgjafarfyrirtækið Annata hafa
gengið frá sölu á viðskiptakerfinu
Microsoft Dynamics AX til
Ameríku.
Um tvo samninga er að ræða.
Annar er við Rodman, eitt stærsta
verktakafyrirtæki í Texas í
Bandaríkjunum og hljóðar upp á
200 milljónir króna. Hinn er við
umboðsfyrirtækið Navitrans og
hljóðar upp á 150 milljónir króna.
Hugbúnaðurinn vinnur með
forritum frá Microsoft og er
sérsniðið að fyrirtækjum í
bílaiðnaði, að því er fram kemur í
tilkynningu. - jab
Selt fyrir 350 milljónir króna:
Íslensk forrit í
Ameríku