Fréttablaðið - 23.12.2008, Page 12
12 28. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 141
350 -1,48% Velta: 362 milljónir
MESTA HÆKKUN
ÖSSUR +1,73%
EIMSKIP +0,79%
MESTA LÆKKUN
EXISTA -33,33%
STRAUMUR -6,70%
FØROYA BANKI -2,04%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:ALFESCA 4,00 +0,00% ... Bakkavör
2,64 -0,75% ... Eimskipafélagið 1,28 +0,79% ... Exista 0,04 -33,33%
... Icelandair Group 13,25 +0,00% ... Kaupþing 0,00 +0,00% ... Marel
Food Systems 73,60 -1,87% ... SPRON 1,90 +0,00% ... Straumur-
Burðarás 1,95 -6,70% ... Össur 100,00 +1,73%
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR: 217,6 -0,27
„Mér finnst þetta mikil gjafmildi,“ segir
Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Samtaka fjárfesta. „Félagið á
ekki fyrir skuldum. Þegar bankarnir
fóru þá missti ég hlutabréfin mín
og fékk ekkert í staðinn, en nú eiga
þeir að fá hluti til baka þegar þetta
verður arðvænlegt aftur. Ef þetta á að
ganga þá verður fjandinn laus hér í
samfélaginu.“
Karl og Steingrímur Wernerssynir,
eigendur fjárfestingafélagsins Mile-
stone, fá að eiga þrettán prósenta
hlut í félaginu og endurkauparétt
á 27 prósentum til viðbótar, þegar
fjárhagslegri endurskipulagningu
félagsins er lokið.
Félagið mun skulda hátt í 115
milljarða króna en virði eigna þess
er nú um 60 milljarðar, eftir því sem
næst verður komist. Þetta mun að
mestu skýrast af hruni á eignaverði á
alþjóðlegum mörkuðum.
Stærsti einstaki kröfuhafinn er
Glitnir. Fram kom í Morgunblaðinu
á dögunum að tæpum þriðjungi
krafna verði breytt í lán sem verði
víkjandi að hluta. Afganginum megi
breyta í hlutafé. Morgunblaðið sagði
að tæknilega hefði sá hluti kröfunnar
verið afskrifaður. Lánveitendur eiga þó
að fá forgang af öllum útgreiðslum úr
félaginu þangað til skuldin er að fullu
bætt. Karl og Steingrímur geta enn
fremur ekki innleyst neinn hagnað af
hlutabréfaeign sinni fyrr en skilmálar
kröfuhafa hafa verið uppfylltir.
Eftir því sem næst verður komist
hefur sænska fjármálaeftirlitið haft
hönd í bagga, en það fæst ekki
staðfest.
Karl Wernersson vildi ekki tjá sig
um málið. Ekki náðist í Árna Tómas-
son, formann skilanefndar Glitnis.
Milestone er eini eigandi sænska
fjárfestingafélagsins Moderna. Það
á aftur tryggingafélagið Sjóvá, hlut í
Carnegie og fleira. - ikh
Kröfuhafar fá fyrst
Kauphöllin hefur veitt Existu opinbera
áminningu og fésektir upp á fjórar milljónir
króna vegna brota á ákvæðum reglna um
viðskipti í Kauphöllinni.
Í tilkynningu Kauphallarinnar segir að
Existu hafi verið skylt að sækja um
skráningu á nýju hlutafé í kjölfar þeirrar
ákvörðunar félagsins að hækka hlutaféð um
50 milljarða króna við kaup á Kvakki,
óskráðu eignarhaldsfélagi þeirra Ágústs og
Lýðs Guðmundssona, stærstu hluthafa
félagsins.
Þá átelur Kauphöllin Lýð Guðmundsson
stjórnarformann fyrir að hafa gefið
upplýsingar um stöðu félagsins og kröfur
þess á hendur íslensku bönkunum í viðtali
við Björn Inga Hrafnsson í Markaðnum á
Stöð 2 í október.
Í tilkynningu sem Exista sendi frá sér
vegna málsins segir að ákvörðunin sæti
undrun enda þar algerlega litið fram hjá
sjónarmiðum félagsins auk þess sem Exista
hafi leitast við að upplýsa fjárfesta um
óvissa stöðu sína eins og kostur er. Með
þeim hætti telji félagið að fylgt hafi verið
ábyrgri upplýsingagjöf til fjárfesta og er
því ósammála ákvörðun Kauphallar. - jab
Kauphöllin áminnir Existu
„Eins og sjávarútvegsstefna ESB
er nú myndi íslenskur sjávarút-
vegur búa við mun lakari rekstr-
arskilyrði með aðild að ESB en
utan sambandsins. Innan ESB
myndum við ekkert hafa um það
að segja hvernig veiðum úr deili-
stofnum við Ísland yrði háttað.
Þetta á til dæmis við um loðnu og
makríl. ESB hefur ekki viljað
viður kenna okkar strandríkisrétt
og hleypa okkur að samningaborð-
inu um skiptingu makrílkvótans í
Norður-Atlantshafi,“ segir Adolf
Guðmundsson, formaður LÍÚ, í
ítarlegu viðtali við tímaritið Ægi.
Hann segir þá hættu fyrir hendi,
gerðumst við aðilar að ESB, að
útlendingar eignuðust hér fjölda
fyrirtækja í
sjávarútvegi.
„Sumir segja að
það sé bara allt í
lagi, en ég tel að
ef þetta myndi
gerast væri
síður en svo
sjálfgefið að
landið myndi
allt haldast í
byggð.“
Hann kveðst
þess fullviss að
úrsögn Bret-
lands úr sam-
bandinu yrði samþykkt í þjóðarat-
kvæðagreiðslu þar í landi, yrði
efnt til hennar og þar í landi komi
ekki til greina að taka upp evr-
una.
Hann gagnrýnir hversu lítið sé
rætt um kostnað við aðild að sam-
bandinu. „Menn segja sem svo að
Íslendingar fái svo mikið af styrkj-
um úr sjóðum sambandsins að
ágóðinn yrði meiri en útlagður
kostnaður. Það held ég að sé rangt
vegna þess að þrátt fyrir allt held
ég að Ísland sé of efnahagslega
sterkt til þess að njóta mikilla
styrkja úr sjóðum ESB. Eftir sem
áður munum við eiga þess kost að
fá vísinda- og menningarstyrki
frá ESB, en ég hef ekki nokkra trú
á því að við fáum byggðastyrki frá
sambandinu,“ segir Adolf í við-
talinu við Ægi. - bih
Formaður LÍÚ gagnrýnir hversu lítið sé rætt um kostnað við aðild að ESB:
Útlendingar myndu eignast
fjölda sjávarútvegsfyrirtækja
ADOLF
GUÐMUNDSSON
STJÓRNENDUR EXISTU Kauphöllin hefur áminnt
Existu vegna tveggja atriða. Stjórnarformaðurinn
stendur á milli forstjóranna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fjármálaeftirlitið (FME) rannsak-
ar ýmis atriði sem varða peninga-
markaðssjóði allra viðskiptabank-
anna, samkvæmt tilkynningu sem
viðskiptaráðuneytið sendi frá sér
síðdegis í gær. Þar á meðal eru til
skoðunar fjárfestingar þeirra og
markaðssetning, en NBI og Lands-
vaki hafa þegar beðist afsökunar á
mistökum við kynningu á sjóðun-
um.
„Rannsókn er ekki lokið en FME
leggur mikið kapp á að ljúka henni
sem allra fyrst á nýju ári,“ segir í
tilkynningunni og er áréttað að
málum verði vísað til lögreglu
þyki ástæða til. Þá sé viðbúið að
væntanleg rannsóknarnefnd á
vegum Alþingis taki málefni pen-
ingamarkaðssjóða til sérstakrar
skoðunar. - óká
Sjóðir í skoðun