Tíminn - 25.07.1982, Side 18
18
SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1982.
Höfum fyrirliggjandi hina
viðurkenndu Lydex hljóðkúta
í eftirtaldar bifreiðar
Audi 80,100S, LS................. hljóðkútar aftan og framan
Austin Mini og Allegro ................hljóðkútar og púströr
Autobianchi............................hljóðkútar og púströr
Bedford vörubíla.......................hljóðkútar og púströr
Blazer 6 og 8 cyl......................hljóðkútar og púströr
B.M.W. 316 - 318 - 520............................hljóðkútar
Bronco 6 og 8 cyl......................hljóðkútar og púströr
Chevrolet fólksbíla og vörubfla........hljóðkútar og púströr
Datsun disel 100A - 120A - 1200 -
1600 -140 -180 -160 Cherry.............hlióðkútar oa oúströr
Chrysler franskur......................hljóðkútar og púströr
Citroen GS.............................hljóðkútar og púströr
Daihatsu Charade og Charmant...........hljóðkútar og púströr
Dodge fólksbíla........................hljóðkútar og púströr
Ffat 125-128-132-127-131
Ritmo..................................hljóðkútar og púströr
Ford ameríska fólksbila................hljóðkútar og púströr
Ford Consul Cortlna 1300 - 1600........hljóðkútar og púströr
Ford Eskord............................hljóðkútar og púströr
Ford Fiesta............................hljóðkútar og púströr
Ford Granada...........................hljóðkútar og púströr
Ford Taunus 15M - 17M - 20M..........hljóðkútar og púströr
Hillman fólksbíla......................hljóðkútar og púströr
Honda Accord - Civic - Prelude.........hljóðkútar og púströr
Austin Gipsy jeppa.....................hljóðkútar og púströr
International Scout jeppi..............hljóðkútar og púströr
Rússajeppi Gaz 69......................hljóðkútar og púströr
Willys jeppi og Wagoneer...............hljóðkútar og púströr
Jeepster V6............................hljóðkútar og púströr
Lada fólksbílar og jeppi...............hljóðkútar og púströr
Landrover bensin og disel..............hljóðkútar og púströr
Mazda 616 og 818.......................hljóðkútar og púströr
Mazda 1300 ............................hljóðkútar og púströr
Mazda 929, 626 og 323 .................hljóðkútar og púströr
Mazda pickup ..........................hljóðkútar og púströr
Mercedes Benz fólksbíla 180-190
200 - 220 - 250 - 280 .................hljóðkútar og púströr
Mercedes Benz vörubíla.................hljóðkútar og púströr
Mitsubishi Lancer - Gaiant - Colt......hljóðkútar og púströr
Moskwitch 403 - 408 - 412 .............hljóðkútar og púströr
Morris Marina 1.3 og 1.8...............hljóðkútar og púströr
Opel Reckord og Caravan Opel Kadett .. hljóðkútar og púströr
Peugeot 204 - 404 - 504 - 505 .........hljóðkútar og púströr
Range Rover.......................... hljóðkútar og púströr
Renault R4 - R6 - R12 - R16 - R20......hljóðkútar og púströr
Saab 96 og 99 - turbo..................hljóðkútar og púströr
Scania Vabis L80 - L85 - LB85 - L110
LB110 - LB140................................... hljóðkútar
Simca fólksbíla 1100 og 1307 ..........hljóðkútar og púströr
Skoda fólksbfla og statfon.............hljóðkútar og púströr
Subaru 4x4 og fólksbílar...............hljóðkútar og púströr
Sunbeam 1250 -1300 -1500 -1600 ........hljóðkútar og púströr
Taunus Transit bensin og disel.........hljóðkútar og púströr
Toyota fólksbfla og station............hljóðkútar og púströr
Vauxhall Viva og Chevette..............hljóðkútar og púströr
Volga fólksbfla hljóðkútar og púströr
Volkswagen 1200 -1300 -1500 •••»•••»»•••»• hljóðkútar og púströr
Volkswagen Passat................................hljóðkútar
Volkswagen sendiferðabíla........................hljóðkútar
Volvo fólksbfla...................... hljóðkútar og púströr
Volvo vörubfla F84 - 85TD - N88 -
F88 - N86 - F86 - N86TD - F86TD - F89TD. hljóðkútar og púströr
Púströraupphengjusett f flestar gerðir bifreiða
Pústbarkar flestar stærðir
Púströr í beinum lengdum 1 1/4“ til 31/2“
Setjum pústkerfi undir bíla
Bifreiðaeigendur, athugið að þetta er allt á
mjög hagstæðu verði og sumt á mjög gömlu
verði.
Gerið verðsamanburð áður en þið festið kaup
annars staðar.
Höfum einnig ýmiskonar vörur fyrir bifreiðar
svo sem tjakka og toppgrindur
Ath. flest pústkerfanna eru úr álblöndu sem
þýðir:
Aukin ending
Sendum í póstkröfu um allt land.
Bilavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2. simi 82944.
erlend hringekja B
Af 178 milljonum at-
kvæða voru 111 ógild!
— 99.98% kosningaþáttlaka í Sovétríkjunum!
■ Nýlega er lokið almennum
kosningum í Sovétríkjunum.
Kosnar voru tvær milljónir
fulltrúa í héraðaráðin og að
því er yfirvöld segja var
niðurstaða kosninganna sú að
sovéska þjóðin stendur heils-
hugar að baki flokknum,
stjórnmálaráðinu og Leóníd I.
Brésnéf, forseta. Vissulega
hefðu vestrænir stjórnmála-
menn verið öfundsverðir af
úrslitunum. Af 177.995.382 á
kjörskrá komu 99.98%. á
kjörstað og kusu „samkvæmt
stjórnarskrá Sovétríkjanna“,
eins og sagði í Prövdu. Best
var kjörsóknin í Úsbekistan en
af 7.866.374 vantaði aðeins 22
kjósendur! pá má geta þess að
Pravda upplýsti að af öllum
þessum atkvæðum, tæplega
178 milljónum, hefðu ekki
nema 111 verið ógild. Það er
því sýnt að þrátt fyrir stöðugan
matvæla - og vöruskort, stríð-
ið í Afganistan, afskiptin í
Póllandi og öll önnur vandræði
Sovétríkjanna þá eru sovéskir
kjósendur svo huggulegir að
láta ekki óánægju sína í ljós í
almennum kosningum.
Mun „fullkomnari“
kosningar en síöast!
Pað er að vísu rétt að aðeins
einn frambjóðandi er í kjöri á
hverjum stað en stjórnarskrá
Sovétríkjanna tryggir kjósend-
um á hinn bóginn óskoraðan
rétt til að fara inn í sérstakan
klefa og krossa þar yfir nafn
frambjóðandans til að lýsa yfir
óánægju með hann. Prátt fyrir
þennan fyrirtaks rétt féllu
aðeins 94 af 2.289.023 fram-
bjóðendum, þ.e.a.s. hlutu
ekki meirihluta atkvæða. í
mörgum héruðum eða borgar-
hverfum fengu frambjóðendur
kommúnistaflokksins 99.99%
atkvæða og allnokkur dæmi
eru um 100% stuðning.
Fyrstu almennu kosningarn-
ar í Sovétríkjunum voru haldn-
ar árið 1937 en nú á Brésnéf-
tímanum verða úrslitin sífellt
fáránlegri og fáránlegri. „Full-
komnari," myndi Brésnéf sjálf-
sagt segja. Úrslitin nú voru til
að mynda miklu fullkomnari
en 1974 þegar aðeins 99.79%
kjósenda Iétu sjá sig á kjörstað
og hvorki fleiri né færri en 173
atkvæði voru ógild!
Hvernig Sovétríkin fara að
þessu?
Elementary, my dear Wat-
son! I fyrsta lagi er mjög hart
lagt að sérhverjum kjósanda
að fara á kjörstað, og þeir eru
fáir sem vilja vekja óþarfa
athygli á sér með því að mæta
ekki. í öðru lagi eru, þótt
ótrúlegt megi virðast, stunduð
kosningasvik!
„Þetta er ekkert annað en
leikaraskapur, ævintýri,"
sagði ungur sovéskur verk-
fræðingur nýlega í samtali við
bandarískan blaðamann, en
hann hafði verið beðinn um að
starfa að kosningunni. Alls
voru það 8.6 milljónir karla og
kvenna sem unnu við kosning-
arnar, eða einn starfsmaður á
hvern 21 kjósanda, og flestir úr
þessum hópi höfðu það hlut-
verk eitt að heimsækja kjós-
endur og sjá um að þeir færu
örugglega á kjörstað.
„Mér sýndist hún
vera svolítið
geggjuð“
„Ég hafði eitthvað um 100
manns á minni könnu,“ sagði
ungi verkfræðingurinn. „Petta
fólk í 15 eða 20 íbúðum í mjög
slæmum hluta Moskvu, íbúð-
irnar eru þröngar, dimmar,
skítugar og illa lyktandi -
fjórar eða fimm fjölskyldur
eru saman um eldhús og bað.
Ég gekk á milli íbúðanna og
þurfti að segja hver fram-
bjóðandinn væri, hvenær og
hvar væri kosið og svo fram-
vegis. Flestir hlustuðu án þess
að segja orð. Sex eða sjö voru
fullir. Það var bara ein gömul
kona, flokksfélagi í marga
áratugi, sem virtist hafa ein-
hvern áhuga á þessu. Mér
sýndist hún vera svolítið geggj-
uð.
Aðeins einn einasti kjósandi
harðneitaði að koma á kjör-
stað. „Þú ert að gera gys að
mér,“ hvæsti hann og skellti
aftur hurðinni.“
Margir kjósendur hlakka til
kosninga af þeirri ástæðu að
þá gefst tækifæri til að neyða
yfirvöldin til að kippa ýmsum
hlutum í lag, láta laga þakrenn-
ur, setja upp salerni og svo
framvegis. Annar kosninga-
starfsmaður sagði við fyrr-
nefndan blaðamann: „Margir
sögðust ekki ætla að kjósa
nema gert væri við klósettið
eða ruslið hreinsað út úr
íbúðarportinu."
Að því er heimildir innan
Sovétríkjanna herma þá skrif-
uðu mörg þúsund íbúar hins
nýja og hráslagalega Jasénevó-
hverfis í Moskvu undir kröfu-
gerð þar sem þeir hótuðu að
mæta ekki á kjörstað nema
verslanir væru opnaðar í hverf-
inu, en loforð um slíkt höfðu
lengi verið svikin. Viktor V.
Grisjin, flokksformaður
Moskvu og félagi í stjórnmála-
ráðinu, lét opna búðimar
þegar í stað.
Einn kýs fyrir marga
Á sjálfan kosningadaginn
leggja yfirvöldin sig öll fram
um að gera kosningarnar sem
auðveldastar og mest aðlað-
andi. Ætíð er kosið á sunnu-
degi og kosningadagurinn lýst-
ur frídagur. Kjörstaðir eru
opnir frá kl. sex á morgnana til
miðnættis og kjörkassar eru í
öllum lestum, skipum og á
sjúkrahúsum. Þá eru hengd
upp gríðarstór áróðursspjöld
til að minna á kosninguna og
hvetja fólk til að kjósa og á
kjörstöðum má fá ókeypis
veitingar - þó núorðið sé lítið
um að vodka sé veitt eins og
áður var gert. Þjóðin notaði
nefnilega tækifærið og fór á
ókeypis fylleri!
í lögum er kveðið á um
leynilegar kosningar en í reynd
eru kosningarnar því aðeins
leynilegar að kjósandi óski
þess að greiða atkvæði á móti
frambjóðanda kommúnista-
flokksins. Þeir sem greiða
atkvæði með honum stinga
atkvæði sínu beint í kjörkass-
ann, þurfa ekkert að merkja
við, en hinir fara inn í
sérstakan klefa og krossa þar
yfir nafnið, eða skrifa nýtt.
Segir sig sjálft að fáir eru fúsir
til að vekja slíka athygli á sér
enda gaumgæfilega fylgst með
kjósendum á kjörstað.
Þá tíðkast það mjög að einn
fjölskyldunteðlimur kýs fyrir
alla hina og hefur þá meðferðis
persónuskilríki viðkomandi.
Húsverðir sem vilja ómögu-
lega að kosningaþátttaka á
þeirra yfirráðasvæði verði
slæm gera líka oft það sama.
Þetta er ólöglegt skv. lögunum
en starfsmenn kosninganna
gera engar athugasemdir við
það sem færir kosningaúrslitin
nær hinni langþráðu fullkomn-
un. Ef kjósandi hefur ekki
komið á kjörstað þegar kjör-
fundi lýkur og finnst hvergi þá
er mjög algengt að kosninga-
starfsmennirnir kjósi fyrir
hann.
Hvað varð af þeim
94 sem féllu?
Utankjörfundaratkvæði eru
svo sérkapítuli út af fyrir sig.
Nöfn þeirra sem fá í hendur
utankjörfundaratkvæði eru
strikuð út af hinni almennu
kjörskrá og ekki talin með
nema atkvæðið skili sér. Sá
sem fengið hefur utankjör-
fundaratkvæði en kýs ekki er
því ekki til, hvað kosninguna
varðar. Með þessum hætti
koma margir sér hjá því að
kjósa og sagt er að fjórar
milljónir utankjörfundarat-
kvæða hafi ekki skilað sér í
síðustu kosningum.
Þegar skipulagið er svona
gott er það aðeins eitt sem
vekur undrun. Hvað í ósköp-
unum kom fyrir í þeim 94
héruðum (af 2.289.023!) þar
sem frambjóðandinn féll! Þar
að auki drógu 43 frambjóðend-
ur sig í hlé áður en kosningu
lauk. Engar skýringar hafa
verið gefnar á þessu en hins
vegar tilkynnt að í þessum
héruðum verði kosningarnar
endurteknar innan skamms.
Sovéskir kjósendur líta flest-
ir á kosningarnar sem innan-
tómt sjónarspil. En hvers
vegna eru þær þá haldnar?
Vestrænir fréttaskýrendur
telja að ein af ástæðunum sé
þörf Sovétleiðtoganna fyrir
„sannanir" á stuðningi við þá.
Kosningar eru einnig tæki sem
ef til vill geta talið einhverjum
trú um að lýðræði ríki í
Sovétríkjunum. Loks er svo
sjálf kosningaþátttakan og úr-
slitin prýðis mælikvarði á það
hversu duglegar flokksdeiid-
irnar á hverjum stað eru...