Tíminn - 03.07.1983, Síða 10
■ 21. júní síðastliðinn gafst mér tæki-
færi að vera viðstödd fréttafund með
Georg Bush varaforseta Bandaríkjanna.
Tilefnið var fyrirhuguð ferð varaforset-
ans til nokkurra Evrópulanda þ.á.m.
íslands.
Fundurinn var haldinn í herbergi 450
í Old Executive Office Building við hlið
Hvíta hússins. Hann átti að hefjast kl.
15.30 og var mér ráðlagt að taka leigubíl
því crfitt væri að leggja í miðborg
Washington og einnig að mæta eigi síðar
en kl. 15.15; dyrum yrði lokað um leið
og fundur hæfist og engum hleypt inn
eftir það.
Auðvitað þrjóskaðist ég við að taka-
leigubíl enda taldi ég það of dýrt búsett
nokkuð fyrir utan borgarmörkin, en hins
vegar var tímanlega lagt af stað.
Heppnin var með mér, stöðumælir
beið mín við 18. stræti en Old Executive
Office Building er við 17. stræti. Stöðu-
mælirinn tók 2ja klst. greiðslu scm hlaut
að vcra nógur tími fyrir stuttan frétta-
fund. Glöð í bragði yfir velgcngninni
hraðaði ég mér upp á 4. hæð í Old
Executive. Pcgar vegabréfið íslenska
hafði verið grandskoðað og ég ásamt
töskum þukluð í bak og fyrir gekk ég
hlaðin upplýsingablöðum um æfi og
fyrirhugað ferðalag Georg Bush inn í
fréttasal.
Heppnin yfirgaf migekki, fyrsti maður
sem ég sá var góðkunningi frá fótbolta-
æfingum sonaokkar, danskur blaðamað-
■ Varaforseti Bandaríkjanna úfskýrir
25 dollara fundur með
varaforseta Bandaríkjanna
ur scm vinnur hér fyrir danska blaðið
Politikcn. Ilann var snöggur að sctja
mig inn í helstu mál varðandi slíkan
fréttafund. Áður cn ég vissi af var
scgulbandstæki mitt komið í samband
við upptökutæki amcrísku pressunnar
og kvcntnaður nokkur bauðst til að sjá
um framhaldið, hún kynni scm sagt
ntjög vcl á öll svona tæki. Settist ég
áhyggjulaus á 3. bckk cn þar var gott
útsýni fyrir hvcrs kyns myndatökur.
Seinkun afsökuð
Fundurinn hófst kl. 15.38 og byrjaði
varaforsetinn að afsaka seinkunina.
Kvaðst hann hlakka mjög til þcssa
ferðalags; heimsókn til allra Norður-
landa og Irlands með viðkomu í London
til að minnast stofnunar Bandalags
Evrópskra Dcmókrata. Varaforsctinn
heimsækir cinnig Pýskaland og vcrður
viðstaddur hátíðahöld í tilefni þcss að
nú cru 300 ár liðin frá búfcrlaflutningum
Þjóðvcrja til Bandaríkjanna.
Pessi fcrð cr í nokkurs konar fram-
haldi af fcrð varaforsetans til Evrópu í
janúar síðastliðnum. Pávoru kjarnorku-
vopnaviðræður ofarlcga á baugi cn síðan
hcfur ýmislegt gcrst s.s. kosningar í
Þýskalandi og Brctavcldi, nýjar hug-
myndir varðandi kjarnorkuvopn, árang-
ursríkur fundur um cfnahagsmál í Will-
iamsburg svo nokkuð sé nefnt. Bush
kvað samband Bandaríkjanna við
Evrópulönd þau cr heimsótt verða yfir
höfuð gott. Auövitað yrðu mismunandi
viðræður í hvcrju landi. í Evrópu væri
mikill áhugi um þessar mundir l'yrir
málefnum Bandaríkjanna og Mið-Am-
críku. Kvaðst varaforsetinn reiðubúinn
að ræða ástand mála í þcssum hcims-
hluta.
Reiðubúinn að ræða við
friðarhreyfingar
Almennur áhugi ríkir meðal Banda-
ríkjamanna um afvopnunarmálin cn cftir
cr að sjá hvcr afstaða Sovétmanna
verður í þeim málum. Ennfremur sagði
Bush að úrslit kosninganna bæði í
Þýskalandi og Bretlandi sýndu glöggt
hvert hugur fólks stefndi í þcssum
málum; hann væri reiðubúinn að ræða
viðforsvarsmenn friðarhreyfinga íhvoru
landi fyrir sig ef slíkt kæmi til tals.
í umræðu um hvaðan erlendir kafbát-
ar koma að ströndum Svíþjóðar svaraði
Bush því til (við hlátrasköll viðstaddra)
að þeir kæmu áreiðanlega ekki frá
Bandaríkjunum. Ýmsir hefðu giskað á
Sovétríkin mörgum til mikillar undrun-
ar, bætti varaforsetinn við. Við virðum
hlutlcysi Svía og cf þessi mál bcr á góma
vcröa þau vitanlega rædd. Hugmyndir
sænsku stjórnarinnar um kjarnorku-
vopnalausa N-Evrópu yrðu vitanlega á
dagskrá þcgar rætt verður við Olof
Palme. Bush kvað enga sérstaka ástæðu
til að hvetja Svía til meiri samvinnu við
NATO. Þcir yröu hins vegar látnir vita
hvar sá vinur væri er í raun reyndist ef
eitthvað færi úrskciðis.
Afstaða danska þingsins um mótmæli
gcgn drcifingu kjarnorkuvopna verður
til umræðu. Nánari vitncskja hvers
vcgna þcirra afstaða cr cindregin á móti
slíku á sama tíma og önnur lönd eru
okkur sammála cr nauðsynleg,taldi vara-
forsctinn.
Pctta er í fyrsta sinn scm Georg Bush
heimsækir bæði Finnland og Norcg,
hann kvaðst hafa áður komiö til Svíþjóð-
ar. Danmerkur, Pýskalands, Bretlands,
Irlands og Islands; að vísu aöeins á
flugvöllinn á Islandi.
Reagan í endurkjör?
Ein af mörgum spurningum scm án
cfa vcrða lagðar fyrir varaforsctann á
þcssu fcrðalagi cr hvort Ronáld Rcagan
ntuni gefa kost á sér til endurkjörs í
íorsetaembættið. Varaforseti sagðist
einungis gcta svarað mcð ágiskunum en
taldi sig sjálfan vcra þcss fullvissan
bæði að hann yrði aftur í framboði og
cinnig að hann yrði endurkjörinn.
Demókratar álíta að svo verði, hélt Bush
áfram clla væru ckki jafneinkennilegir
hlutir að gerast meðal þeirra. Forsetinn
hcfur auk þcss farið á lcit við mig að
verða meðframbjóðandi hans sem vara-
forsetaefni flokksins.
Bush ítrekaði aó engin sérstök ástæða
lægi að baki. hcimsókn sinni nú, hins
vegar væri ljóst að Ijótur væri löstur sá
að vanrækja vini sína hvort scm um væri
að ræða stærri cða minni þjóðir. Ástand
í Mið-Ameríku veröur vitanlega til um-
ræðu. Bush hélt því fram að mikill
misskilningur ríkti varðandi ástand mála
í El Salvador. Það er nauðsynlegt að
útskýra stöðu okkar þar. Augljóslega
eru ýmsir okkur ósammála, en vonandi
verður þar breyting á að loknum frekari
viðræðum. Mín skoðun er sú að við
séum á réttri leið og ég tcl nauðsynlegt
að útskýra það nánar. Hvort evrópskar
vinaþjóðir gætu orðið milligöngumenn í
deilum í El-Salvador taldi forsetinn ekki
endanlega lausn til að friður næðist.
Víetnam
1 lok fundarins og í bcinu framhaldi af
El-Salvador umræðum fór varaforsetinn
að ræða um Víetnam. Vitanlega viljum
við ekki annað Víetnamstríð. En hvað
hefur gerst í landinu eftir að við hypjuð-
um okkur þaðan? Nauðsynlegt er. hélt
Bush áfram, að líta til baka og læra af
óförum. Við viljum að lýðræði, endur-
bætur og mannréttindi ríki. Að lokum
þetta; aðalatriðið í ferð minni er ekki að
telja fólki trú um að ekkert sé að, ckki
að sökin sé hjá einum frcmur en öðrum
heldur að þrýsta á lýðræðislegar lausnir.
Auðvitað er óljóst hvaða mál kunna að
koma upp en eitt er víst að ég hlakka til
að sjá hvað það verður.
Fundi lauk kl. 16.11 og stuttu síðar
fyrstu vonbrigði dagsins. Sérfræðingur í
segulböndum haðfi ýtt á vitlausan takka;
fundurinn hafði augljóslega farið
framhjá segulbandinu mínu! Skundaði
því næst að bílnum og upp kom annað
áfall dagsins. Miði á bakrúðu gaf til
kynna að draga ætti btlinn á brott og
annar miði á framrúöu að 25 dollara sekt
væri yfirvofandi. Ólgandi af reiði, enda
enn 16 klst. greiðsla eftir í stöðumælin-
um, spígsporaði ég að stöðumælaverði
sem var í nærliggjandi götu að skrifa
marga miða. Sá hafði vitanlega ekkcrt
með rnína miða að gera en bcnti mér
hins vegar á mistökin. Ncðar í götunni
var skilti sem á stóð: Bannað að lcggja
bílum á milli kl. 16-18 (þá er svokölluð
„rush-hour" í höfuðborginni).
Þrátt fyrir nokkur vonbrigði að fundi
loknum rættist ótrúlega úr málum næsta
dag. Vingjarnlegur starfsmaður Nation-
al Prcss Ccnter útvegaði mér spólu frá
fundinum og sendi auk þess hcim að dyr-
um afrit af fundi um leið og það var
tilbúið. í ferð minni til N.P.C. var
tækifærið notað og yfirvöld stöðumæla-
sekta í Washingtonborg heimsótt.
í rembihnút?
Tilgangurinn var að ræða lítillega við
vörð þann er skrifaði mér miðana tvo og
útskýra misskilning minn og vankunn-
áttu við að lcggja innan borgarmark-
anna. Áður en ég vissi af voru langborð
og hátalari fyrir framan mig. Við hinn
enda borðsins sat mæðulegur og alvöru-
þrunginn kvenmaður. Hún spurði á vél-
rænan máta hvort ég lofaði að segja allan
sannleikann og ekkert annað en sann-
leikann og bað síðan guð um að hjálpa
mér. Ýmsar hugrenningar skutu upp
kollinum; hvert var ég komin, hvaða
rembihnút hafði ég flækt mér inn í, fengi
ég e.t.v. enn frekari sektir?
Til allrar hamingju yfirgaf ég dóms-
húsið einungis 10 dollurum fátækari og
ekki gat ég varist brosi er ég leit á
kvittunina og sá enn eina nýja útgáfu af
nafni mínu. Að þessu sinni vareftirnafn-
ið Dóttir og fornafnið Ragnars. Áður
hef ég ýmist verið dóttir eða sonur
eiginmanns og sona enda þrír af fjórum
fjölskyldumeðlimum með mismunandi
eftirnafn.
Það cr ekki von að útlendingar eigi
auðvelt með að skilja þetta ósiðlega
víkingablóð norðan úr höfum sem
hvorki kann að lúta umferðalögum né
sitja fréttafundi með háttsettum em-
bættismönnum.
Sigurborg Ragnarsdóttir
skrifar frá Washington