Fréttablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI FIMMTUDAGUR 12. febrúar 2009 — 38. tölublað — 9. árgangur „Kjóllinn og skórnir eru úr Topshop en kragann keypti ég hræ-ódýran í Claire‘s í Bandaríkjun-um,“ segir Anna Sóley Viðarsdótt-ir, nemi í Iðnskólanum í Reykjavík og afgreiðslustúlka í Spúútnik og á B5. „Reyndar er kraginn hu ður sem b l af bæði háum og stuttum sokk-um en ég hef mjög gaman af að skreyta mig með sérstökum sokk-um,“ segir hún og nefnir að fatastíl hennar sé best lýst sem stelpulegum eða dömul möguleikana í hverri flík fyrir sig og hef gaman af að nota föt á annan hátt en þau voru upphaf-lega ætluð til “ segi húö Fæddist líklega á hælum SÚKKULAÐIVAX HAFRAVAX SÚKKULAÐISTRIMLARF. ANDLIT OG LÍKAMA ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofniog einnig vaxstrimlar VEÐRIÐ Í DAG ANNA SÓLEY VIÐARSDÓTTIR Gaman að nota alls konar föt á nýjan hátt • tíska • heimili Í MIÐJU BLAÐSINS VETRARLÍF Fræðsla, öryggi og ævintýralegar íþróttir Sérblaðið Vetrarlíf FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG vetrarlífFIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 Þrjá sólarhringa í snjóhúsiSigurður Ó. Sigurðsson gróf sig í fönn í aftakaveðri. BLS. 2 ® SKIPULAGSMÁL Að minnsta kosti 1.173 fullkláraðar nýbyggingar stóðu tómar á höfuðborgarsvæð- inu og í sveitarfélögunum í kring sumarið 2008, samkvæmt könnun Landsbankans. Nýbyggingar, hús í byggingu og nýjar lóðir á sama svæði voru þá að minnsta kosti 7.335. Þetta kemur fram í grein sem Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbanka Íslands, skrifar í Fréttablaðið í dag. Ari skrifar að opinber gögn um byggingarstarfsemi hafi lengi verið óáreiðanleg. Landsbankinn hafi því árið 2005 ákveðið að gera eigin kannanir og greiningar á bygginga- markaðnum. Strax hafi verið ljóst að stefndi í offramboð á húsnæði, það staðfesti önnur könnun sumar- ið 2007. Sumarið 2008 gerði Lands- bankinn könnun til að áætla hversu mikið væri til af ónotuðu nýju hús- næði á nokkrum nýbyggingarsvæð- um á höfuðborgarsvæðinu. Ari birt- ir niðurstöðurnar í grein sinni. Í samtali við Fréttablaðið segir Ari að þótt tölurnar séu frá 2008 megi gera ráð fyrir að þær séu svipað- ar í dag. Byggingarstarfsemi hafi augljós- lega farið úr böndunum á undan- förnum árum. Þar leiki bygginga- fyrirtæki, fjármálastofnanir og sveitarfélög stórt hlutverk. - bs / sjá síðu 24 Ókláraðar nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu skipta þúsundum: Yfir 1.100 nýjar íbúðir tómar FÓLK Veitingastaðurinn Dillverð- ur opnaður í Norræna húsinu í kvöld með matreiðslu í anda ný- norræns eldhúss. Fyrirmyndin er Noma í Kaupmannahöfn. Mat- reiðslumeistararnir Gunnar Karl Gíslason og Ólafur Örn Ólafsson stýra veitingastaðnum í sam- vinnu við Norræna húsið en Max Dager, forstöðumaður hússins, segir þessa hugmynd hafa verið á borðinu eftir að Háskólatorg var opnað með ódýra veitinga- sölu. Þessi gamli kunni veitinga- salur, hönnun Alvars Aalto, hefur verið tekinn í gegn af innanhúss- hönnuðinum Hönnu Stínu Ólafs- dóttur og breytingarnar unnar í samvinnu við húsafriðunarnefnd. - jma/ sjá síðu 36 Dill í Norræna húsinu: Hinn „íslenski Noma“ opnar ÚTIVIST „Þetta er búið að vera meiri háttar og held ég óhætt að fullyrða að aldrei frá upphafi hafi verið svona gott start í Blá- fjöllum,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri skíðasvæðisins í Bláfjöllum. Á milli tvö og þrjú þúsund manns hafa sótt svæðið á virkum dögum frá því að opnað var og helmingi fleiri eru þar yfirleitt um helgar. Einar segir að brettafólki hafi fjölgað mikið, sérstaklega á virk- um dögum. Um helgar sé meira af fjölskyldufólki sem virðist halda sig frekar við skíðin. Nýlega var opnunartíminn á svæðinu lengd- ur. -sg / sjá Vetrarlíf Skíðasvæðið í Bláfjöllum: Aldrei farið jafn vel af stað Í BLÁFJÖLLUM Skíðasvæðið hefur verið vel sótt þessa sextán daga frá opnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON LÖGGÆSLA Aukakostnaður lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu vegna mótmælanna í desember og janúar er á bilinu 40 til 50 milljónir króna, segir Stefán Eiríksson lögreglu- stjóri. Endanlegar kostnaður fyrir janúarmánuð liggur ekki fyrir, en viðbótarkostnaðurinn fyrir áramót nam um 20 milljónum króna. Við- búnaður lögreglu í síðasta mánuði var enn meiri en í desember. „Ef við fáum þetta ekki bætt þá verðum við klárlega að grípa til enn frekari aðhaldsaðgerða. Það er ekk- ert flóknara en það,“ svarar Stef- án. „Við vitum ekkert hversu lengi þetta ástand varir.“ Lögreglumenn sem Fréttablaðið hefur rætt við segja fjárhagsstöðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aldrei hafa verið verri en nú og álagið aldrei meira. Nýjar skipulagsbreytingar séu gerðar í skugga krafna um niður- skurð. Þeir kváðust allir hafa þung- ar áhyggjur af stöðunni. „Það er búið að segja upp öllum fastlaunasamningum,“ sagði Snorri Magnússon, formaður Landssam- bands lögreglumanna, um stöðuna. „Nú er fyrirliggjandi krafa um nið- urskurð upp á 98 milljónir króna og svo bættust 68 milljónir við í loka- frágangi fjárlaga, þannig að heild- arkrafan er 166 milljónir króna. Gallinn er bara sá, að það er ekkert meira að skera. Uppsagnir eru eina úrræðið sem eftir er, að óbreyttu. Lögreglan er í fjársvelti.“ Um áramót var embættinu gert kleift með fjárframlagi að ráða tut- tugu nýja lögreglumenn til starfa. Sú ráðstöfun var hins vegar tíma- bundin og rennur út í lok febrúar. „Það munar gríðarlega um þetta fólk og það verður rosalega erfitt þegar það fer, ef það fer,“ segir lög- reglustjóri. Aukinn viðbúnaður er nú aftur kominn á hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu eftir nokkurra daga hlé, vegna daglegra mótmæla við Seðlabankann. Kostnaðurinn held- ur því áfram að hlaðast upp. Lög- reglustjórinn segir ekki séð fyrir endann á þeim fjárhæðum. Faglærðir lögreglumenn í skamm- tímastörfum eða atvinnulausir und- irbúa nú umsóknir um inngöngu í norska herinn. - jss / sjá síðu 6 Lögreglan í fjársvelti og uppsagnir blasa við Tuttugu nýútskrifaðir lögreglumenn fá ekki vinnu nema fram að mánaðamót- um, að óbreyttu. Lögreglan sögð í fjársvelti og líklegt að fleirum verði sagt upp. HLÝNANDI Framan af degi verður allhvöss eða hvöss suð- austanátt á landinu sunnan- og suðvestanverðu annars hægari. Snjókoma eða slydda og síðar rigning sunnan og vestan til ann- ars þurrt lengst af. VEÐUR 4 1 2 -3 -6 -5 Túrar um landið Logi Geirsson hefur stofnað hljómsveit og hyggst ferð- ast um Ísland í sumar og halda tónleika. FÓLK 46 Út með ráðherrana Aðskilnaður fram- kvæmdarvalds- ins frá Alþingi er í deiglunni. FRÉTTASKÝRING 16 Sæt hefnd Íslendingar sýndu loks sitt rétta andlit gegn Liechten- stein. ÍÞRÓTTIR 40 Charles Darwin 200 ára Kári Gautason hlýtur í dag verð- laun á málþingi sem tileinkað er Charles Darwin og kenningum hans. TÍMAMÓT 26 ÆÐIÐ HELDUR ÁFRAM Ýmis æði hafa gripið Íslendinga með reglulegu millibili. Bítlaæði reið yfir á sjöunda áratugnum, Grease- æði heltók margt ungmennið í lok hins áttunda og jójó-æðið í byrjun tíunda áratugarins. Fólkið á myndinni er greinilega heltekið af nýjasta æðinu, sjósundi, og svamlaði um í Nauthólsvíkinni í gærdag. Hitastig sjávar var -1,8 stig. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 16 12. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR Margir líta á sviptingar efnahags-hrunsins sem tækifæri til nauð-synlegra grundvallarbreytinga á Íslandi. Er þar ekkert undan-skilið; ekki einu sinni lýðræðið sjálft. Radd-ir úr öllum áttum fullyrða að nauðsynlegt sé að innleiða nýja starfshætti í stjórnmál-um. Búsáhaldabyltingin knúði fram ríkis-stjórnarskipti. Ný ríkisstjórn, undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur, hyggur á endur-skoðun stjórnarskrárinnar og undirbúning að stjórnlagaþingi sem haldið verði síðar á árinu. Afgreiðslustofnunin AlþingiStoð stjórnskipunar á Íslandi er þrískipting ríkisvaldsins; löggjafarvald, framkvæmdar- vald og dómsvald. Innan þessarar skiptingar er Alþingi valdamesta stofnunin og fer með fjárveitingar- og löggjafarvaldið. Alþingis- menn sækja umboð sitt til þjóðarinnar í lýð- ræðislegum kosningum. Framkvæmdarvald- ið starfar svo í skjóli meirihluta þingsins sem grundvallast af svokallaðri þingræðisreglu; sem þýðir að ríkisstjórnin verður að njóta trausts þingheims. Segja má að með þing- ræðisreglunni yfirtaki meirihluti á Alþingi framkvæmdarvaldið þar sem þingheimur hefur gert með sér samkomulag um hvern- ig ríkisstjórn er skipuð á hverjum tíma. Löggjafarvaldið og framkvæmdarvaldið er þannig samtvinnað í gegnum ríkisstjórnina. Ráðherrar eru í senn hluti af framkvæmdar- valdinu sem æðstu yfirmenn stjórnsýslunn- ar í sínum málaflokki, og löggjafarvaldinu sem þingmenn. Þó deilt sé um valdahlutföll framkvæmdar- valds og löggjafarvalds hníga flest rök að því að mjög halli á það síðarnefnda. Styrkur framkvæmdarvaldsins felst í því að meiri- hlutinn sem styður ríkisstjórnina á hverjum tíma unir því að framkvæmdarvaldið hafi undirtökin á þingi. Það er því stjórnarand- staðan á hverjum tíma sem ber hitann og þungann af því að verja stöðu löggjafans en hefur farið hallloka í þeirri baráttu. Það er framkvæmdarvaldið sem hefur frumkvæði að og undirbýr stóran meirihluta allra þeirra lagafrumvarpa sem þingið hefur til meðferð- ar. Aðkomu þingsins að lagasetningunni hafa gagnrýnendur því sagt vera litla sem enga; þingið sé afgreiðslustofnun. Þetta er þó ein- földun og gefur ekki raunsanna mynd af störfum þingsins. Fá frumvörp fara óbreytt í gegnum þingið. Löggjafarvinnan fer að stórum hluta fram á fundum þingflokka og í fagnefndum. Ráðherrana út fyrir vegginnÁ undanförnum árum, og síðast í janúar síðastliðnum, hafa verið flutt frumvörp á Alþingi um breytingar á stjórnskipaninni. Inntak þeirra er einfaldlega að ráðherrar gegni ekki þingmennsku sem tekur fyrir þann möguleika að einstaklingur sitji beggja vegna borðsins. Hugmyndin er að löggjafar- störfin færist til Alþingis. Í því felst að ráð- herra kemur ekki í þingsal nema til að mæla fyrir sínum málum eða til að svara fyrir- spurnum. Hann hefur ekki afskipti af því hvaða mál eru á dagskrá þingsins; er ekki hluti af þinginu og hefur því ekki atkvæðis- rétt. Ráðherrar hafi ekki afskipti af því hvað fastanefndir þingsins ákveða að taka fyrir og hafa ekki áhrif á afgreiðslu mála innan nefndanna að neinu leyti. Í hnotskurn: Þeir gera það sem þingið segir þeim að gera en ekki öfugt. Það má spyrja sig hvort þetta breyti eins miklu og það virðist gera við fyrstu sýn. Vegna þingræðisreglunnar þyrftu þeir flokk- ar sem saman mynda ríkisstjórn að njóta stuðnings eða hlutleysis Alþingis. Lagafrum- vörp ríkisstjórnarinnar gætu því með króka- leiðum verið í meirihluta og notið forgangs. Flokkshollusta þingmanna, sem vart þarf að vefengja að er til staðar, myndi tryggja að svo færi. Eins er erfitt að sjá fyrir sér hvern- ig skilja ætti að ráðherra og þingmenn sama flokks í nefndarstörfum. Hins vegar eru for- dæmin til staðar og þarf ekki að fara lengra en til Noregs. Þar í landi getur ráðherra ekki jafnframt verið þingmaður og tekur vara- maður hans sæti á Alþingi á meðan hann gegnir ráðherraembætti. Væri því fordæmi fylgt má enn spyrja sig hvort mikið hefði breyst við að ráðherra gengi úr húsi. Hlut- föll þingheims á milli stjórnarliða og stjórn- arandstöðu yrðu þau sömu. Einhver myndi segja að það eina se áþb þeirra hefði stjórnarliðum í raun fjölgað sem því næmi. Þannig myndi enn frekar halla á stjórnarandstöðuna en með gildandi fyrir- komulagi. Gömul saga og nýBjarni Benediktsson, síðar forsætisráðherra, hefur að öðrum ólöstuðum lagt hvað mest til umræðunnar um stjórnskipun landsins. Sumarið 1940, þegar breskur her var nýst- iginn af skipsfjöl í Reykjavík, sat hann og velti vöngum yfir því sem þá var öllum ljóst. Ísland myndi segja sig úr sambandi við kon- ung og lýðveldi yrði stofnað. Ný stjórnarskrá, grundvallarlög til nýrrar framtíðar, var við- fangsefni hans eins og oft síðar. Hann skrif- ar: „Dönum getur eigi fremur en oss dulizt, að sagan hefir kveðið upp sinn dóm, og að bezt er í vináttu að jarðsetja það, sem þegar er dautt.“ En nýtt upphaf sá Bjarni fyrir sér að þyrfti ekki að grundvallast á þeim arfi sem Danir höfðu fært þjóðinni með stjórn- arskránni 1874. Hann sá að líklegt væri að byggt væri á því sem fyrir var, enda myndi annað tefja fyrir lýðveldisstofnuninni. En hann spyr hvort það sé sjálfsagt að halda í þingræðisfyrirkomulagið, sem honum er til efs að sé heppilegt. Hann horfir til Banda- ríkjanna sem voldugasta lýðræðisríkis heims. „Þar er forsetinn kosinn af þjóðinni og hann útnefnir ráðherrana, sem eru þinginu óháð- ir. (...) Þingræðið í sömu mynd og hér, hefir ekki heldur verið tekið upp hjá einni elztu lýð- ræðisþjóð Norðurálfunnar, Svisslendingum. Hefir þeim þó lengi verið viðbrugðið fyrir frelsisást sína og viturlega stjórnarháttu.“ Bjarni sá fyrir sér að með afnámi þingræð- isins og beinni kosningu forsætisráðherra væri hið erfiða úrlausnarefni um forseta og samhengi í meðferð hins æðsta valds leyst fyrirhafnarlaust. Gylfi Þ. Gíslason, síðar ráðherra og þing- maður Alþýðuflokksins, skrifaði árið eftir lýðveldisstofnun um sama efni. Hann aðhyllt- ist afnám þingræðis, rétt eins og Bjarni fyrr. Höfuðeinkenni þingræðisins væri náin tengsl valdþáttanna og á þau þyrfti að skera. Hann vildi forsetaræði að bandarískri fyr- irmynd, tveggja flokka kerfi sem yki skil- virkni. Helstu kosti taldi hann vera að farið væri með framkvæmdarvaldið af meiri heið- arleika og því ekki misbeitt í þágu einstakl- inga eða flokka. Til verka myndu veljast hæf- ari menn því stjórnin væri engum háð nema forseta. Vilmundur Róttækari hugmyndir en þær sem nú eru uppi um aðskilnað valdsins komu til kasta þingsins þegar Vilmundur Gylfason, þing- maður Alþýðuflokks og Bandalags jafnaðar- manna og ráðherra, lagði fram þingsályktun- artillögu árið 1982. Hugmynd Vilmundar var að forsætisráðherra yrði kosinn beinni kosn- ingu. Hann skipaði ríkisstjórn, utan þings eða innan, sem færi með framkvæmdarvald- ið. Þingið hins vegar væri kosið sérstaklega í aðskildum kosningum. Þingið færi eitt með fjárveitingar- og löggjafarvaldið. Þingmanni væri því óheimilt að gegna ráðherradómi og viki af þingi fyrir varamanni sínum veldist hann til starfans.Hér er rétt að staldra við. Í upphafsorð- um Vilmundar í greinargerð hans með frum- varpinu má merkja vissa samfellu við daginn í dag. „Íslenskt efnahagslíf og íslenskt stjórn- kerfi eru í upplausn. Erlendar skuldir á hvert mannsbarn í landinu nema um 4000 banda- ríkjadölum. Verðþensla nemur nálægt 70 af hundraði á ári. Atvinnuleysi gæti blasað við, þrátt fyrir margháttað góðæri.“ Þessi leið Vilmundar stefnir að því að framkvæmdarvaldið fái umboð sitt beint frá þjóðinni, líkt og Alþingi gerir í dag. Mjög er kallað eftir róttækri kerfisbreytingu af þjóð- inni og má til sanns vegar færa að þessi leið myndi uppfylla þá nauðsyn að byggja upp traust á milli þings og þjóðar. Framgangur mála ræðst af samkomulagi á milli þingsins og ríkisstjórnarinnar sem felur í sér vald- dreifingu. Gegnsæi, sem mjög er kallað eftir, hlyti að nást þegar einstök mál væru ekki á valdi einstakra ráðherra heldur væru rædd fyrir opnum tjöldum á Alþingi. Ráðherrarnir út fyrir vegginn Umrót síðustu mánaða hefur vakið upp spurninguna um stöðu Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu. Hvernig má skilja frekar á milli handhafa ríkisvaldsins, lýðræðinu til framdráttar? Þessari spurningu hafa menn velt upp allan lýðveldistímann. FRÉTTASKÝRING: Endurskoðun stjórnarskrárinnar 1. hluti Framkvæmdarvald Forseti Ríkisstjórn Löggjafarvald 435 í fulltrúadeild100 í öldungadeild Framkvæmdarvald Forseti Ríkisstjórn Dómsvald HæstirétturFylkisdómstólarHéraðsdómstólar Kjósendur Kjósendur Kjósendur Dómsvald HæstirétturHéraðsdómstólar Forseti Stjórnkerfi Bandaríkjanna Stjórnkerfi Íslands Forseti getur beitt þingið neitunarvaldi. Fo rse ti tiln ef ni r d óm ar a. Hæ sti ré ttu r g et ur lý st yfi r a ð að ge rð ir fo rse ta sa m ræ m ist e kk i s tjó rn ar sk rá . Þingið staðfestir val dóm ara, Þingið getur vísað dóm urum frá. H æ stiréttur getur lýst lög andstæ ð stjórnarskrá. Eftirlit (þingnefndir), þingið staðfestir emb- ættisveitingar, fer með fjárveitingarvaldið. Kjósendur Löggjafarvald 63 þingmenn Ráðherrar sitja á þingi Þingræði (ákveður forystu framkvæmdar- valdsins, eftirlit með framkvæmdarvaldinu.) Undirbýr lagasetningu. Áhrif á stjórnar-myndanir. (Takmarkast af þingræðisreglu). Hlutverk Alþingis:Fulltrúa- og umræðu-hlutverk: Að sjónarmið í samfélaginu hafi rödd.Löggjafarhlutverkið: Þingið er aðalhandhafi löggjafar-valdsins. Eftirlitshlutverkið: Vakta framkvæmdarvaldið og veita því aðhald. Fjárveitingarvald. Löggjafarvaldið: Fulltrúadeild: fjöldi fulltrúa eftir hlutfalli íbúa í ríkjum. Kjör-tímabil 2 ár. Öldungadeild: Tveir frá hverju ríki. Kjörtímabil 6 ár. Framkvæmdavaldið:Forseti er æðsti maður framkvæmdavaldsins og þjóðhöfðingi í senn.Forsetinn er yfirmaður bandaríska hersins. Undir forsetann heyra ráðuneyti og stofnanir með fjórar milljónir starfsmanna. Ráðherrar oftast 15. Helstu ráðgjafar forseta og sitja utan þings. Dómsvaldið: Skipan hæstaréttardómara er eitt mikilvægasta hlutverk forseta.Hæstiréttur er sá valdamesti í heimi og hefur mikil áhrif á lagasetningu. KOSTIR ■ Þingmenn hafa mikil tækifæri til að beita sér í þinginu. Minni möguleikar á fjölmennum þingum. ■ Hlutfallskosningar og líklegra að ólíkir hugmyndastraumar fái rödd. ■ Þingræðið er skilvirkt. Lagasetning einföld. ■ Valddreifing meiri en í forsetaræði. GALLAR ■ Misræmi í atkvæðav i KOSTIR ■ Þingmenn sjálfstæðir, flokksræði ekki jafn sterkt og víða annars staðar. ■ Einfalt að bregðast við atburðum eða aðstæðum. ■ Stöðugra kerfi en þingræði. ■ Reglulegri kosningar. ■ Aðhald dómsvaldsins með laga-setningu. GALLAR ■ Frambjóðendur lítilla flokka eiga erfitt uppdráttar. ■ Kosið í fulltrúadeild á tve jf i Getur vísað lögum til þjóðaratkvæða-greiðslu. Setur lög. Handhafar fram-kvæmdarvalds sjá um að framkvæma þá stefnu sem sett er af löggjafar-valdi og úrskurðað um af dómsvaldi. Á Íslandi er forseti æðsti handhafi framkvæmdar-valdsins. Hann framselur valdið til forsætisráðherra. Umboðskeðjan. Kjósendur fram-selja vald til þings, þing til forsætis-ráðherra eða ríkisstjórnar, stjórn til ráðherra, ráðherrar til ráðuneytis, ráðuneyti til stofnana og síðan til almennra starfsmanna í opinbera geiranum. Dæ m ir um e m bæ tti s- ta km ör k y fir va ld a FRÉTTASKÝRING SVAVAR HÁVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.